Þjóðviljinn - 03.05.1989, Síða 4
FRÉTTIR
1. MAÍ
í Reykjavík
Myndir: Jim Smart
KJARASAMNINGAR
Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambandsins
Kjarasamningur
milli
Alþýðusambands íslands vegna
eftirtalinna landssambanda þess
og einstakra aðildarfélaga þeirra;
Verkamannasambands íslands,
Landssambands iðnverkafólks,
Landssambands íslenskra versl
unarmanna, Málm- ogskipa-
smiðasambands tslands, Félags
starfsfólks í húsgagnaiðnaði, Iðn-
nemasambands íslands, svo og
félaga með beina aðild að sam-
bandinu annars vegar
°g
Vinnuveitendasambands Islands
vegna aðildarfélaga þess og ein-
stakra meðlima og Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna
hins vegar og Reykjavíkurborg-
ar.
1. grein.
Allir kjarasamningar ofan-
greindra aðila framlengjast til 31.
desember 1989 með þeim
breytingum, sem í samningi þess-
um felast og falla þá úr gildi án
sérstakra uppsagna.
2. grein.
Heildarlaun á mánuði með föst-
um álögum, þ.e.a.s. stofn yfir-
vinnu og vaktaálags, miðað við
fullt starf hækki sem hér segir á
samningstímabilinu:
Við gildistöku samnings
um kr. 2.000.
Hinn 1. september um kr. 1.500.
Hinn 1. nóvember um kr. 1.000.
Framangreindar launahækkanir
koma í stað áður umsaminna á-
fangahækkana á samningstíma -
bilinu í þeim samningum, sem
gilda fram yfir 1. maí 1989 og
framlengjast þeir til 31.desember
1989, en falla þá úr gildi án
sérstakrar uppsagnar.
3. grein.
Reiknitölur hreins akkorðs,
ákvæðisvinnu og uppmælingar,
svo sem við ræstingu, við sfldar-
söltun, löndun, losun og lestun
hækki sem hér segir:
Við gildistöku samnings um
3,8%
Hinn 1. september um 2,8%
Hinn 1. nóvember um 1,9%
4. grein.
Fæðisgjald, fatapeningar, nám-
skeiðsálag, launatillegg og verk-
færagjald og hliðstæðar greiðslur
hækka ekki. Fastlaunauppbót og
önnur afkastahvetjandi launa-
kerfi en hreint akkorð, svo sem
bónus og premía hækki sem hér
segir:
Við gildistöku um 2,0%
Hinn 1. september um 1,0%
Hinn 1. nóvember um 1,0%
5. grein.
Við mat á starfsaldri til launa telst
21 árs aldur jafngilda 1 árs starfi í
starfsgrein, en 24 ára aldur gefur
rétt til launa skv. næsta starfsald-
ursþrepi þar ofan við.
6. grein.
Fastráðið starfsfólk, sem hefur
áunnið sér fullan orlofsrétt, með
starfi hjá sama vinnuveitanda
næstliðið orlofsár og er í starfi í
maíbyrjun, skal við upphaf or-
lofstöku eða eigi síðar en 15. ág-
úst fá greidda sérstaka ein-
greiðslu, orlofsuppbót, kr. 6.500,
miðað við fullt starf, en hlutfalls-
lega miðað við starfshlutfall og
starfstíma. Full vinna skv. fram-
ansögðu er 1700 klst. í dagvinnu.
Hafi launþegi færri dagvinnu-
stundir að baki skal fara með það
uppgjör með sama hætti og des-
emberuppbót.
Pað telst vinnutími samkvæmt
þessari grein, þótt maður sé frá
vinnu vegna veikinda eða slysa,
meðan hann fær greitt kaup eða
hann er í orlofi.
Á orlofsuppbót greiðist ekki or-
lof, né heldur myndar hún stofn
fyrir yfirvinnu.
7. grein.
Desemberuppbót í samningum
aðila hækki í kr. 9.000.
8. grein.
Samningur þessi öðlast gildi við
staðfestingu einstakra aðildarfé-
laga Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambands íslands
og Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna og gildir þá frá og
með 1. maí 1989, enda hafi
Vinnuveitendasambandi íslands
eða Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna borist tilkynning
um samþykki viðkomandi verka-
lýðsfélags fyrir kl. 12.00 á hádegi
föstudaginn 19. maí 1989. Berist
tilkynning um samþykki ekki
innan ofangreinds frests öðlast
samningurinn fyrst gildi frá og
með þeim tíma, er tilkynning
berst.
Reykjavík, 1. maí 1989
BÓKUNI
um réttarstöðu starfsmanna við
eigendaskipti að fyrirtæki.
Samningsaðilar eru sammála um
það að eigendaskipti að fyrir-
tækjum eða samruni fyrirtækja
geti ekki breytt ráðningar-
kjörum, þar með talið orlofs- og
veikindarétti, starfsmanna, nema
undan hafi farið uppsögn ráðn-
ingarsamnings. Gagnkvæmur
uppsagnarfrestur aðila breytist
ekki við eigendaskipti að fyrir-
tæki.
Aðilar eru sammála um það að
fyrri eigandi kynni fyrirhugaðar
breytingar á rekstri eða sölu fyrir-
tækis, með eins miklum fyrirvara
og kostur er.
Við eigendaskipti að fyrirtæki
gengur hinn nýi eigandi inn í rétt-
indi og skyldur fyrri eiganda
gagnvart starfsfólki, nema starfs-
fólk sé í kaupsamningi sérstak-
lega undanskilið. Telji hinn nýi
eigandi sig þannig óbundinn af
ráðningarsamningum fyrri
eiganda ber honum að tilkynna
starfsmanni það strax og hann
tekur við rekstri fyrirtækisins. Ef
svo er, er fyrri eigandi skuld-
bundinn til að greiða starfsfólki
uppsagnarfrest skv. ráðningar-
samningi eða kjarasamningi.
BÓKUN II
Með vísan til reglna um greiðslur
vegna veikinda barna, er það
sameiginlegur skilningur aðila,
að með foreldri sé einnig átt við
fósturforeldri eða forráðamann,
sem er framfærandi barns og
komi þá í stað foreldris.
BÓKUN III
Aðilar eru sammála um að stefnt
skuli að aukinni hlutdeild kvenna
í stj órnunarstörfum í fyrirtækj-
um.
Jafnhliða þessu er stefnt að því að
konur takist á hendur ábyrgð-
armeiri og hærra launuð störf.
Aðilar eru sammála um að skipa
viðræðuhóp, sem skoði hver þró-
un launamunar karla og kvenna
hefur verið, hvað skýri hann og
kanni leiðir til að draga úr hon-
um.
BÓKUN
Aðilar eru sammála um að samið
skuli um launakjör iðnnema mið-
vikudaginn 3. maí nk.