Þjóðviljinn - 09.06.1989, Side 10

Þjóðviljinn - 09.06.1989, Side 10
Atli Már Bjarnason, einn af hinum efnilegu íslensku billjardspilurum, sem staðið hefur sig með ágæt>- um á heimsmeistaramótinu. Mynd -Jim Smart. Ótrúleg snilli hjá strákunum Heimsmeistaramót unglinga í snóker í Hafnarfirði. Billjardíþróttin á íslandi í stórsókn. Guðbjartur Jónsson form. Billjardsambandsins: Gott unglingastarf skilar árangri. Heimsmeistaramótið hefur vakið mikla athygli á íþróttinni Snillingurinn Gary Hill frá Bretlandi gerði sér litið fyrirog tæmdi borðið í einu stuði sl. sunnudag. Mynd- Jim Smart. Heimsmeistaramót ungjinga í snóker, 20 ára og yngri, hefur staðið yfir í íþróttahúsinu í Hafn- arfirði frá því í fyrri viku, en því lýkur með úrslitaviðureigninni á laugardag. Mót þetta sem er hið fyrsta sinnar tegundar hérlendis, hefur vakið töluverða athygli, ekki síst vegna góðrar frammi- stöðu fjölmargra íslenskra spil- ara og frábærrar leikni margra hinna erlendu spilara, sem sumir hverjir standa hinum þekktu atvinnumönnum í íþróttinni hvergi á sporði, eins og þegar hef- ur sýnt sig og sannað. Hápunktur mótsins til þessa er tvímælalaust heimsmet Bretans Gary Hill, sem gerði sér lítið fyrir sl. sunnudag og hreinsaði borðið, fékk 147 stig, sem er það hæsta sem hægt er að fá í snóker Ótrúlega góður árangur - Árangur strákanna hefur verið ótrúlega góður, en sjö sinn- um hafa þeir náð stuðum yfir 100, fram til þessa, en það er betri ár- angur en oftast næst á stórmótum sem þessu, segir Guðbjartur Jónsson, formaður Billjardsam- bandsins, en hann hefur borið hitann og þungann af undirbún- ingi þessa móts. Það er samdóma álit þeirra sem fylgst hafa með að sérlega vel hafi til tekist og aðstæður allar á keppnisstað séu hinar bestu. „Borðin hafa staðist ströng- ustu kröfur en til að fá metið á sunnudag metið þurfti að mæla borðið upp með sérstökum mæli- tækjum frá alþjóðasambandinu og það gekk allt upp. Fulltrúar alþjóðasambandsins hafa einnig lýst ánægju sinni með allan að- búnað, segir Guðbjartur. Keppni í úrslitariðlum hófst í gær og verður framhaldið í dag en aðalúrslitaleikurinn hefst annað kvöld og verður fram haldið á laugardag. í úrslitaleiknum er spiluð 21 lota, sem er mun meira en í venjulegum leik. Þrír íslensk- ir spilarar, þeir Atli Már Bjama- son, Eðvarð Matthíasson og Arn- ar Richardsson hafa tryggt sér sæti í 16 manna úrslitum, en Atli hafði átt góða möguleika á sæti í 8 manna aðalúrslitum. Þeir íslensku hafa staöiö sig vel - íslensku strákamir hafa nær allir staðið sig eins og menn bjuggust við. Það hefur verið lögð mikil áhersla á uppbyggingu unglingastarfsins síðustu ár hjá Billjardsambandinu og við eigum orðið fjölmarga mjög góða spil- ara. Því áttum við von á því að þeir stæðu sig vel í þessari keppni eins og margir hafa gert, en það sem kannski hefur skort fyrst og fremst er keppnisreynsla. Við eigum fjóra mjög góða spilara sem eiga að geta staðið í þeim bestu erlendis frá, eins og þeir hafa sýnt í sumum leikjum, en þeir þurfa að komast í fleiri svona stórmót. Þeir hafa klikkað á at- riðum sem eiga að geta verið í lagi. Þeir spila vörnina ekki nógu vel og hafa verið að taka óþarfa áhættu sem þeir bestu gera ekki. Guðbjartur segist hafa orðið var við mikinn áhuga á þessu móti, bæði gegnum sjónvarpsút- sendingar og einnig hefur verið ágætis aðsókn að mótinu. - Það eru hérna afburða góðir spilarar og fjórir þeirra eru atvinnumenn. Ég veit að einn þeirra hafði í tekj- ur af mótum í maí 12 þús. pund (rúm miljón). Þetta eru strákar sem bíða á þröskuldinum eftir að komast inn í aðalatvinnumanna- hópinn og það er alveg víst að hér verða hörkuúrslitaleikir í dag og á morgun. Breytt og betra yfirbragö Billjardspilurum hefur fjölgað mikið á síðustu árum og jafnvel síðustu mánuðum og virðist vera mikill áhugi á þessari íþrótt um allt land. Billjard heáir verið stundaður hér um langt árabil en á síðari árum hefur þessi íþrótt haft á sér miður gott orð, þar sem spilað var í reykmettuðum búll- um og vín oft haft um hönd. - Það er rétt, ástandið var oft miður gott, en það hefur orðið mikil breyting á í þessum efnum eftir að Billjardsambandið var stofnað árið 1984. Ef vínlykt fyndist af manni í dag, þá yrði hann umsvifalaust rekinn úr keppni og það eru í smíðum regl- ur sem banna allar reykingar í keppni. Yfirbragðið er nú með allt öðrum hætti en þekktist áður, þetta eru prúðir og mjög agaðir strákar, segir Guðbjartur Jóns- son formaður Billjardsambandsins. -lg- III REYKJKIÍKURBORG »fl j MT Jlcuoian, Stödtvi Vistheimilið Seljahlíð Hjallaseli 55 Hjúkrunarfræöingar óskast í sumarafleysingar í júlí og ágúst. Upplýsingar gefur Aðalheiður Hjartardóttir í síma 73633. Lögtök Að kröfu gjaldheimtustjórans f. h. Gjald- heimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúr- skurði, uppkveðnum 6. þ. m., verða lögtök látin fara fram fyrir vangoldnum opinberum gjöldum utan staðgreiðslu, sem féllu í gjalddaga 1. fe- brúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní 1989. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða hafin að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði tilskildar greiðslur ekki inntar af hendi innan þess tíma. Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 6. júní 1989 10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.