Þjóðviljinn - 09.06.1989, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 09.06.1989, Qupperneq 5
C* € Þaö fer ekki á milli mála hverjir ráða ferðinni á Tjörninni í Reykjavík. Endurnar mega sín lítils gegn vargfuglinum sem fer stöðugt fjölgandi. Mynd-Jim Smart. Andalíf Vargurinn að taka völdin Nei, þessi mynd cr ekki tekin við færaveiðar úti i Flóanum. Mynd- in er tekin við Reykjavíkurtjörn þar sem mávagcrið fer sífcllt stækkandi og ógnar andalífí og rómantík við Tjörnina. Sömu sögu er að segja frá öðr- um andapollum eða lækjum eins og í Hafnarfirði, þar sem stór- fjölgun vargfugla á Hamarskots- læk hefur valdið áhugamönnum um andarækt ntiklum áhyggjum. Voru þessi vargamál nt.a. rædd á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar á dögunum þar sem náttúruvernd- arnefnd bæjarins var falið að gera tillögur um verndun dýralífs á Lækjarsvæðinu. Upplýst var jafnframt á fundinum að uppi væru aðgerðir gegn varginum, en þær virtust duga skammt. ->g- Fjárlagahallinn 3 ráðheirar kanna 3 leiðir Rœtt um auknar tekjur, niðurskurð útgjalda ríkissjóðs eða lántöku innanlands til lausnar yfirvofandi halla uppá 4 miljarða Ráðherrar þinguðu í þrjá og hálfa klukkustund í gærmorg- un um yfírvofandi fjögurra milj- arða halla á ríkissjóði og leiðir til þess að rétta hann af. Skipuð var þriggja manna ráðherranefnd til þess að fara ofaní saumana á mál- inu og leita lausna með þrjá möguleika efsta á blaði: aukna skattheimtu, niðurskurð ríkisút- gjalda og innlenda lántöku. Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra var orðvar að fundi loknum. Hann vildi ekki greina frá þeim hugmyndum sem reifað- ar voru til lausnar og sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar. Pó væri Ijóst að í lengstu lög yrði sneitt hjá lántökum er- lendis. Eftir stæðu þrír mögu- leikar, að auka tekjur ríkisins, að draga úr útgjöldum og fram- Fótbolti Enn tapa Fiamarar Valsmenn efstir eftir sigur á Vikingi íslandsmeistarar Fram tapa enn stigum og verður torsótt leið þeirra i að halda titlinum í ár. FH sigraði Fram í gærkvöld, 2-0, með mörkum Pálma Jónssonar og Olafs Kristjánssonar og hafa Framarar þá tapað tveimur leikjum á mótinu en þeir töpuðu aðeins einum í fyrra. Valsmenn eru enn í efsta sæti eftir 1-0 sigur á Víkingi. Heimir Karlsson skoraði með skalla. í Keflavík gerðu heimamenn jafn- tefli við Þór. Kjartan Einarsson skoraði fyrir ÍBK en Bojan Tan- evski jafnaði fyrir Þór. í annari deild sigraði Einherji Völsung, 3-0, Stjarnan vann Sel- foss 2-0, Breiðablik tapaði fyrir Tindastól, 1-2 og Víðir og ÍR skildu jöfn, 1-1. -þóm kvæmdum ríkisins og að slá lán hér innanlands. Hann sagði að nefnd þriggja ráðherra, sín sjálfs úr Alþýðu- bandalagi, forsætisráðherra úr Framsóknarflokki og ýmist Jóns Sigurðssonar eða Jóns Baldvins Hannibalssonar úr Alþýðuflokki ntyndi grunda vandann og lausnarleiðir. Nefndin myndi vinna ötullega næstu daga og stefndi að því að ljúka störfum hið fyrsta. Fjármálaráðherra var spurður um það í gær hvort ríkisstjórnin hygðist taka landbúnaðarmálin til endurskoðunar en í fyrradag sagði hann í sjónvarpsviðtali að brýna nauðsyn bæri til þess þar eð fyrirkomulag búvörukerfisins hefði gengið sér til húðar. Hann sagði landbúnaðarráð- herra vinna að þeim málum. Allir ráðherra í ríkisstjórn og einnig forystumenn bændasamtaka gerðu sér grein fyrir því að vand- inn væri gífurlegur, meiri en menn áttu von á sem stafaði m.a. af því að kjötneysla hefði dregist stórlega saman að undanförnu. Auk þess væru landbúnaðarmál- in hluti af fjárlagadæminu, niður- greiðslur hefðu verið auknar um 600 miljónir í kjölfar samninga og útflutningsbótavandinn væri meiri en áætlað hefði verið. ks Loftmiðlar Útvarp X í loftið 13. júní Dagskrárgerðarmenn kostaðir af fyrirtækjum rír framtakssamir ijngir menn hafa tekið útvarp Utrás á leigu til þriggja mánaða og hyggjast hefja þar rekstur nýrrar útvarpsstöðvar. Nafn stöðvarinn- ar verður upplýst í fyrstu útsend- ingunni sem send verður í loftið þriðjudaginn 13. júní klukkan 9.57. Að sögn Steingríms Ólafs- sonar fyrrum útvarpsmanns á Bylgjunni er ætlunin að byggja útsendingar fyrst og fremst á tón- listarflutningi en jafnframt verða sendar út fréttir. Fréttirnar verða hins vcgar á óreglulegum tímum, eða eins og Steingrímur sagði: „Við segjum fréttir þegar þær gerast.“ Þessi nýi loftmiðill mun senda út allan sólarhringinn og verður fólk við hljóðnemann allan þann tíma. Sagði Steingrímur að fylgt yrði ákveðinni tónlistarstefnu á stöðinni og aðallega yrði byggt á „góðu rokki“, en farið út í hinu ýmsu jaðra tónlistarinnar þegar kvölda tekur. Stöðin hefur bryddað upp á þeirri nýjung að láta fyrirtæki fjármagna einstaka dagskrárgerðarmenn og njóta þær auglýsinga í staðinn. Ýmsir kunnir loftmiðlamenn munu starfa á stöðinni, en auk Stein- gríms má nefna Önnu Þorláks er áður starfaði á Bylgjunni, Hörð Arnarson, fyrrum Bylgjumann, Þorstein Högna Gunnarsson sem starfað hefur á bylgjunni og hinni framsæknu útvarpsstöð, Utvarp Rót, og Snorra Má Skúlason sem áður starfaði á Rás 2. Þá er í bí- Greinilcgt er að færri geta orðið kennarar en vilja, því um- sóknir um almennt kennaranám í Kennaraháskólanuin eru nú 260 talsins, en einungis 120 verða teknir inn. í fyrra voru umsóknir 170. Þetta má teljast athyglisverð þróun í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið undanfarin ár um kennarastéttina. Skýringarinnar má þó sennilega leita til þess, að í haust verða þeir síðustu teknir inn í skólann, sem læra til kenn- ara í 3 ár. Haustið 1990 verður námið lengt í 4 ár. gerð að fá til starfa fólk frá Stjörnunni. Útvarpsstjóri verður hand- boltamaðurinn Konráð Olavson og er hann einn eigenda Útvarps X, en meðeigendur eru þeir ívar Kristjánsson og Birgir H. Birgis- Fyrir umsækjendur sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, eru tekin frá 10% nemendasæta. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert og er það í samræmi við heimild í nýrri reglugerð um Kennaraháskólans. Á morgun, laugardag, mun Kennaraháskólinn sæma dr. Brodda Jóhannesson og dr. Matthías Jónasson doktorsnafn- bót á sviði uppeldis- og kennslu- fræða í heiðursskyni. Sú útnefn- ing fer fram um leið og kennara- efni fá prófskírteini sín. son. Stöðin mun senda út á FM 95,7. phh Alþýðubandalagið Miðstjóm fundar á morgun Formaður með framsögu um þróun og framtíð Miðstjórn Alþýðubandalagsins hefur verið boðuð til fundar á morgun laugardag kl. 10 árdegis í Flokksmiðstöðinni í Reykjavík. Á fundinum mun Ólafur Ragnar Grimsson formaður flokksins hafa framsögu um stjórnmála- þróunina og verkefnin framund- an. Auk þess liggur fyrir fundinum að kjósa laganefnd, sem hefur það hlutverk að fara yfir tillögur frá síðasta aðalfundi og einnig verða flokksgjöld ákveðin á fundinum. Áætlað er að mið- stjórnarfundinum ljúki síðdegis á morgun. _jg. ns. Föstudagur 9. júni 1989 nÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 Kennaraháskóli íslands Umsóknum fjölgað um 60% 260 manns hafa sótt um skólavist í Kennara- háskólanum, en aðeins 120 teknir inn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.