Þjóðviljinn - 12.04.1989, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 12. aprfl 1989 69. tólublað 54. árgangur
A Iþýðuflokkurinn
GuÖmundurÁrni Stefánsson: Trúiþvíekki að ráðherrar Alþýðu-
flokksins geri út á að tapa manni í kosningum. Jón Baldvin vill senda
Kjartan Jóhannsson til Brussel. Jón Sigurðsson íhugar aðflytja sig í
Reykjaneskjördœmi af ótta við að falla út af þingi ella
spyrja sig þeirrar spurningar
hvort það sé vegna ráðherranna
að flokkurinn stendur svona illa í
skoðanakönnunum og taka þá
sjálfum sér tak. Við Reyknesing-
ar höfum hingað til ekki þurft að
flytja inn þingmenn annarsstaðar
að. Hér er fjöldinn allur af hæfu
fólki til þess að taka að sér þing-
mennsku og ég veit ekki betur en
að það hafi farið ágætlega um Jón
Sigurðsson í Reykjavík. Pótt
hann sé búsettur á Seltjarnarnesi
þá er hann þingmaður Reykvík-
inga,“ sagði Guðmundur Árni.
Fari svo að Jón fái þingsæti
Kjartans þá væri áratuga hefð
fyrir því að hafnfirskur krati
vermdi efsta sæti listans í kjör-
dæminu brotin, en Guðmundur
Árni hefur verið nefndur sem
þingmannskandídat krata í Hafn-
arfirði. Þá væri Seltirningur í
efsta sæti, en Alþýðuflokkurinn
er ekki með flokksfélag í því
bæjarfélagi og Karl Steinar
Guðnason, Keflvíkingur í öðru
sæti. Sterkustu vígi krata í
Reykjanesi í atkvæðamagni eru
hinsvegar stóru bæjarfélögin,
Hafnarfjörður og Kópavogur, og
þau ættu þá litla möguleika á að
eignast þingmenn.
-Sáf
r
Eg trúi því ekki að ráðherrar
Alþýðuflokksins, sem allir eru
úr Rcykjavík, geri út á það í
næstu kosningum að tapa manni í
Reykjavík eða annarsstaðar,
sagði Guðmundur Árni Stefáns-
son bæjarstjóri í Hafnarfirði við
blaðamann Þjóðviljans í gær.
Einsog skýrt var frá í Nýju
Helgarblaði Þjóöviljans fyrir
tveimur vikum þá stendur til að
gera Kjartan JóHannsson að
sendiherra. Þar kom fram að til
greina kæmi að hann tæki við
sendiherrastöðu í Brussel eða í
Washington. Nú hefur Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra tilkynnt að Kjartan taki við
„sendiherrastöðu“ hjá Efnahags-
bandalagi Evrópu í Brússel í
sumar, en engin heimild er fyrir
þessari stöðu á fjárlögum.
Við það losnar þingsæti í
Reykjaneskjördæmi og í DV í
gær er greint frá því að upp hafi
komið hugmyndir hjá forystu Al-
þýðuflokksins um að Jón Sig-
urðsson viðskiptaráðherra taki
sæti Kjartans á framboðslista Al-
þýðuflokksins í Reykjanesi eink-
um vegna slæmrar útkomu í
skoðanakönnunum að undan-
fömu, en mikil hætta er talin á að
flokkurinn tapi einum af þremur
mönnum sínum í Reykjavík.
„Mér finnst það mikið veik-
leikamerki hjá ráðherrunum ef
þeir ætla að gera út á Reykjanes-
kjördæmi. Þeir ættu frekar að
Uppi eru hugmyndir í Alþýðuflokknum um að Jón Sigurðsson flýi
Reykjavík í öruggt þingsæti Kjartans Jóhannssonar í Reykjaneskjör-
dæmi.
Alþingismenn
Lokaö fyrir
tvöföld laun
Engin biðlaun afsali þingmaður sérþing-
mennsku. Frumvarp lagtfram í efri deild ígœr
að undirlagi allra forseta þingsins. Guðrún
Helgadóttir: Ætlumst til þess að það sama gildi
um ráðherra og aðra opinbera embœttismenn.
Sverrirfékk tvöföld laun enAlbertfœr ekki
biðlaun verði frumvarpið samþykkt
Þingmenn úr öllum flokkum
hafa lagt til þær breytingar á
lögum um þingfararkaup alþing-
ismanna að afsali þingmaður sér
þingmennsku og hverfi til ann-
arra launaðra starfa falli réttur
hans til biðlauna niður. Verði til-
lagan samþykkt er komið í veg
fyrir að þingmenn séu á tvöföld-
um launum í allt að 6 mánuði, láti
þeir af þingmennsku og taki við
öðrum launuðum störfum, eins
og Sverrir Hermannsson nýtti sér
er hann hætti á þingi og tók við
embætti bankastjóra í Lands-
bankanum á sl. ári.
Tillagan sem lögð var fram í
efri deild alþingis í gær er flutt að
undirlagi allra forseta þingsins,
en fyrsti flutningsmaður er Jón
Helgason forseti Efri deildar.
Fullvíst má telja að breytingatil-
Iagan verði samþykkt fyrir þing-
lok. Verði sú reyndin mun hún
þegar taka gildi og hafa áhrif á
laungreiðslur til Alberts Guð-
mundssonar sem í síðustu viku
sagði af sér þingmennsku til að
taka við störfum sendiherra í
Frakklandi og víðar.
Albert er á tvöföldum launum í
þessum mánuði. Hann sagði af
sér þingmennsku þann 3. apríl en
hafði þá fengið fyrirframgreidd
laun fyrir þann mánuö. Þá er
hann einnig á launum sem sendi-
herra í þessum mánuði. Sam-
kvæmt gildandi lögum ætti Al-
bert rétt á því að taka biðlaun í 6
mánuði frá og með næstu mán-
aðamótum, til viðbótar sendi-
herralaununum.
Verði breytingatillagan sam-
þykkt fellur réttur hans til bið-
launa niður og ríflega 800 þús.
krónur sparast fyrir ríkissjóð.
f greinargerð með tillögunni
sem lögð var fram á Alþingi í gær
segir m.a. að eftir upphaflegum
tilgangi laganna um þingfarar-
kaup alþingismanna hafi ekki
verið ætlunin að þingmenn, sem
segja af sér þingmennsku og
hverfi til annarra launaðar starfa,
nytu biðlauna. Slíkt tíðkist
hvorki á almennum vinnumark-
aði né hjá ríkinu. Þessi breyting
hafi hins vegar engin áhrif á rétt
þingmanna til biðlauna að kjört-
ímabili loknu.
„Rétturinn til biðlauna er for-
takslaus samkvæmt gildandi
lögum. Við viljum sýna gott for-
dæmi með því að taka á þessu
máli og við ætlumst til þess að
stjórnvöld sjái til þess að sömu
reglur gildi einnig fyrir ráðherra
og aðra opinbera embættis-
menn,“ sagði Guðrún Helgadótt-
ir forseti Sameinaðs þings í gær,
en hún sagðist ekki eiga von á
öðru en þessi breytingatillaga
yrði samþykkt fyrir þingslit.
-•g-
Ráðheira á f lótta
Siglóleigan
Siglfirðingar öskuvondir
Sama dag og Sigló hf. var úrskurðað gjaldþrota óskuðu heimamenn eftir
viðrœðum við skiptaráðanda um leigu á þrotabúinu en þeir voru ekki
virtir viðlits. Siglufjarðarbœr}fyrirtœki og einstaklingar undirbúa stofn-
unfélags um rœkjuvinnslu. OvísthvortÞormóðurrammi tekur Siglunes
að má segja að hér ríki al-
menn reiði meðal Siglfirðinga
vegna þess hvernig staðið var að
leigu á þrotabúi Sigló hf. fyrri
eigenda fyrirtækisins. Sama dag
og fyrirtækið var úrskurðað
gjaldþrota sendu nokkrir heima-
menn bréf til skiptaráðanda þar
sem farið var fram á viðræður
um leigu á þrotabúinu en þá var
búið að leigja það fyrri eigendum
án þess að rætt hafi verið við
bæjaryfirvöld sem er stór kröfu-
hafi í búið, sagði ísak Ólafsson
bæjarstjóri í Siglufirði.
I fyrrakvöld komu saman til
fundar fulltrúar 10 -12 fyrirtækja
á Siglufirði ásamt bæjarstjóra og
áhugasömum einstaklingum um
stofnun félags um rækjuvinnslu í
bænum. Á fundinum var skipuð
3ja manna nefnd til að undirbúa
stofnfund sem ætlunin er að
halda von bráðar. Tilgangur með
stofnun félagsins er að bjóða í
þrotabú Sigló hf. þegar jjar að
kemur til að efla ítök heima-
hf. í viðskipti
manna í atvinnulífi bæjarins, en
ekki að láta utanbæjarmenn
ráðskast með það sem hafa það
eitt að leiðarljósi að maka krók-
inn án tillits til hagsmuna bæjar-
félagsins og íbúa þess. En þrír af
fjórum hluthöfum Sigluness hf.
eru utanbæjarmenn, þeir Jón
Guðiaugur Magnússon fram-
kvæmdastjóri Marbakka hf. í
Kópavogi og stjórnarmaður í
Niðursuðuverksmiðjunni hf. á
ísafirði, Magnús Aspelund og
Guðmundur Arnaldsson sem
jafnframt er stjórnarformaður
fyrirtækisins. Áðeins fram-
kvæmdastjórinn Guðmundur
Skarphéðinsson er heimamaður.
Að sögn ísaks Ólafssonar bæj-
arstjóra er ljóst að bæjaryfirvöld
munu ekki sýna Siglunesi hf.
sömu biðlund með reikningsskil
við bæinn og fyrirtæki hans eins
og gert var í þau fjögur ár sem
Sigló hf. var rekið. Þá hefur
stjórn Þormóðs ramma hf. ekki
enn tekið ákvörðun um að taka
fyrirtækið í viðskipti en Sigló hf.
hafði afnot af frystigeymslum
Þormóðs ramma undir rækjuaf-
urðir sínar. Vitað er að fram-
kvæmdastjóri Þormóðs er ekki
ginnkeyptur fyrir að taka nýja
fyrirtækið í viðskipti og hefur
málið komið til kasta stjórnar
fyrirtækisins. Að sögn Einars
Sveinssonar stjórnarformanns
Þormóðs ramma hefur engin
ákvörðun enn verið tekin um það
og óvíst hvenær það verður gert.
Fari svo að Siglunes hf. fái ekki
afnot af frystigeymslum Þormóðs
ramma getur það orðið rekstrin-
um fjötur um fót.
Að sögn Kolbeins Friðbjarnar-
sonar varaformanns verkalýðsfé-
lagsins Vöku skuldar þrotabú
Sigló hf. félaginu 11 miljónir
króna, aðallega vegna vangold-
inna greiðslna í lifeyris- og
sjúkrasjóði á árunum 1984 og
1985 auk vaxtakostnaðar.
-grh