Þjóðviljinn - 10.08.1989, Qupperneq 11
Verður
uppstokkun í
ríkisstjóm-
inni?
Pessu og öðru velta menn fyrir
sér þegar líða tekur að hausti, og
styttist í að þing komi saman.
Ríkisstjórnin er hangir á veikum
þræði ætlar sér að reyna að
tryggja sér meirihluta á þinginu
og koma fram þeim frumvörpum
er máli skipta.
Það sem þessi stjórn lofaði að
gera í upphafi var m.a. að færa til
fjármuni í þjóðfélaginu, hætta að
láta ríka manninn klofríða þeim
fátæka, taka millana einu sinni
alvarlega í gegn og láta þá borga
það sem þeir raunverulega
skulda vinnuþrælunum sem unna
sér vart hvíldar nótt sem nýtan
dag, og hafa varla tíma til að
borða og þrífa sig. En nú hefur
dæmið heldur betur snúist við.
Nú er það ekki sá fátæki sem er í
vandræðum að lifa af sínum
launum, heldur er það grátkór at-
vinnurekenda sem er alveg að ör-
vinglast og hangir í pilsum ríkis-
stjórnarinnar og heimtar meira
nammi.
Sjálfstæðisflokkurinn með
Moggann og DV halda því fram
að ríkisstjórnin sé búin að missa
tiltrú fólks, og eigi hið snarasta að
segja af sér, og Þorsteinn Pálsson
er svo reiður út í Ólaf Ragnar að
hann segir að hann eigi tafarlaust
að taka pokann sinn. Þetta er nú
hljóðið í íhaldinu nú til dags.
En nú má spyrja hverju ætlar
Þorsteinn Pálsson að breyta? Er
hann ekki nýfarinn úr tveimur al-
verstu ríkisstjórnum sem hafa
verið í landinu, þegar þeir skipt-
I ust á hann og Albert Guðmunds-
son að ráðstafa fé á þann hátt að
láta braskara og hrekkjaljóma
valsa um í kerfinu, fá ómælda fyr-
irgreiðslu til að stofna allskonar
fyrirtæki er fóru síðan á hausinn
en risu stundum upp aftur á síðari
stigum undir öðrum nöfnum,
jafnvel á 10 mínútum?
Þessi ár þegar Þorsteinn hækk-
aði vextina og Albert spilaði sóló
verður að telja eitthvert mesta
brasktímabil í sögu þjóðarinnar,
enda árangurinn alltaf að koma
betur og betur í ljós, þegar næst-
um daglega berast fréttir um hrun
og óráðsíu gjaldþrota fyrirtækja
er áttu enga varasjóði til að styðj-
ast við þegar illa áraði.
Þetta var arfurinn er núverandi
stjórn tók við og hefur verið síðan
eins og brunalið að slökkva elda
og afstýra skemmdum. Þetta
vandræðaástand sem nú er í
fjármálum þjóðarinnar verður
stjórnin að ieysa og rétta þjóðar-
skútuna við og reyna að skapa
skilyrði fyrir sterkri og róttækri
stefnuskrá þegar björgunarstarf-
inu lýkur.
Það kemur fram hjá Stefáni
Valgeirssyni að hann vill láta
byggðarmálin hafaforgang, með-
an sé verið að stöðva flóttann af
landsbyggðinni. Um það ættu
flestir að geta verið sammála, því
svo sannarlega er sveitirnar part-
ur af viðkvæmu sjálfstæði lands-
ins, að öðrum kosti verður borg-
ríkið við Faxaflóa búið að af-
skræma þjóðarvitundina og gera
fólk að betlidýrum og aumingjum
í þessu ríki eftir að hafa hlaupið
frá búum sínum og býlum.
Nú er talað um að Borgara-
flokkurinn muni koma stjórninni
til hjálpar, og fara inn í samkrull
einhverskonar. Fjölmiðlar eru
með allskonar vangaveltur um
þetta. Borgarar eru taldir vilja fá
þrjá ráðherra í sinn hlut, en allt er
þetta á huldu ennþá sem komið
er og hver kjaftar upp í annan.
Hinsvegar er það haft eftir
Steingrími Hermannssyni að
stjórnirnar á Norðurlöndum, í
Danmörku og Noregi, séu minni-
hlutastjórnir og geri það alveg
prýðilega!
Hvernig væri að láta reyna á
þetta hjá okkur, og skora á allt
vinstra fólkið sem er á tvístringi
út um öll foldarból að fara að
þjappa sér betur saman og taka
skýrari afstöðu til landsmála, láta
reyna á Kvennalistann að fara að
taka ábyrgð, en hætta þessum
anda- og spákonukúnstum í sam-
bandi við stjórnmál. Það er eðli-
legt að kommarnir séu súrir að
hafa misst hluta af fylgi sínu yfir í
þessar huldufólksbyggðir þar
sem Kvennalistinn virðist ætla að
vera framvegis og forðast verald-
arlegt vafstur. En nú reynir á for-
sætisráðherrann okkar eins og
fyrri daginn, að sýna nú kollegum
sínum á Norðurlöndum að hann
sé ekki síðri línudansari en það
heiðursfólk.
Kveðja
Páll Hildiþórs
Hverjum veitt
það sem hann
þarfnast
Þegar þetta bréf er ritað hef ég
nýlokið við að lesa eftirfarandi
tilvitnun úr ágætri bók eftir Hew-
lett nokkurn Johnson: „Hver
leggi það fram, sem hann er hæf-
ur til, hverjum sé veitt það, sem
hann þarfnast." Einkunnarorð
þessi eru ein af æðstu hugsjónum
sósíalismans.
Tilvitnun þessi snerti mig það
djúpt, að mig langar með þessu
bréfi að deila með öðrum lesend-
um Þjóðviljans þessum fallegu
orðum og hugsuninni að baki
þeim. Því miður er enn svo stór
hópur vanþroska manna sem
byggja þessa jörð, að ægivíða
hugsa menn fyrst og fremst um
sjálfa sig, og sýna kjaft og klær
öllu réttlæti. Það vita allir góðir
menn sem halda á lofti merki
jafnréttis og bræðralags við
hverja hér er átt. En ef vera kann
að einhver íhaldsmaður eða
auðvaldssinni lesi þessar línur, þá
er átt við hann. Enginn sýnir j afn-
mikla grimmd og vægðarleysi
gagnvart meðbræðrum sínum,
enda „féfíknin rót alls þess sem
illt er,“ eins og segir í góðri bók.
Til þess berum við fslendingar
mikla gæfu að eiga málgagn slíkt
sem Þjóðviljinn er, þar sem hug-
sjónum sósíalismans, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar, friðar,
jafnréttis og bræðralags eru gerð
góð skil. Ljúft er að fá að tjá sig
um slík mál á síðum Þjóðviljans
og deila með öðrum lesendum
svo fallégum boðskap sem John-
son vitnaði til í bók sinni: „Hver
leggi það til, sem hann er hæfur
til, hverjum sé veitt það, sem
hann þarfnast.“
Einar Ingvi Magnússon
Refsað fyrir
að spara
Ásmundur Sigurjónsson hringdi:
Ég er einstætt foreldri og hef
verið að byggja mér hús undan-
farin ár en er ekki kominn lengra
en svo að ég bý enn í kjallaran-
um. Ég er járniðnaðarmaður og
við höfum ekki ýkja há laun,
amk. ekki samanborið við aðra
iðnaðarmenn, og auk þess hef ég
verið atvinnulaus frá því í fyrra
þegar starfið sem ég hafði var lagt
niður.
Það sem mér blöskrar er að nú
fékk ég tilkynningu frá skattinum
um að mér bæri að greiða 102
þúsund krónur í eignaskatt. Minn
glæpur er sá að hafa sparað og
ekki tekið lán heldur iagt allt sem
ég hef átt í húsið. Ég hef ekki
farið í sumarfrí en nú sýnist mér
eina leiðin sú að selja húsið, fara
til Spánar og eyða þar gjaldeyri
þjóðarinnar.
Mér finnst þetta harla lélegt
eftir að hafa fylgt flokki fjármála-
ráðherrans um langt skeið.
rþJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
„Síldveiðin gengur jafn dræmt.
Herpinótaveiði er mjög lítil, en
reknetaveiði hinsvegar nokkur. Á
Siglufirði voru síðasta sólarhring
saltaðar hátt á þriðja þúsund
tunnur. Óttast menn um að ekki
fáist upp í fyrirfram-samninga
um matjessíld og hefur síldarút-
vegsnefnd því aukið söltunarleyfi
danskra og færeyskra skipa
nokkuð gegn því að þau saiti
matjessíld. - „Treg síldveiði"
I DAG
10. ágúst
fimmtudagur í 17. viku sumars.
222. dagurársins. Lárentíus-
messa. Sólarupprás í Reykjavik
kl. 5.03-sólarlag kl. 22.01.
Viðburðir
Landsyfirréttur settur á stofn
1801. Þjóðhátíðardagur Ekva-
dor.
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búöa vikuna 28.-4. ágúst er í Vesturbæjar
Apóteki og Háaleitis Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur sími 4 12 00
1 84 55
Hafnarfj sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
1 11 00
Hafnarfj sími 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
L4EKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, simaráðleggingarog tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingarum
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar i sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vaktvirkadagakl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspit-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
ogeftirsamkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10B. Alladaga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opinalladaga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spitalinn:alladaga15-16og 18.30-19.
DAGBOK
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
1t og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
all_ daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, op'ð
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum.Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga Irá
kl. 8-17. Siminn er 688620.
Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestur- .
götu 3. Opið þriöjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
' ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
886230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími
21260 alla virka daga kl. 1 -5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
9. ágúst
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar......... 59,16000
Sterlingspund............ 95,92500
Kanadadollar............. 50,52100
Dönskkróna................ 8,03260
Norskkróna................ 8,51710
Sænsk króna............ 9,15790
Finnsktmark.............. 13,85800
Franskurfranki............ 9,22500
Belgískurfranki........... 1,49020
Svissn. franki........... 36,21670
Holl. gyllini............ 27,66490
V.-þýskt mark.......... 31,19430
Itölsk lira............... 0,04339
Austurr.sch............... 4,43060
Portúg. escudo............ 0,37360
Spánskur peseti........... 0,49740
Japanskt yen.............. 0,42538
Irsktpund................ 83,25300
KROSSGÁTA
Lárétt: 11öf4hungur6
aftur 7 lund 9 fyrirhöfn
12 hallmæla 14 orka 15
mánuður 16 ganga19
bindi 20 gagnslaus 21
aula
Lóðrétt: 1 auðug 3
flipa 4 kona 5 þreytu 7
gjöld 8 ætíð 10 melting-
arfærisins 11 lumma
13 ánægð 17 kraftar 18
hljóm
Lausnásíðustu
krossgátu
Lárétt: 1 æska4bákn
6 ræl 7 hegg 9 æmta 12
rissa14snæ15kút16
' smita 19 akka 20 æðra
21 angri
Lóðrétt: 2 ske 3 argi 4
blæs5kát7hestar8
græska10makaði11
aftrar13sói17man18
tær
Fimmtudagur 10. ágúst 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11