Þjóðviljinn - 20.06.1989, Síða 1
Þriðjudagur 20. júní 1989 107. tölublað 54. örgangur
Ríkisstjórnin
Kröfum almennings mætt
Heildarskattbyrðistaðgreiðsluskattalœkkarum2%ograunvextirum 7% -1,25%. Þýðir6þúsundkrónaaukningu
ráðstöfunartekna á mánuði hjáfjölskyldu. Mjólkurlítrinn lœkkar um 4 krónur ídag, blýlaust bensín um 2 krónur lítrinn.
Verð álambakjötiniðurum allt að 25%.
essar aðgerðir ríkisstjórnar-
innar eru jákvætt skref af
hennar hálfu og með þeim koma
stjórnvöid til móts við kröfur al-
mennings um lækkun verðlags,
skatta og virðir gerða samninga.
Hvort þetta kom á óvart eða ekki
skal ég ekkert um segja nema að
það hefur ekki verið hefð fyrir því
á íslandi að stjórnvöld víki frá
stefnu sinni. Ríkisstjórnin er því
meiri af þessum gerðum sínum og
við munum láta af aðgerðum að
sinni, sagði Ögmundur Jónasson
formaður BSRB.
í sameiginlegri ályktun ASÍ og
BSRB um aðgerðir ríkisstjórnar-
innar segir efnislega að þessum
árangri sé að þakka sterkri sam-
stöðu almennings og þó ekki hafi
að fullu verið komið til móts við
kröfur samtaka launamanna meti
þau þessi viðbrögð ríkisstjórnar-
innar.
í kjölfar aðgerða samtaka
launamanna gegn nýlegum verð-
lagshækkunum og samráðsfund-
um með forystu ASÍ og BSRB
hefur ríkisstjórnin ákveðið að á
næstu dögum komi til fram-
kvæmda ýmsar breytingar sem
bæta lífskjör almennings og
treysta grundvöll nýgerðra samn-
inga. Helstu breytingarnar eru
þessar:
- Staðgreiðsla venjulegrar
fjölskyldu lækkar um 4 þúsund
krónur á mánuði vegna lögbund-
innar hækkunar á persónuafslætti
og barnabótum frá 1. júlí. Skatt-
leysismörk einstaklinga hækka úr
47 þúsund krónum á mánuði í
rúmlega 51 þúsund. Fyrir ein-
stakling með 70 þúsund króna
mánaðarlaun þýðir þessi hækkun
að skattbyrði tekjuskatta
minnkar úr 12,25% í 10,0% eða
2,25% kaupmáttaraukningu. Þá
hækka barnabætur um 9% Heild-
arskattbyrði staðgreiðsluskatta
Fjölda fyrirtækja um allt land
var lokað í gær vegna van-
goldins söluskatts. „Þessar að-
gerðir marka kerfisbreytingu í
innheimtu söluskatts sem hefur
verið tvo mánuði í undirbún-
ingi,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra við
Þjóðviljann i gær.
Ólafur Ragnar sagðist hafa átt
fundi með öllum sýslumönnum
landsins til þess að undirbúa
þetta átak við söluskattsinn-
heimtuna og að héðan í frá ættu
fyrirtæki ekki að komast upp með
vanskil á söluskatti nema í mesta
lagi mánuð eftir eindaga.
„Grundvallarreglan er sú að
hér eftir munu allir sitja við sama
borð og enginn mannamunur
lækkar um rúmlega 2%. Fyrir
fjögurra manna fjölskyldu með
160 þúsund mánaðalaun þýðir
þetta að staðgreiðsluskattar
hennar minnka úr 18.400 krónum
í 14.700 á mánuði. Skattbyrði af
tekjum lækkar úr 11,5% í 9,2%
sem þýðir kaupmáttaraukningu
um 2,3%.
Raunvextir í bankakerfinu
lækka um 1% - 1,25% á næstu
vikum og koma þær til fram-
kvæmda í framhaldi af viðræðum
ríkisstjómarinnar að undanförnu
við Seðlabankann. Þessi raun-
vaxtalækkun mun einnig leiða til
samsvarandi lækkunar á raun-
vöxtum á ýmsum öðrum sviðum
td. hjá lífeyrissjóðum. Við þetta
gæti raunvaxtabyrði fjölskyldu
verður gerður,“ sagði Ólafur
Ragnar.
Þá er ráðuneytið með ýmsar
aðgerðir á prjónunum sem eiga
að koma í veg fyrir að eigendur
fyrirtækja geti breytt um nafn á
fyrirtækinu til þess að komast hjá
því að greiða opinber gjöld.
Snorri Ólsen deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu sagði að í
Reykjavík skulduðu um 800 aðil-
ar 300 þúsund krónur eða meira
hver í söluskatt, en til þeirra nær
þessi aðgerð núna. Annarsstaðar
á landinu er fjöldinn álíka mikill,
þannig að samtals eru þetta um
1600 aðilar sem skulda söluskatt
fyrir 300 þúsund eða meira. Sum
þessara fyrirtækja eru í gjaldþroti
þar á meðal það fyrirtæki sem
skuldar mest, eða um 86 miljónir
með 1,5-2 miljón króna skuldir
lækka um allt að 15% eða sem
nemur um 2 þúsund krónum á
mánuði. Eftir þessar breytingar á
lækkun á staðgreiðslusköttum og
raunvöxtum mun venjuleg fjöl-
skylda hafa 6 þúsund krónur
meira til ráðstöfunar í hverjum
mánuði en hún hefur nú.
í dag lækkar verð á mjólk um 4
krónur hver lítri sem er 6% lækk-
un. Þessi verðlækkun stafar af
auknum niðurgreiðslum sem að
mestu verða fjármagnaðar úr rík-
issjóði. Á næstu mánuðum er
fyrirhugað að endurskoða niður-
greiðslur á feitmeti.
Þá hefur verið ákveðið að
lækka verð á blýlausu bensíni um
2 krónur í þessari viku eða um
króna. Það eru því á annað
hundrað fyrirtæki sem mega eiga
von á lokun í þessari viku í
Reykjavík og nokkur þessara fyr-
irtækja skulda tugi miljóna í sölu-
skatt.
Stefnt er að því að ljúka þessari
aðgerð fyrir helgi en þá á að snúa
sér að aðilum sem skulda undir
300 þúsundum króna. Samtals er
talið að ríkið eigi útistandandi um
þrjá miljarða króna vegna van-
goldins söluskatts en níu miljarða
ef litið er til allra opinberra
gjalda.
„Við erum að herða aðgerðir
við innheimtu allra opinberra
gjalda. Ég tel gott ef okkur tekst
að ná inn 10% af útistandandi
gjöldum en það er um miljarður
króna,“ sagði Snorri.
4%. Með þessu er farið inn á
sömu braut og í flestum löndum
Evrópu með því að gera blýlaust
bensín hlutfallslega ódýrara en
bensín með blýi í þágu umhverfis-
verndar.
Einnig hefur verið ákveðið að
bjóða á næstu 3-4 mánuðum sér-
unnið lambakjöt á tilboðsverði. í
þessu felst að kjöt í sérstökum
umbúðum verður selt á 20% -
25% lægra verði en annað kjöt.
Kjötið verður til sölu alls staðar á
landinu, niðursagað, sérpakkað í
neytendaumbúðir og seit í hálf-
um skrokkum.
Þá er þegar hafið samstarf við
verkalýðshreyfinguna og neyt-
endasamtökin að herða verðlags-
eftirlit í því skyni að halda aftur af
Mjög mikið var að gera hjá
tollstjóraembættinu í gær vegna
lokananna. Mörg þeirra fyrir-
tækja sem lokað var í gærmorgun
brugðust skjótt við og greiddu
skuld sína þannig að þau gátu
hafið eðlilegan rekstur, en önnur
fyrirtæki brugðust ekki jafn
skjótt við og eru enn innsigluð.
Ástandið virðist töluvert mis-
jafnt eftir sveitarfélögum og
landshlutum, þó er áberandi að
ástandið er lang verst í Reykjavík
að sögn Snorra, enda mun fjöl-
breyttari atvinnurekstur þar en
annarsstaðar á landinu.
Stefnan er svo sú að eftir álagn-
ingu hvers mánaðar verður kann-
að hverjir ekki standa í skilum og
lokað hjá þeim.
-Sáf
verðhækkunum eins og kostur er.
Að sögn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar fjármálaráðherra kosta
þessar aðgerðir ríkissjóðs um 100
- 200 miljónir króna en á móti
verður reynt að spara og draga úr
útgjöldum ríkisins. Ráðherra
sagði það sem gæfi svigrúm til
þessara aðgerða væri ma. sá
stöðugleiki sem kominn væri á
lánsfjármarkaðinn og viðskipt-
akjörin við útlönd. Varðandi
bensínlækkunina væri þar verið
að taka forskot á þá lækkun sem
fyrirsjáanleg væri erlendis. -grh
Fánamálið
Þjóðin
svnrirt
Þrír bandarískir hermenn eru
nú í gæsluvarðhaldi á Kefiavíkur-
fiugvelli fyrir að svívirða íslenska
fánann og fána erlendra ríkja á
þjóðhátíðardegi íslendinga. Her-
mennirnir verða dæmdir sam-
kvæmt íslenskum lögum og geta
átt yfir höfði sér allt að eins árs
fangelsi. Gunnar G Schram lög-
fræðingur og sérfræðingur í al-
þjóðarétti segir hermennina tví-
mælalaust hafa brotið á friðhelgi
sendiráða sem hljóti að vera litið
alvarlegum augum.
Vigfús Geirdal forvígismaður
utanríkishóps Alþýðubandalags-
ins segir þennan atburð mjög al-
varlegan og það beri hiklaust að
dæma hermennina til þyngstu
refsingar samkvæmt íslenskum
lögum. Það eigi ekki að láta
bandarísku herstjórnina velkjast
í neinum vafa um að svona mál
verði ekki þoluð.
Aðfaranótt 18. júni barst lög-
reglunni í Hafnarfirði tilkynning
um að sést hefði til manna skera
niður íslenska þjóðfánann.
Skömmu síðar tilkynntu vegfar-
endur um svipað athæfi við Engi-
dal, á bæjarmörkum Hafnar -
fjarðar og Garðabæjar.Skömmu
síðar stoppaði Hafnarfjarðarlög-
reglan bíl af Keflavíkurllugvelli
vegna hraðaksturs og kom þá í
ljós að þar voru fánaskerarnir á
ferð. Grunur leikur á að menn-
irnir hafi verið ölvaðir. Alla vega
taldi lögreglan mennina ekki
hæfa til skýrslutöku þá um nótt-
ina.
f fórum mannanna fundust 24
fánar flestir íslenskir. Einnig
höfðu þeir skorið niður fána
tékkneska sendiráðsins, austur
þýska sendiráðsins og kínverska
sendiráðsins ásamt fána Garða-
bæjar, Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar.
Hermennirnir verða einnig
dæmdir af bandarískum herrétti
en þar geta þeir átt von á enn
þyngri refsingu en fyrir íslenskum
dómstólum, bæði fangelsisvist og
fjársekt svo og brottrekstri úr
hernum með skömm. í Brenni-
depli á blaðsíðu 3 í Þjóðviljanum
í dag er fjallað um heræfingar
bandaríska hersins hér á landi.
-hmp
Ríkisstjórnin tilkynnti í gaer ýmsar breytingar sem koma til framkvæmda í dag og á næstunni sem bæta
munu lífskjör almennings og treysta grundvöll nýgerðra samninga. Mynd: ÞOM.
Söluskattsinnheimta
Fjölda fyrirtækjja lokað
Stór átak í innheimtu vangoldins söluskatts ígœr. ÓlafurRagnar Grímsson:
Allir sitji við sama borð. Snorri Olsen: Vanskil á opinberum gjöldum 9 miljarðar. Gottef við náum
inn miljarði. 1600fyrirtœki skulda 300 þúsund krónur eða meira í söluskatt