Þjóðviljinn - 09.06.1989, Blaðsíða 6
>
13,5% framteljendaeiga47% skuldlausraeigna. Rúmur
helmingurskiptir á milli sín7,6%. 50-59 ára eru best stæðir.
41,3% framteljandavoruundir 500 þúsundum í árslaunum
Island nútímans er stéttlaust
þjóðfélag. Þessi staðhæfíng
hefur heyrst svo oft og víða að
eflaust eru margir farnir að trúa
henni, jafnvel þeir sem einhvern
tlma hafa talið sig vita betur.
Samanteknar tölur um tekju-
skiptingu og eignaskiptingu þjóð-
arinnar hafa ekki legið á lausu,
jafnvel þótt allar séu upplýsing-
arnar til. Nýtt Helgarblað fór
þess á leit við hagdeiid fjármála-
ráðuneytisins að taka saman
tölur um þetta efni og var góðfús-
lega orðið við þeirri beiðni. Bygg-
ir hagdeildin á tölum úr skatt-
framtölum landsmanna.
Úr samantekt hagdeildarinnar
má sjá að fjöldi framteljanda er
alls 181.915. Hagdeildin vinnur
tölur sínar annars vegar eftir
eignarskattstofni framteljanda
samkvæmt skattaframtölum 1988
og hins vegar eftir atvinnutekjum
framteljanda samkvæmt skatta-
framtali 1988. Eignarskattstöl-
urnar segja til um hver nettóeign,
eða hrein skuldlaus eign framtelj-
anda var í árslok 1987 og eru þær
tölur framreiknaðar miðað við
áætlað verðlag í árslok 1988. At-
vinnutekjurnar eru hins vegar
framreiknaðar á áætluðu meðal-
verðlagi ársins 1988.
13,5% eiga
47% eigna
Og þá er komið að nokkrum
staðreyndum um hvernig eignum
og tekjum er skipt á milli lands-
manna. Hrein skuldlaus eign
framteljenda var í heild 328 milj-
KjötetöðÍR
Glæstbœ
O 68 5168
OPIÐ
S
a
laugardögum
til kl. 4
KjofcstöðlR
Œæstbæ
68 5168
arðar og 86 miljónir króna. Ekki
verður sagt að þessar eignir skipt-
ist jafnt á milli landsmanna, en
51,1% framteljanda eða 92.958
þeirra eiga aðeins 7,6%
eignanna. Að meðaltali er eign
þeirra því um 270 þúsundir
króna. Hins vegar eiga. 13,5%
eða 13.475 framteljendur sín á
milli alls um 46,8% eignanna.
Þeir eiga því hver um sig að með-
altali skuldlausar eignir að upp-
hæð 6,25 miljónir króna. Ríkasta
prósentan á hins vegar 10% allra
skuldlausra eigna í landinu og
skipta sín á milli 17 miljónum 422
þúsundum króna. Ríkustu 410
einstaklingarnir sem eru 0,2%
framteljanda eiga 4,2% eignanna
og eiga að meðaltali 33,8 miljónir
króna hver í hreinar eignir.
Miðaldra
ríkastir
Skipting eigna eftir aldri er
einnig áhugaverð. Framteljendur
tvítugir og yngri eru 20.471 og
jafngilda eignir þeirra 2,26 milj-
ónum króna eða um 110 þúsund
krónum á mann að meðaltali.
Meðaleignir aldurshópsins 20-29
ára nema um 612 þúsundum
króna, 30-39 ára eiga að meðalt- .
ali eignir fyrir eina miljón átta-
hundruð og tuttugu þúsund, 40-
49 ára eiga að meðaltali eignir að
jafngildi 2,97 miljónir króna, 50-
59 ára eru komnir í 3,26 miljónir
króna og er þessi aldurshópur
best stæður. Þeir sem eru á ald-
ursbilinu 60-69 ára eiga að meðal-
tali skuldlausar eignir fyrir 3,05
miljónir og sjötugir og eldri eiga
2,13 miljónir skuldlausar. Að
meðaltali eiga framteljendur j
hreinar eignir að upphæð 1,8 |i
miljónir króna.
41,3% með
10,7% teknanna
Það er fyrst til að taka að
23.905 framteljendur eða 12,1%
allra framteljenda hafa sam-
kvæmt skattaframtali engar
skattskyldar atvinnutekjur. At-
vinnutekjur hér eru sem fyrr segir
fengnar samkvæmt skattafram-
tölum ársins 1988 eða m.ö.o. eru
tekjur skattlausa ársins 1987 og
eru tölur framreiknaðar á áætl-
uðu meðalverðlagi síðasta árs.
Séu 41,3% tekjulægstu framtelj-
endanna skoðuð, en það eru alls
tæplega 77 þúsund einstaklingar
kemur í ljós að þeir skipta á milli
sín 10,7% atvinnutekna í
landinu. Þessi hópur samantek-
inn hefur því um 190 þúsund
króna meðaltekjur yfir árið. Sá
hópur sem sleppur yfir núllið en
hefur tekjur allt að 500 þúsund
krónum er býsna stór eða rúm-
lega 53 þúsund manns eða 29,2%
framteljanda. Þessi láglaunahóp-
ur hafði að meðaltali 277 þúsund
krónur í árstekjur eða um 23,133
krónur á mánuði. Og þetta eru
tekjur á skattlausa árinu þegar
allir sem vettlingi gátu valdið
unnu sem berserkir, fram-
reiknaðar sem fyrr segir miðað
við meðalverðlagsvísitölu ársins
1988.
Tæp 60% undir
52 þúsundum
Ríflega helmingur framtelj-
enda, 106 þúsundir eða 57,3%
framteljenda voru með meðal-
talstekjur um eða undir 52 þús-
undir króna á mánuði. Þeir sem
eru þar fyrir ofan eða 41,6%
framteljanda voru með meðalt-
alslaun upp á 1,38 miljónir eða
uin 115 þúsund á mánuði, sem
eru rúmlega tvöfalt hærri at-
vinnutekjur en tekjulægri helm-
ingur landsmanna hefur. Ef hald-
ið er upp á við í skalanum og
skoðaðar meðaltalstekjur 28,6%
þeirra sem tekjuhæstir eru, sem
er hópur 52 þúsund einstaklinga,
kemur í ljós að meðaltekjur
þeirra eru um 1,6 miljónir á ári
eða 134 þúsund á mánuði.
Nífaldur
tekjumunur
Efstu 12,5% hafa um 2,1 milj-
ón í meðalárstekjur eða um 175
þúsund á mánuði, efstu 5% hafa
rúmlega 2,6 miljónir í árstekjur
og um 220 þúsund á mánuði.
Tekjuhæsta prósentið sem í eru
1951 einstaklingur var með tæp-
lega 3,8 miljónir í árstekjur að
meðaltali eða um 314 þúsund
krónur í mánaðarlaun. Alls voru
520 einstaklingar með um 360
þúsund í meðalatvinnutekjur,
241 var með um 410 þúsundir
króna í atvinnutekjur á mánuði
að meðaltali og þeir sem kórón-
uðu velsældina voru 253 framtelj-
endur með rúmlega fimm og
hálfa miljón í árslaun að meðal-
tali eða rúmlega 460 þúsundir á
mánuði. Þessi laun eru um níföld
laun þess stóra hóps sem taldi um
30% framteljanda og var með
árslaun upp að 500 þúsundum
króna.
Ljóst er af þessum upplýsing-
um að tekju- og eignaskipting er
mikil í landinu. Jafnvel þó tölurn-
ar séu fengnar frá árinu 1987 eru
þær uppfærðar til síðasta árs.
Hlutföllin milli ríkra og fátækra á
íslandi hafa þó vart breyst mikið
síðustu tvö árin, nema þá til hins
verra. phh
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. júní 1989