Þjóðviljinn - 18.05.1989, Síða 1
Eg vil tala opinskátt við fólk og
stjórnvöld á íslandi, sagði
Eric McVadon aðmíráll, yfir-
maður bandaríska herliðsins í
Keflavík í kveðjuræðu í fyrradag,
þegar hann lét af störfum sem yf-
irmaður.
McVadon taldi að vinstrimenn
hefðu einokað um of alla umræðu
um „varnarsamstarfið" hér á
landi og að með tilkomu nýrrar
hægristjórnar ætti að fara fram ný
endurskoðun varnarsamstarfsins
sem fæli ekki bara í sér að tak-
marka áhrifin af nærveru nokk-
urra þúsunda útlendinga á horni
landsins, eins og nú væri talað
um, heldur þyrfti að „endur-
skoða hvort afstaða fslands til
varnarsamstarfsins sé við hæfi og
fullnægjandi hvað varðar stuðn-
ing við Varnarliðið. Eru íslend-
ingar ánægðir með þann stuðn-
ing, þá gestrisni og það samstarf,
sem þróast hefur á þeim nærri
fimm áratugum, sem þessir aðilar
hafa verið bandamenn og íbúar
sömu eyjunnar?" spurði McVa-
don.
Hann gaf það jafnframt í skyn
að gróðafíkn hermangsaflanna
hér á landi stæði nauðsynlegum
hernaðarfræmkvæmdum fyrir
þrifum: „Viðskiptaleg samskipti
(hersins og íslendinga) ættu að
geta staðist innri samviskuásak-
anir okkar og þau ættu líka að
standast rannsóknir ■ þinganna
eða jafnvel rannsóknarnefnda.
Annars getur sjálfhygli af hálfu
íslendinga eða Bandaríkjamanna
einfaldlega leitt til þess að banda-
ríska varnarmálaráðuneytið eða
þingið samþykki ekki fram-
kværndir sem Varnarliðið hefur
brýna þörf fyrir og sem koma ís-
landi til góða beint eða óbeint.
Við verðum að framkvæma hlut-
ina á eins ódýran hátt og hægt er,
og nota hugvit okkar til þess að
draga úr kostnaði og auka hag-
kvæmni. Það gengur ekki lengur,
hvorki í Pentagon né á Kapítól-
hæðinni, að segja í fölskum af-
sökunartón að Island sé einstakt
og halda síðan að umbeðið fjár-
magn komi streymandi, eða að
sérstakar undantekningar frá
stefnu og hefð verði gerðar.“
-ólg
Eric McVadon aðmíráll. Ljósm. ólg.
Kveðjurœða McVadons
Samskiptahættir að breytast?
Steingrímur J. Sigfússon: Kveðjurœða McVadons er reginhneyksli. Hyggst láta kanna hvortþetta
varfrumhlaupflotaforingjans eðahvort rœðan boði nýja tíma í samskiptum ríkjanna
Að svo miklu leyti sem þetta er
maður sem mark er á tak-
andi, og það hlýtur maður nátt-
úrlega að ætla, þá er það algjört
hneyksli og stórmóðgun við okk-
ur að leyfa sér að vera að skipta
sér af okkar innri málum, blanda
sér í þau og reyna að hafa áhrif á
BHMR/ríkið
Lokaspretturinn seinfarinn
Líkur taldar á að lotunni lykti með undirskrift. BHMR vill ótvírœtt
orðalag í samninginn
Samningaviðræður BHMR og
ríkisins stóðu í allan gærdag
og undir kvöld gerðu menn sér
vonir um að lotunni lyktaði með
undirskrift samninga. Greinilegt
var þó að þungt hljóð var í ýms-
um samningamönnum BHMR
sem töldu fyrirliggjandi samn-
ingsdrög ekki góð og var þó sýnu
þyngst i kennurum.
Töldu þeir ýmsar málsgreinar
samningsins ekki nægilega skýrt
orðaðar og vildu fá þær orðaðar
upp á nýtt af ótta við að þær yrðu
túlkaðar þeim á annan og óhag-
stæðari máta þegar fram í sækti
en nú er um rætt. Hér hræðir
reynslan af svikum fyrri ríkis-
stjórna á gefnum loforðum kenn-
urum til handa. Þá var óánægja
með að samningurinn gæfi hrein-
lega ekki nægilega mikið í aðra
hönd, sérstaklega með tilliti til að
verkfall hefur staðið í sex vikur.
Vinna samninganefnda í gær fór
því í að reyna að ná samkomulagi
um þessi atriði og var þó greini-
legt á samningamönnum BHMR
að þeir ætluðu ekki að rasa um
ráð fram á endasprettinum og
mætti því búast við að viðræðurn-
ar drægjust fram á nótt eða
jafnvel Iengur.
BHMR-fólk bíður. Mynd þóm.
Meðal þeirra atriða sem
BHMR lagði áherslu á að fá
breytt var t.d. 1. grein tillögu
ríkisins sem fjallar um endur-
skoðun launakerfis háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna með
tilliti til ábyrgðar, sérhæfni og
menntunar og telja þá grein ekki
orðaða á nægilega skýran hátt. Þá
var mikil óánægja með orðalag í
15. grein sem kveður á um að
verði almennar breytingar á
„launum" annarra launþega geti
BHMR krafist breytinga á
launaliðum. Hér vilja BHMR-
félagar að í stað orðsins „laun“
komi „kjör“ eða „launakjör"
enda hafi ríkið að öðrum kosti öll
ráð í hendi sér til óhagstæðrar
túlkunar.
Náist samningar má búast við
að kennarar hverfi til starfa við
svo búið, þó um það hafi staðið
styr í samningaviðræðum í gær.
Vilja kennarar fá greidda yfirtíð
fyrir þá kennslu sem fyrirsjáanleg
er í júní og jafnvel í haust, enda
hafi þeir þegar lokið sinni vinnu-
skyldu.
phh
þau. Það kemur hvorki þcssum
herra við né öðrum Bandaríkja-
mönnum hvernig við myndum
ríkisstjórnir á Islandi og þaðan af
síður hvað þær ríkisstjórnir gera,
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
landbúnaðar- og samgönguróð-
herra, í gær þegar Þjóðviljinn
innti hann álits á kveðjuræðu Er-
ics McVadons flotaforingja og
fráfarandi yfirmanns setuliðsins
á Miðnesheiði.
„Það er fullkomin móðgun við
okkur að háttsettur bandarískur
embættismaður láti sér slíkt sem
þetta um munn fara. f fyrsta lagi
verðum við að mótmæla þessum
orðum harkalega og í öðru lagi
verðum við að krefjast tafar-
lausra skýringa á því hvað felist í
þeim. Hvort þetta sé eitthvert
frumhlaup flotaforingjans eða
hvort eitthvað meira búi að baki.
Hvort nú fari í hönd nýir tímar í
framkomu Bandaríkjamanna í
okkar garð og samskiptum þjóð-
anna.
Steingrímur sagði að út úr ræð-
unni allri andaði vonbrigðum
McVadons með það að íslenska
þjóðin skuli ekki vera á hnjánum
og sleikjandi útum yfir molunum
sem falli af borði setuliðsins.
Maður gæti ætlað að hann hefði
fyrr á sínum ferli þjónað í banda-
rískri flotastöð einhvers staðar
þar sem yfirvöld sæju um að
kveða niður andófsraddir alþýðu
manna.
„En það veldur þessum her-
manni miklum vonbrigðum að
hér hefur þó tekist að einangra
herinn að miklu leyti og að stór
hluti almennings er í hjarta sínu
andvígur hersetunni og þessi von-
brigði ganga einsog rauður
þráður gegnum ræðuna.
Við lestur þessarar ræðu varð
mér hugsað um það að það er
engin tilviljun að ömurlegustu
ræður sem eru fluttar á íslenskri
grund flytja menn í herstöðinni á
Miðnesheiði. Það má vart á milli
sjá hvor er ömurlegri, kveðju-
ræða Erics McVadons eða ræða
sú er Ronald Reagan, þáverandi
Bandaríkjaforseti, flutti í her-
stöðinni að afloknum leiðtoga-
fundi í Reykjavík haustið 1986.“
ks
Sjá síðu 2
Iþróttir
Ráðherra-
fundur
Um næstu mánaðamót verður
haldinn í Reykjavík fundur
íþróttamálaráðherra aðildar-
ríkja Evrópuráðsins. Fundinn
sækja fulltrúar allra 25 aðildar-
ríkjanna sem undirritað hafa
menningarsáttmála ráðsins auk
þess sem ýmis önnur sambönd
munu eiga áheyrnarfulltrúa á
fundinum. Þá er ráðgcrt að full-
trúar Kanada, Ungverjalands og
Póllands muni sitja fundinn og er
hér um alls 160 þátttakendur að
ræða, þar af yfir 20 ráðherra.
Helstu verkefni ráðstefnunnar
eru annars vegar á sviði samvinnu
um íþróttastarf í Evrópu og hins
vegar um stefnumótun íþrótta-
mála sem efst eru á baugi hverju
sinni. Má búast við að mest verði
fjallað um aðgerðir varðandi of-
beldi á kappleikjum, efnahags-
legt mikilvægi íþrótta og væntan-
legan sáttmála um lyfjanotkun í
íþróttum.
Svavar Gestsson er ráðherra
íþróttamála hér á landi. -þóm
Við höfum verið bandamenn og íbúar sömu eyjunnar ínœrrifimm
áratugi, er ekki kominn tími til að gestgjafinn endurskoði
gestgjafahlutverk sitt, sagðiEric McVadon aðmírállþegarhann létaf
störfum á Keflavíkurflugvelli í gœr
Fimmtudagur 18. maí 1989 89. tölublað 54. árgangur
Kveðjurœða
Islendingar
lélegir gestgjafar