Þjóðviljinn - 09.06.1989, Page 8
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Rltstjóri: Árni Bergmann
Umsjónarmaður Nýs Helgarblaðs: Sigurður Á. Friðþjófsson
Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Afgreiðsla: ® 681333
Auglýsingadéild: @ 681310 - 681331
Verð: 140 krónur
Hrikaleg misskipting
Nýja Helgarblaöiö birtir í dag upplýsingar um tekju- og
eignaskiptingu þjóðarinnar sem sýnir hrikalega misskipt-
ingu í „velferðarríkinu" íslandi. 13,5% framtalsskyldra ein-
staklinga eiga nær helming allra skuldlausra eigna í þjóðfé-
laginu en um helmingur framteljenda á einungis 7,6% af
skuldlausum eignum þjóðarinnar.
Þessar tölur voru reiknaðar út af hagdeild fjármálaráðu-
neytisins að ósk Nýs Helgarblaðs og eru tölurnar unnar
eftir skattframtölum fyrir árið 1988 og færðar til meðalverð-
lags þess árs.
Ef við skoðum þessar stærðir í krónum kemur í Ijós að
hrein skuldlaus eign landsmanna nemur rúmum 328 milj-
örðum króna. Þar af eiga áðurnefnd 13,5% framteljenda að
meðaltali skuldlausa eign sem nemur rúmum 6 miljónum
króna.
Helmingur framteljenda á hinsvegar að meðaltali skuld-
lausa eign sem nemur um 270 þúsund krónum. Ríkustu 410
einstaklingarnir eiga svo að meðaltali eignir upp á 33,8
miljónir króna hver.
Það sama verður uppi á teningnum þegar tekjur framtelj-
endanna eru skoðaðar, þar kemur í Ijós að launamisræmið í
landinu er himinhrópandi. 41 % framteljenda er með 10,7%
atvinnutekna í landinu en 0,1 % með eitt prósent tekna, eða
tífaldar meðaltekjur. Þetta eru um 253 einstaklingar og
námu mánaðarlaun hvers og eins um 462 þúsund krónum á
mánuði.
Þessar upplýsingar sýna að hér á landi ríkir miklu meiri
stéttaskipting en í veðri hefur verið látið vaka. Þær benda
líka á það að það eru víðar matarholur fyrir stjórnvöld að leita
í en í magra pyngju launamanna. Ríkisstjórnin leitar nú leiða
til þess að mæta auknum halla ríkissjóðs og almenningur
hlýtur að krefjast þess að augu þeirra þriggja ráðherra, sem
hefur verið falið að finna lausn á vandanum, skoði vandlega
hverjir það eru sem eiga ísland og láti þá taka þátt í að rétta
við skútuna. Við hljótum að krefjast þess af ríkisstjórn sem
kennir sig við félagshyggju.
LR kveðurIðnó
Merk kaflaskil verða í íslenskri leiklistarsögu um þessa
helgi. Síðustu sýningar Leikfélags Reykjavíkur í Iðnó eftir
nær aldarbúskap í Leikhúsinu við Tjörnina eru staðreynd.
Næsta leikár hefst í haust í nýja Borgarleikhúsinu í Kringl-
unni.
Hann er vandfundinn sá Islendingur, sem kominn er til
manns, sem ekki á góðar minningar úr þessu húsi. Þarna
hefur Leikfélagið við þröngan kost oft á tíðum lyft grettistaki,
bæði í listrænum skilningi og ekki sjaldnar hefur því tekist að
skemmta landsmönnum með óborganlegum sýningum.
Leikfélag Reykjavíkur hefur ekki bara verið leikfélag borg-
arbúa, heldurallrarþjóðarinnar, engu síðuren Þjóðleikhúsið
og verður það eflaust áfram þegar það flytur í ný húsakynni.
Þeir flutningar verða mikil umskipti fyrir starfsmenn
-. leikhússins. öll starfsaðstaða verður einsog best verður á
kosið og sömuleiðis verða þægindin sem áhorfendum er
j boðið upp á mun betri en í gamla Iðnó. En það eru ekki
'j þægindin og aðstaðan sem skipta höfuðmáli, heldur hvort
I leikhúsið í Kringlunni verður jafn lifandi og nátengt áhorfend-
i um og Leikhúsið við Tjörnina hefur verið.
Framtíð Iðnó er enn óráðin. Menntamálaráðherra hefur
lýst því yfir að hann telji að húsið eigi áfram að vera leikhús
1 og þá leikhús frjálsra leikhópa í borginni, sem hafa undan-
farin ár oft verið með athyglisverðustu leiksýningarnar sem
boðið er upp á, en stöðugt verið á húsnæðishrakhólum. En
Iðnó er í sölu og því mikilvægt að strax sé gripið í taumana og
það tryggt að húsið gegni áfram því hlutverki sem það hefur
geant í nær öld.
Á þessum tímamótum Leikféiagsins þökkum við fyrir þær
ánægjustundir sem við höfum átt í Iðnó og óskum LR góðs
gengis í nýju leikhúsi.
! -Sáf
I________________________________________________
Símon ívarsson Einar Kristján Einarsson
Nú er röðin
komin að okkur
Fáir hafa stutt jafn mörg góð málefni og tónlistarmenn, og þeir eiga
því inni stuðning hjá almenningi svo þeir komi upp félagsheimili yfir
sig. Uppákomur í Kringlunni og happdrættissala hjá tónlistar-
mönnum
Tónlistarbandalag íslands
verður með tónlistaruppákomu í
Kringlunni á laugardag þar sem
seldir verða happdrættismiðar
fyrir Félagsheimili tónlistar-
manna að Vitastíg 3. í næstu viku
verða einnig tónlistaruppákomur
í Kringlunni daglega og hefjast
þær á þriðjudag en lýkur föstu-
daginn 16. júní. Takmarkið er að
selja 1000 happdrættismiða á
þessum tíma.
Jóhann G. Jóhannsson tón-
listarmaður sagði að öll helstu fé-
lög tónlistarmanna í landinu ættu
aðild að félagsheimilinu, en um
þessar mundir hillir undir stór-
kostlega möguleika á að nýta það
hús.
Tónlistarmenn eignuðust
þriðju hæð í húsinu við Vitastíg
fyrir 10 árum þegar þeir fengu
aðild að félagsheimilasjóði. Síð-
an hefur verið unnið við að stand-
setja húsnæðið, en þar sem á
neðri hæðunum hefur verið starf-
semi sem hentaði ekki í nábýli við
félagsheimilið hefur húsnæðið
ekki nýst sem skyldi. Nú stendur
til að á jarðhæð komi staður þar
sem lifandi tónlist verður flutt og
á annarri hæð verði veitingahús,
en þetta sambýli býður upp á ótal
möguleika að sögn Jóhanns.
Við hverja hundrað miða sem
seljast verða dregnir út 5 hljóm-
plötuvinningar, en hljómplatan
er Landslagið 1989, sem nýlega
var gefin út. Einnig eru dregnir út
tveir matarvinningar á eikargrill.
Ef þúsund miða markið næst
verður dreginn út ferðavinningur
upp á 75 þúsund krónur, „sæl-
keraferð til Portúgal á vegum
Evrópuferða“. 17. júní verða svo
dregnir út vinningamir í happ-
drættinu en aðalvinningurinn þar
er Skoda Favorite bifreið sem er
til sýnis í Kringlunni.
Jóhann sagði að samstarfið við
verslunareigendur í Kringlunni
hefði verið mjög gott. „Eða eins-
og einn sagði við okkur: Tón-
listarmenn hafa stutt svo mörg
góð málefni í gegnum tíðina að
það er kominn tími til að ykkur sé
sýndur stuðningur.“
Dagskráin í Kringlunni hefst á
hádegi. Skólakór Garðabæjar
mun syngja undir stjóm Guð-
finnu Ólafsdóttur. Gítarleikar-
arnir Símon ívarsson og Einar
Kristján Einarsson leika. Þá mun
Bjartmar Guðlaugsson koma
fram og einhverjir fleiri tónlistar-
menn munu einnig birtast.
Örkin hans Nóa í Reiðhöllinni
Skrautfiskar, geitur, kalkúnar, hamstrar, angóra-
naggrísir, kanínur, hundar, kettir, folöld, kálfar,
hænuungar, skrautfuglar, páfagaukar, finkur, dúfur,
eldisfiskar, hrafnaro.fi. fulltrúar úr örkinni hans Nóa
verða til sýnis í Reiðhöllinni nú um helgina.
Á morgun, laugardag, verður opnuð mjög fjöl-
breytt dýrasýning íReiðhöllinni og lýkur henni á
sunnudagskvöld. Þarna verða fulltrúar íslensku
húsdýranna, skrautfuglar flögra um og bréfdúfur
sýndar. Stjörnulið Hundaskólans sýnir afrakstur
góðrar þjálfunar. Litskrúðugir skrautfiskar synda í
stómm búmm og eldisfiskar í stóm keri. Þá verða
hestasýningar auk þess sem bömin fá að bregða sér
á bak.
í anddyrinu bjóða bæjarhrafnar fyrstu gestina
velkomna, kl. 13 á laugardag og kl. 10 á sunnudag
en sýningunni lýkur kl. 22 bæði kvöldin. Aðgangs-
eyrir fyrir börn er 200 krónur en fyrir fullorðna 400
krónur.
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. júní 1989