Þjóðviljinn - 09.05.1989, Síða 1
Þriðjudagur 9. maí 1989 84. tölublað 54. órgangur
BHMRIRíkið
„Þetta er þungt strið“
Slitnaði uppúr eftir nœr látlausar viðrœður áfjórða sólarhring. Páll Halldórsson: Okkar meginkröfurfást ekki rœddar.
Svanfríður Jónasdóttir: Héltvið vœrum aðgangafrákjarasamningum. ÓlafurRagnar Grímsson: Bœði undrandi og leiður.
BHMRkomiðafturáreitl. Guðlaugur Þorvaldsson: Ekki ástœða til frekari funda að óbreyttu
Auðvitað er þetta bara þungt
stríð, og maður sér ekki fyrir
endann á því fyrr en við höfum
samningstaxta í höndunum sem
við sættum okkur við. Það getur
því ekkert annað tekið við en
menn setjist niður aftur og fari að
semja, sagði Páll Halldórsson for-
maður BHMR, eftir að slitnað
hafði uppúr viðræðum samn-
inganefnda bandalagsins og ríkis-
ins í húsakynnum ríkissáttasemj-
ara I gærkvöld. Þá höfðu við-
ræður deiluaðilar staðið yfir nær •
látlaust frá því á föstudag í lengs-
tu viðræðulotu deiluaðila til
þessa. Verkfall 11 félaga BHMR
hefur nú varað á fimmtu viku.
- Ég varð fyrir miklum von-
brigðum með að þessi vinna
undanfarnar nætur og daga hefur
ekki skilað árangri. Eg hef staðið
í þeirri trú að það væri sameigin-
lega verið að skapa samning. Og í
þeim hugmyndum sem lágu fyrir
var búið að fallast á að nýtt
launakerfi yrði tekið upp hjá rík-
inu þar sem menntun og ábyrgð
yrði lögð til grundvallar og á-
kveðin lágmarkstrygging hvað
þetta launakerfi myndi skila,
sagði Olafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra í gærkvöld.
„Aftur komnir
á reit 1“
- Ég er því bæði undrandi og
leiður yfir því að því verki skuli
vera kastað burtu og haldið á reit
1 með hinar upprunalegu kröfur.
Ég vona að einstakir félagar í
BHMR kynni sér vel og rækilega
hvað fólst í þessari vinnu undan-
farinna sólarhringa áður en menn
halda í margra vikna stríð í við-
bót.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari sagði í gærkvöld að
hann myndi ekki boða til nýs
sáttafundar fyrr en eftir hálfan
mánuð, nema annar hvor aðili
óskaði eftir fundi. - Það var ljóst
að aðilar voru ekki tilbúnir að
ræða málin á sama grundvelli og
því var ekki flötur að mínu mati
til að halda viðræðum áfram.
Drög að
22 mánaða samningi
Ákveðinn rammi að
samkomulagi lá fyrir þegar á
sunnudag og efnisatriði hans.
m.a. rædd sérstaklega í gærdag á
fundum stjórna allra þeirra
BHMR-félaga sem eru í verk-
falli. Samninganefnd bandalags-
ins ákvað síðan í framhaldi af
þeim fundum að óska eftir frekari
viðræðum við samninganefnd
ríkisins í gær. Forystumenn
BHMR segja að sá samkomul-
agsrammi sem legið hafi á borð-
inu, hafi alfarið verið kominn frá
samninganefnd ríkisins. Öllum
umræðum um önnur atriði en þar
væri að finna hefði verið alfarið
hafnað. Á því hefði strandað.
í samningsuppkastinu sem hef-
ur verið til umræðu síðustu sólar-
hringa er m.a. gert ráð fyrir
samningi við BHMR til 22 mán-
aða, eða til loka febrúar 1991. Sá
samningur yrði byggður á svipuð-
um nótum og samningurinn við
háskólakennara, nýtt launakerfi
yrði tekið upp, stofnaður yrði
sérstakur endurmenntunarsjóð-
ur auk endurskoðunarákvæða á
launaliðum.
„Of rýrt eftir
. langt verkfall“
- Þær hugmyndir sem ríkið var
með voru allt of rýrar. Það var
ekki tekið með neinum bindandi
hætti á kerfisbreytingum varð-
andi menntun og ábyrgð, þannig
að við fengjum það kerfi inn nógu
fljótt og þetta liti nógu
sannfærandi út. Það var heldur
ekki tekið nóg á leiðréttinga-
kröfu okkar, en hinsvegar viður-
kennt tilefni slíkra leiðréttinga.
Þetta er því miður allt of rýrt og
við erum ekki tilbúin að skrifa
uppá slíkan samning eftir svona
langt verkfall. Þetta er ekki sú
Stund milli stríða í harðri samningalotu. Hér matast nokkrir samninganefndarmanna BHMR um miðjan dag
í gær, áður en dró til alvarlegra tíðinda og slitnaði uppúr viðræðum. Mynd-Þóm.
Lœkjartorg
Tónlistarflutningur kærður
SigurðurBaldursson hœstaréttarlögmaður: Eigendum hljómplötuversl-
unarSteinars viðAusturstrœti verði bönnuð notkun hátalara til að varpa
tónlist út á Lœkjartorg vegna hávaða og tónlistarvals. Kœrði 12. apríl en
lögreglan kannast ekki við neitt
Sigurður Baldursson hæstarétt-
arlögmaöur í Reykjavík hefur
kært tónlistarflutning frá hfjóm-
plötuverslun Steinars við Austur-
stræti til embættis lögreglustjóra
og fer þess ó leit að eigendum
verslunarinnar verði bönnuð
notkun hátalara til að varpa tón-
list út á Lækjartorg.
f kærubréfi sínu til lögreglu-
stjóra segir hæstaréttarlögmað-
urinn: „því miður er hljómlistar-
valið og hljómstyrkurinn á þann
veg að mörgum manninum er að
því hrein raun“. Jafnframt segist
hæstaréttarlögmaðurinn hafa
fyrir því „góðar heimildir að for-
setanum sé hin mesta ömun að
því ónæði sem af þessu stafar".
Þó að Sigurður hafi sent kæru
sína til embættis lögreglustjóra
12. apríl hefur hún ekki enn bor-
ist inná borð til
Rannsóknardeildar lögreglunnar
í Reykjavík og sagðist Þröstur
Eyvinds lögreglumaður ekki
kannast við hana. Þá kannast
starfsmenn forsetaembættisins í
Stjómarráðinu ekki við að forseti
íslands hafi fundið að tónlistar-
fiutningi frá versluninni.
Að sögn Magnúsar Sveins-
sonar verslunarstjóra hjá verslun
Steinars við Austurstræti hafa
engar opinberar kvartanir borist
versluninni vegna tónlistarflutn-
ingsins og hávaðinn frá honum sé
ekki meiri en gengur og gerist
annars staðar hjá hljómpiötu-
verslunum. Hann sagði það held-
ur klént af hálfu hæstaréttarlög-
mannsins að kæra í stað þess að
ræða málin við forráðamenn
verslunarinnar. Aðspurður hvort
eitthvað væri um að fólk kæmi að
máli við starfsmenn verslunar-
innar og kvartaði yfir hávaða-
mengun út af tónlistarflutning-
num sagði hann það koma fyrir
og þá væri tekið tillit til þess og
lækkað í hátölumnum.
uppskera sem menn sætta sig við,
sagði Páll Halldórsson er hann
gekk út úr Karphúsinu í gær-
kvöld.
- Við héldum að við værum að
ganga frá samningum m.a. vegna
þeirra málamiðlana sem gerðar
höfðu verið og þeirra smærri
mála sem komið höfðu upp eins
og oft er í lok samningaviðræðna.
Samninganefnd BHMR kom
hinsvegar til baka í dag með
upphaflegu kröfurnar, sem hafði
verið hafnað, sagði Svanfríður
Jónasdóttir úr samninganefnd
ríkisins er uppúr slitnaði í gær-
kvöld. - Þetta eru hörmuleg
endalok eftir alla þessa vinnu.
Óvíst er um næsta framhald
samningaviðræðna. Sáttasemjari
mun hafa samband við báða aðila
í dag en boðar ekki til fundar af
fyrra bragði. Þá er ljóst að ríkis-
stjórnin ætlar ekki að grípa inn í
deiluna með lagasetningu.
-lg-
Ríkisútvarpið
Innbrat og
þjófhaður
Geislaspilara, geisladisk-
um og plötum stolið.
Hörður Vilhjálmsson:
Ekki ráðgert að hafa sam-
band við lögreglu vegna
málsins
Fyrir um tveimur vikum var
brotist inn í tónlistardeild ríkisút-
varpsins og stolið þaðan geisla-
spilara og nokkrum fjölda geisla-
diska. Hörður Vilhjálmsson,
Qármálastjóri ríkisútvarpsins,
sagði að þar hefðu verið að verki
tveir unglingsdrengir, sést hefði
til þeirra er þeir hefðu forðað sér
á hlaupum. Hefðu þeir brotist inn
um glugga og tekið með sér
geislaspilarann, geisladiska og
plötur.
Bflstjóri sem átti leið fram hjá
útvarpshúsinu, veitti piltunum
eftirför þar sem þeir komu
hlaupandi frá húsinu. Honum
tókst ekki að hafa hendur í hári
þeirra en hins vegar skildu þeir
eftir nokkra geisladiska á hlaupu-
num. Bflstjórinn skilaði þeim
diskum en þýfið hefur ekki
heimst aftur að öðru leyti. Hörð-
ur sagði að hér hefði verið um
nokkurt fjárhagslegt tjón að
ræða, en hann vissi hins vegar
ekki nákvæmlega hver fjöldi di-
skanna sem hvarf hefði verið.
Aðspurður sagði Hörður að ekki
hefði verið haft samband við lög-
reglu vegna þessa máls, menn
teldu það ekki þjóna neinum til-
gangi.
phh