Þjóðviljinn - 06.05.1989, Blaðsíða 3
Hvalavinir
á hvalbáta
Hvalavinir hafa sent erindi
til fyrirtækisins Hvals hf og til
sjávarútvegsráðuneytis og
Hafrannsóknastofnunar þar
sem þeir fara fram á að fá að
senda menn út með hvalbát-
unum í sumar til þess að vera
viðstaddir vísindaveiðarnar.
Þannig vilja þeir átta sig á
mikilvægi veiðanna fyrir vís-
indaáætlunina.
Heimsflakksbók
Hjónin Þorbjörn Magnús-
son og Unnur Þóra Jökuls-
dóttir hafa undanfarin ár siglt
um heimshöfin sjö á lítilli
skútu sem þau smíðuðu sjálf
og eru orðin hagvön á slóðum
sem aðrir íslendingar þekkja
.eingöngu úr barnabókum og
'ævintýramyndum. í vetur
gerðu þau hinsvegar stans í
Reykjavík, og er afrakstur
þeirrar kyrrsetu væntanlegur í
bókarformi á jólamarkað frá
Máli og menningu. Verður
efalaust athyglisverður lestur
og skemmtilegur, ekki síst ef
Unnur hefur erft hlut af skáld-
gáfu föður sins Jakobs-
sonar...
Frjálslyndi og
hægri
Það vakti athygli göngu-
manna 1. maí að á svalir nýja
hússins við Lækjartorg var
komið auglýsingaspjald með
orðunum „Frjálslyndi
hægri“. Nú, sagði eldri frú í
göngunni: Og hvor er frjáls-
lyndur og hvor er hægri?
ýJODLtfí
Maíhefti komið út
INNLENT
Skipulagsleysi í landbúnaði............................. 9-17
Fjallað er um niðurgreiðslukerfi,
útflutningsbætur og fleira sem tengist
afurðakerfi í sauðfjárbúskap hins
opinbera í landinu. í ljós kemur að
útgjöld ríkisins hafa farið langt fram
úr áætlunum og þess eru dæmi að
búvörusamningar og -lög hafi verið
brotin. Á sama tíma og neysla kjöts
hefur minnkað hefur framleiðslan
hvergi náð að dragast saman með
þeim hætti og samið hafði verið um.
Kerfið er margflókið og
leyndardómsfullt...
Átökin í Borgaraflokknum .........................
Nýtt tölvufyrirtæki. Blað brotið í viðskiptasögunni ...
Pappír upp á ferð og krafta. Þegar farið
er á vestasta odda í Evrópu eiga menn
kost á því að fá viðurkenningarskjal. Á
sama stað geta menn fengið staðfestingu
krafta sinna. Magnús Guðmundsson frá
Patrekfirði, sem stendur fyrir þessari
landkynningarstarfsemi á Bjargtöngum vestra, segir frá
Skák
Af hamingjunnar hjóli. Áskell Örn
Kárason skrifar um fallvaltleika
tilverunnar í skákheiminum .......................
.18
.21
22
25
ERLENT
MENNING
Bastillan upp er risin. Parísaróperan hefur fengið nýjan samastað við
hið fræga Bastillutorg og verður nýja húsið vígt á 200 ára
byltingarafmælinu 14. júlí n.k. Gunnsteinn Ólafsson segir frá. 41
Leikhúsfréttir ............................................. 43
Kvikmyndir
Háskaleg kynni. Marteinn St. Þórsson
skrifar um nýjar myndir og gefur
sumum stjörnur ............................................. 44
„Mig hefur alltaf langað til íslands“.
Viðtal við Guðrúnu Maríu
Hanneck-Kloes, þýskan fslending, sem hefur
m.a. þýtt íslenskar bókmenntir og gefið út
bækur um ísland í Þýskalandi ............................... 46
Menningardagar í Hallgrímskirkju ........................... 50
Heimsókn í Reykjanesvita................................. 51-53
Hjónin í Reykjanesvita, Valgerður Hanna Jóhannsdóttir vitavörður og
Óskar Aðalsteinn rithöfundur, sótt heim.
Aldarminnig baráttukonu. Þórunn Magnúsdóttir sagnfræðingur skrífar
um Guðrúnu Jónsdóttur, forystukonu í verkakvennafélögum í
Vestmannaeyjum og í Reykjavík á fyrri hluta aldarinnar ..... 54
Bjórsaga íslands
Seinni hluti. Mjöður blandinn og Maltó í kaupfélaginu. Hallgerður
Gísladóttir safnvörður skrifar.............................. 57
VISINDI
Blómabyltingin 15 ára ............................ 27-31
Tíðindamaður Þjóðlífs, Árni Snævarr
var á ferð í Portúgal og ræddi m.a.
við Mario Soares forseta, de
Carvalho herforingja,sem stundum er
kallaður „síðasti byltingarmaðurinn“
og dvelur nú í fangelsi, og Kristínu
Thorberg, íslenska konu sem lent
hefur í pólitískum átökum. Sagt er
frá ástandinu í landinu í dag og þeim
breytingum sem eru að verða vegna
inngöngu Portúgals í
Evrópubandalagið.
Bretland
Samkeppni um sjúklingana................................. 32
Ungverjaland
Einar Heimisson og Gunnsteinn Ólafsson fóru til Ungverjalands og
kynntu sér umbrotin í samfélaginu:
Uppgjörið við uppreisnina hafið ......................... 33
Umbrot og ferskleiki í ungversku samfélagi .............. 34
Hæli fyrir bingósjúklinga................................ 38
í Svíþjóð er tekið til við að meðhöndla spilafíkn sem sjúkdóm og
spilasjúklingarnir fá svipaða meðferð og alkóhólistar.
Sagt frá Konrad Lorenz og
atferlisfræðinni. —Nýtt risaverkefni í
vísindum. Bandaríkjamenn ætla að
fjármagna umfangsmiklar rannsóknir
á litningum, sem geta kollvarpað
læknisfræðinni; hugsanlega opna
möguleika á að lækna hingað til
ólæknandi sjúkdóma." Áætlunin mun
kosta 200 milljónir dollara á ári í 15
ár. —Gleðilegt kynlíf í ellinni.
Rannsókn leiðir í ljós að fólk getur
átt ánægjulegt kynlíf fram á
grafarbakkann .........63-68
UPPELDISMÁL
Einsctinn skóli er takmarkið. Viðtal við Birnu Sigurjónsdóttur kennara
í Snælandsskóla ...................................... 69
Skoðanakönnun um tómstundir hjá
börnum og unglingum................................... 70
ÝMISLEGT
Barnalíf ....................
Bflar........................
Krossgáta....................
Erlendar smáfréttir .........
Smáfréttir úr viðskiptaheimi
ÆTLAR ÞU
AÐ GERAST
, ÁBYRGÐAR-
? MAÐUR
Á SKULDABRÉFI?
Haföu þá í huga, að ef lán-
takandinn greiöir ekki af lán-
inu, þá þarft þú aö gera það.
Getir þú þaö ekki, gæti svo
farið að þú misstir þína íbúð á
nauðungaruppboð. Um slíkt
eru fjölmörg dæmi.
ÞÚ TEKUR ÁBYRGÐINA
Með því að gerast ábyrgöar-
maður á skuldabréfi, ábyrgist *
sá hinn sami, að af láninu verði
greitt á réttum gjalddögum.
ÞÚ GÆTIR ÞURFT
AÐ BORGA
Greiði lántakandinn ekki af
láninu á tilskildum gjalddögum,
þá þarf ábyrgðarmaðurinn að
gera það, eða eiga á hættu að
krafist verði nauðungarupp-
boðs á íbúð hans.
Hafðu eftirfarandi hugfast áður
en þú gerist ábyrgðarmaður á
láni sem vinur þinn eða vanda-
maður ætlar að taka:
GETUR ÞÚ GREITT AF
LÁNINU
EF LÁNTAKANDINN
GETUR ÞAÐ EKKI?
Við leggjum til að þú fylgir
þeirri reglu að veita aldrei
öðrum veðleyfi í íbúð þinni fyrir
láni sem þú getur ekki sjálfur
greitt af, nema þú sért viss um
að lántakandinn muni standa í
skilum.
FÓLK HEFUR MISST
ALEIGU SÍNA VEGNA
VINARGREIÐA.
HAFÐU ÞITT Á HREINU
jA