Þjóðviljinn - 22.04.1989, Blaðsíða 6
Þrotlaus
vinna og betl
íslandsmótið í 1. deild karla í
knattspyrnu hefst 21. maí og viku
seinnaí2. deild. Fjárhagsáætlanir
félaganna eru frá nokkrum miljón-
um og uppí tæpar 20 miljónir
króna. 9 miljóna króna tap varð á
rekstri KSÍ 1988. Lítill skilningur á
afreksíþróttum hérlendis
Félagsliðin í knattspyrnunni
eru þegar farin að undirbúa
sig fyrir leiki sumarins og eftir
mánaðartíma, þann 21. maí,
verða fyrstu leikirnir í 1. deild
karla og viku seinna i 2. deild auk
keppni í meistaraflokki kvenna og
yngri flokkum beggja kynja.
Óhætt er að fullyrða að knatts-
pyrnan sé langvinsælasta íþrótta-
greinin hérlendis sem og víðar
auk þess að vera sú fjölmennasta.
En það er ekki nóg að hafa áhuga
á knattspyrnu og vera góður leik-
maður ef viðkomandi félagslið
hefur ekki úr nægilegu fjármagni
að moða því kostnaðurinn við að
taka þátt í Islandsmótinu hleypur
á nokkrum miljónum og allt upp í
tæpar 20 miljónir hjá stærstu fé-
lögunum á höfuðborgarsvæðinu.
Misjafnar
aöstæöur
Þá eru aðstæður liðanna til
æfinga og æfingaleikja fyrir átök
sumarsins mjög svo misjafnar. í
Reykjavík geta liðin æft og keppt
á gervigrasvellinum í Laugardal
en hjá öðrum eru vellirnir enn
undirsnjóeinsogt.d. áÓlafsfirði
þar sem enn er 80 sm þykkt snjó-
lag á vellinum. Hjá mörgum
landsbyggðarliðum eru leikmenn
dreifðir um land allt og ekki
óþekkt fyrirbrigði að leikmenn
æfi í tveimur landsfjórðungum.
Hjá vel flestum liðum er tak-
markið að sigra í sínum flokki og
deild og ekkert til sparað að svo
geti orðið. Til þess þurfa forráða-
menn félaganna og leikmenn að
leggja hart að sér við peninga-
öflun auk æfinga. í smærri bæjar-
félögum þar sem viðkomandi fé-
lagslið hefur náð einhverjum ár-
angri ss. að komast í 1. eða 2.
deild leggjast allir á eitt að skapa
liðinu fjárhagslegan grundvöll en
í stærri bæjarfélögum og á höfuð-
borgarsvæðinu er málið að ná
hagstæðum auglýsingasamning-
um við stórfyrirtæki og aðra aðila
sem tilbúnir eru að leggja sitt af
mörkum fjárhagslega. En til að
svo megi verða þurfa forráða-
menn félaganna að leggja á sig
þrotlausa vinnu, betl og hafa allar
klær úti til að afla fjár til starfsem-
innar.
Einn stærsti útgjaldaliðurinn
hjá knattspyrnuliðunum er ferða-
kostnaðurinn. í ár er hann ma.
áætlaður um 2 miljónir króna hjá
liðum í 2. deild sem þurfa að ferð-
ast um þvert og endilangt landið
en mun minni hjá 1. deildarliðum
sem þurfa aðeins að skreppa
tvisvar sinnum í deildakeppninni
norður á Akureyri fyrir utan
ferðalög vegna bikarkeppninnar.
Á siðasta keppnistímabili nam
hann rúmlega 1,2 miljónum
króna hjá liðum í 1. deild svo
dæmi sé nefnt. Þessu til viðbótar
kemur ferðakostnaður þeirra liða
sem hafa náð að tryggja sér þátt-
tökurétt í Evrópukeppnum. í
ferðum innanlands fá félögin
25% afslátt hjá flugfélögunum,
svonefndur KSÍ-afsláttur en að
auki hafa þau gefið 10% afslátt til
viðbótar að loknu keppnistíma-
bilinu.
Atvinnu-
mennskan
ber aö dyrum
Þeir sem fylgst hafa með þróun
knattspyrnunnar hérlendis vita
að skilin á milli áhugamennsk-
unnar og atvinnumennskunnar
eru sífellt að verða minni og
stundum álitamál hvort viðkom-
andi leikmaður er ekki í raun
atvinnumaður í greininni. Einna
skýrast hefur þetta komið í ljós
þegar landsbyggðarlið hefur náð
þeim árangri að vinna sig upp í 1.
deild. Til að styrkja viðkomandi
lið í deildinni eru víurnar bornar í
efnilega leikmenn úr öðrum lið-
um sem einhverra hluta vegna
hafa ekki hlotið náð hjá þjálfar-
anum eða vilja breyta til og gerast
stjörnur í stjörnuiausu liði.
Þessir leikmenn eru þá ráðnir
til málamynda í vinnu hjá fyrir-
tækjum í bænum sem greiða þeim
laun án þess að þeir þurfi að skila
neinni vinnu nema þá til að sýn-
ast. Þá þarf viðkomandi félag að
útvega.leikmanninum íbúð og sjá
honúm fyrir uppihaldi yfir sumar-
ið og dæmi eru um að félagið hafi
einnig þurft að sjá viðkomandi
fyrir bíl. Áframhaldið ræðst síðan
af því hvort liðið hefur náð ein-
hverjum árangri eða fallið. Ef svo
er hverfa þessir stjörnuleikmenn
á braut til annarra félaga sem
bjóða gull og græna skóga. Hið
sama gildir að sjálfsögðu hjá
stóru félögunum á höfuðborgar-
svæðinu.
1-og 2. deild
karla
Á síðasta keppnistímabili varð
knattspynrufélagið Fram íslands-
meistari í 1. deild karla en Valur
bikarmeistari. Þá féllu niður í 2.
deild Leiftur frá Ólafsfirði og
Völsungur frá Húsavík. í þeirra
stað leika nú í 1. deild sigurvegar-
arnir úr 2. deild í fyrra, FH og
Fylkir. Stjarnan úr Garðabæ og
Einherji frá Vopnafirði unnu sig
upp úr 3. deild og leika í 2. deild í
sumar. Þetta er jafnframt í fyrsta
sinn sem Stjarnan leikur í 2. deild
og er greinilega uppgangur í
knattspyrnunni í Garðabæ ekki
síður en í handknattleiknum.
Að auki leika eftirfarandi lið í
1. deild karla í sumar: Fram, Val-
ur, KR, ÍA, Víkingur, ÍBK, KA,
Þór, FH og Fylkir. í 2. deild: Völ-
sungur, Leiftur, Breiðablik, ÍR,
Víðir í Garði, Selfoss, Tindastóll,
ÍBV, Stjarnan og Einherji.
Aðsókn að knattspyrnu-
leikjum hefur á síðustu árum ver-
ið sveiflukennd á bilinu 700-900
manns að meðaltali á leik í 1.
deild. Ástæðurnar geta verið
margar en á síðasta keppnistíma-
bili fór fram Evrópukeppni
landsliða þar sem sjónvarpað var
beint frá fjölmörgum leikjum og
datt þá aðsóknin niður á leiki ís-
landsmótsins á meðan á henni
stóð. Þá hefur veðurfarið einnig
sín áhrif á aðsóknina en á höfuð-
borgarsvæðinu býður aðeins eitt
félagslið, Fram, áhorfendum upp
á yfirbyggða stúku. Það er líka
eina félagsliðið í Reykjavík sem
leikur sína heimaleiki í Laugar-
dal. Hin Reykjavíkurliðin leika
heimaleiki sína á eigin völlum
sem satt best að segja eru margir
ákaflega vanbúnir til að hýsa
áhorfendur. Að vísu er yfirbyggð
stúka við Valsvöllinn en hún
tekur aðeins 150 manns. Til að
mynda var engin salernisaðstaða
á Víkingsvellinum við Hæðar-
garð þegar liðið fór að leika
heimaleikina þar á síðasta kepp-
nistímabili.
Þá hefur það líka sitt að segja
með aðsókn hvort einhver
spenna er í baráttunni um fs-
landsmeistaratitilinn. Á síðasta
keppnistímabili voru yfirburðir
Fram-liðsins það miklir að liðið
var búið að sigra í 1. deildinni
nokkru áður en kom að síðustu
umferðinni. Hvort svo verður í
sumar er ómögulegt að spá um en
það er næsta víst að liðin mæta til
leiks í næsta mánuði með það
markmið í huga að velta Fram af
stallinum. Það er síðan allt önnur
Ella hvort það tekst.
Niöurskuröur
hjá KSÍ
Níu miljóna króna tap varð á
rekstri Knattspyrnusambands ís-
lands á síðasta ári en heildarvelta
sambandsins nam um 50 miljón-
um króna og er búist við svipaðri
veltu í ár. Til að rétta við fjárhag-
inn hefur niðurskurðarhnífnum
verið beitt og td. var hætt við
þátttöku í fjögurra landa móti á
Möltu í febrúar og gestalandsleik
við Búlgaríu sem fram átti að fara
í maí. Auk þess hefur sambandið
verið gagnrýnt fyrir sinnuleysi á
unglingastarfi og ekki síst upp-
byggingu kvennaknattspyrnunn-
ar. 18 ára landslið karla var dreg-
ið út úr Evrópukeppninni og
kvennalandsliðsstarf hefur legið
niðri um skeið. Unglingastarf í
kvennaflokki hefur farið verst út
úr niðurskurðinum og segja þeir
sem gerst þekkja að það sé varla
til. Hvernig eigum við að geta
náð árangri í A-landsliðum þegar
allri uppbyggingu er ábótavant?
Engu að síður verða 3 lands-
leikir leiknir hér heima í sumar f
riðlakeppni Heimsmeistara-
keppninnar og tveir ytra. Fyrsti
landsleikur ársins er reyndar vin-
áttulandsleikur gegn Englend-
ingum á Laugardalsvellinum 19.
maí. Þann 31. maí verður leikið
við Sovétmenn í Moskvu, 14. júní
við Austurríkismenn hér heima
og aftur við þá 23. ágúst í Vínar-
borg. Þann 6. september verður
leikið við landslið A-Þjóðverja
hér heima og síðasti landsleikur
sumarsins verður svo í haust, 20.
september þegar Tyrkir sækja
okkur heim. Landsliðsþjálfari er
sem fyrr Herr Held sem að eigin
sögn hefur ávallt náð þeim ár-
6 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 22. apríl 1989