Þjóðviljinn - 30.05.1989, Qupperneq 11
MINNING
Jón Hjálmarsson
skósmiður
Fæddur 27. mars 1909 Dáinn 29. apríl 1989
þangað úr gróðrarstöð þeirra
hjóna, Sigurbjöms og Fanneyjar.
Þegar Sigurbjörn sá að hverju
stefndi, keypti hann V2 ha. í Helg-
adal í Mosfellssveit. Þangað náð-
ist með harðfylgi að bjarga
nokkrum stórum trjám og
plöntusafni stöðvarinnar. Margt
fallegt tréð mun þó hafa horfið
undir ýtutönn.
Þessi aðför að lífsstarfi hans
varð honum mjög þungbær og sat
í honum alla ævi.
Landskikinn í Helgadalnum
sem fékk nafnið Hreggstaðir, var
aldrei sem gróðrarstöð. En rækt-
unaráhuginn var slíkur, og gleðin
yfir að sjá trén vaxa og dafna, að
hann gat ekki hætt að rækta.
Hann keypti því aðliggjandi
landspildur þegar honum buðust
þær.
Nú rúmum tveim áratugum
síðar er þar glæsileg gróðrarstöð
og skógrækt á nær 9 ha, svæði.
Eru aðstæður þó allt aðrar og erf-
iðari en í Fossvoginum. Björn
sonur þeirra, sem byggði þessa
stöð upp með foreldrum sínum,
er tekinn við henni fyrir nokkrum
árum. Ber gróðrarstöðin nú nafn-
ið Gróandi.
Yfir vetrartímann bjó Sigur-
björn í Fossvoginum og fór hann
þá gjarnan langar gönguferðir
um dalinn og nágrenni. Á vorin
tóku þau hjónin sig upp og fluttu
upp að Hreggstöðum.
Á yfirferð sinni kom hann
gjarnan við í einhverri af gróðrar-
stöðvunum á svæðinu. Fátt fór
fram hjá honum og svo næmur og
athugull var hann á ástand og líð-
an gróðurs, að undravert var.
Hann var einnig fljótur að átta sig
á hagkvæmni í verkum og skipu-
lagningu. Fróðleiksbrunnurinn
var sjaldan tómur hjá honum, en
einnig átti hann það til að veita
áminningu ef honum fannst
eitthvað miður fara.
Við eigum eflaust eftir að
sakna þess að finna ekki lyktina
af pípureyknum, sem oftast boð-
aði komu Sigurbjörns
Við vottum fjölskyldu hans,
eiginkonu, börnum og barna-
börnum samúð okkar.
Félag
garðplöntuframleiðenda
Laugardaginn 29. apríl sl.
andaðist að heimili sínu vinur
minn og mágur Jón Hjálmarsson
skósmiður, Hverfisgötu 15,
Siglufirði.
Andlát hans kom óvænt,
a.m.k. okkur, sem ekki höfðum
fylgst með heilsufari hans þá að
undanförnu, en þau hjónin höfðu
dvalið í Reykjavík um tíma, þar
sem þau voru við fermingu sonar-
dótturinnar, Sigríðar Erlu, um
miðjan apríl.
Jón varð áttatíu ára þann 27.
mars sL, honum þótti ævidagur
að kveldi kominn og var sáttur
við lífið og tilveruna. Þau voru
komin heim í litla húsið sitt, þau
höfðu verið viðstödd fermingu
Sirrýar, sem var þeirra uppáhald
og augasteinn, og notið samvista
við fjölskyldu hennar og vina-
fólk.
Slæmt kvef og þyngsli fyrir
brjósti höfðu angrað Jón síðustu
dagana og að morgni laugardags
þyngdi honum nokkuð og ein-
kenni sjúkleika, sem í nokkur ár
hafði búið með honum, gerðu nú
vart við sig. Hann færði sig því af
svefnlofti og niður á hæðina og
lagðist fyrir á dívan, eins og hann
oft hafði gert þegar líkt stóð á. En
nú dugðu hjartatöflurnar ekki til
að lina takið, hann sofnaði í ró-
semd og friði, og var liðinn um
það bil sem læknirinn kom. Slíkr-
ar brottfarar af þessum heimi
hafði hann oft óskað sér, að fara
fljótt og þjáningalaust.
Útför Jóns var gerð frá Siglu-
fjarðarkirkju þ. 6. maí að við-
stöddu fjölmenni. Sr. Stína
Gísladóttir jarðsöng.
Jón Hjálmarsson var fæddur
27. mars árið 1909 að Stóra-Holti
í Fljótum. Foreldrar hans voru
Hjálmar Jónsson, bóndi þar, og
Sólveig Jónsdóttir, ráðskona
hans. Hjá þeim var Jón til tveggja
ára aldurs, en var þá komið í fóst-
ur til Marsibilar Sigurðardóttur
og Sigurðar Jónssonar, sem
gengu honum í foreldra stað. Hjá
þeim ólst hann upp. Bernskuárin
á Siglufirði urðu honum oft um-
ræðuefni, minningar úr barna-
skóla voru honum ríkar í huga
sem og minningar unglingsár-
anna í vaxandi bæjarlífi Siglu-
fjarðar um og upp úr 1920. Eins
og aðrir unglingar fór hann að
vinna strax og getan leyfði. Hug-
urinn stóð þó fljótt til þess að læra
eitthvað og skapa sér fastan
grundvöll til framtíðar.
Þegar aldur og aðstæður leyfðu
hóf Jón iðnnám, gerðist lærlingur
í skósmíðaiðn hjá Guðlaugi Sig-
urðssyni skósmíðameistara á
Siglufirði. Og því námi lauk hann
með sveinsprófi og burtfararprófi
frá Iðnskóla Siglufjarðar.
Nokkru síðar veiktist hann af
berklum og varð næstu árin á eftir
að dveljast á Kristnesi í Eyjafirði.
Dvölin á Kristnesi veitti Jóni
sæmilega heilsubót, en afleiðing-
ar berklaveikinnar fylgdu honum
þó til æviloka.
Með tilliti til heilsunnar hóf
Jón nám í húsasmíði, og var það
von hans að útivinna myndi eiga
betur við heilsufarið eins og því
var komið. Ekki varð þó langt í
því námi, heilsan þoldi ekki það
álag sem slíkri vinnu fylgdi. Og
sneri hann þá aftur að skósmíði,
flutti til Dalvíkur, stofnaði þar
vinnustofu í félagi við tvo vini
sína. Störfuðu þeir þar í nokkur
ár, en flutti sig svo með vinnu-
stofuna til Siglufjarðar og unnu
þar saman í hart nær áratug. Jón
var svo síðast orðinn einn eftir,
og starfaði við iðn sína allt til árs-
ins 1982 að hann varð að hætta
vegna heilsubrests.
Skömmu eftir að Jón flutti frá
Dalvík til Siglufjarðar kynntist
hann systur minni, Sigríði, og
leiddu þau kynni til þess að þau
gengu í hjónaband árið 1948 og
stofnuðu heimili hér í bæ. Þeim
varð tveggja sona auðið, Hjálm-
ars og Magnúsar, sem báðir eru
efnis- og sæmdarmenn. Hjálmar
varð búfræðingur frá Hólaskóla,
síðar starfsmaður í álverinu í
Straumsvík um langt árabil og
seinna byggingaverkamaður hér í
bæ. Hann kvæntist Hólmfríði
Hafberg, þau eignuðust dóttur,
Sigríði Erlu, sem varð, svo sem
áður er sagt, yndi og augasteinn
afa og ömmu. Hjálmar og Hólm-
fríður slitu hjónabandi fyrir
nokkrum árum, og flutti hann þá
heim til foreldra sinna og hefur
búið með þeim síðustu árin.
Magnús fetaði iðnbrautina,
lauk námi í rafvirkjaiðn á Akur-
eyri og hefur starfað þar að iðn
sinni. Hann er ókvæntur.
Þau Jón og Sigríður hafa allan
sinn búskap átt hlýlegt og vina-
legt heimili. Lengst hafa þau búið
í litla húsinu sínu á Hverfisgötu
15, þar hefur snyrtimennska og
hirðusemi ráðið ríkjum utan dyra
sem innan og voru þau mjög sam-
hent í því sem öðru.
Jón Hjálmarsson var félags-
lyndur maður. Hann tók veru-
legan þátt í félagslífi bæjarins, og
þá helst því, sem höfðaði til
áhugamála hans. Hann var virkur
í starfi Iðnaðarmannafélags
Siglufjarðar meðan það var starf-
andi. Hann hafði róttækar skoð-
anir á þjóðmálum og starfaði í
sósíalistasamtökum bæjarins.
Hann var einn af stofnendum
Kvæðamanna- og hagyrðingafé-
lagsins Braga, sem starfaði allvel
í nokkur ár. Og síðustu árin hefur
Jón verið virkur félagi í Félagi
eldri borgara og að auki tekið
ríkulegan þátt ásamt konu sinni í
tómstundastarfi eldra fólksins.
Jón var fróðleiksfús og las
mikið fræðandi bækur, enda átti
hann orðið gott bókasafn. Hann
var með afbrigðum ljóðelskur
maður, átti auðvelt með að læra
ljóð utanað og hafði ótrúlega gott
minni á ljóð og vísur til hins síð-
asta. Hann kunni feiknin öll af
lausavísum og var minnugur á ti-
lefni vísna. Hann var „hafsjór" af
vísum, eins og kunningjarnir
sögðu, og hafði gaman af að fara
með vísur og kveðskap. Eigin
hagmælsku flíkaði hann lítt, en
gat vel kastað fram stöku, ef svo
bar undir.
Þegar ég lít til liðinna ára og
sambands okkar systkinanna við
mág okkar, Jón, þá verður efst í
huga minningin um það hve
elskulegt og traust samband hans
var við foreldra okkar, meðan
bæði lifðu, og við föður okkar
meðan hann lifði til hárrar elli.
Jón varð strax sem eitt af
systkinunum. Og þau okkar sem
fjarri bjuggu, mátu hann ekki
síður en við, sem höfðum nánara
samneyti við þau hjónin. Hann
var sem einn bróðirinn í
systkinahópnum.
Hans er því sárt saknað nú,
þegar hann er ekki lengur með á
vegferð lífsins. En minningin um
góðan og elskuríkan samferða-
mann og lífsförunaut, föður og
afa, mun lifa og sefa söknuð og
trega okkar, sem áfram höldum á
lífsins göngu.
Blessuð sé minning Jóns
Hjálmarssonar.
Einar M. Albertsson
Menntaskólinn
í Kópavogi
Innritun fyrir næsta skólaár 1989-1990 fer fram
í Menntaskólanum í Kópavogi dagana 1 -5. júní
(aö báðum dögum meðtöldum).
Við skólann eru eftirtaldar námsbrautir:
Flensborgarskótinn í Hafnarfirði
Frá Flensborgarskóla
Innritun nýnema í dagskóla fer fram í Flens-
borgarskólanum fimmtudaginn 1. júní og föstu-
daginn 2. júní kl. 13-18 báða dagana. Við
innritun þurfa nemendur að skila útfylltu um-
sóknareyðublaði og afriti af grunnskólaprófi.
Starfsmenn skólans veita aðstoð og
leiðbeiningar við námsval innritunardagana og
eru nemendur hvattir til að notfæra sér þá þjón-
ustu.
Innritun í öldungadeild fer fram í ágúst og verður
nánar auglýst síðar.
Skólameistari
Frá mennta-
málaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru eftirtaldar stöður
lausar til umsóknar: franska, íslenska og saga (Vh staða),
sálar- og uppeldisfræði og náttúrufræði. Þá vantar náms-
ráðgjafa í hálfa stöðu og stundakennara í ýmsar greinar.
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti er starf skrifstofustjóra
laust til umsóknar.
Að Menntaskólanum á Egilsstöðum vantar enskukenn-
ara í hálfa stöðu.
Eðlisfræðibraut
Félagsfræðibraut
Ferðabraut
Hagfræðibraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Tölvubraut
Tónlistarbraut
Fornám
Innritun í fornám fer fram á sama tíma.
Námsráðgjafi verður til viðtals innritunardag-
ana og eru nemendur hvattir til að notfæra sér
þessa þjónustu.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, óskar eftir til-
boðum í sérútbúinn vagn með tækjum til sjálf-
virkra mælinga á loftmengun í ytra umhverfi.
Búnaðinum er ætlað að mæla mengun af völd-
um svifryks, köfnunarefnisoxids og kolsýrlings,
auk þess að mæla veðurþætti. Hann á að nota
til að fylgjast með umferðarmengun í Reykjavík.
Við Stýrimannaskólann í Reykjavík er laus til umsóknar
staða í íslensku.
Þá er laus til umsóknar staða kennara í myndíð við Fóstur-
skóla íslands og stundakennarastöður í heilbrigðisfræði,
félagsfræði og íslensku. Nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu skólans.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík fyrir 20. júní nk.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameistara við-
komandi skóia.
Þá er umsóknarfrestur um eftirtaldar kennarastöður fram-
lengdur til 6. júní:
Að Fjölbrautaskóla Vesturlands vantar kennara í stærð-
fræði og rafeindavirkjun.
Við Menntaskólann á Egilsstöðum eru lausar stöður í
frönsku, dönsku, stærðfræði, tölvufræði og viðskiptafræði.
Öllum umsóknum fylgi síaðfest afrit prófskír-
teinis auk Ijósmyndar.
Þeir sem sækja eftir tilskilinn umsóknarfrest
geta ekki búist við að fá skólavist.
Skólameistari
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð
á sama stað þriðjudaginn 4. júlí kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
Að Framhaldsskólanum á Húsavík vantar kennara í ís-
lensku, stærðfræði og myndmennt.
Þá vantar kennara að Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
dönsku og íslensku.
MENNT AMÁLARÁÐUNEYTIÐ