Þjóðviljinn - 03.06.1989, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 03.06.1989, Blaðsíða 14
 ** Forstöðumaður kvöldskóla Kópavogs Skólanefnd Kópavogs auglýsir lausttil umsókn- ar starf forstöðumanns kvöldskóla Kópavogs. Við leitum að starfsmanni til að skipuleggja og annast starfsemi skólans og þurfum dugmikinn og framtakssaman starfsmann með skipulags- og stjórnunarhæfileika. Meðal verkefna eru margvísleg fullorðinsfræðsla, tómstundanám og undirbúningur endurmenntunar og starfs- fræðsla við skólann og fjármálastjórn. Kvöldskólinn skipuleggur einnig námskeið fyrir starfsfólk Kópavogskaupstaðar. Starfið veitist frá 15. ágúst 1989 eða eftir nán- ara samkomulagi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skólaskrifstofu Kópavogs, Hamraborg 12 sem gefur nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 18. júní n.k. Skólafulltrúi Útboð Skagafjarðarvegur, Varmilækur - Mælifellsá, 1989 Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 3,3 km. Magn 20.000 m3. Verki skal lokiö 15. október 1989. Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og meö 6. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 19. júní 1989. Vegamálastjóri Útboð Slitlög 1989- Klæðingar á Suðurlandi ''/v/m w Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint ' verk. Magn 120.000 2. Verki skal lokið 1. september 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sel- fossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 12. júní 1989. Vegamálastjóri Utboð Langadalsá 1989 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 2,3 km, fylling 55.000 m3 og neðra burðarlag 11.000 m3. Verki skal lokið 1. júlí 1990. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á isa- firði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 19. júní 1989. Vegamálastjóri Utboð Klæðingar á Vesturlandi Vegagerð ríkisins óskar eftír tilboðum í ofangreint verk. Lengd kafla: 10,0 km nýlagnir. 2,35 km styrkingar og yfirlagnir, Magn samtals 84.000 fermetrar. Verki skal lokið 1. september 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borg- arnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 12. júní 1989. Vegamálastjóri Afmœliskveðja Aðalsteinn Jóhannsson Skjaldfönn Tíminn líður hratt, einnig á köldu vori við ísafjarðardjúp og menn ræða tíðarfarið og muna vart annað eins, enda minni á veður misjafnt, og ef til vill muna sumir liðin harðindavor þótt þeir muni þau ekki. En einn af gleggstu bændum Djúpsins varð áttræður hinn 16. maí mánaðar, maður með trútt minni og hefur lifað mörg vor blíð og stríð hér á slóð, Aðalsteinn Jóhannsson bóndi á Skjaldfönn áratugum saman og þar runninn upp; er það mín meining fullkomin að orðum hans megi treysta í þessu efni sem öðrum. Bændaættir standa að Aðal- steini og bjuggu foreldrar hans á Skjaldfönn, Jóhann Ásgeirsson og kona hans Jóna Jónsdóttir ljósmóðir, enda mun búskapur hafa staðið næst hjarta hans sem sá atvinnuvegur, er hann helzt vildi stunda, ekki þó með gróða- sjónarmið í huga, heldur öllu fremur köllun, haldreipi, lífsstfll eins og sagt er nú dögum. Hitt er annað mál, að það sem vel er hirt gefur góðan arð, og engum fær dulizt, er heim að Skjaldfönn kemur hvílík snyrtimennska þar ríkir og hver regla þar er á öllum hlutum. Getur vart fegurra býli hér á slóðum og þótt víðar væri um skyggnzt, fer þar saman fal- legt bæjarstæði, eldfornt, hinn vinalegi burstabær svo og um- gengni öll og sú prýði er í öllu mætir auga. Skammt til jökuls, en Selá liðast neðan túns. En eigi er Aðalsteinn allur í bóndanum séður og hafa margir þessa varir orðið, innlendir menn og aðrir af fjörrum löndum, er hingað kómu að efla sig í nattúru- vísindum og þjóðlegum fróðleik. Kann Aðalsteinn hin beztu skil á ýmsu því er hér til heyrir og sóktu fræðimenn ótæpilega í þann brunn er hann var og er. Mun örnefnasöfnun hans í landi Skjaldfannar til fyrirmyndar að vexti og trúverðugleika og vel man undirritaður útskýringar hans á notkun og heitum ýmissa amboða og áhalda er nútíminn hefur lagt fyrir óðal, drögur, vögur, líkberi... Má af þessu ráða og fleiru, að vel hefði Aðalsteinn sómt sér sem verkmaður á akri íslenzkra fræða, og enda þótt sá sé vel plægður, mundi hafa munað um hann á þeim reit og eigi ólíklegt, að hann hefði þar brotið nýtt land að nokkru, hliðstætt því er hann gert hefur á búi sínu, en ræktun- armaður lands hefur hann verið, bæði í miklum mæli og vel að unnið. Bækur hafa verið honum innan seilingar jafnan, og er Skjaldfönn mikið bókaheimili, og finnst þar bæði gamalt og nýtt í skápum. Kemur mér vitanlega í hug, hvort Aðalsteinn muni ekki meðal hinna síðustu í bændastétt er sinna á stopulum stundum fræðum í einhverri mynd og að einhverju marki, um leið og þess skal vænzt að hugboð þetta reynist rangt. Má vissuiega segja, að hann sé í þessu efni sómi stétt- ar sinnar eigi síður en í búskap öllum. Eitt sinn er við gengum völl frá kirkju á Melgraseyri til húss, vék hann tali sínu að brjóskmyndun í efra skolti nautgripa og hafði um þetta fá- heyrt orð, þjarkur, að mig minnir, en eigi kannaðist ég við, hvorki vöxt þennan né heiti hans og sánnaði Áðalsteinn mér enn á ný hið fornkveðna, að margt er skrýtið í kýrhausnum. Áðalsteinn er hinn mesti gæfu- maður, farsæll í starfi og kvæntur hinni mestu myndar- og greindar- konu Hólmfríði Indriðadóttur skálds frá Fj alli, Þórkelssonar, og má með sanni segja að svo sem allt er í reglu og röð utanhúss á býli þeirra, þá er og hið sama á teningi uppi hvað varðar um- gengni ínnanhúss. Ber allt þar blæ snyrtimennsku, hreinlætis og menningarlegrar umgengni. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið og býr Indriði - eldri sonurinn - á ættaróðalinu, mjög „of ið sama far“, svo notað sé forirt orðalag, allt með festu og öllu vel í horfi haldið, ræktun fjár og jarðar, sem öðru, og mun af- mælisbarninu þykja betra en ekki að svo er, þekki ég rétt til. Hin börnin eru Kristín gift í Svíþjóð, íslenzkum manni, og JóHann er býr í Reykjavík. Grein þessi er síðbúnari en ég hefði viljað, en með því eigi mun- um fengizt verða sleppi ég afsök- unar að biðja, en hún á að flytja Aðalsteini og Hólmfríði þakkir okkar hér í Vatnsfirði fyrir góða viðkynningu og traust, er við öll höfum verið samtímis við Djúp, en það er nú orðið á fjórða tug ára. - Við óskum þér góðra ára, hlýrra vora með sóley í varpan- um, mikillar gleði er dalinn og ána ber fyrir augu, landið, sem hefur ætíð verið þinn heimur og hýsir draum þinn allan. - Lifðu heill! Síra Baldur Vilhelmsson prófastur, Vatnsfirði Grunnskólakennarar Af sérstökum ástæöum er almenn kennara- staöa laus viö Barnaskóla Húsavíkur. Húsnæöi, barnagæsla og fleira fyrir hendi. Upplýsingar veitir Halldór Valdimarsson, skólastjóri, vinnu- sími 96-41660 og heimasími 96-41974. Auglýsing Félagsmálaráðuneytið mun úthluta framlögum til sérstakra verkefna, sem veita skólafólki at- vinnu í sumar viö hagnýt störf, að uppfylltum neöangreindum skilyröum: Til þessara verkefna veröi ráðnir námsmenn sem verða 16 ára á árinu eða eldri, verði í námi n.k. haust, hafi látið skrá sig hjá hlutaðeigandi vinnu - m iðlun en ekki fengið starf. Um sé að ræða störf sem ekki var fyrirhugað áð ráða í. Öðr- um starfsmönnum verði ekki sagt upp störfum vegna þessa. Þeir sem sótt geta um framlög eru: Félagasamtök, landssambönd, héraðssamtök og hliöstæðir aðilar til sérstakra tilgreindra verk- efna, þar sem fram komi mannaflaþörf, eðli verkefnis og hver annast framkvæmd, fjárhæö og sundurliðuð kostnaöaráætlun. Ríkisstofnanir vegna sumarafleysinga eða fegr- unar og umhverfisverkefna. Tilgreind veröi teg- und verkefnis, fjöldi starfa, fjárhæö og sundurl- iðuö kostnaöaráætlun. Framlög veröa ekki veitt sveitarfélögum. Framlög veröa miðuð við þá heildarfjárhæð sem veitt veröur til verkefnanna. Úthlutun framlaga mun fara fram samkvæmt nánari reglum sem settar verða. Umsóknir skulu sendar til félagsmálaráðuneyt- isins merktar „Sumarstörf“. Umsóknarfrestur er til 9. júní nk. Félagsmálaráðuneytið, 2. júní 1989 Lausar stöður 'tLJf 'S SJÍ lCIÍgrtUIHUP^ VI6 námsbraut í sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla ís- lands eru lausar til umsóknar tvær tímabundnarlektorsstöð- ur (50%) í sjúkraþjálfun. Vlð Háskólann á Akureyri er laus til umsóknar lektors- staða í hjúkrunarfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækj- enda, ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí nk. Menntamálará&uneytið 31. maí 1989 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.