Þjóðviljinn - 08.06.1989, Side 6
ERLENDAR FRETTIR
✓
Iran
Samviiic forusta
íraskir ráðamenn hafa komist að samkomulagi um aðforðastinn-
byrðis erjur í kjölfarfráfalls Khomeinis. En þeir eru ósammála um
margt, bœði íinnan- og utanríkismálum, svo að óvíst erhve lengisá
friður helst
Helst er svo að sjá að íran verði
fyrst um sinn stjórnað af eins-
konar samvirkri forustu. Ljóst er
að enginn háttsettustu manna
hcfur nokkra möguleika á að
verða eftirmaður Khomeinis sál-
uga í raun. í augum almennings
kemst enginn þeirra þangað með
tærnar sem Khomeini hafði hæl-
ana, eða neitt nálægt því, þvílíkr-
ar firnalotningar naut sá gamli
sem leiðtogi írans jafnt um ver-
aldleg sem andleg efni.
Ali Khamenei íransforseti var
að vísu af öðrum ráðamönnum
kjörinn eftirmaður Khomeinis og
er þar með í orði kveðnu nánast
alráður valdhafi landsins, en það
kjör fór fram af slíkri skyndingu
að sennilegast er að tilgangurinn
þar á bakvið hafi fyrst og fremst
verið sá að hindra að valdabar-
átta milli hinna og þessara æðstu
manna brytist þegar út í ljósum
Ioga. Og engum dettur í hug að
Khamenei sé maður til að fara í
föt Khomeinis. Til þess er hann
of lágt settur í forustuhópi sjíta-
klerka og forsetaembættinu
fyigja lítil völd, þótt ekki væri
annað.
Vinur
basarkaupmanna
Hinsvegar er engin ástæða til
að efast um að Khamenei haldi
sínu í innsta hring ráðamanna
fyrst um sinn. Hann er hlynntur
einstaklingsframtaki í atvinnulífi
og hefur góð sambönd meðal bas-
arkaupmannanna, gamalgróinn-
ar og áhrifamikillar stéttar í versl-
un, en stuðningur þeirra við
Khomeini olli talsverðu um að
hann komst til valda. Khamenei,
sem er tæplega fimmtugur að
aldri, nam guðfræði við fótskör
Khomeinis og var síðustu þrjú
árin fyrir valdatöku hans ýmist í
fangelsum keisarans eða í útlegð
með meistara sínum. Hægri
handleggur Khameneis er honum
ónýtur eftir sprengjutilræði sem
honum var sýnt í júní 1981, er
hann var að flytja ræðu. Hafði
sprengjan verið falin í segul-
bandstæki. Um Khamenei er
ennfremur sagt að hann hafi gríð-
armikinn áhuga á bókmenntum,
enda kallaður „skáldforsetinn".
Eins og sakir standa er talið að
honum ívið valdameiri og valda-
mesti maður írans í bráðina sé
Ali Akbar Hashemi Rafsanjani,
hálfsextugur forseti þingsins.
Hann er einnig yfirhershöfðingi
og varaformaður 85 manna sér-
fræðingasamkundu svokallaðrar,
en það var einmitt hún, sem sam-
kvæmt stjórnarskrárákvæði kaus
eftirmann Khomeinis. Rafsanj-
ani er sagður dugnaðar'maður í
stjórnmálum og njóta víðtæks
stuðnings, m.a. af hálfu þingsins,
hersins og byltingarvarðliða
svokallaðra. Talið er að fortölur
hans hafi valdið mestu um að
Khomeini fékkst um síðir til að
samþykkja vopnahlé í stríðinu
við írak. Rafsanjani hefur líka
leitast við að draga úr einangrun
írans á alþjóðavettvangi og sér-
staklega að bæta samskipti þess
við Vesturlönd, en alvarlegur
afturkippur kom í þá viðleitni við
allt standið út af bók Salmans rit-
höfundar Rushdie, sem múslímar
telja guðlast.
Ambassador
í Damaskus
Peir Rafsanjani og Khamenei
eru bandamenn í stjófnmálum og
báðir sagðir tiltölulega varkárir
og hófsamir, eftir því sem gerist
þar á bæ. Talið er líklegast að sá
fyrrnefndi verði kjörinn eftir-
maður þess síðarnefnda í forseta-
bættið í ágúst í sumar, en Kham-
enei hefur begar verið forseti tvö
kjörtímabil og getur stjórnarskrá
samkvæmt ekki verið það lengur.
Þeir félagar og stuðningsmenn
þeirra hafa í undirbúningi stjórn-
arskrárbreytingar með það fyrir
augum að auka vald forseta
drjúgum og afnema embætti for-
sætisráðherra.
Einn helsti oddviti
„haukanna“ í írönsku forustunni
er sagður vera Ali Akbar Mo-
htashemi, rúmlega fertugur að
aldri. Hann er innanríkisráð-
herra, ræður lögreglubákninu
þar með að mestu og hefur á sínu
valdi að útnefna fylkisstjóra, 24
að tölu. Vald hans er því ekkert
smáræði og gæti vel svo farið að
hann reyndist þeim Khamenei og
Rafsanjani hættulegur keppi-
nautur. Mohtashemi var 1981-85
ambassador í Damaskus, en sú
staða er mikilvæg, bæði sökum
þess að Sýrland er mikilvægasta
vinaríki írans og vegna sambands
írönsku forustunnar við sjíta í Lí-
banon. í því embætti kom Mo-
htashemi sér í mikinn kunnings-
skap við Guðsflokkinn (Hezboll-
ah), bókstafstrúuð líbönsk sjíta-
samtök, og er ætlan sumra vest-
rænna leyniþjónustustofnana að
hann hafi staðið á bakvið sjálfs-
morðsárásir Líbanonssjíta á
Bandaríkjamenn, Frakka og ís-
raela. Sjálfur fékk hann um síðir
að smakka á eigin meðali, því að
einn góðan veðurdag sleit bréf-
sprengja af honum nokkra fing-
ur. íranir lýstu sök á hendur
Bandaríkjamönnum og ísraelum
fyrir tilræðið, en trúlegra þykir að
Sýrlendingar sjálfir hafi skrifað
honum bréfið. Þeir vilja hafa ein-
okun á því að deila og drottna í
Líbanon og kann vera að þeim
hafi þótt íranski ambassadorinn
vera orðinn full umsvifamikill
þar.
Bænahalds-
stjóri í Kúm
Annar mikill ráðamaður í her-
skárri og öfgasinnaðri armi ír-
önsku forustunnar er Hussein
Musavi forsætisráðherra, tæp-
lega fimmtugur að aldri. Hann
vill að ríkið ráði sem mestu um
stjórnun efnahagslífs og er á þeim
vettvangi á öndverðum meiði við
þá Khamenei og Rafsanjani,
enda er vitað að honum hefur
áður lent saman við þann fyrr-
nefnda. Musavi hefur verið for-
sætisráðherra síðan 1981 og á sæti
í tólf manna eftirlitsráði, sem svo
heitir og hefur yfirumsjón með
allri löggjöf.
Forseti sérfræðingasamkundu
áðurnefndrar er Ali Meshkini,
rúmlega hálfsjötugur ayatollah.
Hann nýtur mikils álits fyrir
kunnáttu í íslamslögum og mikili-
ar lotningar af því að hann stjórn-
ar föstudagsbænum í Kúm, höfu-
ðstað íransks sjítaklerkdóms.
Auk þess er upplýsingamálaráð-
herrann tengdasonur hans. Hann
er talinn einn af herskárri
mönnum forustunnar, án þess þó
að hann þurfi endilega þess vegna
að vera náinn bandamaður þeirra
Mohtashemis og Musavis.
„Rauði mullann“
Enn skal nefndur meðal her-
skárra leiðtoga Musavi Khoeini-
ha, opinber saksóknari og kallað-
ur „rauði múllann" af því að hann
á yngri árum var í læri í Lúmúmb-
aháskóla í Moskvu og í Leipzig í
Austur-Þýskalandi. Hann er nú
rúmlega hálffimmtugur. Hann er
áhrifamaður í Félagi herskárra
klerka og mikill stuðningsmaður
Guðsflokksins í Líbanon. Kho-
einiha er ákafur talsmaður út-
Rafsanjani - mestur ráðamaður í
bráðina.
Mohtashemi - bréf frá Sýrlend-
ingum.
flutnings íslamsbyltingar og kvað
hafa staðið á bakvið óspektir af
hálfu íranskra pflagríma í Mekka
og Medína.
Ahmad Khomeini, 43 ára
sonur hins nýlátna leiðtoga, hef-
ur lengi verið mikill áhrifamaður
á bakvið tjöldin og síðustu æviár
föður síns réði hann mestu um
það, hverjir fengu að tala við
hann. Hann var áður hlynntur
Rafsanjani, er kvað upp á síð-
kastið hafa gerst bandamaður
Mohtashemis. Sagt er að Ahmad
Khomeini hafi lengi ieikið hugur
á að verða eftirmaður föður síns,
en hann hefur ekkert opinbert
embætti og staða hans er nú í
óvissu. Af öðrum helstu ráða-
mönnum má nefna Mohammad
Mohammedi Rey-Shahri, upp-
lýsingamálaráðaherra og tengda-
son áðurnefnds Meshkinis, og
Abdulkarim Musavi Ardebili,
forseta hæstaréttar. Sá síðar-
Khamenei - tiltölulega hófsamur
og bandamaður Rafsanjanis.
Musavi - einn helstu oddvita
„haukanna" og bandamaður Mo-
htashemis.
nefndi er sagður vera einskonar
miðjumaður í stjórnmálum þar-
lendis.
í bráðina virðast helstu ráða-
menn hafa náð samkomulagi um
að forðast klofning og deilur
innan forustunnar, en andstæð-
urnar innan hennar eru verulegar
svo að óvíst er hvað það gengur
lengi. Herskárri armurinn hefur
kenningar Khomeinis og pólit-
íska erfðaskrá á bakvið sig, og
áhrif þess gamla, þótt liðinn sé,
eru áfram gífurleg svo að hóf-
samari menn komast ekki hjá því
að fara að með ýtrustu varkámi,
ef þeir færast í fang að breyta
stefnu írans í utanríkismálum
eitthvað verulega frá því sem ver-
ið hefur. Óvíst er enn um, hvort
hagur afla andstæðra klerka-
stjórninni eins og hún leggur sig
vænkast eitthvað við hin nýorðnu
umskipti.
Mengistu býður
friðarviðræður
Mengistu Haile Mariam, Eþí-
ópíuforseti, hvatti á mánudag til
að friðarviðræður yrðu upp tekn-
ar milli stjórnar hans og Þjóð-
frelsisfylkingar Eritreu (EPLF),
sjálfstæðishreyfingar kristinna
manna þarlendis. Segist Meng-
istu ekki setja nein skilyrði fyrir
viðræðunum önnur en þau, að
EPLF falli frá kröfu sinni um fullt
sjálfstæði til handa Eritreu. En
einmitt þar stendur hnífurinn í
kúnni, því að EPLF krefst fulls
sjálfstæðis fyrir land sitt og tók í
gær dauflega undir tilboð Meng-
istus. Með því gengur hann þó
lengra í tilraunum til samkomu-
lags við eritreanska uppreisnar-
menn en Eþíópíustjórn hefur
nokkurntíma áður gert, enda er
her hans mjög þreyttur orðinn á
stríðinu í Eritreu, sem staðið hef-
ur í 28 ár. Olli sú stríðsþreyta
stjórnarbyltingartilraun fyrir
þremur vikum, sem Mengistu
tókst að vísu að bæla niður. Auk
þess hafa Sovétmenn lýst sig ó-
fúsa að halda áfram að vopna
hann til stríðsins.
162 fórust
162 menn fórust er farþega-
flugvél frá Suður-Ameríkuríkinu
Súrínam fórst í þoku skammt frá
flugvellinum við Paramaribo,
höfuðborg landsins. Af farþeg-
um, sem flestir munu hafa verið
súrínamskir og hollenskir, og
áhöfn vélarinnar, sem var banda-
rísk, komust að sögn aðeins 15
lífs af. Vélin var í flugi frá Schip-
holflugvelli við Amsterdam.
Blóðugar róstur
í Úsbekistan
67 manns hafa verið drepnir í
róstum, sem staðið hafa yfir síðan
á laugardag í Fergana í Usbekist-
an, fólksflesta Mið-Asíulýðveldi
Sovétríkjanna. Eigast þar við Ús-
bekar og Mesketar, en þeir síðar-
nefndu eru þjóðflokkur sem Stal-
ín herleiddi frá Kákasus 1944.
Báðar þjóðir eru tyrkneskrar ætt-
ar. Meirihluti þeirra, sem hafa
verið drepnir, eru Mesketar, og
eru Úsbekar sagðir elta þá með
skotvopnum, járnstöngum og
öðrum bareflum. Að sögn so-
vésks blaðs hafa um 11,000 Me-
sketar verið fluttir frá óeirða-
svæðinu, þar eð ekki hafi reynst
fært að tryggja öryggi þeirra þar.
Alls eru um 160,000 Mesketar í
Úsbekistan. Tassfréttastofan
segir yfirvöld á staðnum hafa
misst tök á ástandinu og að 16-20
ára unglingar, drukknir eða í
fíknilyfjavímu, hafi verið athafn-
asamastir við ódæðisverkin.
Miljón tegunda í hættu
Hætta er á að um miljón dýra-
og jurtategunda deyi út á næstu
árum af völdum náttúi-uspjalla,
að sögn Umhverfisverndarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna
(UNEP). Sem ástæður eru meðal
annars nefndar til grrðurhúss-
áhrif og eyðing ósonlag ;.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
dþ.
r Kína
Ovíst hverjir ráða
Deng sagður veikur. Hereiningar íPeking
skjóta á hvað semfyrir er. Róstur og mann-
dráp í fleiri borgum
Einingar úr 27. kínverska hern-
um, sem strádrápu stúdenta
og verkamenn á Himinsfriðar-
torgi á sunnudag, eru nú sagðar
víggirða sig í miðborginni í Pek-
ing, líkt og þær búist við gagn-
árásum. Andstöðu virðist enn
haldið uppi í borginni af hálfu
mótmælahreyfingarinnar, því að
öðru hvoru gera hermenn útrásir
frá bækistöðvum sínum og spara
þá ekki skotin.
Raunar er svo að heyra að
sumar hereiningarnar skjóti á
hvað sem fyrir er, t.d. varð bygg-
ing á sendiráðasvæðinu fyrir
skothríð í gær. Þar eru erlendir
fréttamenn og stjórnarerindrek-
ar, en ekki er vitað til að neinn
þeirra hafi sakað. Erlendir menn
flýja nú land hver sem betur getur
og segja margir hroðalegar sögur
af framferði hermanna. Þeir
segja 27. herinn hafa í árás sinni á
Himinsfriðartorg skotið unn-
vörpum niður ungar stúlkur og
börn ásamt öðru fólki og einnig
hafa skotið á hermenn úr öðrum
hereiningum, sem umkringt
höfðu torgið áður en ekki viljað
beita mótmælafólkið hörðu.
Fjölmörg ríki hafa gert ráðstaf-
anir til að ná fólki sínu úr landi,
t.d. er flugvél frá SAS á leiðinni
til Kína til að ná í Norðurlanda-
búa, sem þar eru búsettir eða
staddir. Hætt er við að átökin
komi hart niður á efnahagslífi
Kína, því að mörg erlend fyrir-
tæki hafa orðið að hætta starf-
semi í landinu og má búast við að
erlendir aðilar hætti við fjárfest-
ingar þarlendis og dragi úr við-
skiptum við Kína.
Margt er í óvissu um ástandið í
innsta valdahring þarlendis, t.d.
sagði Marlin Fitzwater, talsmað-
ur Hvíta hússins, í gær að hann
hefði ekki hugm/nd hver nú færi
með stjórnarforustu í Kína.
Sögusagnir ganga um að Deng
Xiaoping sé veikur og á sjúkra-
húsi. Einnig ganga sögur um að
stjórnin hafi að verulegu leyti
misst tökin á hernum. Sumir
kenna Yang Shangkun, háöldr-
uðum forseta landsins, um fjöl-
damorð 27. hersins á mótmæla-
fólkinu, en náfrændi hans að
nafni Yang Jianhua kvað vera
æðsti maður þess liðsafla.
f mörgum öðrum borgum eru
áfram róstur og átök og er talið
að herinn hafi í sumum þeirra
framið veruleg manndráp.
Reuter/-dþ.