Þjóðviljinn - 18.08.1989, Page 3
Hátekjumaður
á atvinnu-
leysisbótum
Þaö er ótrúlegt hversu lágt
menn geta lagst í peninga-
græðgi sinni. Maður nokkur,
sem hefur stundað „bisniss"
af ýmsu tagi í nokkum tíma
hefur nú komist í feitt. Hann
kaupir laxa af laxeldisstöðv-
um og selur til veitingahúsa
og mun hafa af því allveru-
legar tekjur, skattlausar að
sjálfsögðu. En til að komast
hjá því að greiða skatta af
himinháum „launum" sínum
þá skráir hann sig atvinnu-
lausan og þiggur atvinnuleys-
isbæturaf ríkinu. Þessi maður
blótar svo að sjálfsögðu hvers
konar afskiptum hins opin-
bera og krefst þess að ríkið
dragi úr útgjöldum sínum!
Makalausir þessir frjáls-
hyggjumenn.B
Óviðkomandi
bannaður
aðgangur
(sfirðingar eru stoltir af því
hvernig til tókst með fund
utanríkisráðherra Norður-
landa sem haldinn var vestra
Heimatilbúnar myndavélar
í sumarbúðum skáta að Úl-
fljótsvatni hefur krökkunum ver-
ið kennt að búa til eigin kassam-
yndavélar og hafa börnin tekið
myndir af ýmsum hlutum og af
náttúrunni á þessar vélar. Mynd-
avélar þessar nefnast á ensku
„Pin-Hole Camera“ og er þessi
tegund ljósmyndunar frum-
kvöðull ljósmyndagerðar.
Árangurinn af þessari kennslu
þykir það góður að full ástæða
þótti að koma þessari listsköpun
barnanna á framfæri og verða því
settar upp sýningar á verkunum.
Fyrsta sýningin verður í Þrastar-
lundi og hefst hún á sunndag 20.
ágúst kl. 14.00. Þar verða einnig
sýndar þessar heimatilbúnu
myndavélar og kynnt hvemig þær
eru búnar til.
Sýningin í Þrastarlundi er sölu-
sýning og verður ágóðanum varið
Ljósmynd tekin á heimatilbúna
myndavól.
til uppbyggingar í þeim skála á
Úlfljótsvatni sem reistur hefur
verið m.a. með þarfir fatlaðra í
huga.
Kókaín við
nefangri
Áttræð bresk kona hefur neytt
kókaíns í hálfan annan sjötta ára-
tug að læknisráði. Konan sem er
vel em eftir aldri hefur á þessum
tíma neytt fimm og hálfs kíló-
gramms af eitrinu, en gróft áætl-
að má gera ráð fyrir að söluverð-
mæti þessa magns af kókaíni
nemi í dag á svörtum markaði
sem svarar um 28 miljónum og
650 þúsund krónum. Frá þessu
segir í virðulegu bresku tímariti
um ávana- og fíkniefnamál.
Upphaflega vandist konan á
fíknina er henni var ráðlagt að
læknisráði að taka inn kókaín við
þrálátu nefangri. Samkvæmt
upplýsingum breskra lækna var
ekki ótítt að læknar vísuðu á
árum áður á kókaín við ýmsum
kvillum.
Eins og flestum býður sjálfsagt
í grun hefur neysla kostað kon-
una sitt og ekki alltaf verið jafn
auðvelt að verða sér úti um þenn-
an óvenjulega „nefelexír“. Sam-
kvæmt heimildum hefur konan
ágæt viðskiptasambönd í Frakk-
landi þar sem auðveldara hefur
verið að nálgast kókaín en í Bret-
landi. Konunni er þó sú huggun
harmi gegn að undanfarna tvo
áratugi hefur breska heilbrigði-
skerfið greitt lyfjakostnaðinn.
Rétt er að benda lesendum á að
þótt konunni hafi ekki orðið sýni-
lega meint af kókaínnotkuninni,
eru lyffróðir menn þó sammála
um að hér sé um einstakt tilfelli
að ræða og því ekki eftirbreytni-
vert fyrir aðra. Reuter/-rk
nú í vikunni. Allt gekk sam-
kvæmt áætlun og ráðherrarn-
ir voru feikilega ánægðir með
hákarlinn, brennivínið, skakið
og allt hitt. Eins og vera ber
þegar stórmenni heimsins
koma saman þarf að gera víð-
tækar öryggisráðstafanir svo
vondir menn nái ekki að vinna
Kim mein. Þetta hlutverk tók
ifjarðarlögreglan mjög al-
varlega eins og nokkrir fyrir-
menn bæjarins fengu að
kenna á. Þannig var að þegar
von var á ráðherrunum til
fundar í Stjórnsýsluhúsinu
nýja og glæsilega stilltu for-
seti bæjarstjórnar, bæjarstjóri
og aðrir leiðtogar bæjarlífsins
sér upp á tröppum hússins til
að bjóða ráðherrana vel-
komna. Þá dreif þar að lög-
reglumenn sem byrjuðu að
stugga þeim í burtu, það væri
von á erlendum stórmennum
og innfæddir áttu ekkert með
það að þvælast fyrir. Eftir
nokkra rekistefnu tókst að
leiðrótta þennan misskilning
og forráðamenn bæjarins
fengu að hrista lúkurnará ráð-
herrunum á tröppum
Stjórnsýsluhússins.B
Stuttbuxna-
deildin rífst
Mikill titringur hefur verið í
stuttbuxnadeild Sjálfstæðis-
flokksins vegna þings sem
þeir stuttu ætla að halda um
helgina. Nýr formaður verður
væntanlega kosinn og fram-
bjóðandinn er Davíð Stef-
ánsson stjómmálafræði-
nemi. Hins vegar eru Davíð
og hans menn, Árnl Sigfús-
son og fleiri hræddir um að
armur innan stuttbuxna-
deildarinnar sem inniheldur
Slgurbjörn Magnússon,
Hrein Loftsson og Jóhann
Gunnar Birgisson, ætli að
koma með óvænt mótfram-
boð. Sá armur er nefnilega
ekki mjög ánægður með þann
lista sem lagður var fram með
þeim nöfnum sem átti að fara
á hið fyrirhugaða þing. Enginn
þeirra átti að fá að fara og því
varð allt vitlaust. Sáttafundur
var haldinn í fyrradag og reynt
að stilla til friðar. Niðurstaðan
mun hafa orðið sú að ein-
hverjir þeirra sem áttu að fá
að fara á þingið voru teknir út,
og Sigurbjörn og hans menn
settir inn. Þeir eru greinilega
ekki sáttir þeir stuttu. ■
fjOibrautasxóldoi
BREIOHOm
Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
Innritun og val námsáfanga í Kvöldskóla
Fjölbrautaskólans í Breiðholti
á haustönn 1989
fer fram laugardaginn 26. ágúst kl. 10.00-
14.00,
mánudaginn 28. ágúst kl. 16.00-19.30 og
þriðjudaginn 29. ágúst kl. 16.00-19.30.
Athygli skal vakin á því að boðið er upp á nám á
öllum sviðum skólans:
1. Almennt bóknámssvið
2. Heilbrigðissvið
3. Hússtjórnarsvið
4. Listasvið
5. Tæknisvið
6. Uppeldissvið
7. Viðskiptasvið.
Sími skólans er 75600.
Skólameistari
Foreldrarekið
dagheimili
Viljum ráða fóstrur eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk, svo og aðstoðarfólkog mat-
ráðskonu á nýtt 40 barna dagheimili/ skóladag-
heimili staðsett í Litla-Skerjafirði. Aldur barna
1-9 ára.
Upplýsingar í síma 39554 (Steinunn), 29713
(María) og 687186 (Áslaug).
Vistunarheimili -
Öskjuhlíðarskóli
Vistunarheimili óskast fyrir væntanlega nem-
endur öskjuhlíðarskóla skólaárið 1989-90.
Nánari upplýsingar um greiðslu og fyrirkomulag
gefur félagsráðgjafi skólans í síma 689740 fyrir
hádegi.
VERÐ FRA KR. 317.000
Lada Safir er fallegur og vandaður 5 manna fjölskyldu-
bíll, öruggur, sterkur og eyðslugrannur. Lada Safir
hefur reynst afar vel við erfið akstursskilyrði og er
því sérstaklega heppilegur fyrir íslenskar aöstæður.
íslendingar gera miklar kröfur, þaö sést vel á
vinsældum Lada Safir. .
Nú er rétti tíminn til að endur-
nýja. Tökum gamia bíiinn upp í
nýjan og semjum um eftir-
stöðvarnar.