Þjóðviljinn - 06.07.1989, Síða 1
Fimmtudagur 6. júlí 1989 117. tölublað 54. órgangur
Hvalfjörður
Olíuúrgangur á glámbekk
300 tunnur með úrgangsolíu frá hernum geymdar niðri íflœðarmáli.
Blaðafulltrúi hersins: Bíða þess að verðafjarlœgðar. Siglingamálastofnun:
Ekki kunnugt um málið. Óvenjulegur geymslustaður
Um 300 tunnur fullar af úr-
gangsolíu frá eldsneytis-
birgðastöð Bandaríkjahers í
Hvalfírði liggja á glámbekk niðri
undir fjöruborði utan girðingar
og bíða þess að ryðga í sundur
meðan þær eru ekki fjarlægðar.
Tunnurnar sem eru um 250 lítra
olíuföt, eru geymdar undir
ábreiðslu og þarf ekki mikið
hnjask til svo að úr leki að sögn
heimildarmanns Þjóðviljans í
Hvalfirði.
Friðþór Eydal, blaðafulltrúi
hersins, staðfesti þetta í samtali
við Þjóðviljann í gær. Að sögn
Friðþórs er um að ræða botnfall
úr eldsneytistönkum hersins og
olíumengaðan jarðveg úr þróm,
sem til skamms tíma hefur verið
geymdur utan girðingar eftir að
hafa legið innan olíustöðvarinnar
í um tvö ár.
Þjóðviljinn fékk þær upplýs-
ingar hjá Siglingamáíastofnun að
þangað hefði engin vitneskja bor-
ist um tilvist oh'uúrgangsins niðri
undir flæðarmáli, en stofnunin er
eftirlitsaðli með mengunarvörn-
um við strendur landsins.
Eyjólfur Magnússon hjá Sigl-
ingamálastofnun sagði að
óneitanlega væri þetta óvenju-
legur geymslustaður ef rétt
reyndist. - Hins vegar ef tunn-
urnar verða fljótlega fiarlægðar
og eru í góðu ásigkomulagi þá er
ekki voðinn vís.
- Nokkrum hluta þessa úr-
gangs hefur þegar verið pakkað í
sérstakar umbúðir og fluttur á
brott. Það er beðið eftir umbúð-
um fyrir afganginn til að hægt sé
að flytja hann á brott til eyðingar,
sagði Frlðþór, sem sagðist ekki
geta sagt til um hvenær af því
yrði.
Sigurður Þráinsson, sjávarlíf-
fræðingur hjá Náttúruverndar-
ráði, sagði að erfitt væri að segja
til um hvaða skaði væri skeður ef
olían losnaði úr læðingi og hvort
hún næði að berast í eldiskvíar
sem væru við innanverðan fjörð-
inn og yrði fugli að fjörtjóni.
- Náttúrlega er þetta ekki
geymslustaður fyrir úrgang sem
þennan, sagði Sigurður.
-rk
Farmannadeilan
Yfirvinnu-
banni
frestað
Sjómannafélag Reykjavíkur
frestaði laust fyrir kvöldmatar-
leytið í gær y fir vinnubanni undir-
manna á kaupskipum sem hófst
klukkan 17 í gær. Ákvörðun um
áður boðaða þriggja sólarhringa
vinnustöðvun í næstu viku stend-
ur þó enn óhögguð.
Að sögn Guðmundar Hall-
varðssonar, formanns Sjómanna-
félags Reykjavíkur, var afráðið
að fresta yfirvinnubanninu til 14.
júlí þar sem sú staða var komin
upp í samningaviðræðum við
kaupskipaútgerðirnar að brugðið
getur til beggja vona.
Bolungarvík
Fimm vikna
gálgafrestur
Við ítrekuðum kröfur
heilbrigðisnefndar Bolungar-
víkur að lagt verði bundið slitlag
á Kanaveginn til að hindra frek-
ari rykmengun af honum yfir
vatnsöflunarkerfi bæjarins og
gáfum utanríkisráðuneytinu
fimm vikna frest til að ganga frá
þeim málum. Að öðrum kosti
yrði veginum lokað 10. ágúst og
stöðvast þá allar framkvæmdir
við ratsjárstöðina uppá Bola-
fjalli, sagði Kristinn H. Gunnars-
son í Bolungarvík.
í fyrradag á þjóðhátíðardag
Bandaríkjanna kom sjö manna
sendinefnd frá utanrfkisráðu-
neytinu með Þorstein Ingólfsson
forstöðumann varnarmála-
deildar í broddi fylkingar til Bol-
ungarvíkur til viðræðna við
heimamenn hvað gera skuli til að
Spænsku konungshjónin, Jóhann
Karl I. og Soffía á tröppum forseta-
bústaðarins á Bessastöðum í gær
ásamtfrú Vigdísi Finnbogadóttur
forseta íslands. Veðrið varekki uppá
það besta, útsynningurog regnsloti
sem virtist þó ekki spilla heimsókn
þessara aufúsugesta sem dvelja hér
á landi til næstu helgi. Mynd Jim
Smart.
koma í veg fyrir að ryk frá vegin-
um berist í va'tnsöflunarkerfi
bæjarins. Engin niðurstaða
fékkst í viðræðum aðila en þess í
stað var bæjarstjóra falið að
fylgja málinu eftir við utanríkis-
ráðuneytið og varnarmálaskrif-
stofu þess.
Að sögn Kristins héldu emb-
ættismennirnir því fram á fundin-
um að þeim hefði aldrei borist
samþykkt heilbrigðisnefndarinn-
ar frá því ágúst í fyrra þar sem
utanríkisráðuneytinu var gefinn
frestur fram til 1. júlí í ár að ganga
að kröfum heimamanna um
bundið slitlag á Kanaveginn. Að
öðrum kosti yrði honum lokað
fyrir allri umferð.
Starfsmaður heilbrigðisnefnd-
arinnar er Einar Otti Guðmunds-
son héraðsdýralæknir á ísafirði
og aðspurður sagðist hann standa
í þeirri meiningu að hafa sent áð-
urnefnda samþykkt suður og vita
ekki annað en hún hefði borist til
réttra aðila. Einar Otti sagði veg-
inn hafa verið lagðan allt of ná-
lægt vatnsöflunarkerfinu og það
væri umhugsunarefni hver hefði
mælt hann út og staðsett hann á
þessum stað.
Húsnœðiskerfið
Seinkun ekki seinkun
Búseti: Höfum ekkert getað skipulagt okkur vegna seinagangs Húsnœðisstofnunar.
Sigurður Guðmundsson: Ekki orðið neinar tafir. Umsóknir til afgreiðslu í dag
Búseti hafði ætlað sér að byggja
180 íbúðir á Reykjavíkur-
svæðinu í ár en Páll Gunnlaugs-
son, formaður Búseta I Reykja-
vík, segir að lítið verði úr fram-
kvæmdum vegna seinagangs
Húsnæðisstofnunar. Búseti hafi
þegar þurft að gefa eftir 16 íbúðir
í Hafnarfirði sem afhenda átti í
október næstkomandi og að
öllum líkindum tapi Búseti út-
hlutuðum lóðum í Kópavogi í
þessari viku. Sigurður Guð-
mundsson, forstjóri Húsnæðis-
stofnunar, segir engar tafir hafa
orðið á afgreiðslu Húsnæðis-
stofnunar. Búseti hafi farið offari
í sínum málum.
Ibúðirnar í Hafnarfirði voru
byggðar af verktaka sem Búseti
ætlaði síðan að kaupa og miðla til
félagsmanna. Páll sagði að greiða
hefði átt lóðagjöld í Kópavogi 1.
mars og þess vegna búist hann við
því að Búseti missi lóðirnar í vik-
unni. Fjármagnsskortur sé helsti
vandi húsnæðiskerfisins og Hús-
næðisstofnun viti aldrei hvaða
fjármagn stofnunin hafi fil um-
ráða hverju sinni.
Sigurður Guðmundsson sagði
að Búseti eins og aðrir sem lagt
hefðu inn lánsumsóknir fyrir 1.
ágúst, hefðu þurft að bíða eftir
afgreiðslu fjárlaga, sem ekki voru
afgreidd fyrr en um jól. Síðan
hefði þurft að bíða eftir af-
greiðslu lánsfjárlaga, en þau voru
ekki afgreidd á fyrr en 22. mars.
Þá var fyrst kominn grundvöllur
fyrir Húsnæðisstofnun til að af-
greiða lánsloforð.
Húsnæðisstofnun vann að því í
allan vetur að undirbúa tillögur
um úthlutun ársins. Tillögurnar
hefði ekki verið hægt að sýna fyrr
en lánsfjárlög voru afgreidd. Síð-
an hefðu aðrar veigamiklar
breytingar orðið á forsendum.
Kvennalistinn hefði samið við
stjórnvöld um 100 milljónir til
viðbótar í félagslega húsnæðis-
kerfið, og ASI hefði skömmu
áður samið um 200 viðbótaríbúð-
ir í félagslega kerfið. Þetta hefði
allt átt sér stað í miðri áætlana-
gerð Húsnæðisstofnunar.
Eftir að þingi var slitið, kom í
ljós að ígrunda þurfti betur fram-
kvæmd samnings ASÍ og ríkis-
stjórnar. „Það var ekki fyrr en
seint í júní sem allir endar voru
bundnir," sagði Sigurður. End-
anlegar tillögur um úthlutun yrðu
síðan lagðar fyrir stjórn Húsnæð-
isstofnunar í dag.
-hmp