Þjóðviljinn - 27.04.1989, Qupperneq 1
Fimmtudagur 27. apríl 1989 78. tölublað 54. árgangur
Samningarnir
Halldór hellir olíu á eldinn
Sjávarútvegsráðherra segirfiskvinnsluna ekkiþola kauphœkkun. BSRB- samningarnir og samningarASI ífyrra alltofháir.
Asmundur Stefánsson: Atök efekki semst nœstu daga. Björn GrétarSveinsson: Furðulegyfirlýsing og röng.
ÓlafurRagnar Grímsson: BSRB-samningarnir samþykktir einróma í ríkisstjórninni
að er rétt að halda ró sinni þó
að Halldór sé með yfirlýsing-
ar um að fískvinnslan þoli engar
kauphækkanir en bæði hann og
ríkisstjórnin og atvinnurekendur
verða að gera sér grein fyrir því
að annaðhvort semja menn á
næstu dögum eða að siglt verður í
átök, sagði Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ við Þjóðviljann í gær.
Halldór Ásgrímssonar sjávar-
útvegsráðherra lýsti því yfir á
fundi Sambandsfrystihúsanna í
gær um að fiskvinnslan þoldi eng-
ar kauphækkanir og að BSRB-
samningarnir núna og samningar
ASÍ í fyrra hefðu verið alltof háir.
Ásmundur sagði að ef fólki
yrði stillt þannig upp við vegg að
það yrði að fara í átök til þess að
ná samningum þá sé ljóst að
kröfugerð Alþýðusambandsins
yrði tekin til endurskoðunar.
„Það er allra hagur að samn-
ingar náist án átaka núna.“
Fulltrúar Alþýðusambandsins
og VSÍ hittust hjá sáttasemjara í
gærmorgun en ekkert nýtt kom
fram á þeim fundi. Síðdegis í gær
var miðstjórnarfundur ASÍ og í
framhaldi af honum fundaði mið-
stjórn með samninganefnd Al-
þýðusambandsins.
„Á fundinum kom fram ein-
dregin samstaða um að samið
yrði nú þegar. Það er ljóst að fé-
lögin hafa brugðist mjög vel við
að afla verkfallsheimildar en á
þessu stigi er ekki hægt að segja
hvenær gripið verður til verkfalls-
vopnsins,“ sagði Ásmundur.
„Við höfum nú þegar látið 15
% af okkar launum í að rétta við
fiskvinnsluna með því kaupmátt-
artapi sem við höfum orðið
fyrir,“ sagði Björn Grétar Sveins-
son varaformaður Verkamanna-
sambandsins í gær.
Björn Grétar sagði þessa yfir-
lýsingu sjávarútvegsráðherra all
furðulega á þessum tímapunkti
og ranga.
„Það er rangt að samningarnir í
fyrra hafi verið óraunhæfir. Ef
maður skoðar reikninga fisk-
vinnslufyrirtækis sem veltir milj-
arði á ári í útflutningsverðmætum
þá hefur launahlutfallið aukist úr
18% í 18,8% á þessu tímabili. í
þessu dæmi gerir það rúmar 9
miljónir króna. Fjármagnskostn-
aður og gengistöp vegna afurða-
lána hefur hinsvegar aukist um 62
miljónir króna á sama tíma.
Vandinn liggur því ekki í launun-
um heldur í fjármagnskostnaði
og gengisþróun einsog hún var
fyrri part ársins,“ sagði Björn
Grétar.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagðist ekkert hafa
um þessi ummæli Halldórs að
segja nema það að þegar hann
lagði samningana við BSRB fyrir
ríkisstjórnina hefðu þeir verið
samþykktir þar samhljóða, en
Halldór gagnrýndi þessa samn-
inga á fundinum með Sambands-
frystihúsunum og sagði þá óraun-
hæfa.
Viðraði Halldór ekkert þetta
álit sitt á BSRB-samningunum
innan ríkisstjórnarinnar?
„Nei, ég hef ekki heyrt mikið af
þessum skoðunum hans, enda
samþykkti ríkisstjórnin samning-
ana einróma á sínum tíma.“
Þú ert þá ekki sammála Hall-
dóri um að BSRB-samningarnir
hafi verið of háir?
Samningar náðust snemma í
gærmorgun milli Fóstrufélags
íslands og viðsemjenda sem eru
ríki og Reykjavíkurborg og eru
það fyrstu kjarasamningar fóstra
eftir að félag þeirra fékk sjálf-
stæðan samningsrétt.
Arna Jónsdóttir formaður
samninganefndar Fóstrufélags
íslands sagði í gær að launaliðir
samninganna væru á svipuðum
nótum og BSRB-samningarnir,
en auk þess hefðu verið skráðar
bókanir um ýmis sérmál fóstra
„Nei, ætli við höldum okkur
ekki við núverandi framleiðslu en
höfum æðarvarpið sem aukabú-
grein,“ sagði Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundar-
tanga, en undanfarin ár hefur
verið gerð tilraun með að koma
upp æðarvarpi við verksmiðj-
una.
Það er Bergmann Þorleifsson
sem hefur séð um að koma upp
æðarvarpinu við verksmiðjuna
en hann sér jafnframt um fisk-
eldisstöð sem hefur verið rekin
„Nei, ég er það ekki. Það er
rétt að minna á það í þessu sam-
bandi að BSRB-samningarnir
eru framm í september í takt við
iðnaðarmannasamninga sem VSÍ
sem nánar yrði fjallað um á samn-
ingstímanum.
Arna sagði að meðal annars
hefði náðst samkomulag um að
taka til umfjöllunar undirbún-
ingstíma fóstra á vinnustað, svo-
kallaða samstarfsdaga þegar
börn koma ekki á dagheimili og
fóstrur skipuleggja starfið fra-
mundan. Þá hefði náðst sam-
komulag um að ræða um mat á
námskeiðum fóstra, en ætlunin
væri að slík námskeið gæfu rétt til
launahækkana fyrir þátttakend-
ur. Fyrir nokkur þessara atriða
við Járnblendiverksmiðjuna í
nokkur ár.
„f sumar ættu fyrstu ungarnir
að fara að skila arði, því þeir eru
nú þrevetra og því orðnir kyn-
þroska,“ sagði Bergmann.
Undanfarin fjögur ár hefur
Bergmann verið með 40-60 unga
á vorin. Fyrsta veturinn drápust
þeir allir, en sex lifðu af annan
veturinn og það eru þeir sem eru
kynþroska núna. Þriðja veturinn
lifðu 17 ungar af og í vetur hafa 27
ungar verið við verksmiðjuna.
„Ætli inneign okkar hjá Sam-
gerði á sínum tíma og þegar þeir
samningar voru gerðir töluðu
þeir í VSÍ ekkert um gengis-
fellingar eða aðrar kjaraskerð-
ingar. Samkvæmt því er það varla
væri búið að tímasetja viðræður,
en öðrum væri vísað til samstarfs-
nefndar fóstra og viðsemjenda
þeirra.
Samningurinn verður kynntur
fóstrum á félagsfundi í dag og
vildi Arna ekki fjalla um hann
nánar fyrren eftir þann fund.
Eftir fjármálaráðherra var í
gær haft að hann telji þennan
samning ásamt nýgerðum Sókn-
arsamningi bera vott um „víð-
tæka samstöðu með launastefnu
ríkisstjórnarinnar". Arna sagðist
kjósa að orða þetta á annan veg.
bandinu sé ekki um 2000 krónur
fyrir innlagðan dún síðan við
byrjuðum," sagði Bergmann og
bætti því við að það væri töluvert í
það að æðardúnninn leysti járn-
blendið af hólmi.
„Þetta er fyrst og fremst gert til
þess að lífga upp á vorið. Það er
' mjög gaman af þessu þegar fugl-
inn spígsporar hér í kringum okk-
ur, að ég tali ekki um ef hann fer
að verpa undir veggjunum
hérna.“
-Sáf
fyrr en í október sem eitthvað
þarf að gera, og kannski rétt að
þeir bíði með hróp og köll þangað
til,“ sagði Ólafur Ragnar að lok-
um. -Sáf/m
Samkomulag um launaliði samn-
ingsins hefði ráðist af mjög
þröngri samningsstöðu Fóstrufé-
lagsins, en hins vegar væru fóst-
rur ánægðar með þá umfjöllun
sem sérmál þeirra hefðu fengið
og sýndi það ótvíræða kosti þess
að semja sem sjálfstætt stéttarfé-
lag. Fyrsta reynsla af því væri því
mjög jákvæð og hefði breytt að-
stöðu fóstra mikið.
Arna sagði hins vegar að eitt
mál væri óleyst, en það væri
samningar fóstra við sveitarfélög.
Launanefnd sveitarfélaga hefði
nýverið samið við bæjarstarfs-
mannafélög og lýst því yfir að þau
teldu að þeir samningar giltu fyrir
fóstrur er vinni hjá sveitarfé-
lögum.
Fóstrur hefðu flestallar gengið
úr bæjarstarfsmannafélögunum
við stofnun Fóstrufélags íslands,
og þar sem bæjarstarfsmannafé-
lögin hefðu sagt upp launalið
gildandi samninga litu fóstrur
þannig á að launaliður samninga
FÍ væri jafnframt laus. Afstaða
sveitarféíaga kæmi þeim mjög á
óvart. phh
Útför Brynjólfs
í dag
Útför Brynjólfs Bjarnasonar
verður gerð í dag frá Fossvogs-
kirkju og hefst kl. 13.30. Hans er
minnst í Þjóðviljanum í dag á síð-
um 5-11.
Glaðbeittar fóstrur hampa glóðvolgum kjarasamningi sínum fyrir utan Grettisgötuna i gær: Sigurhanna Sigurjónsdóttir, Björg Bjamadóttir,
Kristín Dýrfjörö og Arna Jónsdóttir, formaöur samninganefndar. ^ (Mynd: þóm)
Fyrstu samningamir í höfn
Launaliðirítakt við önnurBSRB-félög, ýmis sérmálfóstra. Arnajónsdóttir:
Breytir miklu að semja sem sjálfstœtt stéttarfélag
Grundartangi
Varpár í jámblendinu
Tilraun með œðarvarp við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Berg-
mann Þorleifsson: Fyrst og fremst til að lífga upp á vorið