Þjóðviljinn - 08.06.1989, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 08.06.1989, Qupperneq 11
FRÁ LESENDUM Misjafnir umræðuþættir Ýmiss konar umræðuþættir eru býsna algengir í útvarpi og sjónvarpi. Stjórnendur þáttanna fá á fund sinn menn, fleiri eða færri, til þess að ræða ákveðin málefni eða svara ákveðnum spurningum. Oftast eru þátttak- endur valdir með það fyrir augum, að þeir séu ekki allir á sama máli. Oft eru þessir þættir skemmti- legir og fróðlegir en stundum eru þeir líka algerlega misheppnaðir. Þegar svo fer, er sökin fyrst og fremst stjórnandans. Hann virð- ist ekki átta sig á því, að hann er einfaldlega fundarstjóri og á að sjá til þess, að þátttakendur hlíti venjulegum fundareglum. Hann á að gæta þess, að sá tími, sem til umráða er, skiptist sem jafnast milli þátttakenda. Á það skortir oft gróflega. Einhver þátttakand- inn notar tækifærið, þegar hann fær orðið, til þess að flytja langa ræðu, veður úr einu í annað og fer þá gjarnan langt út fyrir það efni, sem til umræðu á að vera. Ég minnist t.d. þáttar, þar sem einn þátttakandi af fjórum tók sér, átölulaust af stjórnandanum, meira en helming þess tíma, sem þátturinn átti að standa. Tilgan- gurinn með malandanum er auðvitað sá, að koma í veg fyrir, svo sem kostur er, að aðrir, sem gjarnan eru annarrar skoðunar en fyrirlesarinn, fái komið henni að nema í sem minnstum mæli. Þarna bregst stjórnandinn ger- samlega sínu hlutverki og þáttur- inn misheppnast algjörlega. Stjómandans er að halda þátttak- endum við efnið og gæta þess jafnframt að tíminn skiptist sem jafnast milli þeirra. Glöggt dæmi um svona slys er þáttur, sem Páll Heiðar Jónsson var með í útvarpinu nú nýlega. Þar þusaði einhver Vilhjálmur tímunum saman um Rússland og Kína, kapítalisma og sósíalisma, skattamál og þar fram eftir göt- unum, að ógleymdum dýrðar- söng um Sjálfstæðisflokkinn og sextugsafmæli hans, sem manni skildist að væri merkasti heimsviðburðurinn þá vikuna. Og þegar Björn Arnórsson and- mælti skoðunum Vilhjálms þessa þá greip hann bara fram í - þoldi auðheyrilega ekki að hlusta á nein mótrök, - og um stund töl- uðu báðir í einu svo að enginn heyrði orðaskil. Þarna átti stjóm- andinn auðvitað að grípa í taumana í stað þess að láta einn taugasjúkling eyðileggja þáttinn. Konurnar tvær, sem þarna voru mættar, svömðu glöggt og skipu- lega þeim spurningum, sem til þeirra var beint, en fengu naumast að komast að. Ég hef heyrt að þetta hafi verið síðasti þátturinn þessarar tegund- ar a.m.k. í bili. Þeir hafa oft verið góðir hjá þeim Sigrúnu og Páli Heiðari en þetta var afleitur endir. -mhg Bílbelta- skortur Opið bréf til: Alþingismanna, tryggingafélaga, landlæknis og annarra sem málið varðar. Ágætu heiðursmenn, allir sem fylla þennan stóra ofangreinda hóp. Eg er einn af þessum dæmi- gerðu vegfarendum, týpískur bflafarþegi, og oft líka bflstjóri á hinum og öðrum bflum. Mig langar að spyrja ykkur alla einnar spurningar: Af hverju eru ekki bflbelti í ÖLLUM bflum á íslandi fluttum inn eftir gildis- töku laga frá 1969 um bflbelta- skyldu í nýinnfluttum bflum? Ég er einn af þessu fáu sem tömdu sér það strax, árið eftir að umrædd lög voru samþykkt fyrir 20 árum, að nota beltið. Til að byrja með þurfti maður æði oft að sætta sig við að það var ekki belti til að spenna sig í, og þótti slæmt. Nú eru sem fyrr segir Iiðin 20 ár og enn aka um bflar án bflbelta. Ég er hér ekki að tala um þá bfla sem náð hafa þeim háa aldri að vera yfir 20 ára. Nei, nei, ég er að tala um alla þá bfla sem ekki þurfa lögum samkvæmt að hafa þetta heimsins besta slysavamar- tól. Það er, að því er mér skilst, svo að sumir bflar eru undan- þegnir gagnvart lögunum. Málið er bara það að þeir em ekki undan- ’ þegnir í mínum huga þegar ég sest upp í þá, hvort heldur er sem farþegi í framsæti, eða undir stýri. Ég vil fá að spenna á mig bflbeltið. Er nokkur skynsemi í því að það skuli þá vanta? Ég fæ þar að auki ekki betur séð en að þessir umræddu bflar séu margir hverjir þannig byggðir, að líkum- ar á því að ég fljúgi út séu bara töluvert meiri enn í venjulegum fólksbfl. Þar. á ég við að einmitt umræddir bflar eru með stóra og síða framrúðu. Mér finnst að 20 ár sé nægilega langur aðlögunartími og að nú sé mál að ljúka verkinu. Gera það að skyldu að allir bflar skuli vera með bflbeltum fyrir bflstjóra og framsætisfarþega. Finnst ykkur það ekki líka... HA? Þór J. Gunnarsson Ertþú í rusli? Stundum verður mér hugsað til þess er ég kom eitt sinn heim frá útlöndum. I Eystrasalti var enn sumarhiti og bændur á Borgund- arhólmi að ganga frá uppsker- unni í hús. Á Keflavíkurflugvelli tók útsynningurinn á móti mér, haustið var lagst að á íslandi. Ég kom mér fyrir í sætinu. Vonaðist jafnvel til að sjá einhverja haust- liti í hrauninu. Rútan af stað. Flugstöðin að baki, andlit lands- ins sögðu landsfeðumir og byggðu vel. Ekki em allar dyggðir í andliti fólgnar. Mér varð það æ Ijósara eftir því sem ég fjarlægðist And- litið. Sektarkenndin læddist að mér. Skömm yfir því að vera ís- lendingur. Leiðina frá Keflavflc til Reykjavíkur sat ég og fylltist ýmist reiði eða vonleysi. Von- leysi þegar mér varð hugsað til umgengni þjóðarinnar um landið, reiði yfir því ryki sem Frónbúinn slær í augu sér þegar umhverfismál ber á góma. Rúmlega mannhæðar há girð- ing lá með fyrsta hluta leiðarinn- ar. Helst virtist hlutverk þessarar girðingar vera að halda við mis- lita plastpoka sem höfðu hrakist undan veðrinu. Þeir sátu þama fastir á sínu tilgangslausa ferða- lagi. Mér varð hugsað til þess hvaðan plastið kæmi. Liður í margnefndri landkynningu? Og þó. Ég beið í ofvæni eftir að girð- ingunni sleppti. Leit út, roðnaði og leit undan. Svo gerðist það að plasthenginu við Keflavík lauk, svona eftir langa mæðu. Ómyndinni af landinu mínu var þó ekki lokið. Beggja vegna vegarins varleiðin vörðuð. Leifar sem ekki höfðu haft flugþrótt nema rétt út um bflglugga. Það sem eftir var leiðarinnar vflaði ég fyrir mér að horfa út. Ég vissi að mér yrði litið í vegkantinn, á hið ófleyga rusl sorparanna. Hitt var fokið. Hvert? Varla annað en um öskuhauginn ísland. í huganum var ég búinn að senda þrjú harðorð bréf í les- endadálkana og hringja í þá aðila sem ég taldi málið skylt. Svo þyrmdi yfir mig. Ef enginn hefði notað bflgiuggann sem mslalúgu þá þyrfti ekki að... Folda; Ákall umhverfisvemd- ar. Bjarni Guðmundsson þJÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Þýskaland býður Finnlandi og Eistlandi hernaðarbandalag gegn Sovétríkjunum. Vinnu- veitendafélag íslands stefnir stjórn Dagsbrúnarog Þróttarfyrir Félagsdóm. Fleimssýningopnuð í New York. Braskarinn Juan March drottnar yfir utanríkisversl- un Spánar. I DAG 8.JÚNÍ fimmtudagur í áttundu viku sumars. 159dagurársins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 3.07 og sestkl. 23.49. VIÐBURÐIR Medardusdagur. Skaftáreldar hefjast 1783. Fæddur Guðmund- ur Kamban rithöfundur 1888 og GunnlaugurScheving.listmálari 1904. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúða vikuna 2.-8. júní er í Laugarnesapóteki og Ár- bæjarapóteki. Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frldaga). Slðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavlk sími 1 11 66 Kópavogur..........sími 4 12 00 Seltj.nes..........sími 1 84 55 Hafnarfj...........simi 5 11 66 Garðabær...........sími 5 11 66 Siökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík..........simi 1 11 00 Kópavogur..........sími 1 11 00 Seltj.nes..........simi 1 11 00 Hafnarfj...........sími 5 11 00 Garðabær...........sími 5 11 00 LCKNAR Læknavakttyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu- verndarstöö Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, simaráðleggingar og tíma- pantanir i sima 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sfm- svara 18888. Borgarspftalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna simi 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyöarvakt læknas. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspftalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardelld Landspitalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúnl 10 B. Alla daga 14-20 og eftirsamkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstígopinalladaga 15-16og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga15-16og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítall Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. ' Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16 og 19.19.30. Sjúkrahúslð Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akranoss: alladaga 15.30-16og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Simi: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræöilegum efnum. Sími 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga trá kl. 8-17. Síminn er 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími21500, simsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðiö hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Uppiýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing á miðvikudögum kl. 18-19, annars sim- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á mánudags-og fimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Símsvari áöðrum tímum. Síminn er 91-28539. Félag eldri borgara. Opið hús i Goðheim- um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14.00. Bilanavakt (rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt i sima 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aöstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í sima 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 7. júní 1989 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar.......... 57,53000 Sterlingspund............. 90,63900 Kanadadollar.............. 47,96000 Dönskkróna................. 7,49580 Norskkróna................. 8,05630 Sænsk króna................ 8,65500 Finnsktmark............... 13,08690 Franskurfranki............. 8,58910 Belgískurfranki............ 1,39310 Svissn.fránki............. 33.71230 Holl. gyllini............. 25,92030 V.-þýskt mark........... 29,18080 (tölsklira................. 0,04008 Austurr. sch............... 4,14710 Portúg. escudo............. 0,34960 Spánskurpeseti............. 0,44980 Japanskt yen............ 0,40310 (rsktpund................. 78,03700 KROSSGÁTA Lárétt: 1 óánægja4 prettur 8 tröllin 9 fúlgu 11 hressu 12 málgefni 14 til 15 bleyða 17 stétt 19 lík 21 gfjúfur22 skynfæri 24 æöir 25 mið Lóðrétt: 1 sóf) 2 tóbak 3sól4flaga5skjól6 spyrja7kurfar10 Iandið13kjass16ilma 18 fóðra 20 forfeður 23 varðandi Lausn á siðuttu krossgátu 2 3 * s * 7 # ■ • 10 f n 12 # 14 # # 11 1S • 11 P 1ð 20 Lárétt: 1 pund4 maul8 árgæska9akra11 taug 12 teista 14 MA15 Iæra17ansir19urt21 lit 22 töðu 24 tróð 25 samt Lóðrétt: 1 plat2núri3 drasli 4 mætar 5 asa6 ukum 7 laaast 10 kenn- ÍT 22 # 24 # 2» ‘ ■ ir 13 tært 16 auða 17 alt 18stó20rum23ös Fimmtudagur 8. Júní 1989 . ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.