Þjóðviljinn - 26.04.1989, Page 1

Þjóðviljinn - 26.04.1989, Page 1
Miðvikudagur 26. apríl 1989 77. tölublað 54. órgangur Félagslegar íbúðir Ekkert gerst í heilt ár! Húsnœðisbandalag átta samtaka mótmœlirfullkomnu aðgerðarleysi viðfélagslegar íbúðabyggingar og krefstþess að hendur standiframmúr ermum. Vilja 1000 íbúðir árlega nœstu ár. Arnþór Helgason: Viðkvœðið er „komdu í gœr“ Atta almannasamtök héldu í mars í fyrra blaðamannafund til að mótmæla niðurskurði og seinagangi í húsnæðismálum og vanrækslu félagslega hlutans. I gær, eftir rúmt ár, héldu samtök- in átta annan blaðamannafund, og er dómur þeirra um árið sá að engin breyting hafi orðið, nema þá til verri áttar. Húsnæðishópurinn krefst þess að lánveitingar til félagslegra íbúða í ár verði ekki minni en áætlað var að yrðu í fyrra, en sú áætlun skrapp saman um 20% þegar til stykkisins kom, og beinir því til stjórna lífeyrissjóð- anna að láta þriðjung af sínu framlagi renna til félagslegra bygginga í samræmi við lagaheit frá 1974 um að þriðjungur ný- bygginga verði innan félagslega geirans. Rauntalan síðan er 13,5%, eða um 230 íbúðir á ári. Hópurinn vill að nú verði gerð áætlun til að minnsta kosti þriggja ára og byggðar 900-1000 íbúðir á ári til að vinna upp þessa vanrækslu í hálfan annan áratug og verði sköpuð um þá áætlun víðtæk samstaða opinberra aðila og almannasamtaka. Þá leggja samtökin áherslu á að nú verði að hraða endur- skoðun á félagslega kerfinu, sam- ræma lög um það og gera það skilvirkara, og telja samtökin að tillögur um þetta geti legið fyrir í haust. Á blaðamannafundinum í húsnæði Sjálfsbjargar að Hátúni í gær voru auk gestgjafa fulltrúar frá Öryrkjabandalaginu, Þroska- hjálp, Samtökum aldraðra, Stú- dentaráði, Bandalagi sérskóla- nema, Leigjendasamtökunum og Búseta, en þessi samtök mynda húsnæðishópinn, sem oft eru kennd við einkunnarorðin „Þak yfir höfuðið". Að auki voru á fundinum fulltrúar og samstarfs- menn úr verkalýðshreyfingu og sveitarstjórnum, þar á meðal Kristbjörn Árnason frá Félagi starfsfólks í húsgagnaiðnaði, Sig- urður T. Sigurðsson frá Hlíf og Tryggvi Jakobsson frá BHMR, og Guðmundur Arni Stefánsson bæjarstjóri í Hafnarfirði. „Komdu í gær“ sagði Arnþór Helgason fulltrúi öryrkja á fund- inum vera viðkvæðið þegar rætt væri við valdamenn um félags- legar íbúðir, - og vitnaði í sögu frá Eyjum um úrsmið sem hafð týnt úrinu sem hann ætlaði að gera við. Kristbjörn rakti dæmi af fé- lagslegum íbúðum í Reykjavík: 1986 voru umsóknir um verka- mannabústaði 692 og voru veittar 250 íbúðir, þaraf 100 nýjar. Síðan hefur umsóknum fjölgað á hverju ári, og eru á þessu ári 1130. Vænt- anlegar úthlutanir eru 215, þaraf 100 nýjar íbúðir. - Félagslega kerfið er núna af- gangsstærð í húsnæðismálum, sagði einn fulltrúanna á blaða- mannafundinum. -Það er byrjað Frá blaðamannafundi húsnæðishópsins í gær. Á myndinni sjást meðal annarra Jóhann Pétur Sveinsson formann Sjálfsbjargar, Andrés Ragnarsson framkvæmdastjóra Þroskahjálpar, Kristbjörn Árnason formann Félags starfsfólks í húsgagnaiðnaði, Jónas Fr. Jónsson frá Stúdentaráði, Bjarna Ingólfsson frá BÍSN, Sigurjón Þorbergsson Leigjendasamtökunum, Hans Jörgensson frá Samtökum aldraðra, Arnþór Helga- son og Ólöfu Ríkharðsdóttur frá Öryrkjabandalaginu, Sigurð T. Sigurðsson formann Hlífar og Guðmund Árna Stefánsson bæjarstjóra Hafnfirðinga. (Mynd: Jim) BHMR Við gefumst ekki upp Fjölmennurfundur BHMR-félaga bar vott um sterka samstöðu íáfram- haldandi baráttu Wincie Jóhannsdóttir, formaður HÍK, ræðir við Ove Engman, kollega sinn í Svíþjóð, við upphaf fundarins í gær. Mynd - þóm. Kjarasamningar VSÍ fordæmir ríkisstjómina Sambandsstjórn VSÍ fordæmir þá afstöðu ríkisstjórnarinnar að hækka laun opinberra starfs- manna um 10% en grípa ekki um leið til nauðsynlegra aðgerða til bjargar „atvinnulífinu“ svo það geti boðið sínum viðsemjendum sömu kjarabætur. Segir VSI að það geti með engum hætti skrifað upp á „BSRB-samninga“ fyrir sína viðsemjendur og lýsir allri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni vegna yfirvofandi kjaradeilna. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra segir BHMR hafa hafnað því boði sínu að taka upp óformlegar viðræður við ríkið. Baráttufundur BHMR skoraði hins vegar á fjármálaráðherra að ganga til viðræðna. Enn situr því allt fast á þeim vígstöðvum. Óformlegar viðræður KÍ og samninganefndar rikisins halda hins vegar áfram í dag og er þar verið að ræða um ýmis sérmál kennara. KÍ samþykkti í gær að veita HÍK 2 miljónir króna úr kjaradeilusjóði og verða þeir peningar afhentir nk. föstudag. phh Háskólamenntaðir starfsmenn ríkisins héldu baráttufund í Bíóborginni i gær. Fundurinn sýndi sterka samstöðu þeirra á að slaka í engu á kröfum sínum. Langvarandi verkfall virðist því síður en svo draga úr fólki innan BHMR. Fundarstjóri í þétt setnu bíóinu var Gunnlaugur Ástgeirsson kennari. Ávörp fluttu Lilja Stef- ánsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Magnús Guðjónsson, dýra- læknir, Margrét Heinreksdóttir, lögfræðingur og Wincie Jóhanns- dóttir, formaður HÍK og varafor- maður BHMR. Þá ávarpaði sænski kennarinn Ove Engman samkomuna en hann er formaður Lárna riksforbund í Svíþjóð. Það kom fram í máli þeirra allra að félagar í BHMR mættu alls ekki gefast upp nú þegar á móti blæs. Áður en fundinum lauk las Gunnlaugur Ástgeirsson upp bréf til Ólafs Ragnars Gríms- sonar, fjármálaráðherra, þar sem vinnubrögð hans í samningamál- um eru gagnrýnd harðlega. Bréf- inu var fagnað með dynjandi lófataki. Fundinum bárust margar bar- áttukveðjur og var skorað á BHMR-félaga að standa þétt saman. Á milli ávarpa voru flutt skemmtiatriði og baráttusöngv- ar. -þóm á öfugum enda, sagði annar, hugsað helst um þá sem eiga eða eru að eignast, í staðinn fyrir að huga fyrst að þeim sem eiga ekki og geta sumir aldrei átt. -m Sjá leiðara Mannréttindi Jónsmálið fyrir dómstóla Mannréttindanefnd E vr- ópu óskar eftirþví að kœra Jóns Kristinssonar á hendur stjórnvöldum verði tekin til dómsmeðferðar í E vrópu- dómstólnum Mannréttindarnefnd Evrópu í Strassbourg hefur ákveðið að leggja fyrir Mannréttindadóm- stól Evrópu kæru Jóns Kristins- sonar gegn íslenskum stjórnvöld- um. Nefndin lagði fram skýrslu sína fyrir fáum dögum þar sem hún lét f Ijós það einróma álit sitt að íslensk stjórnvöld hafl brotið gegn 1. mgr. 6. gr. mannréttinda- sáttmálans. Kæra Jóns Kristinssonar frá Akureyri á hendur íslenskum stjórnvöldum var lögð fram fyrir réttum þremur árum, en tilefni hennar var það að Jón undi því ekki að sami maður kæmi fram bæði sem lögreglustjóri og dóm- ari í ákærumáli gegn sér. Hér væri tvímæialaust um brot að ræða á stjórnarskrá lýðveldisins sem kveður á um aðskilnað dóms- valds og framkvæmdavalds. Mannréttindanefnd Evrópu tekur einróma undir álit Jóns og lögmanns hans, Eiríks Tómas- sonar sem flutti mál hans fyrir dómstólnum. Segir nefndin í bréfi sínu til Mannréttindadóm- stólsins að með því að leggja mál þetta fyrir dómstólinn vilji hún fá úrlausn hans um það, hvort kær- andi hafi orðið fyrir broti gegn þeim réttindum sem umrædd grein sáttmálans veitir, eða ekki. Hefur nefndin jafnframt skipað Gauk Jörundsson umboðsmann Alþingis sem fulltrúa sinn til þátt- töku í athugun málsins fyrir Mannréttindadómstólnum. Búist er við að niðurstöðu dómsins sé ekki að vænta fyrr en eftir eitt til tvö ár. Fyrir Alþingi liggur nú til afgreiðslu í nefnd frumvarp dómsmálaráðherra um skýra afmörkun dóms- og lög- gjafarvalds, en það frumvarp er tilkomið í beinu framhaldi af málaferlum Jóns Kristinssonar gegn stjórnvöldum fyrir Mann- réttindadómstólnum. -*g-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.