Þjóðviljinn - 11.05.1989, Síða 1
Harður áfellisdómurRíkisendurskoðunaryfirfyrrverandi fjármálaráðherrum Sjálfstœðisflokksins
Albert Guðmundssyni og Þorsteini Pálssyni. Fyrirgreiðslan til kaupenda Sigló afar sérstœð og á sér vart
hliðstœðu hjá ríkissjóði. Kaupendur hafa greitt samtals 1,2 miljónir á 5 árum. Heildarkröfur ríkissjóðs í
þrotabúið rúmar 70 miljónir. Umrœður um skýrslu Ríkisendurskoðunar á Alþingi í dag
Fyrirgreiðsla sú er eigendur
Sigló nutu hjá fyrrverandi
fjármálaráðherrum Sjálfstæðis-
flokksins, þeim Albert Guð-
mundssyni og Þorsteini Pálssyni,
við kaup á Siglóverksmiðjunni og
síðar framlengingu á áföllnum af-
borgunum og skuldum vegna
kaupanna, er afar sérstæð og á
sér vart hliðstæðu hjá ríkissjóði,
að mati Ríkisendurskoðunar.
í skýrslu um Siglósöluna sem
Þorsteinn Pálsson og fleiri þing-
menn Sjálfstæðisflokksins ósk-
uðu sérstaklega eftir í fyrri viku,
og lögð var fram á Alþingi í gær,
segir m.a. að Ríkisendurskoðun
telji að „þeir greiðsluskilmálar
sem Sigló hf. hefur notið hjá rík-
issjóði, það er að fyrsta afborgun
skuldabréfs er 8 árum frá
kaupsamningi, fyrsta vaxta-
greiðsla er 3 árum eftir
kaupsamning og lánstími 18 ár,
megi teljast afar sérstæðir í við-
skiptum sem þessum og eigi sér
vart hliðstæðu hjá ríkissjóði“,
Seðlabanki
1,5 prósent
gengisfall
Fjármálaráðherra:
Höfnuðum kröfu at-
vinnurekenda um
stórfellda gengisfell-
ingu
- Atvinnurekendasamtökin
hafa verið að kreljast stórfelldrar
gengisfellingar uppá 10-20% sem
rfkisstjórnin hefur alfarið hafn-
að, en á hinn bóginn höfum við
sagt að gera þurfi minniháttar
breytingar vegna kostnaðar-
hækkana, þannig að raungengið
verði svipað á þessu ári og það
var í upphafi ársins, segir Olafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra.
Bankastjórn Seðlabankans á-
kvað í gær að fella gengi krón-
unnar að fengnu samþykki ríkis-
stjórnarinnar, um 1,5%. Auk
þess hefur bankinn heimild
stjórnarinnar til að skrá gengi
krónunnar allt að 2,25% undir
eða yfir því meðalgengi. í til-
kynningu frá Seðlabankanum
segir að gengisfellingin sé ákveð-
in með hliðsjón af kostnaðar-
hækkunum útflutnings- og sam-
keppnisgreina vegna nýgerðra
kjarasamninga.
- Þessi texti er frá Seðlabank-
anum og speglar ekki stefnu ríkis-
stjórnarinnar, því það er margt
annað kostnaðartilefni í landinu
en breytingar á kaupi. Hér er um
að ræða eins litla breytingu og
frekast er unnt. Við höfnum hins
vegar alfarið kröfu um stórfellda
gengislækkun, sagði fjármálaráð-
Fyrirgreiðsla fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Alberts Guðmundssonar og Þorsteins Pálssonar, við
sölu Sigló, á sér vart hliðstæðu í sögu ríkissjóðs, að mati Ríkisendurskoðunar.
eins og segir orðrétt í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
- Þessi skýrsla Ríkisendur-
skoðunar er ótvíræður vitnis-
burður um þá pólitísku spillingu
og þau vinnubrögð er fjármála-
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
viðhöfðu er þeir afhentu flokks-
gæðingum eignir ríkissjóðs nán-
ast á silfurfati, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra í gær.
Það voru sömu yfirlýsingar
fjármálaráðherra í svari við fyrir-
spurn um sölu Sigló í þingsölum í
fyrri viku sem kölluðu á hörð við-
brögð Þorsteins Pálssonar og
annarra forystumanna Sjálfstæð-
isflokksins. Þorsteinn krafðist þá
skýrslu frá Ríkisendurskoðun um
Sigló-söluna og um skuldbreyt-
ingar núverandi fjármálaráð-
herra til Nútímans og útgáfufyr-
irtækisins Svarts á hvítu. Skýrslan
verður tekin til sérstakrar um-
ræðu í sameinuðu þingi í dag.
Ríkisendurskoðun gerir engar
athugasemdir við niðurfellingu
fjármálaráðuneytisins á dráttar-
vaxtaskuldum Nútímans við rík-
issjóð né skuldbreytingar við
Svart á hvítu, en skuldir fyrirtæk-
isins við ríkissjóð að upphæð tæp-
ar 24 miljónir eru með veði í upp-
lýsingabanka og hugbúnaðar-
kerfi fyrirtækisins sem Ríkis-
endurskoðun segist ekki geta lagt
verðmætismat á að svo stöddu.
Hins Vegar gerir Ríkisendur-
skoðun ekki eingöngu alvarlegar
athugasemdir við skuldabréfaút-
gáfu og lánafyrirgreiðslu þeirra
Alberts Guðmundssonar og Þor-
steins Pálssonar til handa eigend-
um Sigló hf. sem nú hefur verið
lýst gjaldþrota, en sömu aðilar
hafa stofnað nýtt fyrirtæki, Siglu-
nes hf., um rekstur verksmiðj-
unnar, heldur líka að kaupendur
hafi brotið ákvæði kaupsamn-
ings.
Þannig hafi Sigló strangt til
tekið ekki haft heimild til að selja
tækjabúnað til gaffalbitafram-
leiðslu burtu úr bænum, sam-
kvæmt ákvæðum í kaupsamningi
og einnig hafi nýir eigendur fjár-
fest í nýjum vélum, tækjum og
öðrum búnaði langt umfram það
sem áformað var við gerð
kaupsamnings.
Þá upplýsir Ríkisendurskoðun
einnig að söluverð fyrirtækisins
framreiknað til núvirðis sé um 50
miljónir. Gjaldfallnir ógreiddir
vextir og dráttarvextir vegna
kaupanna fyrir 5 árum nema tæp-
um 12 miljónum, en kaupendur
hafa á öJlum þessum tíma aðeins
greitt rúmar 1200 þúsund krónur.
Heildarkröfur ríkissjóðs í fyrir-
tækið nema rúmum 70 miljónum.
^g-
Kennarasambandið
Játa hvorki né neita
SamningafundurKl ogríkisins ídag. SvanhildurKaaber: Gethvorki
játað né neitað því hvort við skrifum undir samning með ósamið við HÍK
Eg er hvorki tilbúin til að neita
þessu né játa, sagði Svanhild-
ur Kaaber formaður Kennara-
sambandsins þegar hún var spurð
hvort hún væri tilbúin að skrifa
undir samning þrátt fyrir að
ósamið sé við HÍK, fengi hún við-
unandi tilboð frá ríkinu á samn-
ingafundi aðila sem haldinn verð-
ur klukkan 11 í dag.
„Okkar er að ná viðunandi
samningum fyrir kennara í Kenn-
arasambandi íslands. Að öðru
leyti svara ég þessari spurningu
ekki því ég er ekki tilbúin að
svara henni, bætti Svanhildur
við, en sagði það algera firru í
fréttum DV í gær að KÍ hefði
tekið að sér einhverskonar milli-
göngu í deilu ríkisins og BHMR.
Hins vegar staðfesti hún að KÍ-
félagið á Reykjanesi hefði farið
fram á fulltrúaráðsfund í fé-
laginu, og verður hann haldinn
um helgina eða rétt eftir helgi.
Svanhildur sagði að farið hefði
verið fram á að staðan í kjaramál-
um yrði á dagskrá, en samkvæmt
heimildum Þjóðviljans kemur
óskin fram svo þrýsta megi á að
sambandið leiti samninga.
Fundurinn í dag er haldinn að
beiðni samninganefndar ríkisins.
Svanhildur neitaði því að samn-
ingar lægju í raun tilbúnir á borð-
inu, álit stjórnar og kjararáðs
eftir síðasta samningafund sem
haldinn var 28. aprfl hefði verið
það að ekki væri grundvöllur til
samninga og það hefði ekki
breytst hingað til, enda engir
fundir verið haldnir síðan.
í dag mun Kennarasambandið
standa að mótmælastöðu á
Austurvelli og vill með því vekja
athygli alþingismanna og al-
mennings á þeirri kröfu sinni að
neyðarástandi því sem ríkir í
skólum landsins verði aflétt.
„Það verður ekki gert nema
gengið verði til samninga við þau
félög sem nú eiga í kjaradeilum,
samninga sem tryggja verulegar
kjarabætur og vinnufrið í
skólum,“ segir í fréttatilkynningu
frá félaginu. phh