Þjóðviljinn - 06.05.1989, Side 25

Þjóðviljinn - 06.05.1989, Side 25
eins og sú að horfa meira á mögu- legt framhjáhald forsetafram- bjóðenda en hæfileika þeirra til embættisins. Þetta lag er eftir Yo- ung, en enginn skyldi halda að hér sé á ferð einhver róttækii- ngaplata, og þrátt fyrir Ameríska drauminn er Neil Young ótta- legur íhaldsseggur í pólitík. Young er afkastamestur í laga- DÆGURMÁL Það verður að segjast hreint út að nýja platan hennar Madonnu, Like a prayer, er ákaflega vel úr garði gerð hljóðrænt • og blöndunarlega séð. f ofariálag eru á meðal laganna 11 ágætar melódíur, þar af 4 sem eru af- bragð, eitt skemmtilega frumlegt (Love song semPrince semur og flytur með Madonnu) og restin fín dansmúsík. En það fréttnæm- asta eru þó textamir - innihald þeirra. Þessi unga kona með Madonnu-nafnið vakti athygli á sér í upphafi í laginu Material girl þar sem hún í textanum veltir sér upp úr efnishyggjunni og velur sér kavalera sem veita henni sem mest veraldleg gæði. Ja, það má eiginlega segja að hún hafi í því laginu opinberað sig sem konu sem seldi blíðu sína og sál fyrir peninga og demanta. í meðfylgj- andi myndbandi var vísað í kvik- myndina þar sem Marylin Monr- oe söng um að demantar væra bestu vinir konunnar... og Ma- donna líkti eftir hinni látnu Hollywood-goðsögn í hvívetna. En nú er öldin önnur - Madonna búin að láta ljósa litinn vaxa úr dökku hárinu eða lita yfir hann þar til hiðsannakemurí ljós... og þar með dyggðin sem þegar er farið að glitta í og gott betur. Textarnir á þessari nýju plötu hennar eru nefnilega allt að því byltingarkenndir miðað við það sem áður var, að ekki sé talað um gagnvart trúuðu og vammlausu fólki... Eins og titillag plötunnar og enn frekar myndbandið sem gert var við það gefa til kynna, eru trúarbrögð nú ofarlega í huga Madonnu, og þá ekki upp á hefð- bundna kaþólsku, þrátt fyrir að hún eigi þar rætur sem ítalskur Ameríkani. í myndbandi þessu er kristsímyndin leikin af svört- um manni, og auk þess ýtt við hefðbundnum ástarsamböndum. Fyrir utan trúarðbragðaáhugann eru textar Madonnu þess eðlis að þeir hefðu sómt sér vel á hippa- og blómatímum, til dæmis í uppá- haldslagi mínu á plötunni, Dear Jessie. Þar syngur Madonna um að maður skyldi geyma ævintýra- heim barnsins í sálu sér, og ríkir mikil markaðs- og tívolístemmn- ing í laginu og hringiðutakturinn vekur upp fiðring í maga og heila. Glæsilegt lag, og gæti verið úr pússi Mamas og Papas, eða eftir Cat Stevens eins og hann var og hét upp á sitt geðugasta, og jafnvel Bítla - og mögulega lag sem Paul McCartney hefði samið handa Mary Hopkin. Madonna textar líka um þjóð- félagsvandamál eða kannske réttara sagt fjölskylduvandamál. Hér eru textar um misheppnuð hjónabönd, hennar eigið og ann- arra, skorað á konur að taka ekki þeim næstbesta;...tekinn fyrir faðirinn sem brúkar ofbeldi and- legt og líkamlegt, þó bent á í leiðinni að hann hafi líklega alist upp við þessar sömu aðstæður, og minnt er á að fólk eigi að halda sambandi við bræður og systur og foreldra þótt það fari út í heim, því að fjölskyldan ein taki mann eins og maður er...líklega er framlagi á American Dream... næstur kemur Stills, þá Nash og Crosby er lægstur tölfræðilega séð...en hann skilar langt í frá versta verkinu. Lag hans og enn frekar textinn Compass, þar sem hann fjallar um sína brokkgengu og sprautum stráðu ævi, er vel í snjallara lagi, og t leiðinni að David inn að gefa út sd fína dóma í sömu skít í American ] um bara eftir aðj en þessi er sem i leg afhlustunar í geta þess í rosby er bú- |lötu sem fær lum og gefa Við bíð- teyra hana, ijög huggu- íum smekk. Crosby, Stills, Nash og Young syngja saman fagurlega í hljóðveri inn á American Dream. Crosby er sá feiti með háa ennið, á bak við Bretann í þessum lauslega kvartett, Graham Nash. Á myndinni af Byrds sem við birtum hér fólki til viðvörunar má sjá sama Crosby, fyrir 25 árum, en hann verður 48 ára 18. ágúst. Sagt er að David Crosby beri stundum borða þar sem á stendur: Ef þú vilt ekki líta út eins og ég, skaltu ekki snerta heróín... Þjóðlagarokksveitin Byrds - Da- vid Crosby er lengst til vinstri. ANDREA JÓNSDÓHIR Madonna er ekki bara fyrir augu og eyru að þessu sinni, albúmið ilmar í þokkabót. þetta sjálfsævisögulegur texti Madonnu (Keep it together), en hjartnæmustu umsögnina fær nokkuð ný-látin móðir Madonnu í fallegu lagi, Promise to try. Og aftur að trúarbrögðunum. Af og til í textunum fær Guðdóm- urinn pillu vegna óskiljanlega lí- tilla afskipta af þeim sem um sárt eiga að binda, en plötunni lýkur á yfirbót, eða kannske frekar afsökunarbeiðni, þar sem Ma- donna biður Guð um fyrirgefn- ingu á syndum sínum - og Guð- lasti. Ekki veit Undirrituð hvort hér er samið í einlægni eða með húmor, og er líklega öllum sama um hvort er hérlendis, en þetta á örugglega eftir að koma við kaunin á mörgum í trúaðri löndum, eins og heima hjá Ma- donnu blessaðri. En ég verð að segja eins og er að hún gleður mig þessi aðferð Madonnu, að koma inn í skemmtanabransann með það eitt að yfirskini að því er virt- ist að mala gull með misgóðu létt- meti, slatta af beru holdi og blúndunærfötum, en smygla svo út þó nokkrum hugsjónabrotum þegar hún er búin að festa sig í sessi. CSN&Y vakna upp við amerískan draum f fyrra kom plata frá kvartett sem var aldeilis vinsæll upp úr 1970, Crosby, Stills, Nash og Yo- ung. Þeir hafa marghætt síðan þá en byrjað jafn oft aftur lauslegt samstarf, með mislöngum hléum þó. Kemur þar hvort tveggja til sólóferill hvers tónlistarmanns um sig, og svo sukksamt líferni þeirra. í því hefur gengið lengst þeirra félaga David Crosby, enda þótt bæði Nash og Young hafi verið drjúgir í heróíntöku um dagana - sérstaklega sá fyrr nefndi. Um Stills hef ég bara heyrt brennivínsberserkjasögur. En hvað um það, eins og oft er skráð í þetta blað... plata frá þeim félögum nú til dags er kannske ekkert spennandi frétt fyrir marga, og þar að auki hafa þeir félagar ekki verið sérlega áhugaverðir á seinni árum þegar þeir hafa drattast við að gefa út plötur. En ég verð bara að segja eins og er, að þrátt fyrir heldur vonda dóma sem þessi nýjasta frá þeim hefur fengið í erlendum blöðum, finnst mér hún bara harla skemmtileg, hvað sem hvur segir. Fólk ætti að þekkja titil- lagið, AmericanDream, sem mér finnst fínt!... létt ádeila á þá stefnu sem þeir fyrir westan hafa tekið í átt að draumnum amer- íska; hvenær villtust þeir af leið - kannski strax?... og gagnrýnd er yfirborðsmennska Dökkhærð Madonna og dyggðum prýdd Laugardagur 6. maí 1989 NÝTT HELGAI - SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.