Þjóðviljinn - 13.06.1989, Side 2

Þjóðviljinn - 13.06.1989, Side 2
Lárus í Holti sendiráðsprestur Séra Lárus Þ. Guðmundsson í Holtsprestakalli hefur verið ráð- inn sem sendiráðsprestur í Kaup- mannahöfn frá og með 15. júlí n.k. Fjórar umsóknir bárust um stöðuna, en nafnleynd hvflir á um umsækjendur. Undanfarið ár hefur Lárus verið í námsleyfi og dvalist aðllega í Kaupmanna- höfn. Tvö banaslys Tveir karlmenn létust í umferð- inni um sl. helgi. Bóndinn á Gautlöndum II í Mývatnssveit varð undir dráttarvél síðdegis á laugardag. Hann var látinn er að var komið. Hann hét Pétur Gauti Pétursson og var 75 ára gamall. Þá lést ungur maður í vélhjóla- slysi skammt frá Hellu. Slysið varð á laugardagskvöld og féll pilturinn af hjólinu skammt frá brúnni að Ytri-Rangá og lést samstundis. Hann hét Runólfur Sveinn Sverrisson og var á 23ja aldursári. Bókasöfnin forystulaus Sambands- og forystuleysi hefur háð bókasöfnum landsins og er því löngu tímabært að ákveðið verði með Iögum hver skuli gegna forystuhlutverki varðandi mál- efni bókasafna, segir í ályktun sem gerð var á 7. ársþingi Bóka- varðafélagsins á Selfossi á dögun- um. Vilja bókaverðir að mennta- málaráðuneytið móti heildar- stefnu fyrir bókasöfn landsins, þ.m.t. Háskólabókasafn, Lands-1 bókasafn, önnur rannsóknarbókasöfn, almenn-! ingsbókasöfn, skólasöfn og emb- ætti bókafulltrúa. Nýjar úthlutunar- reglur LÍN Menntamálaráðherra hefur stað- fest nýjar úthlutunarreglur Lána- sjóðs íslenskra námsmanna fyrir næsta skólaár. Reglumar breytast lítið frá nýliðnum vetri, nema þau ákvæði er varða með- ferð á tekjum. Veitt verða lán fyrir framfærslu á námstíma, en 50% tekna umfram framfærslu í leyfi koma til frádráttar á há- marksláni í stað 35% áður. Neytendafélag á Suðurnesjum Nýlega var stofnað Neytendafé- lag Suðumesja en starfssvæði þess er Suðumes öll. Félagsmenn í hinu nýja félagi em nær eitt þús- Frá fundi í fulltrúaráði Brófaskólans. Skólastjóri er Guðrún Frið- geirsdóttir en formaður skólanefndar Þráinn Hallgrímsson. Bréfaskólinn sækir á Nemendum Bréfaskólans fjölgaði töluvert á fyrstu fjómm mánuðum þessa árs miðað við undanfarin ár. A næsta ári fagnar þessi sérstæði skóli, sem nú er rekinn sem sjálfstæð sameignarstofnun, hálfrar aldar afmæli. Starfsemi skólans hefur tekið miklum breytingum á síðustu missemm, en hann hefur nú samstarf um fullorðinsfræðslu við fjöl- marga aðra skóla- og menntastofnanir, m.a. Fræðsluvarpið, Banka- mannaskólann og menntamálaráðuneytið. í undirbúningi er ennfrem- ur samvinna við Ferðaþjónustu bænda og Iðntæknistofnun um starfs- menntun. Ungmennafélagið hefur nýlega gerst eignaraðili að skólan- um en önnur fjöldasamtök sem reka skólann em ASÍ, BSRB, Farmanna- og fiskimannasambandið, Kvenfélagasamband íslands, SÍS og Stéttarsamband bænda. und. Formaður félagsins var björg Ásgeirsdóttir, Grindavík kjörin Drífa Sigfúsdóttir, Kefla- og Auður Ingvarsdóttir, Kefla- vík en aðrir í stjóm eru Þómý vík. I varastjóm eiga sæti þau Jóhannsdóttir, Garði, Halldór Halldór Pálsson og Kristján Leví Bjömsson, Keflavík, Guð- Gunnarsson, Keflavík. Norðfirðingar mótmæla hækkunum Fundur í Alþýðubandalaginu í Neskaupstað hefur mótmælt harðlega þeim miklu verðhækk- unum sem nú dynja yfir. „Sú efnahags- og verðlagsstefna sem heimilar sífelldar verðhækkanir nauðsynja en setur ekki skorður við braski og bruðli í þjóðfé- laginu er ekki í anda Álþýðu- bandalagsins“, segir í samþykkt félagsfundarins. Stefnumörkun í ferðamálum Samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að fjalla um ferðamál og stefnumörkun í ferðamálum á breiðum gmndvelli. Nefndinni er falið að kanna samkeppnisstöðu og rekstrarskilyrði í ferðaþjón- ustu hér miðað við nágranna- lönd, endurskoða lög um ferða- mál og leggja fram tillögur um opinbera stefnu í ferðamálum. Formaður nefndarinnar er Hjör- leifur Guttormsson alþm., en aðrir nefndarmenn Ámi Þór Sig- urðsson hagfr., Áslaug Alfreðs- dóttir hótelstjóri, Birgir Þorgils- son ferðamálastjóri, Bjarni Sig- tryggsson ferðamálafræðingur, Friðjón Þórðarson alþm., Kristín Einarsdóttir alþm., Reynir Adolfsson framkvstj. og Unnur Stefánsson verkefnisstjóri. „íslandsbanki“ Starfsmenn funda Bankamir þrír munu sameina rekstur sinn og rekstur Utvegsbankans fyrir mitt næsta ár. miljónum króna. Þá er ætlað að tap á rekstri Útvegsbankans verði um 38 miljónir fyrstu sjö mánuði þessa árs og kemur það einnig til frádráttar kaupverðinu. Verslunarbanki, Alþýðubanki og Iðnaðarbanki kaupa hver sinn þriðjung af hlutafé Útvegsbank- ans og hafa gert samkomulag við ríkið þess efnis að þeir muni sam- eina bankarekstur sinn og Út- vegsbankans fyrir mitt næsta ár. Efasemdir eru þó uppi um að raunveruleg sameinging takist fyrir þann tíma, enda í mörg hom að líta. Stefna hins nýja banka á enn eftir að líta dagsins Ijós, enda hafa bankaráð og hluthafafundir kaupendanna þriggja enn ekki gefið formlegt samþykki fyrir kaupunum. En að vonum velta menn því fyrir sér hvort „íslandsbankinn hinn nýi“ muni snúa sér frá erfiðu greinunUm, og þá fyrst og fremst sjávarútvegi, og að hefðbundnari viðskiptavinum Iðnaðar- og Verslunarbanka. Mestir mögu- leikar á fækkun útibúa bankanna fjögurra eru á Reykjavíkursvæð- inu, en spurningar hafa vaknað um hversu harða „bankapólitík“ nýi bankinn mun reka þegar kemur að útibúum Útvegsbank- ans úti á landi, sérstaklega á stöð- um eins og Siglufirði og Vestmannaeyjum þar sem Út- vegsbankinn gegnir lykilhlu- tverki í byggðarlaginu. -phh/-4g. Vilja að hugsanlegri fœkkun verði jafnað útálangantíma Formenn starfsmannafélaga > Útvegsbanka, Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og Alþýðubanka ásamt formanni SÍB funduðu f gær um breytta stöðu mála eftir sameiningu þessara banka. Yngvi Öm Kristinsson for- maður SÍB sagði eftir fundinn að ætti að koma til fækkunar starfs- fólks væri eðlilegt að það gerðist á sem lengstum tíma og þá þannig að ekki yrði farið út í uppsagnir. Skynsamari leið væri að endur- ráða ekki starfsfólk í stað þess sem hætti og jafna út þeirri fækk- un sem hugsanlega væri yfirvof- andi á að minnsta kosti fjögur ár. Hins vegar væm þessi mál enn mjög skammt á veg komin og því vildi hann lítið tjá sig um málið að svo stöddu. Forráðamenn Verslunar- og Alþýðubanka héldu fundi með starfsfólki í gær og em frekari fundahöld væntanleg í bönkun- um á næstunni. Björg Þórarins- dóttir, formaður starfsmannafé- lags Alþýðubanka sagðist ekki hafa orðið vör við óróa meðal starfsfólks vegna yfirvofandi breytinga. Taldi hún liggja í hlut- arins eðli að starfsmannafélög þessara banka yrðu á endanum sameinuð, en héðan í frá tækju þau ákvarðanir í sínum málum sameiginlega. phh Sigurjónssafn Tónleikar í kvöld Sigríður Gröndal sópransöng- kona flytur þýsk-franskt prógramm við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur pí- anóleikara, í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar i kvöld. Á efnisskránni em lög eftir Hugo Wolf við kvæði eftir Edu- ard Mörike, Goethe og Paul Heyse (úr ítölsku ljóðabókinni) og lög Schuberts við hin svo- nefndu Suleikaljóð. Ennfremur verða flutt lög eftir Debussy og Henry Duparc við kvæði eftir meðal annarra Paul Verlaine, Mallarmé og Bauderlaire. Tónleikarnir hefjast kiukkan 20.30 og standa í um það bil klukkustund. Miðaverð er kr. 350,- FRETTIR Bankasameining Stórbanki á Útvegsgmnni Tímamótíbankamálum. Fjórum bönkum steyptsaman í einn. Eitt ár tilframkvœmda. Kaupverð óljóst vegna ýmissa leiðréttinga. Trúlega nálœgtbókfærðu verði Útvegsbanka. 275 m. kr. ífrádrátt vegnafyrrum bankastjóra Rflrissjóður seldi um helgina hlut sinn í Útvegsbankanum hf. til Verslunar-, Iðnaðar- og Al- þýðubanka. Rflrissjóður átti 76,8% hlutaijár bankans og var það metið á nafnverði um 770 mfljónir króna. Seldi rflrið sinn hlut fyrir 1450 mfljónir eða um 1,8 sinnum nafnverð, en frá því kaupverði dragast nokkrir ,Jeiðréttingarliðir“ þannig að endanlegt kaupverð verður á bil- inu 1,0-1,1 mfljarður króna sem er mjög nálægt bókfærðu eignar- virði bankans. Jón Sigurðsson bankamálaráð- herra segir að þessi sameining í bankakerfinu sé sögulegur við- burður sem menn hafi beðið eftir í nær tuttugu ár. Þessi uppstokk- un eigi eftir að skila lands- mönnum ódýrara og öflugra bankakerfi en við búum við í dag. Til viðbótar þessari sameiningu sé ekki ólíklegt að Landsbanki taki yfir Samvinnubankann og þá verði starfandi í landinu tveir sterkir rfkisbankar og einn sam- einaður og öflugur einkabanki. Slíkt eigi að tryggja minni vaxta- mun en nú þekkist, meiri sam- keppni og betri þjónustu. Stærsti hluti þeirra leiðrétting- arliða sem óútkljáðir eru vegna kaupa þríbankanna á Útvegs- bankanum, mun vera lífeyris- skuldbinding ríkisins vegna fyrrum bankastjóra Útvegsbanka fslands og nemur sá liður um 275 Ríkisstjórn Raunvextir lækki þegar Ríkisstjórnin hefur falið Seðla- bankanum að beita sér þegar fyrir vaxtalækkun í bankakerfínu til samræmis við almenna vaxta- þróun. Er Seðlabankanum gert að skila ákveðnum tillögum til stjórnarinnar fyrir ríkisstjórn- arfund á fímmtudagsmorgun og jafnframt tekið fram að bankinn hafí fulla heimild til að beita lagaákvæðum til að binda vaxta- ákvarðanir innlánsstofnana. Jón Sigurðsson bankamálaráð- herra segir að full samstaða sé um það innan ríkisstjómarinnar að forsendur séu til staðar fyrir vaxtalækkun og því sé ítrekað við Seðlabanka að hann beiti sér þeg- ar fyrir lækkun bæði nafnvaxta og raunvaxta. Ástæðan fyrir þessari ítrekun stjórnvalda sé m.a. sú að nú sé betra heildarjafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar á láns- fjármarkaði, raunvextir á fjár- magnsmarkaði utan bankakerfis hafi farið lækkandi á síðustu mánuðum og raunvextir spari- skírteina ríkissjóðs verða lækk- aðir í 5,5 til 6%. -Ig. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN , Þrlðjudagur 13. júnf 1989

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.