Þjóðviljinn - 18.08.1989, Blaðsíða 17
Jacek Godek: Menn hafa sett á oddinn frelsiö eða jafnréttið. (Ljósm. Kristinn).
á hvaða framleiðslu menn geta
helst veðjað. Sumir eru að hugga
sig við að hægt sé að slá verkefni
út á það að pólskt vinnuafl sé
ódýara en vesturevrópskt, en ég
veit ekki hvort það dæmi gengur
upp.
Menningin
- Nokkuð sérstakt að frétta af
menningarlífinu?
- Það er nú eins og ég var að
minnast á áðan: lífið æðir svo
hratt áfram að menn eiga erfitt
með að höndla það fyrir bók-
menntir og leikhús. Þú ert nokkr-
ar sekúndur að skrifa eitt orð,
þeim mun lengur að skrifa þær
þúsundir orða sem geta orðið að
bók - og á meðan þú ert að því
hefur lífið fært sig á annan punkt
og hlær að því sem þú varst að
skrifa og segir það úrelt.
Um tíma var erfitt að skrifa það
sem menn vildu, nú geta menn
skrifað um flesta hluti, en þá er
eins og vanti í þá púðrið. Mér
finnst enginn þeirra sem vinna
heima í Póllandi kunni að skrifa
góð leikrit nema einn maður -
Rózewicz.
Wajda er kominn heim?
Já Wajda er kominn heim og
orðinn öldungardeildarþingmað-
urog leikhússtjórií Varsjá. Hann
er núna að gera heimildarmynd
um mál pólsku liðsforingjanna
sem sovéska leynilögreglan skaut
í Katyn.
Að skapa
fordæmi
- Þegar menn eru að velta fyrir
sér Póllandi hér um slóðir, gerast
sumir svo svartsýnir að halda að
vandamálin séu svo yfirþyrmandi
að ekki verði við þau ráðið og
landið muni sökkva í einhvern
óskapnað.
Ég veit áð allra veðra getur ver-
ið von, en ég er ekki svo svart-
sýnn. Eins og allir vita bar
franska byltingin fram vígorðin
þrjú sem menn hafa mjög horft
til: Frelsi, Jafnrétti og Bræðralag.
Pólverjar hafa núna tilhneigingu
til að líta svo á málin, að menn
hafi verið að reyna að byggja upp
þjóðfélög annaðhvort á frelsi eða
jöfnuði. Hjá okkur hefur jöfnuði
verið haldið á lofti - og honum
veifað sem réttlætingu á því að
frelsið var skert. Svo getum við
virt fyrir okkur þá reynslu, að þar
sem frelsi er sett á oddinn, þar er
jöfnuði, jafnrétti kippt af dag-
skrá. Samstöðumenn eru hver
öðrum ólíkir eins og ég sagði
áðan, en þeir telja sig eiga í
Bræðralaginu sameiginlegan sið-
ferðilegan grundvöll. Þeir vilja
gjarna gera tilraun með að byggja
upp samfélag sem reist er á
bræðralagi, það sé eina vonin til
að ekki slitni allt í sundur. Ef það
tekst þá verður Pólland kannski
það land sem getur vísað öðrum
leiðina inn í 21stu öldina...
- Veistu það, sagði blaðamað-
ur, þegar þú segir þetta get ég
ekki annað en hugsað til þeirra
ágætu og rómantísku pólsku
skálda og hugsuða á nítjándu öld,
sem ætluðu langþjáðu Póllandi
sérstakt frelsunarhlutverk í Evr-
ópu.
Jacek Godek brosti við.
Það er ekki nema von. Þetta
var víst mjög pólskt hjá mér...
Föstudagur 18. ágúst 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17