Þjóðviljinn - 22.06.1989, Side 1
Fimmtudagur 22. júní 1989 109. tölublað 54. árgangur
Heimavarnarliðið fór fylktu liði undir íslenskum fán
um um „varnarsvæðin" á Reykjanesi í gærkvöldi en
til tíðinda dró þegar farið var inn fyrir afgirt svæði
við Rockville.
Lögreglumenn hlupu uppi og handtóku heimavarnaliðsmenn sem óöfðu farið inn fyrir girðingu og „ógnað" þar með bandarísku herliði.
Hernámssvœðin
Ahlaup á Rockville
Liðsmenn heimavarnaliðsins reisa íslenskafánann innan girðingar bandaríska hersins. Lögreglanfylgdist
náið með liðsmönnum utan girðingar en hindraði ekkigöngu um svœðið. Lokað fyrir bílaumferð
Liðsmenn heimavarnaliðsins
námu land innan girðingar
bandaríska hersins við Rockville
ratsjárstöðina um klukkan níu í
gærkvöldi. Eftir að einn liðs-
manna, Birna Þórðardóttir,
hafði smeygt sér inn fyrir gadda-
vírsgirðinguna og hlaupið upp á
sandpokavirki og veifað íslenska
fánanum, fóru fleiri að fordæmi
hennar. Sjö lögreglumenn hlupu
að Birnu og handjárnuðu hana.
Heimavarnaliðið kom á bann-
svæðið og gekk frá bflum sínum
við flugstöð Leifs Eiríkssonar út á
auglýst bannsvæði, klukkan átta í
gærkvöldi. Um 30 manna lögregl-
ulið fylgdist grannt með ferðum
heimavarnaliðsins en aðhafðist
ekkert. Eftir stutta gönguferð og
söng, hélt heimavarnaliðið að
Rockville ratsjárstöðinni. Þar
hafði lögreglan lagt lögreglubfl
með blikkandi ljósum þversum á
afleggjarann og yfirlögreglu-
þjónn tilkynnti að heimavarna-
liðið væri á einkavegi. „Einka-
vegi hvers?“, var spurt, og svar-
aði yfirlögregluþjónninn að ve-
gunnn væri einungis ætlaður
herrium.
Heimavarnaliðið gekk þá að
ratsjárstöðinni og dreifði sér eftir
girðingunni beggja megin við
hliðið. Eftir að Birna hafði verið
handtekin reyndi lögreglan að
þvinga hana inn í eftirlitsskúr
hersins, en hún veitti mótspyrnu
og sagðist „ekki vilja fara inn á
bandaríska lögreglustöð". Yfir-
lögregluþjónninn skipaði ráð-
villtum lögregluþjónunum að
skila Birnu út fýrir hlið og þegar
hún kom út, sagði hún íslensku
lögregluþjónana hafa tekið við
skipunum frá hermönnum. Þeir
hefðu samræmt aðgerðir inni í
skúrnum og látið vita af heima-
varnamönnum innan girðingar í
gegnum talstöð.
Ingibjörg Haraldsdóttir, for-
maður Samtaka herstöðvaand-
stæðinga, sagði ferð heimavarn-
aliðsins sýna að lögreglan treysti
sér ekki til að standa að auglýstu
banni á ferðum um svæði utan
girðingar.
Lögreglustjórinn á Keflavíkur-
flugvelli, Þorgeir Þorgeirsson,
stjórnaði aðgerðum lögreglunnar
á vettvangi. Hann sagði Þjóðvilj-
anum að lögreglan tæki ekki við
skipunum frá hernum. Stundum
væri nauðsynlegt að handjárna
fólk sem veitti mikinn mótþróa.
Birna Þórðardóttir
hlaut harkalega með-
ferð þegar hún var
handtekin. Fariðvar
með hana inn í lög-
regluskúr, en þegar
henni varslepptupp-
lýsti hún að íslenskir
lögreglumenn hefðu
tekið við skipunum frá
bandarískum her-
mönnum í gegnum tal-
stöð.
myndirJim Smart
Lögreglan leitaðist ekki eftir því
að beita fólk harðræði.
Heimavamaliðið mun fara
reglulegar ferðir á hemámssvæð-
in á meðan heræfingar banda-
ríska hersins standa yfir. Eina
ferðin sem vitað er um verður á
laugardag.
-hmp
Grásleppukarlar
Netin upp í mokveiði
Landssamband smábátaeigenda: Upp með netin sé ekki tryggingfyrir söluþó
mokveiði sé. Efekki, geturþað leitt til verðlœkkunar á grásleppuhrognum
Landssamband smábátaeigenda
hvetur þá grásleppukarla sem
enn eru á veiðum og hafa ekki
örugga tryggingu fyrir sölu að
taka netin upp og hætta veiðum
þó mokveiði sé. Astæðan er að
allt það sem veitt er umfram það
sem hægt er að selja mun hafa
áhrif á verðlagningu og fyrir-
framsölu á hrognum á næstu ver-
tíð.
Núna er veiðin komin yfir 12
þúsunt tunnur sem er um eitt
þúsund tunnum meira en talið er
að hægt verði að selja. Því miður
hefur það viljað brenna við að
einhverjir hafa ekki orðið við
þessum tilmælum sem getur leitt
til verðiækkunar sem er alls ekki
á döfinni enda mikið í húfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landssambandi smábátaeigenda
getur verðlækkun upp á 100 þýsk
mörk á 12 þúsund tunnum svarað
til tekjutaps uppá 33,8 miljónir
króna. Samskiptum við þá er-
lendu aðila sem gert hafa samn-
inga á þessari vertíð uppá tæpar 5
þúsund tunnur á 1100 þýsk mörk
væri teflt í tvísýnu. Myndi hafa í
för með sér undirboð á helstu
mörkuðum okkar sem gæti leitt
til verulegrar lækkunar á næsta
ári. ísland gæti tapað því frum-
kvæði í verðlagsmálum á grá-
sleppuhrognum sem það hefur
haft og jafnframt glatað því
trausti sem byggt hefur verið upp
á undanfömum árum að hér séu
litlar verðsveiflur á verði grá-
sleppuhrogna.
Núna er veiði lokið á svæðun-
um frá Hvítingum norður og vest-
ur að Skagatá. Á Ströndum em
menn byrjaðir að draga upp netin
í ágætri veiði. Á Vestfjörðum
hefur veiði verið þokkaleg og í
Breiðafirði ágæt. Aftur á móti
hefur veiði í Faxaflóa verið léleg.
Svæðið frá Homi suður og austur
í Hvítinga hefur leyfi til að stunda
veiðar til 20. júlí, en þá lýkur
grásleppuveiðum samkvæmt
reglugerð.
-grh