Þjóðviljinn - 02.08.1989, Side 2

Þjóðviljinn - 02.08.1989, Side 2
FERÐABLAÐ Sumarbústaðir íslendingar hafa veriö iðnir viö þaö að koma sér upp sumarbú- stöðum á undanförnum árum. Sumarbústaðir hafa því átt sífellt meiri vinsældum að fagna og sprottið upp eins og gorkúlur víða um land. Á sumum stöðum standa þeir einir og sér innan um tré og runna, en annars staðar eru heilu sumarbústaðahverfin, eins og til dæmis í Þrastarlundi. Þeir sem eiga sumarbústaði segja það ótrúlega skemmtilegt að fara um helgar í bústaðinn og dunda sér við að mála, gera við, planta trjám eða veiða. Alltaf eitthvað við að vera. Segja það yndislega hvfld frá daglegu amstri og stressi borgarinnar að fara í tvo eða þrjá daga upp í sveit og eiga náðuga helgi með fjölskyldunni. Það hefur líka færst í vöxt að starfsmannafélög og fyrirtæki kaupi sér sumarbústað og leigi fé- lagsmönnum viku í senn eða helgi. Slíkir bústaðir eru víða, til dæmis á Laugarvatni. En hvað ætli það kosti að koma sér upp sumarbústað? Það éru nokkur fyrirtæki á landinu sem smíða og selja sumarbústaði og verðið er mjög misjafnt eins og gefur að skilja. Bústaðirnir eru misjafnir að stærð og gæðum og það skiptir líka máli hvar á landinu þeir eru staðsettir. Sum fyrirtæki sem smíða sumarbúst- aði sjá einnig um að útvega mönnum lóðir undir þá. Ýmist eru lóðirnar leigulóðir eða eignarlóðir. Sumarbústaði er hægt að fá á mismunandi byggingarstigum. Ef tekið er dæmi af meðalstórum bústað, til dæmis 38 fermetra, af- hentum á 1. stigi kostar hann um það bil 1.000.000. Á 1. stigi eru bústaðirnir oftast fullbúnir að utan, glerjaðir, með útihurðum, einangraðir, með rakavarnarlagi, spónarplötuparketti og verönd. Það er þó aðeins mismunandi eftir fyrirtækjum hvernig bústað- urinn er á 1. stigi, en þetta eru aðalatriðin. Á 2. stigi er töluverður munur á bústöðunum eftir fyrirtækjun- um. Hjá sumum fyrirtækjum eru aðeins tvö stig, en öðrum þrjú. Hjá þeim sem eru með þrjú stig eru hlutir á öðru stigi þeir sömu og eru á fyrsta stigi hjá þeim sem eru bara með tvö stig. Fyrirtæki með tvö stig afgreiða bústaðinn á 2. stigi með milliveggjum og rúm- stæðum, útveggir að innan eru klæddir með panel, hurðir eru og sólbekkir, áfellur í glugga, listar með gólfum, rafmagnsrör og dós- ir og rafmagnstafla. Hjá fyrir- tækjum með þrjú stig eru bústað- ir afhentir með svipuðum hlutum, eða innihurðum, eldhús- innréttingu og rúmstæðum. Bú- staður á 3. stigi kostar á bilinu 1.300.000 til 1.500.000. Þá eru lóðirnar eftir. Ef lóð undir sumarbústaðinn er keypt, er algengt verð á einum hektara 450-550 þúsund krónur. Sem fyrr segir útvega sum fyrirtæki lóðir, en einnig eru margar fasteigna- sölur með lóðir til sölu. Leigulóð- ir ganga á afar misjöfnu verði og mjög erfitt að segja nokkurt ákveðið verð. Oftast er gjald greitt þegar bústaðurinn er flutt- ur á staðinn, eins konar staðsetn- ingargjald, og síðan ergreidd viss upphæð á ári. Fyrir þá sem langar til að eyða helgum úti í sveit og sumarfríum á íslandi, er upplagt að fara á stúfana og afla sér upplýsinga um sumarbústaði og öllu því sem þeim tengist, því fjölbreytnin er mikil og nánast óendanlegir möguleikar fyrir hendi. Á fimmtudag verður hæg Norð- og Norðvestanátt. Skýjað en þurrt að kalla á Norðurlandi, en lóttskýjað með köflum í öðrum landshlutum. Á miðvikudag verður ríkjandi norðvestlæg átt. Skýjað annesjum. Léttskýjað með köflum á Suðurlandi og á Austfjörðum. á Norður- og Vesturlandi og á stöku stað súld á Gómsætir réttir og allt á einum stað Ferðamarkaðurinn er eina verslunin á íslandi, sem býður upp á alhliða ferðavörur eins og t.d. PARADISO lellihysin, uppsett á 'Amínútu. Sérhðnnuð fyrir íslenskar aðstæður. DALESMAN sumarhúsin, sem nú lást einnig uppsett á Spáni. SAFARI MONZA hjðlhýsi - tjaldvagnar - kerrur. Tjöld og allur viðlegubúnaður. NIKE-sportfatnaður og skón Garðhusgögnfra SeglageröinniÆgi. Reiðhjól fráFálkanum. Gasvörur frá Olíufélaginu Skeljungi. Fortjöld á hjólhýsi og fellihýsi - f lestar tegundir. Fjölbreytt úrval af vörum í sportið og ferðalagið. Sjón er sögu ríkari Hvað er sérstakt viö PARADISO-fellihýsið? Opið til kl. 19 mánudaga-fimmtudaga. Opið til kl. 22 föstudaga. Opið kl. 10-18 laugardaga. FERÐAMARKAÐURINN Bíldshöföa 12 (viö sömu götu og Bifreiðaskoðun íslands). Sími 674100.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.