Þjóðviljinn - 03.08.1989, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 3. ágúst 1989 133. tölublað 54. árgangur
Tölvunjósnir
Símatölva opin gmskumm
Einstaklingar úti í bœ komust inn í tölvu
Pósts og síma sem fylgist með ákveðnum
símnúmerum. Afskipti Þjóðviljans valda
viðbrögðum hjá Pósti og síma
Tölvugrúskari sem býr yfir
þeirri tækni að geta hringt
með svo kölluðu „módemi“ í aðr-
ar tölvur, komst inn á tölvu Pósts
og síma í símstöðinni í Breiðholti.
Sér til nokkurrar undrunar sá
tölvugrúskarinn að hann hafði
aðgang að upplýsingum um sím-
notkun einstakra símnotenda sem
tölvan fylgdist með. Tölvan
skráði samviskulega öll símtöl
sem viðkomandi símnotendur
hringdu, hvaða númer hringdu í
númerið og hve lengi var talað.
Einnig skráði tölvan þær tölur
sem símnotendur völdu en hættu
við að hringja í miðjum klíðum.
Þegar Þjóðviljinn hafði sam-
band við Póst og síma könnuðust
menn fyrst ekki við þessa tölvu.
Blaðinu var vísað á Thor Eggerts-
son yfirdeildastjóra. Hann sagði
tölvur sem þessa vera í öllum sím-
stöðvum í Reykjavík. Með þessu
væri Póstur og sími alls ekki að
stunda neina njósnastarfsemi og
engir aðilar aðrir en tæknimenn
Pósts og síma hefðu aðgang að
skráningum tölvanna. Skýringin
á því hvers vegna tölvan fylgdist
með ákveðnum númerum væri,
Kamerún
Kvenna-
bósi í
klípu
15 af45 eiginkonum
elskaðasta dœgurlaga-
söngvara Kamerún krefja
eiginmanninn um
fjölskyldubíl. Ella fara
þœr fram á skilnað
Ein skærasta stjarna dægur-
lagaheimsins í Kamerún er heldur
betur í klípu þessa dagana.
Fimmtán þeirra 45 eiginkvenna
sem stjarnan er kvæntur hafa
krafið eiginmanninn um að hann
kaupi undir þær bfl, að öðrum
kosti komi ekki annað en skilnað-
ur til greina.
Stjaman sem nefnist Obama
Esoma Juliot de Feu, er ekki á
þeim brókunum að láta undan
eignkonunum 15 - enda sé tómt
mál að þær komist allar fyrir í
venjulegum fjölskyldubfl. Fyrir
rétti kvaðst hann þess í stað hafa
lagt fyrir að undanförnu til að
fjármagna kaup á stærri bfl s.k.
„kálfi“ undir frúmar.
Obama Esoma er í daglegu tali
heimamanna nefndur „kvenna-
kóngurinn“. En auk eiginkvenn-
anna 45 er hann trúlofaður einum
15 konum til viðbótar.
Fastlega er reiknað með að
dómstólar kveði upp úrskurð í
máli eiginkvennanna gegn
Oboma Esoma fyrir mánaðarlok.
Þangað til er bara að bíða og sjá
til hvort kappinn láti áður undan
sínum 15 heittelskuðu eða hvort
þær sættist á þá lausn að fá litla
rútu í stað fjölskyldubflsins
langþráða. -Reuters/rk
að þegar notendur kvörtuðu
undan óeðlilegum símareikning-
um væri tölva látin fylgjast með
notkun númersins.
Thor tók einnig fram að hann
væri búinn að gera ráðstafanir
sem koma ættu í veg fyrir að utan
að komandi aðilar kæmust inn á
tölvur Pósts og síma og fagnaði
aðvörun Þjóðviljans. Hann sagði
alveg ömggt að engum óviðkom-
andi aðilum væri veittur að-
gangur að upplýsingum tölvanna.
Ekki væri ætlunin að utan að
komandi aðilar kæmust inn á
tölvumar og hefðu tæknimenn
Pósts og síma ekki orðið varir við
slík „innbrot" áður. Thor sagðist
þó hafa haft áhyggjur af þessum
möguleika og nú hefði verið grip-
ið til ráðstafana til að loka fyrir
hann.
Póstur og sími fylgist einnig
með númemm fyrirtækja að ósk
þeirra sjálfra. Þá er verið að
kanna hvort hugsanlega þurfi að
bæta línum við símkerfi fyrirtækj-
anna eða hvort það sem fyrir er
anni öllum hringingum. Tölvu-
skráningu þarf aðeins að nota í
gamla símkerfinu, en þar sem
stafræna kerfið er komið er hægt
að beita öðmm aðferðum, að
sögn Thors. —hmp
Tölvugrúskarar með réttan útbúnað gátu komist inn á eftirlitstölvur Pósts og síma og grúskað þar i gögnum.
Mynd: Kristinn.
Patreksfjörður
Skip frystihússins á uppboð
Sýslumaður: Dagsetning ekki ákveðin en að öllu óbreyttu verða þau
boðin upp ásamtfrystihúsinu ímánuðinum. ÞrymurBA kom til hafnarí
gœr og óvíst um frekari róðra
Það er ekki enn búið að ákveða
upp á dag hvenær togarinn
Sigurey BA 25 og togbáturinn
Þrymur BA 7 verða boðnir upp á
nauðungaruppboði en það verð-
ur í þessum mánuði. Að öllu
óbreyttu þá verða þeir seldir
hæstbjóðanda, sagði Stefán
Skarphéðinsson sýslumaður á
Patreksfirði.
í gær kom Þrymur BA til hafn-
ar á Patreksfirði og aðspurður
sagðist sýslumaður ekki geta sagt
neitt til um það hvort skipið héldi
til veiða á ný. - Það er svo margt
óljóst núna í þessum efnum en þó
er ljóst að veiðiferðirnar verða
ekki margar úr þessu þar sem bát-
urinn er kominn á nauðungar-
uppboð, sagði sýslumaður.
Fari svo að skip hraðfrystihúss-
ins verði boðin upp á nauðungar-
uppboði er ekki aðeins verið að
bjóða þau til sölu heldur og einn-
ig kvóta þeirra sem er allt að 50%
þess kvóta sem enn er eftir í
byggðarlaginu. Stjórnvöld hafa
ákveðið að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma í veg
fyrir að skipin og kvótinn verði
seld og nú er aðeins að sjá hvað
setur og hvort björgunarsveitim-
ar svðra bregðist nógu skjótt við
til að hindra að skipin og kvótam-
ir fari undir hamarinn. í veði er
framtíð 1000 manna byggðarlags.
Eins og kunnugt er var
Hraðfrystihús Patreksfjarðar
formlega úrskurðað gjaldþrota
hjá sýslumannsembættinu á mán-
udag þar sem beiðni þar um hafði
borist frá stjóm þess eftir að ljóst
var að Hlutafjársjóður hafði neit-
að fyrirtækinu um 200 miljón
króna lán til fjárhagslegrar
endurskipulagningar. Nokkra
áður en hraðfrystihúsið var úr-
skurðað gjaldþrota var það ásamt
skipunum komið á nauðungar-
uppboð hjá sýslumannsembætt-
inu.
Að sögn sýslumanns er ekki
búið að skipa bústjóra yfir þrota-
búinu en það verður gert bráð-
lega. Á næstunni verður gjald-
þrot hraðfrystihússins auglýst í
Lögbirtingarblaðinu og frá fyrstu
birtingu þess hafa kröfuhafar 2
mánuði til að lýsa kröfum í búið.
-grh
Skattar
Skattbyrði eykst um 1%
Hœkkun beinna skatta ríkis og sveitarfélaga hefuraðeins verið 1 %
frá 1986. Már Guðmundsson: Ekki búið að gefa upp hugmyndir
um fleiri skattþrep
Þrátt fyrir áform rflrisstjórnar-
innar um hækkun skatta hef-
ur skattbyrði einstaklinga af
beinum sköttum ekki hækkað um
meira en 1% frá árinu 1986. Sam-
kvæmt áætlunum fjármálaráðu-
neytisins vega beinir skattar ríkis-
ins 5,1% af heildartekjum á þessu
ári en 6,2% af heildartekjum fara
til sveitarfélaga. Samtals vega
beinu skattarnir því 11,3% á
þessu ári. Skatthlutfall tekju-
skatts var hækkað úr 28,5% í
30,8% um síðustu áramót, eða
um 2,3% en vegna aukinna
greiðslna barnabóta og betri nýt-
ingar persónuafsláttar, eykst
skattbyrðin aðeins um 0,8%
í núverandi kerfi er tekju-
skattur aðeins innheimtur í einu
þrepi. Hugmyndir hafa hins veg-
ar verið uppi um fleiri þrep í tekj-
uskattinum. Þannig mætti beita
skattkerfinu betur sem jöfnunar-
tæki. Alþýðubandalagið hefur
stutt slíkar hugmyndir og segir
Már Guðmundsson, ráðgjafi
fjármálaráðherra, að ekki sé búið
að gefa slíkar hugmyndir upp á
bátinn.
Sjá bls. 3