Þjóðviljinn - 18.04.1989, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 18. apríl 1989 72. tölublað 54. órgangur
Blóðbankinn
Neyðarástand ríkir
Ólafurjensson: Neyðarástandríkjandisem versnar með hverjum deginum. Gœtiþurftað senda
sjúklinga á sjúkrahús erlendis, dragist deila BHMR og ríkisins mikið á langinn
Sextán félagar í Félagi íslenskra náttúrufræðinga sem starfa við Blóðbankann hafa staðið í verkfalli síðustu
vikuna. Ólafur Jensson, yfirlæknir í Blóðbankanum, segir að nú ríki neyðarástand vegna þess að bráðatil-
fellum sem þurfi að sinna fari sífellt fjölgandi. FÍN hefur veitt undanþágu fyrir tvo félaga til starfa við
Blóðbankann. Mynd Jim Smart.
Við höfum getað tekið inn nýtt
blóð í nokkrum mæli til að
nota í bráðatiifellum. En nú eftir
þessa fyrstu viku í verkfalli þyng-
ist róðurinn því sífellt fjölgar til-
fellum sem ekki þola bið. Það má
segja að hér ríki neyðarástand,“
sagði Ólafur Jensson, yfirlæknir
Blóðbankans, þegar Þjóðviljinn
innti hann eftir áhrifum verkfalls
Félags íslenskra náttúrufræðinga
á starfsemi Blóðbankans. Alls eru
16 félagar I FÍN í verkfalli í Blóð-
bankanum og hafa 11 þeirra unn-
ið við söfnun og meðhöndlun
blóðgjafa. Hefur verið veitt unda-
nþága fyrir einn félaga í FIN til
starfa við Blóðbankann frá upp-
hafi verkfalls og annan eftir að
verkfallið hófst.
Sagði Ólafur að reynsla væri
fyrir því að það mætti þola verk-
fall af þessu tagi nokkuð vel
fyrstu vikuna, hægt væri að sinna
bráðatilfellum, svo sem vegna
slysa og annars. „Það sem er að
gerast núna er að þau tilfelli, sem
slegið hefur verið á frest, eru að
verða bráðatilfelli. Það eru fund-
ir á hverjum morgni með starfs-
mönnum og rekstrarstjórn spítal-
ans til að ræða málin og það er
greinilegt að róðurinn þyngist
með degi hverjum," sagði
Ólafur.
Hann sagði að Félag íslenskra
náttúrufræðinga hefði veitt und-
anþágur þegar sannanlega væri
um neyðartilfelli að ræða. „Við
erum náttúrlega háðir ákvörðun-
um læknanna á deildunum og
þeirra ráðgjafa um hvað teljast
bráðatilfelli. Það er raunverulega
neyðarástand í gangi sem verður
umfangsmeira eftir því sem
lengra líður og öngþveitið vex.
En maður reiknar með að lausn
finnist á þessum deilum sem
fyrst,“ sagði Ólafur.
Ekki taldi Ólafur raunhæft að
flytja inn blóð erlendis frá, þá
væri verið að taka mikla áhættu
því ekki væri unnt að gæðameta
slíkar blóðsendingar. Á hinn
bóginn kæmi til greina að senda
sjúklinga, sem ekki gætu fengið
nauðsynlega þjónustu hér heima,
til útíanda. „Það er auðvitað
meiriháttar álag á sjúklinga og
aðstandendur, að ógleymdum
kostnaði, þannig að menn eru
ekki áfram um þá lausn. Það hef-
ur enn ekki komið til þessa, en
það er alveg klárt að til þess kann
að koma, ef þessi deila heldur
lengi áfram,“ sagði Ólafur Jens-
son.
Alvarlegt ástand er einnig að
skapast í skólastarfi og í dag eða
morgun verður tekin ákvörðun
umhvort samræmdu prófinverða
haldin á þessu vori.
phh
Sjá síðu 2
Þorlákshöfn
Lifandi humar
til Ameríku
Smári hf.: 120 kíló af
humri á dag úr 450-500
gildrum. Markaðirí
Bandaríkjunum, Japan,
Sviss og Frakklandi
- Við metum það svo að grund-
völlur sé fyrir þessum veiðum og
útflutningi. Nýjungin er fólgin í
því að við sendum humarinn lif-
andi út til kaupenda og fyrir vikið
fæst betri nýting á honum en ella.
Humarinn er látinn liggja á ís í 5
kflóa pakkningum og þannig á
hann að geta lifað í þrjá sólar-
hringa,“ sagði Þorvaldur Garð-
arsson forstjóri lax- og seiðaeldis-
fyrirtækisins Smára hf. í Þorláks-
höfn.
Að fengnu leyfi frá sjávarút-
vegsráðuneytinu í síðasta mánuði
hófust tilraunaveiðar með hum-
argildrur úti fyrir suðurströnd-
inni og núna eru Smáramenn
með 450-500 gildrur í notkun og
reikna með að fjölga þeim upp í 2
þúsund. Að meðaltali hafa feng-
ist um 120 kíló í gildrurnar á dag.
í fyrradag fór 100 kílóa sending til
Bandaríkjanna en áður höfðu
verið sendar tvær 5 kílóa tilraun-
asendingar þangað og til Japans.
Að sögn Þorvaldar Garðars-
sonar er mikill áhugi á lifandi
humri í Bandaríkjunum, Japan,
Sviss og Frakklandi og víðar. Þá
hafa danskir aðilar sýnt áhuga á
að kaupa frystan humar. Þor-
valdur bjóst við að flytja humar-
inn út ýmist frosinn eða lifandi í
sumar, eftir aðstæðum. Um 1200
krónur hafa fengist fyrir kílóið af
humrinum lifandi.
-grh
Brynjólfur Bjamason látinn
Brynjólfur Bjarnason lést á
sunnudag í Danmörku, 90 ára að
aldri.
Brynjólfur er í þeirra hópi sem
einna mest mót hafa sett á ís-
lenskt samfélag þessarar aldar
með störfum sínum að stjórnmál-
um, en líklegt er að þegar fram
líða stundir verði hans ekki síður
minnst fyrir fræðilegt framlag
sitt.
Brynjólfur fæddist 26. maí
1898 að Hæli í Gnúpverjahreppi
og var alinn upp á Ölvisholti í
Flóa. Hann varð stúdent í
Reykjavík 1918 og las raunvísindi
og heimspeki í Kaupmannahöfn
og Berlín til 1924, og var kennari
við Kvennaskólann og Gagn-
fræðaskólann í Reykjavík fyrstu
árin eftir að heim kom.
Á námsárum sínum heima og
erlendis komst Brynjólfur í kynni
við sósíalíska hreyfingu, og
skipaði sér fljótt í forystusveit
hins róttækasta hluta hennar.
Hann var formaður Kommún-
istaflokks íslands frá stofnun
1930 og til loka 1938, og varð einn
þriggja þingmanna flokksins
1937, sat á þingi samfleytt 19 ár,
frá 1938 fyrir hinn nýja Samein-
ingarflokk alþýðu - Sósíalista-
flokkinn. Brynjólfur hætti þing-
mennsku 1956, í þann mund að
Sósíalistaflokkurinn gekk til sam-
starfs við aðra vinstrimenn í
kosningasamtökum Alþýðu-
bandalagsins.
Brynjólfur varð menntamála-
ráðherra þegar Sósíalistaflokkur-
inn tók þátt í tímamótaráðuneyti
Ólafs Thors, nýsköpunarstjórn-
inni 1944-47, og voru fyrir hans
tilstilli stigin róttæk framfara-
skref í menntakerfinu, fræðslu-
lögin sem síðan giltu í nær þrjá
áratugi og umbæturnar í gagn-
fræðaskólunum, verknámsdeild-
irnar og landsprófið. Rauður
þráður í þessu starfi öllu var að
auka menntun alþýðu, jafna
möguleika til náms og ryðja burt
þeim fjötrum sem búseta og
stéttaskipting lögðu á menntun-
arkosti ungs fólks og um leið á
það nýja iðnvædda samfélag sem
ljóst var að sprytti úr hildarleik
styrjaldarinnar. Væri orðstír
Brynjólfs af þriggja ára ráðherra-
starfi raunar einn saman nægur til
að halda nafni hans á lofti.
Allan þingtíma sinn var Brynj-
ólfur Bjarnason einn af fáum
ótvíræðum leiðtogum íslenskra
stjórnmála, naut mikillar virðing-
ar samherja og flestra andstæð-
inga og þótti einn víðsýnasti gáfu-
maður innan þingveggja þeim
sem til þekktu, - sem meðal ann-
ars leiddi til jress við aðstæður
þeirra tíma að ráðist var að
Brynjólfi í pólitík með meiri heift
en að öðrum mönnum, ef til vill
að undanteknum samstarfsmanni
hans í fjóra áratugi, Einari Ol-
geirssyni.
Þeirra nöfn verða ekki sundur
slitin þegar minnst er stjórnmála-
starfs og verkalýðsbaráttu fyrr á
öldinni, og telja margir að hreyf-
ing róttækra vinstrimanna hefði
átt sér aðra sögu og síðri ef ekki
hefði notið ótvíræðra mannkosta
og heilsteyptrar samvinnu þeirra
Einars.
Brynjólfur tók mikinn þátt í að
koma ýmsum helstu pólitísku rit-
um sósíalista á íslensku, og þýddi
í félagi meðal annars rit Marx,
Engels og Maós, en pólitísk verk
Brynjólfs sjálfs í ræðuformi og
ritgerða eru aðgengilegust í
bókunum „Með storminn í fangið
I—111“ í útgáfu Máls og menning-
ar.
Eftir að Brynjólfur hætti þing-
mennsku dró hann smátt og
smátt úr störfum sínum á dag-
legum pólitískum vettvangi - sem
hann síðar sagðist hafa litið á
fyrst og fremst sem einskonar
þegnskyldu sína. Var hvort-
tveggja að tímarnir sem í hönd
fóru buðu ekki þá kosti að Brynj-
ólfur þættist til kallaður, og þó
frekar hitt að hann kaus að hverfa
til heimspekilegrar iðkunar. Eftir
hann liggja sex fræðibækur um
heimspeki, sú síðasta frá 1980, og
að auki nýleg samræðubók hans
við Halldór Guðjónsson og Pál
Skúlason um þessi efni. Brynjólf-
ur nýtur í þessum fræðum þess
álits að vera af yngri mönnum
kallaður fyrsti eiginlegi heim-
spekihöfundur íslendinga.
Brynjólfur kvæntist árið 1928
Hallfríði Jónasdóttur og áttu þau
eina dóttur sem nú býr í Dan-
mörku.
Brynjólfur Bjarnason var einn
þeirra sem á sínum tíma komu á
fót dagblaðinu Þjóðviljanum, og
var ritstjóri forvera hans, Verka-
lýðsblaðsins.
Þjóðviljinn minnist því eins
frumkvöðla sinna um leið og
kvaddur er forvígismaður í sósí-
alískri hreyfingu, áhrifamaður í
íslandssögu aldarinnar og virtur
fræðimaður sem ekki hikaði þótt
stórt þyrfti að spyrja. Blaðið
sendir nánustu aðstandendum
Brynjólfs innilegar samúðar-
kveðjur. Ritstj.