Þjóðviljinn - 02.08.1989, Síða 3
FERÐABLAÐ
Hvað er að gerast um
verslunarmannahelgina?
Bindindismotiö
í Galtalæk
Bindindismótið í Galtalæk
verður haldið um verslunar-
mannahelgina eins og áður. Hát-
íðin stendur yfir frá 4. til 7. ágúst.
Aðstaðan í skóginum fer batn-
andi með hverju ári og að þessu
sinni verður meðal annars tekið í
notkun nýtt 200 fermetra
dansgólf sem er undir kúluþaki.
Þar verða haldnir unglingadans-
leikir og tónleikar. Á staðnum er
stórt veitingahús og tjaldstæðin
eru dreifð víða um skógi vaxið
svæðið. Sérstök stæði eru fyrir
hjólhýsi og unglingarnir geta
haldið hópinn í unglingatjald-
búðum. Næsta nágrenni Galta-
lækjarskógar býður upp á fjöl-
breyttar og skemmtilegar göngu-
ferðir, stuttar sem langar.
Dagskrá mótsins er fjölþætt að
venju og reynt er að höfða til allra
aldurshópa svo að öll fjölskyldan
geti komið og átt skemmtilega
helgi án áfengis.
Aðalhljómsveit mótsins á palli
verður hljómsveit Birgis Gunn-
laugssonar, en í kúluhúsinu verða
hljómsveitirnar Busarnir frá
Stykkishólmi, Fjörkallar, Sér-
sveitin og Vímulaus æska frá
Reykjavík. Um önnur tónlistar-
atriði sjá sönghóparnir Hálft í
hvoru og Raddbandið. Einnig
verða á mótinu grínistar frá
Spaugstofunni og Omar Ragn-
arsson. Dagskráratriði á
heimsmælikvarða eru þau Jón
Páll og ungfrú heimur, Linda Pét-
ursdóttir.
Fyrir börnin verða meðal ann-
ars Brúðubíllinn, hjólreiðakepp-
ni BFO, söngvarakeppni, leikir
fyrir yngstu börnin og Karnival
með Jóka trúði, drekum og
sprellkrökkum. Aðrir dagskrár-
liðir eru til dæmis svæðisútvarp,
ökuleikni BFÖ, dansmeistarar,
karateflokkur, helgistund,
fjöldasöngur, varðeldur og flug-
eldasýning.
Að venju er lögð höfuðáhersla
á að gestir mótsins njóti útiver-
unnar í fallegu umhverfi og það
verða um 300 starfsmenn sem sjá
um að þessi stærsta fjölskyldu-
hátíð helgarinnar fari sem best
fram.
Mótsgjald í Galtalækjarskógi
er 4.000 kr. fyrir fullorðna, 3.500
kr. fyrir þrettán til sextán ára
unglinga en tólf ára börn og yngri
fá ókeypis inn. Rútur fara frá BSÍ
á föstudag og laugardag og flytja
fólk heim seinni dagana tvo.
Suðurlandsskjálfti
í Árnesi
f félagsheimilinu Árnesi verð-
ur um helgina boðið upp á nýjan
valkost í „úti“hátíðahaldi. Par
verður haldin verslunarmanna-
helgarhátíð fyrir fullvaxta fólk
sem nefnd hefur verið „Suður-
Iandsskjálftinn".
Á hátíðinni munu hljóm-
sveitirnar Kátir Piltar og Rokka-
billýband Reykjavíkur koma
fram. Þar mun einnig hinn þjóð-
kunni Valgeir Guðjónsson stíga á
stokk svo og bandaríski blökku-
söngvarinn John Collins. Collins
ætlar að syngja fyrir matargesti
ásamt Hirti Howser píanó-
leikara, en Collins kemur líka
fram ásamt hljómsveit. Árnes er
hótel og veitingastaður og ákveð-
ið hefur verið að bjóða uppá
þjónustu í mat og drykk. Af því
leiðir að aldurstakmark í vín-
veitingasal miðast við fullvaxta
fólk, þ.e. 20 ára og eldri. í hlið-
arsal verður hins vegar boðið
uppá diskótek fyrir ungiinga.
Áðstandendur hátíðarinnar
segjast hafa veitt því eftirtekt á
undanförnum árum að fólk sem
komið er til vits og ára teldi
venjulegar útihátíðir um verslun-
armannahelgar ekki alveg sniðn-
ar að sínum þörfum, og því var
ákveðið að bjóða upp á þennan
nýja valkost. Þetta mun verða
mikil og góð tónlistarhátíð, en
ekki telja aðstandendur fyllilega
hægt að fullyrða á þessu stigi
málsins að Woodstock-hátíðin
bandaríska verði endursköpuð á
íslenska vísu í Árnesi.
Frá Reykjavík er um klukkust-
undar akstur í Árnes og örstutt
frá Laugarvatni, Hveragerði,
Selfossi, Hellu og Hvolsfelli. í
næsta nágrenni eru tvær sund-
laugar og á svæðinu eru tjald-
stæði með hreinlætisaðstöðu og
heitum potti. Miðaverði á dans-
leiki verður stillt í hóf, en ekkert
mun kosta inn á svæðið sjálft. Á
svæðinu verður m.a. hestaleiga,
ýmsar uppákomur og leikjadag-
skrá á daginn. Handhafar dans-
leikjamiða munu fá afslátt á
veitingum í Árnesi, en auk þess
munu kvöldverðargestir fá frítt
inn á dansleiki.
Vegna takmarkaðs sætafjölda í
kvöldverð er tekið á móti borða-
pöntunum í síma 99-66504.
Valaskjálfti ‘89
Engin útihátíð verður í ár í
Atlavík um verslunarmannahelg-
ina, en ÚÍA mun þó annast
veitingasölu og gæslu á tjalds-
væðinu, því leyft verður að
tjalda. Skógrækt ríkisins taldi
ekki unnt að leyfa dansleikjahald
á sjálfu svæðinu. Rútuferðir
verða alla dagana milli Atlavíkur
og Egilsstaða.
Hátíð verður hins vegar haldin
í Valaskjálf á Egilsstöðum, og
ber hún nafnið Valaskjálfti ‘89.
Dansleikir verða á föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld
og sérstakir rokktónleikar síð-
degisálaugardag. Hljómsveitirn-
ar sem koma fram eru Stjórnin,
Langi Seli og skuggarnir, Heitar
pylsur, Enginn okkar hinna,
Hálfur undir sæng, Pete Suffa &
the Disaster. Einnig skemmtir
söngkonan Ellen Kristjánsdóttir,
blúsarinn Guðgeir Björnsson,
eldgeipir og ýmis fleiri óvenjuleg
skemmtiatriði verða.
Miðar á alla dansleikina kosta
3.600 kr. en jafnframt er hægt að
kaupa sig inn á hvern dansleik.
Rokkaö í Húnaveri
í Húnaveri munu hvori meira
né minna en 49 hljómsveitir spila
um verslunarmannahelgina og
það verður stanslaus tónlistar-
flutningur á fullkomnu útisviði og
undir þaki. Hljómsveitarkeppni
verður haldin og það verða hátíð-
argestir ásamt dómsnefnd sem
velja efnilegustu hljómsveitina.
Hljómsveitirnar koma hvaðan-
æva að af landinu og verða 30
talsins. Auk þeirra verða á svæð-
inu Bubbi Morthens, Síðan skein
sól, Stuðmenn, Langi Seli og
skuggarnir, Geiri Sæm og hun-
angstunglið, Sniglabandið,
Strax, Nýdönsk og Ex.
Það verða Hjálparsveitarmenn
sem annast gæslu og veitingar á
svæðinu. Sætaferðir verða frá
sérieyfishöfum víða um land, en
þar munu einnig fást aðgöngu-
miðar. Miðar verða líka seldir á
mótsstað, í Varmahiíð og sölu-
skálanum á Blönduósi. Mót-
sgjaldið er 3.950 krónur.
Fjölskyldu-
hátíð í Vík
Um verslunarmannahelgina
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
verður haldin fjölskylduhátíð í
Vík í fjórða skipti. Það er Ung-
mennafélagið Drangur og Björg-
unarsveitin Víkverji sem sjá um
hátíðina sem hefst á föstudags-
kvöldi með varðeldi á tjaldstæð-
inu við Vík. Varðeldurinn verður
kveiktur aftur tvö næstu kvöld.
Dansleikir verða í Leikskálum á
laugardags- og sunnudagskvöld.
Margt verður til gamans gert í
Vík og má nefna útsýnisferðir
með hjólabát í Reynisdranga og
Dyrhólaey og rútuferðir að nýrri
skíðalyftu í Sólheimajökul. Fyrir
börnin verður haldið íþróttamót,
farið í leiki og flutt
skemmtiatriði. Ekki er selt inn á
svæðið, heldur greiða hátíðar-
gestir fyrir það sem þeir velja af
dagskránni.
Laugarvatn
Á Laugarvatni verður engin
útihátíð um verslunarmanna-
helgina, en þangað eru samt allir
velkomnir sem vilja njóta leyfis
síns í fögru umhverfi og íslenskri
náttúru með greiðum aðgangi að
nauðsynlegustu þjónustu við
ferðafólk og sumarleyfisgesti.
Lögð er áhersla á þjónustu við
fjölskyldur og fastagesti sem
tekið hafa tryggð við staðinn sem
er paradís útivistarfólks.
Misnotkun áfengis, sóða-
skapur, hávaði og skrílslæti hefur
því miður alltof oft orðið til að
skyggja á gleði og ánægju sumar-
gesta, einkum um verslunar-
mannhelgar. Nú virðist vaxandi
áhugi á því að fólki verði gert
skiljanlegt að gestir, sem þver-
brjóta umgengnisreglur eru
óvelkomnir á Laugarvatn sem og
annars staðar þar til þeir hafa
tamið sér betri siði.
Um verslunarmannahelgina
verður höfð ströng gæsla á tjald-
stæðinu og hjólhýsasvæðinu á
Laugarvatni til að afstýra ófriði
og ónæði. Fjöldi tjalda verður
takmarkaður í samræmi við
reglugerð og öllum þeim sem
óvirða reglur og tilmæli starfs-
manna verður tafarlaust vísað af
svæðinu.
Sem fyrr er nefnt er boðið upp
á margs konar þjónustu við
ferðafólk því til afþreyingar, svo
sem báta, hesta, seglbretti, mini-
golf, gufubað og sund. Einnig eru
margar fallegar gönguleiðir í nág-
renninu við hæfi hvers og eins.
...kjörin leið til sparnaðar
er Kjörbók Landsbankans
Betri, einfaldari og öruggari leiö til ávöxtunar sparifjár er vand-
fundin. Háir grunnvextir og verötryggingarákvæöi tryggja góöa
ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 16 og 24
mánuöi. Samt er innstæöa
Kjörbókar alltaf laus.
Jf Landsbanki
Mk íslands
ÆLA Banki allra landsi
allra landsmanna