Þjóðviljinn - 15.08.1989, Page 6
1. deild
FH og Fram em hnrfjöfn
Deildin enn jafnari en áður. Aðeinsþrjú stig skilja lið íefsta
sœti og lið ísjötta sœti. Aðeins átta mörk skoruð í 13. umferð
Gífurleg spenna er nú f 1. deild
eftir leiki 13. umferðar um helg-
ina. Aðeins voru skoruð átta
mörk í leikjunum flmm og hafa
liðin þjappast saman í toppnum
frekar en að gliðna í sundur eins
og ætla mætti. Deildin er tvískipt
- í topp- og botnbaráttu - og er
ekkert lið sem siglir lygnan sjó um
miðja deild.
Fram-FH.....................0-0
Markalaust jafntefli efstu lið-
anna í deildinni í leik sem olli lík-
lega öllum áhorfendum von-
brigðum nema stuðnings-
mönnum annara liða. Við þessi
úrslit er spennan í deildinni ekki
minni en áður og munar aðeins
þremur stigum á efsta liðinu og
því sjötta.
Leikurinn fór fram í blíðskap-
arveðri í Laugardalnum í gær-
kvöld og voru aðstæður til að
leika góða knattspyrnu hinar
bestu. Leikurinn var engu að
síður heldur tíðindalítill og
markalaust jafntefli ekki ósann-
gjörn úrslit. Það var ekki fyrr en
undir lok leiksins að Framarar
pressuðu stíft að marki FH en
það dugði ekki til og Gaflarar
sluppu með eitt stig sem hlýtur að
vera viðunandi.
Sem fyrr héldu Framarar
knettinum mun meira, en þeir
komust lítið áleiðis gegn sterkri
vörn FH-inga. Sóknir Framara
voru of bitlausar og því sköp-
uðust fá marktækifæri. FH-ingar
komu oft vel inní leikinn, sérstak-
lega þegar Framarar misstu
knöttinn fyrir fætur þeirra á miðj-
um vellinum. Skapaðist þá oft
hætta við mark Framara en Birkir
Kristinsson var vel á verði, rétt
einsog kollegi hans Halldór Hall-
dórsson í hinu markinu.
í síðari hálfleik léku Framarar
öllu markvissari sóknarknatt-
spyrnu, án þess þó að skapa sér
mörg marktækifæri. Sókn þeirra
þyngdist undir lok leiksins og
munaði minnstu að Pétrarnir
Arnþórsson og Ormslev næðu að
skora skömmu áður en Gísli
Guðmundsson flautaði til Ieiks-
loka.
Lið Fram og FH eru enn hníf-
jöfn í efsta sæti deildarinnar.
Leikir liðanna hafa oft verið
miklir markaleikir og er þetta í
fyrsta skipti sem þau skilja jöfn í
markalausum leik í 1. deild. FH-
2. deild Úrslit
UBK-Völsungur 1-0
Víðir-Tindastóll 1-0
Leiftur-(BV 0-2
Selfoss-Stjarnan 1-3
Tindastóll-UBK 3-3
Völsungur-Einherji 3-2
ÍR-Víðir 1-2
Staðan
Víðir 13 9 2 2 19-11 29
Stjarnan 12 9 1 2 28-12 28
(BV 11 8 0 3 28-16 24
UBK 13 5 4 4 28-22 19
Selfoss 12 6 0 6 14-21 18
Leiftur.... 12 3 4 5 10-13 13
(R 12 3 3 6 14-18 12
Völsungur
13 3 2 8 15-24 11
Einherji 11 3 2 6 17-29 11
Tindastóll 13 2 2 9 19-23 8
1. deild kvenna
ÍA-Valur 0-0
UBK-Stjarnan 1-0
ingar hljóta að vera nokkuð
ánægðir með þessi úrslit gegn ís-
landsmeisturunum á heimavelli
þeirra. Framarar þurfa enn að
bæta sig eigi þeir að ná að halda
titlinum. Leikur þeirra gegn Val
á fimmtudag verður væntanlega
einn af úrslitaleikjum mótsins.
Víkingur-Valur...........2-1
Víkingar komu nokkuð á óvart
með sigri sínum á Val en þeim
fyrrnefndu hefur ekki gengið sér-
lega vel í innbyrðis viðureignum
liðanna að undanförnu. Fyrir vik-
ið stíga Víkingar upp úr mestu
fallbaráttunni en Valur verður að
gera sér 4. sætið í deildinni að
góðu.
Leikurinn fór fram í hinum
umdeilda Fossvogsdal á sunnu-
dagskvöld og var sigur Víkinga í
fullu samræmi við gang leiksins.
Valsmenn byrjuðu þó ágætlega
ÍR-ingar endurheimtu bika-
rmeistaratitilinn í frjálsum
íþróttum um helgina. Eftir að ÍR
hafði unnið keppnina 16 ár í röð
vann FH titilinn í fyrra en nú
tókst IR-ingum að endurheimta
titilinn.
Rétt eins og í fyrra stóð keppn-
in á milli ÍR, FH og og HSK.
FH-ingar höfðu forystu eftir fyrri
daginn en ÍR-ingar náðu foryst-
unni þegar fjórar greinar voru
eftir af keppninni. Keppt var í 32
greinum í bikarkeppninni og
voru það ÍR-stúlkur sem öðrum
en um miðjan fyrri hálfleik varð
þeim á að skora í eigið mark.
Skömmu fyrir leikhlé jafnaði Sig-
urjón Kristjánsson fyrir Val með
marki af stuttu færi.
í síðari hálfleik náðu Víkingar
undirtökum á vellinum og réð þar
mestu að Guðmundur Baldurs-
son, Valsmaður, fékk rautt
spjald og var rekinn af velli. Júg-
óslavinn Goran Micic skoraði svo
sigurmarkið með glæsilegu
þrumuskoti fyrir utan vítateig og
eftir það átti Valur aldrei mögu-
leika á að jafna.
Víkingar virðast ætla að bjarga
sér úr fallhættunni sem liðið hef-
ur verið í allt mótið. Valsmenn
verða hinsvegar að fara að taka
sig á ef þeir ætla að halda sér í
toppbaráttunni. Liðið hefur nú
tapað tveimur leikjum í röð og
hlotið aðeins fimm stig úr síðustu
sex leikjum sínum. Næst leika
fremur tryggðu liðinu sigurinn í
keppninni. Þær hlutu 74,5 stig en
HSK 64,5 og FH 62. í karlagrein-
um hlutu FH-ingar hinsvegar
flest stig, 87, ÍR-ingar komu
næstir með 79 stig og HSK 78,5
stig. Lokastaðan í bikarkeppn-
inni var því þannig:
(R .....................153,5
FH......................149,0
HSK.....................143,0
UMSK....................108,0
USAH.....................86,5
ÚÍA......................56,0
-þóm
Frjálsar
ÍR meistari á ný
Valsmenn gegn Fram og þann
leik verða þeir nánast að vinna.
KR-KA....................0-0
Markalaust en ekki tíðinda-
laust í þessum toppslag í Vestur-
bænum á laugardag. Jafntefli
voru nokkuð sanngjörn úrslit en
bæði lið fengu ágæt færi á að
skora.
Leikurinn einkenndist af meiri
baráttu en nettu spili enda mikið í
húfi fyrir bæði lið. Besta mark-
tækifæri leiksins fékk KA þegar
vítaspyrna var dæmd á Þorfinn
Hjaltason markvörð KR. Þor-
valdur Örlygsson skoraði úr vít-
inu en varð að skjóta á ný vegna
þess að einn samherja hans stóð
innan vítateigs og þá varði Þor-
finnur. Fleiri marktækifæri litu
dagsins ljós en samspil leikmanna
var þó ekki upp á marga fiska.
Það eina sem gladdi augað var
leikur Rúnars Kristinssonar sem
orðinn er einn albesti leikmaður
deildarinnar.
ÍA-Fylkir................1-0
Fylkir situr nú eitt og yfirgefið
á botni deildarinnar eftir ósigur
uppá Skaga á laugardag en
Skagamenn halda sér við topp-
inn. Eins og svo oft í sumar voru
Fylkismenn nokkuð óheppnir að
tapa þessum leik en þeir fengu
ekki síður tækifæri á að skora eins
og heimamenn.
Eina mark leiksins skoraði
Haraldur Ingólfsson þegar um
hálftími var liðinn af leiknum.
Annars mun leikurinn hafa verið
fremur slakur og lítið um góðan
samleik í hvassviðri á Skaganum.
Þór-ÍBK...................2-2
Þórsarar voru heppnir að ná
einu stigi úr þessari viðureign
botnliðanna á föstudagskvöld.
Leikurinn var ekki sérlega góður
en mjög þýðingarmikill fyrir bæði
lið sem eiga í harðri fallbaráttu.
Júlíus Tryggvason skoraði fyrst
rir Þór úr vítaspyrnu eftir að
rna Þór Ámasyni hafði verið
bmgðið innan vítateigs. Ingvar
Guðmundsson jafnaði fyrir Kefl-
avík í upphafi síðari hálfleiks og
Freyr Sverrisson náði síðan for-
ystunni um miðjan hálfleikinn.
Árni Þór Árnason jafnaði
skömmu síðar og þar við sat.
3. deild
Tekið að skýrast
Línur er aðeins teknar að
skýrast í hinni erfiðu 3. dcildar-
keppni þarsem meiri hluti lið-
anna fellur í 4. deild.
1 A-riðli eru það Grindavík,
ÍK, Þróttur og BÍ sem eru lík-
Jegust til að hanga uppi en eitt
þeirra mun þó flytjast upp í 2.
deild. Grótta og Víkverji eiga
enn möguleika á að halda sæti
sínu en önnur lið falla líklega í 4.
deild.
í B-riðli er KS nær öruggt með
2. deildarsæti. ÞrótturN., Dalvík
og Huginn eiga mesta möguleika
á að halda sér uppi en Reynir og
Magni gætu blandað sér í þá bar-
áttu á kostnað Hugans.
A-riðill
Þróttur-Afturelding..............6-1
Grindavík-Reynir.................6-1
ÍK-Víkverji .....................3-0
Leiknir-Grótta...................2-2
Hveragerði-BÍ ...................3-1
Staðan
Grindavík ... .. 14 9 2 3 37-16 29
ÍK 9 2 3 30-12 29
Þróttur R .. 14 8 2 4 34-17 26
B! 8 1 5 28-17 25
Grótta .. 14 6 4 4 21-20 22
Víkverji .. 14 7 1 6 27-30 22
Leiknir .. 14 5 2 7 20-27 17
Hveragerði . .. 14 3 3 8 22-29 12
Reynir S ... 14 3 0 11 16-40 9
Afturelding .. ... 14 2 1 11 17-47 7
Tennis
Nýr meistari
Einar Sigurgeirsson stjarna íslandsmótsins
Einar Sigurgeirsson vann bestu
afrekin á Islandsmótinu í tennis
sem haldið var í sjötta sinn um
helgina. Einar er uppalinn í Ást-
ralíu en býr nú í Bandaríkjunum
og leikur þar tennis af fullum
krafti.
Einar sigraði í einliða- og tví-
liðaleik karla og í tvenndar-
keppni. Hann sigraði Christian
Staub í einliðaleik, 6-2 og 6-1. í
tvíliðaleik vann hann ásamt Ólafi
Sveinssyni þá Christian Staub og
Kristján Baldursson, 6-2 og 6-0.
Einar og Dröfn Guðmundsdóttir
sigruðu mæðginin Margréti Sva-
varsdóttur og Atla Þorbjörnsson
í tvenndarleik, 6-4, 4-6 og 6-1.
Margrét sigraði í einliðaleik
kvenna í fimmta sinn. Hún lék
gegn Dröfn í úrslitaleik og vann
örugglega, 6-3 og 6-0. Margrét
sigraði einnig í tvíliðaleik, en þá
vann hún ásamt Elísabetu Jó-
hannsdóttur þær Guðnýju Eiríks-
dóttur og Steinunni Garðarsdótt-
ur, 6-7, 7-6 og 6-3.
-þóm
Staðan
FH 13 6 5 2 17-11 23
Fram 13 7 2 4 17-11 23
KA 13 5 6 2 18-12 21
Valur .... 13 6 3 4 15-9 21
KR .... 13 5 5 3 19-16 20
Ia .... 13 6 2 5 14-15 20
Víkingur.... .... 13 3 5 5 19-18 14
Þór ....13 2 6 5 14-20 12
(BK .... 13 2 5 6 14-21 11
Fylkir .... 13 3 1 9 11-25 10
Markahæstir
Kjartan Einarsson, ÍBK........8
Guðmundur Steinsson, Fram .."...."7
HörðurMagnússon, FH.......... 7
Pétur Pótursson, KR....!'”.”.'6
Andri Marteinsson, Víkingi........5
Anthony Karl Gregory..............5
Björn Rafnsson, KR............,...5
-þóm
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN