Þjóðviljinn - 18.08.1989, Side 9

Þjóðviljinn - 18.08.1989, Side 9
Heimilisfólkið í Vigur með ráðherrunum þremur. Fr.v. Jón Baldvin, Paasio, Ellemann Jensen, Salvar Baldursson og eiginkona hans Hug- rún Magnúsdóttir en þau eru nú ábúendur í Vigur, Bjarni Baldurson bróðir Salvars og eldri ábúendur Sigríður Salvarsdóttir og Baldur Bjarnason. Myndir VG Finnska utanríkisráðherranum Paasio hjálpað um borð í Fagranesið. Uffe Ellemann og Jón Baldvin ræðast við fyrir framan mylluna í Vigur. Á milli þeirra er danska blaðakonan Susane Hegelund. Utanríkisráðheirar heimsækja Vigur Utanríkisráðherrar, Norður- landanna þinguðu á ísafirði fyrr í vikunni. Mörg mál voru á dagskrá en þrátt fyrir það brugðu ráðherr- arnir undir sig betri fætinum og skruppu á skak á miðviku- dagsmorgun. Gæftaleysi var á skakinu og veður ill. Eftir hádegi brugðu svo ráð- herrarnir sér með fylgdarliði til Vigur. Tveir ráðherranna voru þó ekki með í för. Stoltenberg hafði farið aftur til Noregs fyrr um morguninn með golþorsk í farteskinu þrátt fyrir að hann hefði ekki brugðið sér á skak með kollegum sfnum, enda þorskur- inn keyptur í fiskbúð á ísafirði. Sten Anderson sá sér heldur ekki fært að skreppa út í Vigur. Þegar lagt var af stað með Fagranesinu út í Vigur hafði veður batnað örlítið frá þvf um morguninn, þó var enn dumb- ungur og ilít í sjó þegar siglt var fyrir Arnarnesið. Flestir báru sig þó vel enda góðar veitingar um borð. Baldur Bjarnason, bóndi í Vig- ur leiddi ráðherrana um eyjuna og fræddi þá um sögu byggðar í Vigur, æðarvarpið og önnur hlunnindi. Sýndi hann gestunum m.a. hvemig dúnn er hreinsaður. Síðan var öllum gestum boðið til stofu og þar þáðu þeir höfðing- legar veitingar. Borð voru hlaðin kökum og kaffibrauði og tóku gestir hressilega til matar síns. Greinilegt var að gestir og heima- menn höfðu gaman af þessari heimsókn. -Sáf í Vigur skoðuðu ráðherrarnir m.a. árabátinn Vigur-Breið, sem er yfir 200 ára gamall og enn í notkun. Frá blaðamannafundi í fundarherbergi bæjarstjórnar ísafjarðar í stjórnsýsluhúsinu. I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.