Þjóðviljinn - 02.08.1989, Qupperneq 6
Lögreglan sneri við, og gafst upp á að elta fantinn.
Punktarnir á íslandskortinu merkja Edduhótelin sextán. Viljir þú þægilega
gistingu velur þú Edduhótel. Verdlag er þar sanngjarnt og andrúmsloftið
notalegt. Það er ef til vill besti punkturinn. Edduhótelin eru á þessum
stöðum:
1 Laugarvatni ML s: 98-61118
2 Laugarvatni HSL s: 98-61154
3 Reykholti s: 93-51260
4 Laugum Dalasýslu s: 93-41265
5 Reykjum Hrútafirði s: 95-10004
6 Laugarbakka V-Hún s: 95-12904
7 Húnavöllum A-Hún s: 95-24370
8 Akureyri s: 96-24055
9 Hrafnagili s: 96-31136
10 Stórutjörnum s: 96-43221
11 Eiðum s: 97-13803
12 Hallormsstað s: 97-11705
13 Nesjaskóla s: 97-81470
14 Kirkjubæjarklaustri s: 98-74799
15 Skógum s: 98-78870
16 Hvolsvelli s: 98-78187
5
'
Q
1 2 14
ubFERI )ASK RIFSTOE/ V ís LANDS
•> SkógaiWíð 18 ■ 1 01 Reykjavík ■ lcel and Tel: 354-(9>l-25855 ■ Tel ex - 2049 Tcl efax: 354 (9> 14325895
Þau brugðu sér norðurtil Akur-
eyrar með fluginu um daginn.
Hann hafði fengið ádrátt um
vinnu í nokkra daga, hún ætlaði
bara að flatmaga í sólinni í garð-
inum hjá systur sinni og pjakkur-
inn átti að fá að sletta úr klaufun-
um með frændsystkinum sínum.
Og á meðan hann gekk á með
kalsa og úrhelli fyrir sunnan,
skein sólin nyrðra og þetta var
eiginlega ekki lakara en á Ibiza
um árið.
Svo teygðist á vinnunni hjá
honum. Þetta varð löng skorpa
við bygginguna, staðið við fram á
kvöld og oft óþrifalegt, heimili
systurinnar á Brekkunni undirlagt
og henni fannst hún vera fyrir.
Fór að velta því fyrir sér að nóg
væri komið, að maður væri ekki
endalaust velkominn o.s.frv. og
þótt hann rigndi í Fteykjavík þá
ætti hún samt heima þar og að
þar væri skást að vera; drengur-
inn líka farinn að sakna leikfélag-
anna.
Svo bauðst henni skyndilega
far. Einhver kunningi systurinnar
sagðist vera að fara suður í
kvöld, „strax í kvöld, ekki seinna
en snemma," og þeir bara tveir í
bílnum, henni því velkomið að
fljóta með og drengnum líka.
Hún var ekki lengi að taka sig
saman. Þau voru tilbúin um
kvöldmatarleytið eins og um var
talað. Drengurinn orðinn óþolin-
Vatnaveiði
Handbók vatna-
veiðimanna
Handhœgt ritfyrirþá sem vilja rennafyrir
silung
Nýlega kom út gagnleg bók
fyrir þá sem leggja stund á sil-
ungsveiði eða hyggjast gera út á
slík mið, „Vatnaveiðihandbókin'1.
Guðmundur Guðjónsson blaða-
maður er höfundur bókarinnar,
en hann hefur á undanförnum
árum ritað mikið í blöð og tímarit
um lax- og silungsveiði.
1 ritinu er að finna upplýsingar
um flest silungsveiðivötn á ís-
landi, eða rösklega hálft þriðja
hundrað vatna. Leiðsögn um
veiðar í þeim fylgir og hvar menn
geta nálgast veiðileyfi. Fjölmarg-
ar loftljósmyndir af veiðivötnum
og veiðisvæðum prýða bókina.
Leiðsögn um veiðistaði er veitt
um fjölda vatna. Enginn veiði-
maður á því lengur að þurfa að
velkjast í vafa um hvar heppi-
legast sé að kasta færinu út. Þá er
í mörgum tilfellum greinargóð
lýsing á því hvernig auðveldast er
að komast að veiðivötnunum.
Auk vatnalýsinganna hefur
bókin að geyma upplýsingar um
íslenska vatnafiska, hvernig
ganga eigi sem best frá afla, um-
gengni við ár og vötn og tæki og
tól sem veiðimenn þurfa
nauðsynlega að taka með sér í
veiðiferðir.
„Vatnaveiðihandbókin" er 156
síður að stærð.
6 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN