Þjóðviljinn - 31.05.1989, Qupperneq 11
LESANPI
VIKUNNAR
Langar þig að sjá eitthvað í
bíó?
„Já, ætli ég reyni ekki að kom-
ast á Regnmanninn þegar hann er
kominn í K sal eða eitthvað!"
En í sjónvarpi?
„Nei, ekkert sérstakt.“
En í útvarpi?
„Ekkert sérstakt heldur. Ég
hlusta bara í bílnum og þá helst á
Rás 2 og Útvarp Rót.“
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
„Ég hef bara kosið einu sinni-
og kaus þann sama!“
Hvaða stjórnmálamann langar
þig mest til að skamma?
„Ég hef lítinn áhuga á
stjórnmálum, en ætli mig langi
ekki einna mest til að skamma
Eyjólfur Jóhannsson, tónlistarmaður. Mynd:Jim Smart
Framtíðarlandið
er fullt af poppmúsík
Hvað ertu að gera núna, Eyj-
ólfur?
„Ég er að taka upp plötu með
hljómsveitinni Síðan skein sól og
undirbúa fyrstu ferð okkar um
gjörvallt ísland. Við förum af
stað 19. júní og verðum á ferðinni
fram í júlí. Stefnum að því að
spila á 21 stað á 21 degi! Við ætl-
um ekki að fara sem rokkhljóm-
sveit með allar græjur því þá
komumst við ekki á minnstu stað-
ina - það myndi kosta okkur hýr-
una næstu árin. Við ætlum að láta
okkur nægja þrjá kassagítara - ég
leik á einn þeirra - og ásláttar-
hljóðfæri.
Pað hefur verið nóg að gera hjá
okkur í hljómsveitinni. Við spil-
uðum tvisvar til þrisvar í viku frá
því í lok nóvember og fram í
marsbyrjun, þá ákváðum við að
hætta til að geta unnið að nýju
plötunni. Við spilum eigin lög og
texta. Fyrst verðum við með róm-
antískan ástarsöng á safnplötu
17. júní, svo ætlum við að senda
hluta af upptökunum til Eng-
lands með upptökumanninum
okkar, Tony Clarke, og athuga
hvort einhver hefur áhuga á þeim
þar. Platan kemur svo út í haust
hér heima.
Það er gaman að vera poppari,
en ofsalega erfitt að lifa á því -
maður eyðir svo óreglulega!"
Hvað varstu að gera fyrir tíu
árum?
„Fyrir tíu árum - þá var ég 15
ára. Ég hef verið að ljúka sam-
ræmdu prófunum í Hagaskóla.
Þau gengu ágætlega. Svo fór ég í
Fjölbrautaskólann í Breiðholti
en hætti þar fljótlega til að fara að
spila."
Hvað ætlaðirðu að verða þegar
þú yrðir stór?
„Fram til tíu ára aldurs var ég
ákveðinn í að verða flugmaður.
Pað var draumastarfið, ekkert
annað kom til greina. Þegar ég
var tíu eða ellefu ára kynntist ég
dreng sem kynnti mig fyrir popp-
tónlist og ég var fljótur að falla
fyrir henni. Þá ákvað ég að verða
poppari og flugmannsdraumur-
inn flaug. Kannski kemur hann
aftur seinna, annars eru engin
aldurstakmörk í poppinu og ég
ætla að vera í því alveg þangað til
ég hætti."
Hvaða frístundagaman hef-
urðu?
„Ég vinn við áhugamál mitt,
allur tíminn fer í það. Þó var
stofnað fótboltafélag í fyrravor
þar sem ég lék af fótum fram.
Vonandi verður það endurvakið í
sumar. Ég hef gaman af að
sparka í leðurbolta þó að ég geti
ekki mikið."
Hvaða bók ertu að lesa núna?
„Ég er rúmlega hálfnaður með
Farewell my Lovely eftir Ray-
mond Chandler. Og næst á undan
henni las ég The Long Good-Bye
eftir sama höfund. Ég er sokkinn
ofan í sögur af einkaspæjurum
eins og er og finnst ofsalega gam-
an að þeim.“
Hvað finnst þér best að lesa í
rúminu á kvöldin?
„Ég les ekki í rúrninu."
Hvaða bók myndirðu taka með
þér á eyðiey?
„í bili myndi ég taka með mér
stórbók með fjórum skáldsögum
Chandlers. Ég treysti mér til að
lesa þær oft, því maður er alltaf
,að finna eitthvað nýtt í þeim.“
Hver var uppáhaldsbarnabók-
in þín?
„Uppáhaldsbókaflokkurinn
minn var ævintýrabækurnar eftir
Enid Blyton. Ég las þær oft og
mörgum sinnum og hélt mest upp
á þá fyrstu, Ævintýraeyjuna.
Ekki hef ég trú á að þetta séu
neitt óhollar bækur.“
Hvað sástu síðast í leikhúsi?
„Maraþondansinn. Því miður
var hann sýndur á Broadway sem
var vondur staður fyrir svona
verk. Þarna hafa verið sýndir
gleðileikir en þetta var mjög
sorglegt stykki. Fólk átti ekki von
á því og stemmningin var í sam-
ræmi við það. Á Broadway er líka
bara einn góður staður til að sitja
á, beint fyrir framan sviðið, ann-
ars staðar er fólk alveg utanveltu.
Þetta var gott leikrit og vel leikið,
fannst mér, en það var erfitt að
komast inn í það við þessar að-
stæður.“
Er eitthvað í leikhúsi núna sem
þú ætlar ekki að missa af?
„Mig langar til að sjá Gregor
eða Hamskiptin hjá Frú Emilíu
og Að byggja sér veldi hjá Þí-
bilju, ég hef heyrt vel af þeim
látið.“
Ólaf Ragnar, hann getur verið
svo leiðinlegur."
Hvernig myndir þú leysa efna-
hagsvandann?
„Mér líst illa á hann, en ég get
ekki leyst hann, því miður."
Hvernig á húsnæðiskerfið að
vera?
„Ég vildi helst að hver og einn
gæti leigt sér íbúð fyrir lítið fé. Að
ríkið byggði hús og leigði út á
sanngjörnu verði. Það er geð-
veiki að borga jafnvel 400 þúsund
krónur í fyrirframgreiðslu fyrir
eitt ár eins og fólk neyðist til að
gera. Svo finnst mér fráleitt að
fólk sem á húseignir sé á sama
biðlista og hinir sem ekkert eiga.
Ég skil bara ekki hvers vegna
þetta er svoleiðis."
Hvaða kaffitegund notarðu?
„Ég nota Café. Noir. Það er
frekar sterkt kaffi og til að það
njóti sín sem best helli ég bara
upp á einn bolla í einu í sérstakri
expressó kaffivél. Ég bý til ofsa-
lega gott kaffi.“
Hvað borðarðu aldrei?
„Mysing. Ég æli ef ég finn lykt-
ina af honurn."
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
„Ég gæti vel hugsað mér að búa
í Kaupmannahöfn, eða einhvers
staðaríDanmörku. Annarsgetur
mér liðið vel alls staðar. Ef ég fæ
gott kaffi og hef eitthvað að gera
sem mér finnst gaman að er mér
sama hvar ég bý.“
Hvernig finnst þér þægilegast
að ferðast?
„Mér finnst þægilegt að fljúga
- þar örlar á æskudraumnum um
flugmannsstarfið. “
Hvernig sérðu framtíðarlandið
fyrir þér?
„Fullt af poppmúsík! Nei nei!
Ég sé fyrir mér þessar ódýru
leiguíbúðir sem ég var að tala um,
í fallegum borgum með stórum
gróðursvæðum þannig að aldrei
sé langt að komast á gras. Ég er
borgarbarn og verð að hafa fullt
af fólki í kringum mig, en ég vil
hafa gras líka. Og poppmúsík!"
Hvaða spurningu langar þig til
að svara að lokum?
„Um það hvernig mér líði.“
Hvernig líður þér, Eyjólfur?
„Ég er ástfanginn.“
SA
í DAG
Þiódviuinn
Sósíalistafélag Reykjavíkur
heldurfélagsfundíAlþýðuhúsinu
við Hverfisgötu í kvöld kl. 8.30
síðdegis. Dagskrá: 1. Félagsmál.
2. Sigfús Sigurhjartarson flytur
erindi: „ Flokkurinn - verklýðsfé-
lögin-neytendahreyfingin". Um-
ræðuráeftir. 3. Önnurmál. Fé-
lagar! Minnið h ver annan á fund-
inn. Fyllið salinn stundvíslega.
Stjórnin.
31.MAÍ
miðvikudagur í sjöundu viku
sumars.tólftidagurskerplu, 151.
dagur ársins. Sól kemur upp í
Reykjavík kl. 3.25 en sest kl.
23.28. Tungl minnkandi á fjórða
kvartili.
VIÐBURÐIR
Alþjóða barnadagurinn.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúða vikuna
26. maí-1. júní er í Ingólfs Apóteki og
Lyfjabergi.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast naeturvörslu alla daga 22-9 (til
10 f rídaga). Síðarnef nda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík simi 1 11 66
Kópavogur...........sími 4 12 00
Seltj.nes...........sími 1 84 55
Hafnarfj............sími 5 11 66
Garðabær............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík...........sími 1 11 00
Kópavogur...........simi 1 11 00
Seltj.nes...........sími 1 11 00
Hafnarfj............simi 5 11 00
Garðabær............sími 5 11 00
L4EKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í sima 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsimi vaktlæknis 985-23221.
Kef lavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratimi 19.30-
20.30. Öldrunariækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
dagiega. St. Jósefsspitali Hafnarfiröi:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinmalladaga 15-16og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyri: alladaga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyju m: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sáifræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Simi 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virkadaga frá
kl. 8-17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgjöfin Hlaövarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími21500, símsvari.
Sjalfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er I upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Simsvari á öðrum timum. Síminn er
91-28539.
Félageldri borgara. Opið hús í Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (rafmagns- og hitaveitu:s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakts.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi
21260 alla virka daga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, erveitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimm'.udögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja viö smitaöa og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i síma91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
30. maí
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandarikjadollar.......... 57,39000
Sterlingspund............. 89,97900
Kanadadollar.............. 47,57700
Dönskkróna................. 7,33650
Norskkróna................. 7,93670
Sænskkróna................. 8,50600
Finnsktmark............... 12,85330
Franskurfranki............. 8,43470
Belgískurtranki............ 1,36420
Svissn.tranki............. 32.67290
Holl. gyllini............. 25,33720
V.-þýskt mark............. 28,55220
(tölsklíra................. 0,03950
Austurr. sch............... 4,05910
Portúg. escudo............. 0,34480
Spánskur peseti............ 0,44760
Japanskt yen............ 0,40017
Irsktpund................. 76,39500
KROSSGATA
1 2 [3 □ 4 5 1 3
m s i i
9 ið 11
12 fí» 14
• u 18 L. J
D 18 19 20
n 22 □
24 □ • 2S ' } 1 ]
Lárétt: 1 fjötrar 4 hland
8 hólmganga 9 hæð 11
mjög12vond14eins
15 óhreinkar 17 menn
19eðja21 gruna22
goð 24 sigaði 25 drakk
Lóðrétt: 1 hitta2dylja
3 skerfur 4 kös 5 kona 6
siðað7afmarkar10
karlmannsnafn 13
snaáðir16blauða17
eyða18megnaði20
konu23þröng
Lausnésfðustu
krossgátu
Lárétt: 1 fólk4ögra8
eyðslan 9 Æsir 11
kæna 12gortar i4an
15iðar17stóll 19jós
21 óna 22 atóm 24 part
25 álag
Lóðrétt: 1 træg 2 Ieir3
kyrtil4öskra5glæ6
rana7ananas 10
sortna13aðla16rjól
17sóp18óar20óma
23 tá
Mlðvlkudagur 31. maí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11