Þjóðviljinn - 03.05.1989, Síða 15
Guðmundur LJÓSVAKINN Að selja okkur
Andri Thorsson óskasteininn
Á meðan hér var haldin mikil
og merk ráðstefna um gagnrýni
sem mér hefði verið sæmst að
mæta á til þess að fá að vita hvern-
ig maður á að fara að þessu og á
meðan ótal nýir þættir hófu
i göngu sína í útvarpi og sjónvarpi
svo af nógu ætti að vera að taka
fyrir mig, var ég að slæpast í Par-
ísarborg gersamlega áhugalaus
um allt sem viðkemur fjölmiðl-
um. Nú eru Frakkar sérfræðingar
í andn'kum samræðum í sjónvarpi
svo ég ætti að geta sagt frá því, og
undrast um leið hvers vegna við
fáum ekki meira af slíku hér, þar
er meira að segja heimsfrægur
spjallþáttur um bókmenntir einu
sinni í viku sem menn þreytast
ekki á að lofa, en því miður,
kvöldin fóru í annað hjá mér.
Nema eitt. Atvikin höguðu því
menn að þeir hlífi mér við þessu.
Hvers vegna? Hvers vegna mega
þessir menn ekki drýgja tekjur
sínar, rétt eins og leikarar og
popparar og aðrir? Búum við
ekki í frjálsu landi eða er þetta
Rússland eða Svíþjóð? Og hvað
er að auglýsingum? Eru þær ekki
bara skjótvirk og á stundum list-
ræn miðlun upplýsinga í samfé-
laginu? Og þó að þær ýki kannski
svolítið sumar stundum, erum við
ekki fullorðin og kunnum fótum
okkar forráð í henni versu?
Jújú, auðvitað. Fólk er ekki
kjánar, það sér í gegnum þetta.
En það má alltaf reyna - auglýs-
ingar eru sífellt að reyna að höfða
til kjánans í okkur. Þær höfða til
okkar verri manns. Þær spila svo
oft á hégómaskap okkar, ágirnd,
hofmóð, átsýki, efnishyggju,
hamingjusamur því skorturinn er
fyrir bí. Og rétt eins og giidir um
aðrar vel sagðar sögur hreyfa
auglýsingar við fleiru en skyn-
semi okkar.
En svo aftur sé vikið að því
hvers vegna óheppilegt er að fast-
ir starfsmenn Ríkisútvarpsins séu
að auglýsa. Starf þeirra er að
segja okkur satt. Og þótt þeir
telji sig í auglýsingu vera að segja
alveg satt og hafi tröllatrú á þeirri
vöru sem þeir mæla með er það
ekki málið. Við sem heima sitjum
vitum það eitt að þeir hafa fengið
greitt fyrir að halda þessu fram,
að þeir eru að selja trúverðug-
leika sinn, að þeir eru að rugla
saman mjög óskyldum „sögum“
ef svo má orða það, því auðvitað
eru fréttir og fréttatengdir þættir
líka að vissu leyti sögur. Og það
Kvennakjaftæði" er ekki út í bláinn.
svo til að ég horfði á barnatíma
ásamt litlum frænda mínum eitt
kvöldið. Nú var þessi þáttur ekk-
ert til að fjargviðrast yfir, síður en
svo, hann var gerður af lítilli um-
hyggju fyrir þroska barnanna,
fullur af eldgömlu drasli frá Am-
eríku, teiknimyndum sem náðu
engan veginn listrænum hæðum
Tomma og Jenna, mygluðum
myndaflokki um Osýnilega
manninn, auk þess sem einhver
risaeðla var sífellt að flækjast um
milli atriða mér til skapraunar.
Allt var þetta auðvitað með
frönsku tali - það eru aðeins ís-
lendingar sem halda að menning
þeirra sé svo sterk að í lagi sé að
demba útlensku tali yfir börnin -
en það sem mér þótti einna verst
var að þátturinn var af og til rof-
inn með auglýsingum um
leikföng og gotterí og kókópuff.
Þátturinn var sem sé gerður af
umhyggju fyrir neytendaþroska
barnanna.
Og þá rifjaðist upp fyrir mér að
rétt áður en ég hélt utan sá ég í
auglýsingatíma íslenska sjón-
varpsins vinsælan og ágætan
þáttagerðarmann labba um eins
og hann væri í þættinum sínum að
segja frá einhverju merkilegu,
nema það var hann auðvitað ekki
- hann var að auglýsa einhvern
fjandann. Og þó að uppákomur
af þessu tagi séu ekki algengar
var þetta ekki einangrað tilvik.
Yfir þessu er ástæða til að kvarta
og sem sjónvarpsáhorfandi vil ég
fara fram á það við þáttagerðar-
hlutadýrkun, yfirborðsmennsku,
trúgirni, fordóma, sérgæsku og
heimtufrekju. Þær ýta undir það
sjónarmið sem er svo freistandi
mannskepnunni að það sé hægt
að stytta sér leið að markmiðum
sínum, öðlast hamingju, visku,
ást, vinsældir eða fegurð án fyrir-
hafnar, án þess að leggja nokkuð
af mörkum sjálf. Það er sífellt
verið að selja okkur óskastein-
inn. Qll þráum við eitthvað og
auglýsingarnar telja okkur trú
um að við öðlumst það með
neyslu: að við verðum víðsýn
með því að kaupa þetta sófasett,
gáfuð með því að kaupa þessi
gleraugu, aðlaðandi með því að
nota þessa rakvél. Og auðvitað
vitum við fullvel að þetta er ekki
satt. Það ríkir almennt samkomu-
lag um það í samfélaginu að
auglýsingar séu plat. Auðvitað
vita allir að maður verður ekki
ungur og sólbrúnn og ofsalega
flinkur á brimbretti af því að
drekka kók. Og enginn verður
beinlínis mjór af því að borða
megrunarsúkkulaðikex. Og ef í
stóran hóp er hóað þættu heldur
snautlegar veitingar að bjóða
bara upp á súkkulað frá Nóa. Því
að auglýsingarnar eru þjóðsögur
og ævintýri nútímans. í hverri
einustu auglýsingu er sögð dálítil
saga og það er alltaf sama sagan í
þremur liðum: einhver er vansæll
af því hann skortir eitthvað -
hann fær eitthvert vörumerki
(þ.e. óskasteininn) og verður
hissa á svipinn - klippt - hann er
Egill - seldi óskasteininn.
sem verst er: eftir að þeir hafa
gert sig seka um að koma fram í
auglýsingum veit maður aldrei
hvort þeir eru að segja satt eða
hvort þeir eru að halda einhverju
fram vegna þess að þeim var
borgað fyrir það - þeir eru sem sé
að grafa undan sjálfum sér.
Þrjár konur
Ég missti reyndar ekki af öllu í
sjónvarpi því þann fyrsta maí
settist ég í sjónvarpsstólinn minn
og horfði á þátt sem Þorsteinn J.
Vilhjálmsson gerði um þrjár
verkakonur. Þorsteinn hefur ver-
ið með ansi skemmtilega útvarps-
þætti á laugardögum, þar sem
öllu hefur ægt saman í undarlegri
blöndu, gömlum upptökum, for-
kostulegum spekúlasjónum og
ágætri músík sem stundum hefur
verið urrandi Chicago-blús og
stundum Viktor Silvester, og
þátturinn sem hann gerði fyrsta
maí lofaði góðu um framhaldið.
Sjónvarpið hefur áður sýnt í þátt-
unum um Mann vikunnar við-
leitni til að gera þætti um ein-
hverja aðra en fræga menn eða
einkennilega og það ber að iofa.
Það var vekjandi fyrir mann að
heyra íverkakonunum, áminning
um þann smánarblett á samfé-
laginu sem launamunur kynjanna
er - áminning til þeirra sem oft
kvarta yfir „þessu kvennakjaft-
æði“ um að það er ekki út í loftið
að hér er sérstakur stjómmála-
flokkur kvenna og að sá flokkur
hefur ærin verkefni.
þlÓOVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Pólverjar líta á allar tilraunir Þjóð-
verja til yfirráða í Danzig sem stríðstil-
efni. Beck ætlar að svara árásum
Hitlers með gagnkröfum á föstudag-
inn kemur.
Hafnarstúdentar skora á Alþingi að
hækkanámsstyrkina. Gengislækk-
unin hefur þrengt mjög að kosti
þeirra, svo að búast má við að fátækir
stúdentargeti ekki lokið námi.
í DAG
3. MAÍ
miðvikudagur í þriðju viku sumars,
fjórtándi dagur hörpu, 123. dagur árs-
ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl.
4.53 en sest kl. 21.58. Tungl
minnkandi áfjórða kvartili.
VIÐBURÐIR
Krossmessa á vori. Stúdentar loka
Árnagarði fyrir Rogers utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna 1972.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöa vikuna
28. apríl-4. maí er í Reykjavíkur Apó-
teki og Borgar Apóteki.
Fyrrnef nda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 fridaga). Síðarnefnda apótekið er
opiö á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur...............sími 4 12 00
Seltj.nes...............sími 1 84 55
Hafnarfj................sími 5 11 66
Garðabær................sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík...............sími 1 11 00
Kópavogur...............sími 1 11 00
Seltj.nes...............sími 1 11 00
Hafnarfj................sími 5 11 00
Garðabær................simi 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir i sima 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vaktvirka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
simi 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyrl: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdelld
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinvið
Barónsstígopinalladaga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspitali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspitali Hatnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: allavirkadaga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavfk: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKl. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöf in Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími 21500, símsvari.
Sjálf shjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarf ræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sfm-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Simsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Fólag eldri borgara. Opið hús í Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (raf magns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi
21260allavirkadagakl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugaf ólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
2. maí
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandarikjadollar............ 53,28000
Sterlingspund................ 89,68400
Kanadadollar................ 44,00600
Dönskkróna................... 7,26130
Norskkróna................... 7,78380
Sænsk króna.................. 8,32500
Finnskt mark........... 12,66160
Franskurfranki............... 8,35440
Belgískur franki........ 1,34950
Svissn. franki.............. 31,67190
Holl.gyllini................ 25,02880
V.-þýsktmark................ 28,23750
Itölsklfra................... 0,03861
Austurr.sch.................. 4,01160
Portúg. escudo.......... 0,34160
Spánskur peseti.............. 0,45580
Japanskt yen................. 0,39791
Irsktpund................... 75,44700
KROSSGATA
i 2 3 n 4 6 s 3
■
9 10 L3 11
12 13 [J 14
# 10 10 r^i l. j
í? 10 r^ LJ 10 20
5Í— n 22
_ m 20 □
Lárótt: 1 blekking4
æviskeið 8 vanfærar 9
vaða11 fuglar12reika
14 átt 15óánægja 17
Ijómaöi 19 hljómi 21 fífi
22 reikningur 24 bleyta
25hár
Lóðrótt: 1 dys2nabbi
, 3 svarti 4 hyggur 5 eld-
stæði 6 sár 7 hljóðaði
10hlána 13fræg 16
kyrrt17gramur18tré
20sjór23mynni
Lausnásfðustu
krossgátu
Lárótt: 1 böls 4 gort 8
ektapar9æsir11 lina
12 stræti 14 ið 15 fæða
17eldar19ger21 skó
22 togi 24 samt 25 garp
Lóðrótt: 1 blæs 2 Ieir3
skræfa4galið5opi6
rani7traðir10stúlka
13tært 16agga 17ess
18dóm20eir23og
Miðvlkudagur 3. maí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15