Þjóðviljinn - 26.04.1989, Síða 2
FRETTIR
Bókmenntir
Ekki sú fyrsta
af þrjátíu
Nýr höfundur, Heiður Baldursdóttir, hlaut íslensku barnabókaverð-
launin
I
voru afhent í gær í fjórða sinn.
Þau hlaut í ár Heiður Baldursdótt-
ir, þrítugur kennari þroskaheftra
við Safamýrarskólann, fyrir
ævintýrabókina Álagadalinn. I
dómnefnd sátu Sigrún Klara
Hannesdóttir frá Barnabókaráði,
Ragnar Gíslason frá forlaginu
Vöku-Helgafelli sem gefur bókina
út, Ármann Kr. Einarsson sem er
aðili og hvatamaður að sjóðnum,
Jón Freyr Þórarinsson frá
Sumargjöf og Anna Sigurðar-
dóttir nemandi í Öldutúnsskóla
fyrir hönd lesenda.
Svo vill til að nýr höfundur hef-
ur hlotið þessi verðlaun í öll
skiptin. Þó eru þeim engin skil-
yrði sett sem senda handrit til
sjóðsins. í ár bárust 23 handrit,
en árið 1986 þegar þau voru veitt í
fyrsta sinn, komu 80. „Þá fannst
okkur að margir hefðu farið í
skúffur sínar og dregið upp
gömul handrit,“ sagði Sigrún
Klara; „nú skrifar fólk frekar
beint fyrir þessa samkeppni."
Heiður Baldursdóttir sagði að
Álagadalurinn hefði verið í smíð-
um í tvö til þrjú ár. Börnin henn-
ar hefðu lesið söguna jafnóðum
og gefið margar góðar ábending-
ar. En var þetta það fyrsta sem
hún skrifaði af þessu tagi?
„Ég skrifaði sögur þegar ég var
stelpa en í menntaskóla eiga
nemendur að skrifa heimildarit-
gerðir en ekki skáldskap og ég
hætti alveg í langan tíma.“
Hvað lastu sjálf þegar þú varst
lítil?
„Þá lá ég í þjóðsögum Jóns
Árnasonar og spennubókum. Ég
tók á safninu einmitt bækur með
svona ævintýralegum titlum og
mig langar til að börn vilji fá bók-
ina mína lánaða, að bókarheitið
laði þau að sér. Ég var ekki
menningarleg í bókavali, uppá-
haldið mitt var Bob Moran sem
ég skil ekki núna. Ég greip í hann
um daginn og fannst hann aga-
legur! En ég held að ég skilji
hvers vegna krakkar eru sólgnir í
þessar bækur á tímabili. Þetta eru
oft fyrstu stóru bækurnar sem
þau lesa. Þau hafa verið að lesa
stuttar sögur og þegar þau byrja
að lesa „alvörubækur“ sækja þau
í að taka sama flokkinn aftur og
aftur. Það gefur þeim öryggi.
Þetta er ákveðið stig í að læra að
lesa, og auk þess sækjast böm
eftir spennu."
Álagadalurinn er þá upphaf á
bókaflokki?
„Ég ætla ekki að skrifa þrjátíu
bækur um þessar persónur, en
mér hefur dottið í hug að skrifa
aðra.“ SA
Heiður Baldursdóttir með börnum sínum. Mynd Jim Smart
Pýsk-íslenska
Ollum kröfum vísaö fra
Ríkisskattanefnd, sem er nokk-
urs konar hæstiréttur í skatt-
Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl: Mun verjast innheimtufyrir rétti.
Garðar Valdimarsson: Skuld Þýsk-íslenska stendur óhögguð
vegna vanreifunar. í niðurstöðu
ríkisskattanefndar segir að ríkis-
akerfinu hefur vísað frá kærum
Þýsk-íslenska og ríkisskattstjóra
UMFÍ
Landhreinsun í sumar
Ungmennafélagshreyfingin hef-
ur ákveðið að nota samtaka-
mátt sinn til að hreinsa almenni-
lega til við þjóðvegakerfi lands-
manna í sumar. Ráðgert er að
ganga meðfram 5000 km. vegak-
afla og tína upp allt að 100 tonn af
rusli.
- Okkur finnst þetta vera
brýnt verkefni og full ástæða til
að hreinsa til, segir Jóhanna Le-
opoldsdóttir sem hefur unnið að
undirbúningi þessa mikla hreins-
unarátaks á vegum Ungmennafé-
lagsins.
Að sögn Jóhönnu er reiknað
með að allt að 8000 félagar í
hreyfingunni taki höndum saman
en hreinsað verður helgina 10,-
11. júní. Hvert félag mun sjá um
tiltektina á sínu svæði og vænst er
þátttöku sem flestra landsmanna
og leitað verður eftir samstarfi
við ýmsa aðila s.s. sveitarfélögin.
- Það er mikill áhugi fyrir
þessu verkefni í Ungmennafélög-
unum og við eigum sannarlega
von á góðri þátttöku og mikilli
landhreinsun í sumar, sagði Jó-
hanna. _|g.
skattstjóri hefði átt að láta skatt-
rannsóknarstjóra framkvæma
nýja skattrannsókn á skattfram-
tali Þýsk-íslenska frá 1985 eða
krefja skattrannsóknarstjóra um
rannsóknarskýrslu hans á skatt-
aframtali Þýsk-íslenska áður en
hann endurákvarðaði gjöld Þýsk-
íslenska. Þetta hafi ekki verið gert
og því er málinu vísað frá.
Telja kunnugir að ríkisskatt-
stjóri hafi valið ranga leið í þessu
máli. í stað þessa að leggja á fyr-
irtækið á grundvelli mjög vara-
hugaverðs bókhalds, hefði verið
réttara að áætla skatta á fyrirtæk-
ið.
Ríkisskattanefnd fellir þó ekki
niður áður álögð gjöld ákveðin af
ríkisskattstjóra á Þýsk-íslenska,
en það er í höndum Gjald-
heimtunnar að innheimta þær 45
miljónir sem á voru lagðar, auk
20 miljóna í dráttarvexti. Þýsk-
íslenska kærði hins vegar væntan-
lega innheimtu Gjaldheimtunnar
til borgarfógeta og mun málið
verða tekið þar fyrir þann 18.
maí.
Niðurstaða ríkisskattanefndar
er talið áfall fyrir ríkisskattstjóra
og kvaðst Jón Steinar Gunn-
laugsson hrl. verjandi Þýsk-
íslenska munu verjast „með
kjafti og klóm“ fyrir borgarfóg-
eta og beita fyrir sig úrskurði
ríkisskattanefndar. „Ríkisskatta-
nefnd hefur úrskurðað auka-
álagningu ríkisskattstjóra ólög-
lega og kippt grundvellinum
undan skattlagningunni á þeim
grundvelli,“ sagði Jón Steinar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Guðmundur Vignir Jósefsson,
Gjaldheimtustjóri sagði að
Gjaldheimtan gæti ekki annað en
haldið áfram innheimtu sinni á
skattaskuld Þýsk-íslenska, það
væri þeim skylt. „En ég skal ekki
segja um hvernig málið fer fyrir
borgarfógeta, það verður að
koma í ljós.“
Garðar Valdimarsson, núver-
andi skattrannsóknarstjóri sagð-
ist ekki vilja tjá sig um forsendur
dómsins, en benti á að ríkis-
skattanefnd hefði ekki fellt niður
áður ákveðna álagningu ríkis-
skattstjóra. Hún væri áfram til
innheimtu. Um væntanlega
niðurstöðu málsins hjá Borgar-
fótgeta vildi hann ekki spá, málið
væri ekki í hans höndum lengur.
Garðar var á sínum tíma skatt-
rannsóknarstjóri þegar meint
skattsvik Þýsk-íslenska komu
fram í dagsljósið en gerðist síðar
ríkisskattstjóri skömmu eftir að
málinu var vísað þangað. Vék
hann því sæti og sérstakur ríkis-
skattstjóri var skipaður, Sig-
mundur Stefánsson núverandi
skattstjóri í Reykjanesumdæmi.
-phh
Heræfingum
mótmælt
Alþýðubandalagið í uppsveitum
Árnessýslu hefur mótmælt harð-
lega fyrirhuguðum heræfingum
Bandaríkjahers á Miðnesheiði í
sumar. Ér lýst fullri ábyrgð á
hendur utanríkisráðherra fyrir að
ögra íslenskri alþýðu með því að
leyfa ósómann. Þá vekur stjórn
félagsins athygli á því að á hverju
hausti stundi bandarískar her-
flugvélar lágflugsæfingar yfir afr-
éttarlöndum uppsveitarmanna.
Æfingar þessar nái einatt niður
undir byggð með tilheyrandi
eldsneytistöku á flugi. Þessi
svæði teljist ekki til svokallaðra
„varnarsvæða“ og er því beint til
utanríkisráðherra að hann láti
kanna hvað hér sé á ferðinni og
með hverra leyfi.
2,1% hækkun
byggingavísitölu
Vísitala byggingakostnaðar
hækkaði um 2,1% í mánuðinum.
Helstu ástæður eru 3,3% hækkun
á steypu og 6,8% hækkun á sem-
enti sem ollu 0,3% hækkun vísi-
tölunnar og verðhækkanir ýmissa
annarra liða ollu tæplega 1%
hækkun vísitölunnar. Síðustu 12
mánuði hefur byggingarvísitalan
hækkað um 25,5% en síðustu
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 7,3% sem samsvarar
32,8% árshækkun.
Sunnlenska
atvinnustefnu
10. þing Alþýðusambands Suður-
lands sem haldið var í Vík í Mýr-
dal á dögunum skorar á
sunnlenskar sveitarstjórnir, at-
vinnurekendur á Suðurlandi og
ríkisvaldið, og þar með talið
þingmenn Suðurlandskjördæm-
is, að taka höndum saman við
sambandið um mótun sunn-
lenskrar atvinnustefnu til eflingar
og framfara sunnlenskra byggða.
Atvinnuástand hefur verið mjög
slæmt víða á Suðurlandi undan-
farin misseri og í einstaka
byggðalögum hefur verið viðvar-
andi atvinnuleysi um langt skeið.
Þá samþykkti þingið einnig álykt-
un þar sem fyrirhuguðum heræf-
ingum Bandaríkjahers hérlendis í
sumar er mótmælt.
85% í
flugmalastjorn
Talningu lauk á mánudag í Félagi
flugmálastarfsmanna ríkisins um
samninga BSRB og voru þeir
samþykktir með um 85% at-
kvæða. 61 sagði já, 9 nei, auðir
seðlar voru 2 og atkvæði greiddu
því 72 af 128 á kjörskrá. Þessi
úrslit eru hlutfallslega nánast
samhljóða niðurstöðum í hinum
samningafélögunum tíu frá því
fyrir helgi. Þegar allt er lagt sam-
an hafa 6.812 greitt atkvæði af
10.194 á kjörskrá í félögunum el-
lefu (66,8%), 5711 sagt já
(83,8%), 969 nei (14,2%, 132
skilað auðu eða gert ógilt (1,9%).
Reyklaus
framtíð
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
stendur fyrir undirbúningsfundi
samtakanna S.A. (smokers an-
onymous). á morgun fimmtudag.
Samtök þessi munu starfa í anda
A.A. hreyfingarinnar með það
að markmiði að styðja fólk í
þeirri viðleitni að halda sig frá
tóbaki eftir að það hættir að
reykja. Undirbúningsfundurinn
verður haldinn í húsakynnum
Krabbameinsfélagsins að Skóg-
arhlíð 8 í Reykjavík og hefst kl.
20.00 á fimmtudagskvöld.
Árleg tón-
listarverðlaun
Menntamálaráðherrar Norður-
landanna hafa ákveðið að Tón-
listarverðlaun Norðurlandaráðs
sem hingað til hafa verið veitt
annað hvert ár, verði hér eftir
veitt árlega. Þetta var samþykkt á
fundi ráðherranna sem haldinn
var í Kaupmannahöfn fyrr í þess-
um mánuði. Svavar Gestsson
stýrði þessum fundi ráðherranna
en hann gegnir nú formennsku í
ráðherranefnd menntamála.
Sumartíð í
Stjórnarráðinu
Sumartími tekur gildi í Stjórnar-
ráðinu frá og með 1. maí nk. Þá
verða skrifstofur kerfisins opnað-
ar kl. 8 á morgnana í stað 9 og
opið til kl. 16 í stað 17 alla virka
daga fram til loka september.
Skógræktina
út land
Skógræktarfélag Rangæinga hef-
ur fagnað þeim hugmyndum sem
uppi eru um að flytja aðalstöðvar
Skógræktar ríkisins út á land.
Telur félagið að Suðurland sé
vænlegasti kosturinn fyrir aðal-
stöðvar Skógræktarinnar en um
2/3 hluta besta skógræktarlands á
landinu sé að finna í uppsveitum
Suðurlands og þar séu fyrir höf-
uðstöðvar Landgræðslu ríkisins.
Doktor
í lífeðlisfræði
Guðmundur Jóhann Arason
varði fyrr í vetur doktorsritgerð í
lífeðlisfræði við Lundúna-
háskóla. Guðmundur fæddist á
Fagurhólsmýri í Öræfum 1954 en
fluttist síðar til Reykjavíkur.
Hann lauk námi frá HÍ í líffærði
árið 1979 og stundaði síðan fram-
haldsnám við Bedford College í
London. Hann starfarnú á Rann-
sóknastofu í ónæmisfræði við
Landspítalann.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 26. apríl 1989