Þjóðviljinn - 20.04.1989, Side 1

Þjóðviljinn - 20.04.1989, Side 1
Fimmtudagur 20. apríl 1989 74. tölublað 54. árgangur Strandhögg Verktakar í gersku ævintýri Icecon hefurgert tilboð í byggingu fiskeldisstöðvar íSovétríkjunum. Skýrist ívor hvort íslenskir verktakar hasla sér völl í Sovét. Gleðilegt sumarl Ófaglærðir veðurspámenn töidu í gærkvöldi að útlit væri fyrir rigningu um allt land nú á sumardaginn fyrsta, þannig að regnhlífin beri sigurorð af sólgleraugunum I skrúðgöngum dagsins. Allt um það líta menn vonglaðir frammá veg og fagna fyrsta degi hörpu í dag. Mynd Jim Smart. Hagvirki býður Verktakafyrirtækið Icecon , í eigu Sambandsins, SH og SIF hefur gert tilboð í byggingu fisk- eldisstöðvar í Pcdrovosk í Sovét- ríkjunum, en Álafoss mun hafa haft milligöngu um verkið. Hag- virki er undirverktaki í tilboðinu. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskir verktakar gera tilboð í verkefni í Sovétríkjunum. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans mun Rússum hafa fundist tilboð Icecon í hærra lagi. Þó telja menn alls ekki loku fyrir það skotið að samningar náist en talið er að málin skýrist í þessum mán- uði eða næsta. Páll Gíslason hjá Icecon vildi ekkert tjá sig um málið á þessu stigi. Jóhann Bergþórsson forstjóri Hagvirkis vildi heldur ekki tjá sig og vísaði á Pál. Hagvirki hefur hinsvegar fleiri járn í eldinum en það gerska og hefur nýverið gert tilboð í endurbyggingu verslun- armiðstöðvar og íbúðarhúsnæðis í Glasgow í Skotlandi. Það verk hljóðar upp á um 200 miljónir króna. BHMR og ríkið Engin sáttatillaga í sjónmáli GuðlaugurÞorvaldsson sáttasemjari: Allt of mikið berímilli til að raunhceft sé að leggjafram sáttatillögu. IndriðiH. Þorláksson: Að óbreyttum kröfum BHMR er tilgangslaust að rœða málin. Páll Halldórsson: Boltinn er hjá ríkinu Hnútur sá sem samningavið- ræður BHMR og ríkisins hafa verið í virðist nú herðast æ meir. Forystumenn samninganefnda deiluaðila hafa hvor um sig lýst því yfir að ekki sé grundvöllur fyrir frekara frumkvæði af þeirra hálfu fyrr en gagnaðili lýsi sig reiðubúinn að slá af sínu og Guð- laugur Þorvaldsson ríkissátta- semjari telur að enginn grund- völlur sé fyrir framlagningu sátt- atillögu í málinu, „Ríkið hefur ekki rætt af al- vöru okkar síðustu tillögur og boltinn er því í þeirra höndum. Við erum hins vegar tilbúnir til viðræðna um flesta hluti því margt er órætt,“ sagði Páll Hall- dórsson í samtali við Þjóðviljann BSRB Urslít á morgun Urslit í atkvæðagreiðslu um nýja kjarasamninga BSRB verða tilkynnt á morgun hjá flest- um stærstu félögum sambands- ins. Atkvæðagreiðslu er þegar lokið hjá nær öllum félögunum. í gærkvöld höfðp nokkur félög þegar lokið talningu atkvæða en ákveðið var að bíða með að birta úrslit þar til á morgun. ] Meðal þeirra félaga sem lokið hafa talningu atkvæða eru Póst- mannafélagið og Starfsmannafé- lag Reykjavíkurborgar. Kjör- fundi hjá borgarstarfsmönnum lauk í gærkvöld erj hann hafði þá staðið í tvo daga.\Alls voru um 800 bþnir að greiða atkvæði síð- degis jí gær af ium 2600 félags- mönnnm. -•g- í fyrradag. Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkis- ins lýsti því yfir í gær að ekki væri tilefni til fundar meðan BHMR héldi kröfum sínum óbreyttum til streitu. „Því fer víðsfjarri að það taki því að leggja fram sáttatillögu eins og málin standa núna. Eg veit ekki hvað er til ráða í stöðu- nni, en ég tel það afskaplega ór- áðlegt og væri aðeins til að spilla málinu ef sáttatillaga yrði lögð fram núna. Sáttatillaga er yfirleitt ekki borin upp fyrr en afskaplega lítið ber í milli og þá sem neyðar- úrræði,“ sagði Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Hann sagði það vera sitt hlutverk að fá menn til að semja, en ekki að móta einhverja stefnu sem væri ef til vill báðum deiluaðilum á móti skapi. „Ef sáttatillaga er felld er búið að læsa málinu enn meira en áður,“ sagði Guðlaugur. BHMR hélt í gær blaðamanna- fund þar sem m.a. voru lagðir fram útreikningar á launakröfum BHMR fyrir nokkra starfshópa og sýndu að launakröfur BHMR eru allfjarri því að ná markaðs- launum fyrir „sambærilega" hópa á almennum markaði. í þeim dæmum sem BHMR lagði fram í gær voru launahækkanir á bilinu 30-45%. Á fundinum heyrðust einnig raddir sem bentu á að í samanburði við Norðurlönd væru kjör háskólamenntaðra manna hérlendis heldur klén. Ríkis- stjórninni væri nauðsyn á að líta lengra fram á veginn en til haustsins, því annars blasti við að háskólamenntaðir menn leituðu út til Norðurlandanna í atvinnu- leit, enda væru þeir flestir fullfærir á þeim vinnumarkaði. Deila ASÍ og VSÍ er nú komin í hendur sáttasemjara og sagði Guðlaugur Þorvaldsson að aðilar hefðu orðið ásáttir um að næsti fundur yrði haldinn strax eftir helgi. phh verk í Glasgow Glasgow á stórafmæli um þess- ar mundir að sögn Jóhanns og því er mikil uppbygging í gangi þar. Ástralskt fyrirtæki keppir við Hagvirki um verkið en heima- menn hafa ekki sýnt áhuga. Ef Hagvirki fær verkið munu þeir ráða Skota til starfa nema í stjórnunarstöður. Ef af Rúss- landsævintýrinu verður munu fs- lendingar hinsvegar sjá þar um öll verk. _Sáf Alþingi Hreyfing á húsbréfum Húsbréfin úr félagsmálanefnd neðri deildar á mánudag. VMSI mœlir með samþykkt, ASI á móti Hreyfíng er að komast á hús- bréfafrumvarp félagsmálaráð- herra á þingi, og í gær hlaut það óvæntan stuðning í áliti VMSI til nefndar í neðri deild. Áður hafði ASI sent frá sér álit þar sem fram kemur eindregin andstaða við frumvarpið. Að sögn Jóns Sœmundar Sig- urjónssonar Alþýðuflokki, for- manns félagsmálanefndar neðri deildar sem nú fjallar um hús- bréfin, er frumvarpið í þann mund að hljóta lokaafgreiðslu og á hann von á því að það fari til deildar á ný á mánudag. í samtali við Þjóðviljann í gær kvaðst hann reikna með því að nefndarmenn- irnir Guðrún Helgadótlir og Jón Kristjánsson gerðu líkt og hann að greiða frumvarpinu atkvæði í samræmi við samkomulag stjórn- arflokkanna en að Alexander Stefánsson skilaði séráliti. Óvíst væri um afstöðu stjórnarfjenda í nefndinni en Jón Sæmundur bjóst ekki við að þeir myndu reyna að bregða fæti fyrir af- greiðslu. Jón Sæmundur vísaði því á bug að Alexander, kunnasti andstæð- ingur húsbréfa á þingi, reyndi að tefja málið í nefnd. Hann heíði að sönnu leitað álits og umsagna fjölda sérfræðinga en það hefði allt verið afar eðlilegt því hús- bréfamálið væri umfangsmikið og flókið. Hann sagði Alþýðu- flokksmenn leggja höfuðáherslu á að húsbréfin yrðu að lögum fyrir þingslit sem og frumvarp um verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga. ks

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.