Þjóðviljinn - 17.05.1989, Side 1
Miðvikudagur 17. maí 1989 88. tólublað 54. árgangur
Fíkniefnalögreglan
140 símahleranir síðan 1979
Tvœr beiðnirfrá RLR. Fíkniefnadómstóllinn hefur veitt allar hlerunarheimildir vegna gruns um
fíkniefnamisferli. Böðvar Bragason: Reglurnar fátœklegar
Halldór Ásgrímsson dómsmála-
ráðherra svaraði í gær fyrir-
Nýafstaðin vertíð
Þorskurinn
flúði
kuldann
Hafrannsókn: Sterkur
þorskárgangurfrá 1983,
mun meira af stórþorski
en áður og kuldifyrir
norðan helstu ástæður
fyrir því hversu
bátavertíðin fyrirsunnan
og vestan varmun betri nú
en síðast
- Það eru einkum þrjár ástæð-
ur að mínu mati fyrir því af
hverju bátavertíðin fyrir suður-
og vesturlandi var svona mun
betri nú en í fyrra. Þær eru í
fyrsta lagi að nú gekk á vertíðar-
svæðin sterkur 1983 þorskár-
gangur, mun meira af stórþorski
kom á miðin en búist var við og í
þriðja lagi hefur verið alveg
skelfilega kalt fyrir norðan sem
leiddi til þess að þorskurinn
leitaði þaðan og suður. En nyrðra
hefur verið ördeyða í afla-
brögðum,“ sagði dr. Jakob Jak-
obsson forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar.
Þó að þorskaflinn frá ára-
mótum sé talinn vera um 10 þús-
und tonnum meiri núna en á
sama tíma í fyrra verður ekki
aukið við þær botnfiskveiðiheim-
ildir sem ákveðnar voru í ársbyrj-
un. Sjávarútvegsráðherra tók
ákvörðun þar að lútandi fyrir 15.
apríl að fengnum tillögum frá
Hafrannsóknastofnun, en sam-
kvæmt kvótalögunum verður að
taka ákvörðun um breytingar á
veiðiheimildum veiðiskipa fyrir
þann tíma.
Að sögn Jakobs jaðrar við
neyðarástand hjá Hafrannsókn
vegna verkfalls BHMR og af
þeim sökum gat stofnunin ekki
fylgst eins náið með bátavertíð-
inni og oft áður. Þá er ekki búist
við að skýrsla Hafrannsóknar um
nytjastofna sjávar og umhverfis-
þætti 1989 og um aflahorfur 1990
verði tilbúin fyrr en í haust í stað
þess að liggja fyrir um næstu
mánaðamót eins og stefnt var að.
Vegna hinna góðu aflabragða á
nýafstaðinni vertíð hjá bátaflot-
anum þar sem margir bátanna
ýmist kláruðu kvótann sinn eða
eru langt komnir með hann, má
búast við að mun minna verði af
viðbótarkvóta á lausu fyrir togar-
aflotann síðsumars og í haust. í
fyrra var verð fyrir kílóið af
óveiddum þorski um 8 krónur en
vegna minna framboðs og meiri
eftirspurnar í ár má allt eins ætla
að það rjúki upp í 10-15 krónur
hvert kíló. Ef svo fer sem horfir
má því búast við fjörlegum kvóta-
viðskiptum þegar líða tekur á
árið. -grh
spurn Kristínar Halldórsdóttur,
Kvennalista um símahleranir og
kom þar fram að dómstólar hafa
veitt leyfí til 142 símahlerana frá
árinu 1979. f tveimur tilfellum
var um að ræða beiðni frá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins vegna
„stórfellds innbrotsþjófnaðar og
gruns um fíkniefnabrot og hins
vegar vegna sama þjófnaðar,
fjárkúgunar og heitinga um óf-
arnað.“ í öllum öðrum tilfelium
komu beiðnir frá lögreglustjóra-
embættinu í Reykjavík vegna
„rannsóknar á meiriháttar fíkni-
efnamisferli,“ og hefur fíkniefna-
dómstóllinn veitt hlerunarheim-
ildir í öllum tilfellum, samkvæmt
Mikil óvissa ríkir um framhald
samningaviðræðna Banda-
lags háskólamanna og ríkisins,
eftir að ljóst varð seint í gærkvöld
að samninganefnd BHMR er ekki
tilbúin að ganga að óbreyttu
samningstilboði frá ríkinu sem
lagt var formlega fram á hádegi í
gær.
Samninganefndin sat á fundi er
Þjóðviljinn fór í prentun á mið-
nætti, en að sögn forráðamanna
félagsins var þá ljóst að BHMR-
félagar eru ekki sáttir við flest
meginatriði tilboðsins en útfæra
þurfi betur þær „tryggingar" sem
stjórnvöld leggja til í samningstil-
upplýsingum Hjalta Zóphónías-
sonar í dómsmálaráðuneytinu.
Meirihluti þessara hlerana hef-
ur átt sér stað á síðustu árum, frá
1985 hafa símar verið hleraðir
105 sinnum samkvæmt úrskurði
dómstóla. Er það ár til marks um
breyttar vinnuaðferðir fíkniefna-
lögreglunnar, þar sem reynt var
að koma í veg fyrir dreifingu
fíkniefna, fremur en að elta uppi
einstaka neytendur.
Reglur um hleranir eru ekki
miklar að vöxtum og leiðbeining-
ar til dómara því rýrar: „Dómari
getur, þegar öryggi ríkisins krefst
þess eða um mikilsverð sakamál
er að ræða, úrskurðað hlustanir í
boði sínu um aðlögun launa há-
skólamenntaðra ríkisstarfs-
manna að launum annarra há-
skólamanna.
í bréflegri yfirlýsingu sem
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra lét fylgja samnings-
tilboði ríkisstjórnarinnar í gær
segir að um lokatilboð af hálfu
ríkisins sé að ræða og lengra verði
ekki komist.
í tilboði ríkisins er gert ráð fyrir
samningi til 5 ára eða út árið
1994, en segja megi honum upp
eftir tvö ár. Sömu launahækkanir
gildi út þetta ár og í samningum
við Félag háskólakennara en til-
síma sem sökunautur hefur eða
ætla má hann nota.“ Böðvar
Bragason lögreglustjóri í Reykja-
vík viðurkennir að þessar reglur
séu „fátæklegar," en sagðist von-
ast til að við þær yrði bætt í þeirri
endurskoðun laga um meðferð
opinberra mála, sem nú stæði
yfir. Böðvar sagði skýringuna á
því að fíkniefnalögreglan notaði
þessa aðferð í svo langtum meiri
mæli en aðrar deildir lögreglu,
vera þá að fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík væri í farar-
broddi gegn þessari tegund laga-
brota og eini aðilinn á landinu
sem væri sérhæfður í þessari lögg-
æslu. Að öðru leyti vísaði hann til
færslur að „markaðslaunum"
hefjist á næsta sumari og ljúki á
3-5 árum.
Forsætisráðherra óskaði í gær
eftir skýrum svörum samninga-
nefndar BHMR við tilboðinu.
Ljóst var á miðnætti, að samn-
inganefndin var ekki tilbúin að
ganga að því alls óbreyttu, heldur
freista þess að ná einhverju frek-
ar fram, þrátt fyrir yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar um lokatilboð
af sinni hálfu.
-•g-
Sjá síðu 3
dómstólanna, þeir hefðu heimil-
að þessar hleranir. „Dómstólarn-
ir eru lykilatriði í þessu máli,“
sagði Böðvar.
I fyrirspurn til dómsmálaráð-
herra var spurt hvort hann teldi
tryggt að alltaf væri farið eftir
lögum og reglum varðandi síma-
hleranir. í svari ráðherra segir að
dómstólar meti skilyrði til síma-
hlerunar. „Því verður að treysta
að þeir gæti þess að símahleranir
séu því aðeins leyfðar að ríkar
ástæður séu fyrir hendi.“
Þá kom fram í svari ráðherra að
„réttarfarslög kveða eigi á um að
þolanda skuli gerð grein fyrir því
að hlerun hafi farið fram.“ Böðv-
ar Bragason lögreglustjóri sagði
þetta atriði vera mjög umdeilt, en
það væri vel þess virði að umræða
færi fram um það. Hér á landi
hefðu menn farið að fordæmi
nágrannaþjóða.
Fyrir all nokkru birtist grein í
hérlendu tímariti um allumfangs-
mikinn innflutning hlerunar-
tækja. Böðvar sagði að lögreglan
hefði rannsakað það mál en ekki
orðið neitt ágengt. „Hlerunar-
tæki eru í eðli sínu háþróuð og
lítil umfangs og því auðvelt að
smygla þeim inn í landið. Það er
umhugsunarefni hvort slík tæki
eru til í einhverjum mæli. Það
hafa hins vegar ekki komið upp
dæmi þess að menn hafi orðið
uppvísir að misferli af þessu
tagi,“ sagði Böðvar Bragason.
phh
ísafjörður
Allt
ákafi
í snjó
Um 20 sm jafnfallinn snjór var
á götum bæja og þorpa á norðan-
verðum Vestfjörðum í gær eftir
snjókomu helgarinnar og varð
víða mjög þungfært af þeim
sökum. Þá féllu tvö snjóflóð á veg-
inn um Óshlíð.
Að sögn lögreglunnar á ísafirði
voru götur bæjarins orðnar auðar
fyrir hvítasunnuhelgina og voru
bæjarbúar sumir hverjir farnir að
huga að vorverkunum í görðum
sínum á Eyrinni áður en hann
skall á með hvassri norðanátt
með snjókomu. Um hádegisbilið
í gær var enn snjómugga vestra en
þegar leið á daginn stytti upp og
sá þá til sólar.
Hvítasunnuhretið hrelldi ekki
aðeins mannfólkið heldur og
einnig nýhafið æðarvarp á Mýr-
um, í Æðey og Vigur. Að sögn
Baldurs Bjarnasonar bónda í
Vigur kemur þetta alveg hörmu-
lega út fyrir varpið og var ekki á
bætandi því nægur snjór var fyrir.
f ísafjarðardjúpi sér varla á
dökkan díl núna þegar sauðburð-
ur er í þann veginn að byrja.
-grh
Forystumenn BHMR ganga á fund ríkisstjórnarinnar í gærmorgun þar sem samningsuppkast var formlega
lagt á borðið. Frá v. Birgir Björn Sigurjónsson framkvstj. BHMR, Páll Halldórsson form. BHMR og Wincie
Jóhannsdóttir form. HÍK. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í baksýn. Mynd-þóm.
BHMRIríkið
Vantar herslumuninn!
Samninganefnd háskólamanna á ströngum fundifram á nótt. Vilja
frekari viðrœður um tryggingarfyrir aðlögun að„markaðslaunum<(.
Forsœtisráðherra: Lengra verður ekki komist