Þjóðviljinn - 01.06.1989, Page 1
ASÍ/BSRB
Forsendumar em brostnar
Gífurleg óánœgja ríkirmeÖal launafólks út afþeim verðhœkkunum sem heimilaðar hafa verið á bensíni, olíu, hita,
rafmagni ogfargjöldum bíla ogflugfélaga. ASÍ ogBSRB halda sameiginlegan mótmœlafund á Lœkjartorgi ídag klukkan
16. Fjármálaráðherra: Hœkkanirnar óhjákvœmilegar vegna erlendra hœkkana og verðbreytinga á alþjóðlegum
gjaldeyrismörkuðum. Ekki brot á nýgerðum kjarasamningum
Gífurleg óánægja er meðal
launafólks vegna þeirra verð-
hækkana sem heimilaðar voru á
fundi Verðlagsstofnunar í fyrra-
dag á bensíni, gasolíu, hita og raf-
magni og á fargjöldum bfla og
flugfélaga sem taka gildi í dag. Þá
bendir allt til þess að búvöruverð
hækki einnig í dag. Til að mót-
mæla þeim standa ASI og BSRB
fyrir sameiginlegum mótmæla-
fundi á Lækjartorgi í dag klukk-
an 16 og hvetja launþegasamtökin
allt launafólk til að taka sér frí frá
vinnu klukkan 15.30.
Þá hafa þeir Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASÍ, Einar Ólafs-
son fulltrúi BSRB og Magnús
Geirsson fulltrúi ASÍ ákveðið að
mæta ekki á fundi Verðlagsráðs
að svo komnu máli. Þetta gera
þremenningarnir til að undir-
strika mótmæli miðstjórnar ASÍ
og stjórnar BSRB vegna þeirrar
verðhækkunaröldu sem nú
gengur yfir landsmenn.
Á sameiginlegum blaða-
mannafundi ASÍ og BSRB í gær
sagði Ásmundur Stefánsson for-
seti ASÍ að með þessum hækkun-
um hefði ríkisstjórnin brugðist
með alvarlegum hætti því trausti
sem til hennar var borið vegna
yfirlýsinga ráðherra við síðustu
samningagerð um að hamla gegn
verðhækkunum. Þá mótmælir
miðstjórn ASÍ harðlega þeim
stórfelldu verðhækkunum sem
Veðrið
Sumar
ogsól
Líkurágóðu veðri
fram að helgi
Það má með sanni segja að
fyrsti alvöru sumardagurinn hafi
verið í gær. Hitinn var víða 10-15
stig og í Reykjavík mældist 9 stiga
hiti kl. 9.
Að sögn Páls Bergþórssonar
veðurfræðings megum við þakka
háþrýstisvæði og hlýju lofti hátt
yfir landinu þetta góða veður.
Það er hæg suðaustan átt og
jafnvel líkur á að þetta haldist
fram að helgi.
Páll sagði sumarið vera seinna
á ferð en undanfarin ár. Það
munaði um hálfum mánuði þegar
til skemmri tíma væri litið, en
ekki nema viku samkvæmt lang-
tímameðaltali.
Aðspurður um hvernig jörðin
væri á sig komin fyrir sumarkom-
una, sagði Páll að hún væri í góðu
lagi. Það væri ekki frost í jörðu og
hún væri tilbúin að blómstra svo
fremi sem hún fengi daga eins og
daginn í gær. Menn myndu sjá
dagamun á gróðri eftir þennan
hlýja sumardag.
nú ganga yfir landsmenn. Ög-
mundur Jónasson formaður
BSRB tók í sama streng og sagði
hækkanirnar ekki í neinu sam-
ræmi við forsendur nýgerðra
kjarasamninga. Ögmundur sagði
að ríkisstjórnin hefði með þeim
ákveðið að efnahagsreikningar
fyrirtækja nytu forgangs á kostn-
að efnahagsreikninga heimilanna
í landinu.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði það ekki vera
skemmtilegt að til þessara verð-
hækkana hafi þurft að koma en
því miður hafi þær verið óhjá-
kvæmilegar og alls ekki brot á
forsendum nýgerðra kjarasamn-
inga. „Að halda því fram að ríkis-
stjórnin hafi gengið á bak orða
sinna, eins og haldið hefur verið
fram, er rangtúlkun á þeim fyrir-
heitum sem við gáfum,“ sagði
fjármálaráðherra.
Ráðherra sagði ástæður þess-
ara verðhækkana vera einkum
erlendar verðhækkanir og verð-
breytinga td. á dollar á alþjóð-
legum gjaldeyrismörkuðum.
Ólafur Ragnar sagði að það hefði
verið skýrt tekið fram við gerð
síðustu kjarasamninga að ríkis-
stjórnin ætlaði ekki að greiða nið-
ur áhrif erlendra verðhækkana.
„Þó að við séum eyland í land-
fræðilegum skilningi erum við
það ekki í efnahagslegu tilliti,"
sagði Ólafur.
Varðandi hækkun á landbún-
aðarvörum sagði fjármálaráð-
herra að ríkisstjórnin hefði lýst
því yfir við gerð kjarasamning-
anna að hún myndi halda áfram
þeim niðurgreiðslum sem áttu að
falla niður við lok verðstöðvun-
artímabilsins. Til þess ákvað
ríkisstjórnin að verja 600 miljón-
um umfram það sem var á fjár-
lögum í ár. „Hinsvegar lá það
ljóst fyrir að á þessu ári myndu
verða ýmsar hækkanir á landbún-
aðarvörum umfram þetta," sagði
Ólafur Ragnar.
________________________-grh
Sjá síðu 3
Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands og Ög- menna á Lækjartorgi í dag klukkan 16 til að mótmæla kröftuglega
mundur Jónasson formaður BSRB hvetja allt launafólk til að fjöl- þeirriverðhækkunaröldusemnúgenguryfirlandsmenn.MyndiÞÓM.
Fótbolti
Stefnan sett á ttalíu
ísland náði öðru sinnijafntefli gegn Sovétmönnum íforkeppni HM
Islenska landsliðið í fótbolta
gerði jafntefli við það sovéska í
landsleik sem háður var í Moskvu
í gær. Leikurinn er í undan-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar og er Island eina liðið í riðlin-
um sem náð hefur stigi í viðureign
gegn Sovétmönnum.
Tæplega lOOþúsund áhorfend-
ur voru á Lenín-leikvanginum í
Moskvu í gær. Leikurinn var
lengst af í jafnvægi en Sovétmenn
þó ávallt meira með knöttinn.
Ekkert mark var skorað í fyrri
hálfleik en ekki var langt liðið á
þann síðari er heimamenn höfðu
náð forystunni. Eftir það þóttust
silfurhafarnir í Evrópukeppninni
hafa sigurinn í hendi sér en
landinn var á öðru máli.
Þegar aðeins þrjár mínútur
voru til leiksloka náði Halldór
Áskelsson að jafna metin með
glæsilegu skoti úr miðjum víta-
teig. Sovétmenn, sem reynt
höfðu að tefja leikinn síðustu
mínúturnar, sátu eftir með sárt
ennið en Islendingar fögnuðu á-
kaft. Halldór hafði ásamt Rúnari
Kristinssyni komið inná sem
varamaður og hleyptu þeir nýju
blóði í leik íslendinga.
Með jafnteflinu eykst von fs-
lendinga um að ná öðru af
tveimur efstu sætunum í 3. riðli
og tryggja sér þannig þátttöku-
rétt í úrslitakeppninni á Ítalíu. fs-
land á eftir að leika gegn Tyrk-
landi, A-Þýskalandi og Austurr-
íki hér heima og gegn þeim síð-
asttöldu ytra. Staðan í riðlinum
er þannig:
Sovétríkin ....
Tyrkland....
Austurríki..
fsland......
A-Þýskaland
-þóm
5 3 2 0 8-2 8
5 2 1 2 8-6 5
3 1114-5 3
4 0 3 1 3-5 3
5 113 4-9 3
Halldór Áskelsson var hetja ís-
ienska liðsins í Moskvu í gær.
i