Þjóðviljinn - 18.08.1989, Síða 25

Þjóðviljinn - 18.08.1989, Síða 25
KVIKMYNDIR ÞORFINNUR ÓMARSSON Emil Janningsí hlutverki sínu í Síðasta þjóni F. W. Murnaus. Kvikmyndaklúbbur íslands hefur hafið göngu sína á ný eftir hafa legið í dvala í sumar. Klúbburinn tók til starfa sl. vet- ur og er markmiðið að halda starfseminni áfram um ó- komna tíð. Sannarlega kær- kominn klúbbur og nauðsyn- legur fyrir alla kvikmyndaá- hugamenn. Klúbburinn hefur ákveðið að skipta vetrinum í tvö tímabil, fyrir og eftir ára- mót, og eru klúbbskírteini seld hvort í sínu lagi á eitt þúsund krónur. Að auki kostar tvö hönnuður og hefur starfað sem nokkuð sem slíkur uppá síðkast- ið. Hann hannaði ma. nýverið tónleikasvið popparanna í Pet Shop Boys þegar þeir liéldu sinn fyrsta konsert og var ekki um neina. venjulega tónleika að ræða. Myndin sem sýnd var í gær og verður endursýnd á laugardag heitir Caravaggio og segir frá samnefndum listmálara sem var uppi á endurreisnartímanum á ít- alíu. Jarman gerði þessa kvik- mynd árið 1985 og olli hún nokk- urri hneykslan líkt og fleiri kvik- myndir hans. Michaelangelo gera þad. Sem málari hefur Jarm- an góðan bakgrunn til að gera þetta verk skáldlegrar sýnar, galdra og myrkviðs sem magnað- ast. Hann vildi einnig gera verkið öllum opið og auðskilið. Aðrir sem spreytt sig á Ofviðrinu eru ftalinn Alberto Lattuata (1958) og Bandaríkjamaðurinn Paul Mazurski (1982). Um næstu mánaðamót verður sýnd mjög merkileg kvikmynd í Ieikstjórn Godfrey Reggio sem gerð var árið 1983 og kallast Koy- aanisqatsi. Orðið er komið úr tungumáli Hopi-indíána og er myndin ádeila á líf nútímamanns- Gerum góoan klúbb hundruð krónur inná hverja sýningu. Á efnisskrá fyrra misseris kennir ýmissa grasa en aðstand- endur klúbbsins hafa tekið þá ágætu ákvörðun að bjóða uppá fleiri en eitt verk hvers leikstjóra. Það verður því hægt að kynnast nokkrum af merkari kvikmynd- agerðarmönnum aldarinnar nokkuð vel en í þeim hópi eru Þjóðverjarnir Fritz Lang og Wil- helm Murnau, Japanarnir Kenjo Mizoguchi og Yasujiro Ozu og breski óháði leikstjórinn Derek Jarman. Að auki verður boðið uppá verk eftir Godfrey Reggio, Jacques Tourneur, Pier Paulo Pasolini, Volker Schlöndorff og Dennis Hopper. En lítum þá á efnisskrána einsog hún verður fyrir áramót. Sýningar verða öllu jöfnu á fimmtudögum kl. 21 og 23, en kl. 15 á laugardögum. Hver mynd verður því sýnd þrívegis og því ekki mikið ráðrúm til að velja sér sýningartíma. Fyrstu sýningar klúbbsins voru reyndar í gær, en þá var sýnd fyrsta mynd af þrem- ur eftir Bretann Derek Jarman. Hann hefur verið nokkurs konar utangarðsleikstjóri í Bretlandi um nokkurt skeið og myndir hans jafnvel hvorki sýndar í al- mennum kvikmyndahúsum né sjónvarpi. Jarman byrjaði feril sinn sem málari og leikmynda- (Björninn) Annaud kemur vissulega nokkuð á óvart með þessum óð sínum til náttúrunnar en það verður ekki af honum tekið að myndin er listavel gerð. Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, sórstaklega þá sem unna óspilltu náttúrulífi. Aðalleikararnir fara á kostum. The Name of the Rose (Nafn rósarinnar) Þrátt fyrir magnaðar senur og frábæran leik hefði myndin getað orðið enn betri. Hún líður út í ósköþ venjulega Skerjaláks- stælingu og endar á rangan veg. Quest for Fire ★★★ (Leitin að eldinum) Annaud á heiður skilinn fyrir þessa söguskoðun sfna á frummanninum. Ekki endilega allt satt og rétt en mjög skemmti- legUm sjónarmiðum velt fram. A Cry in the Dark ★★★★ (Móðir fyrir rétti) Mynd um fórnarlömb náttúrunnar og jafnvel enn frekar fórnarlömb mannlegs samfólags þegar það tekur á sig hina grimmustu mynd. Schepisi splæsir saman náttúrunni gegn almenningi og fjölmiðlum þannig aö úr verður einhver áhrífamesta kvikmynd sinnar tegundar f langan tfma Mynd sem allir hafa gott af að sjá. Konur á barmi taugaáfalls ★★★ Frfskur, fyndinn og skemmtilegur farsi frá Spáni. Kvikmyndataka og leikur skapa skemmtilega taugaveiklað andrúmsloft og undirstrika þannig titil myndarinnar. Kon- Merusu da Caravaggio, er talinn frumkvöðull myndlistarstefn- unnar Chiarooscuro, sem byggir á tilfinningaþrunginni notkun ljóss og skugga. Þessi stefna hef- ur ma. haft mikil áhrif á kvik- myndagerð og þá vitanlega Der- ek Jarman. I myndinni liggur Caravaggio fyrir dauðanum árið 1610 og rifjar upp ástríðuþrungið líf sitt. Það verður að segjast að myndin er einkar áhrifamikil og gefur raunsæja og oft sjokker- andi mynd af lífinu. í næstu viku verður svo sýnd kvikmyndin Jubilee, eða Loka- hátíðin, sem Jarman gerði árið 1977. Hún vakti enn meiri hneykslun en Caravaggio, enda fjallar hún um hnignun breska heimsveldisins á nýstárlegan hátt. Elísabet I. Englandsdrottn- ing ferðast í myndinni í tíma og rúmi undir leiðsögn galdramanns hirðarinnar. Jubilee er fuðuleg forspá um breskt þjóðlíf á níunda áratugnum þarsem ofbeldi og eyðilegging ríkir. Jarman fékk til liðs við sig breska nýbylgjutón- listarmenn, ss. Brian Eno og Adam and the Ants, en Adam og söngkonan Toyah leika einnig í myndinni. Þriðja og síðasta mynd Jar- mans sem sýnd verður í Kvik- myndaklúbbnum er útfærsla hans af Ofviðri Shakespeares. Hann varð snemma heltekinn af þessu leikriti og eyddi tíu árum í mynd- urnar ættu bæði að höfða til þeirra sem leita eftir einfaldri afþreyingu og hinna sem langar að sjá vel heppnaða kvikmynda- gero. Dlrty Rotten Scoundrels ★★ (Svikahrappar) Oft smellin og fyndin mynd um tvo forh- erta svikahrappa og samskipti þeirra við kvenkynið. Dulítið gamaldags húmor sem byggir talsvert á brokkgengri frammistöðu aðalleikaranna. Hverjum öðrum en Steve Martin myndi leyfast að ofleika svona Ifka rosalega án þess að það komi að sök, en Mihcael Caine er sem fyrr bara í vinnunni. Manifesto ★★★ (Samsærlð) Skemmtileg mynd frá Júgóslavanum Makavejev og góð tilbreyting frá þeirri hol- skeflu sem gengur um kvikmyndahúsin um þessar mundir. Staður og stund er rótt eftir fall austurrísk-ungverska keisaradæmis- ins og segir myndin frá tilræði f skjóli létt- leika almúgans. Sem fyrr blómstrar erót- (kin hjá Makavejev, jafnvel í formi sadó- masókisma. Babette's gæstebud ★★★★ (Gestaboð Babettu) Þessi gómsæta mynd Gabriels Aksels er uppgjör bókstafstrúarmanna við freistinguna og syndina. Stórgóð persónu- sköpun og veislan i lokin er ógleymanleg. Caravaggio ★★★ Derek Jarman er engum likur og sjokk- erar flest venjulegt fólk. Myndin hefur að geyma glæsilega notkun myndmáls og of- beldis en menn þurfa að hafa sig alla við til að missa ekki úr þráðinn. Laugarásbíó The ‘Burbs ★★ (Geggjaðir grannar) Ekkert sérstök mynd í neinu tilliti en leikaramir bjarga henni fyrir horn. Tom ins og lýsir hve mjög hann hefur fjarlægst uppruna sinn. Myndin er eins konar heimildamynd þar- sem engir leikarar, ekkert tal og engin eiginleg leikstjórn á sér stað. Ofanritaður sá þessa mögnuðu kvikmynd eigi fyrir margt löngu og er ætlunin að fjalla ítarlegar um hana skömmu áður en hún verður sýnd. Sama verður að mestu sagt um afganginn af myndum Kvik- myndaklúbbsins, ítarlegri um- fjöllun verður að bíða betri tíma. Það er þó sjálfsagt að gefa nokkra innsýn í hvaða myndir verða á boðstólnum, en 6.-12. september verður farandsýning á vegum al- þjóðasamtaka kvikmyndasafna. Kvikmyndaklúbburinn tekur sér frí á meðan og svo verður einnig þegar Kvikmyndahátíð Listahát- íðar verður haldin 7.-17. októ- ber. Um miðjan september hefjast sýningar á klassískum verkum þýska expressionistans Fritz Lang. Fyrst er sýnd Der mude Tod sem hann gerði árið 1921, þá Dr. Mabuse (1922), Metropolis (1927) og loks You Only Live Once (1937). Fyrstu þrjár mynd- irnar gerði Lang á fyrra Þýskalands-tímabili stnu og er Metropolis sennilega þekktust þeirra, sérstaklega vegna endur- útgáfu myndarinnar árið 1984. You Only Live Once er hinsvegar gerð í Bandarikjunum, en Lang Hanks slær ekki feilpúst frekar en fyrri dag- inn í þessari athugun hans og fleiri á væg- ast sagt ófrýnilegum nágrönnum. Torch Song Trilogy ★★★ (Arnold) Snjöll og einlæg mynd sem segir frá heimi hómósexúals fólks. Vel skrifuð og leikin og tekst að slá bæði á lótta og hríf- andi strengi án þess að falla í gryfju væmninnar. Sagan af hommanum Arnold er eitt vitsmunalegasta og besta sem bíóin bjóöa upp á um þessar mundir. Fletch Lives ★★ (Fletch lifir) Mynd fyrir aðdáendur Chevy Chase en þeim sem ekki líkar kappinn ættu að sitja heima. Fletch er á köflum mjög fyndin en sum atriðin eru gjörsamlega mislukkuð. Fyrri myndin var betri. Bfóhttllin Llcence to Kill ★★★ (Leyflð afturkallað) Ein besta Bond-myndin i langan tíma. Dalton er 007 holdi klæddur og spannar allt frá hörkutóli í sjentilmann. Broccoli hefur hrist, en ekki hrært, upp i Bond-ímyndinni með góðum árangri. The Gods Must Be Crazy II ★ (Guðlrnir hljóta að vera geggjaðir 2) Agæti fyrri myndarinnar var einkum snjallri og frumlegri hugmynd að þakka. Því er ekki fyrir aö fara hér heldur er, einsog alltof oft, reynt að notfæra sér vinsældir fyrri myndarinnar til að gera aðra eins. Á sór sínar góðu hliðar en þær hverfa fyrir hinum verri. Her Alibi ★★ (Með allt í lagl) Hreint ágætis skemmtun þarsem klaufinn Tom Selleck líkir eftir Cary Grant hér á árum áður. Vel er fléttað á milli hinnar dvaldist þar í rúma tvo áratugi eftir að hann hraktist burt frá Þýskalandi á tímum Þriðja ríkis- ins. Um miðjan október sjáum við síðan tvær myndir eftir annan ekki ómerkari Þjóðverja, Frie- drich Wilhelm Mumau. Sýndar verða Nosferatu (1922) og Der letzte Mann (1924) en fyrri myndina endurgerði Werner Herzog árið 1979. Báðar þessar myndir eru meðal bestu kvik- mynda Murnaus en hann lést í bflslysi árið 1931, þá 42ja ára gamall. Þegar þessir tveir Þjóðverjar hafa lokið sér af verða sýndar japanskar kvikmyndir eftir Kenjo Mizoguchi og Yasujiro Ozu. Báðir eru þeir á meðal á- hrifamestu kvikmyndagerðar- manna, sögunnar en hafa hér á Vesturlöndum staðið nokkuð í skugga landa síns, Akira Kuros- awa. Myndirnar sem við sjáum heita Saikaku Khidai Onna (Líf O'Haru, 1952) og Sancho Dayo (Sancho ráðsmaður, 1954) eftir Mizoguchi og Soshun (Snemma vors, 1956) eftir Ozu. Eftir þetta taka við stakar sýn- ingar í minna samhengi hver við aðra. f lok nóvember verður Cat People í leikstjórn Jacques To- urneur á dagskrá. Hún var endur- gerð í leikstjórn Paul Schrader árið 1982 en fyrri myndin þykir mörgum klössum betri. Þess má raunverulegu sögu og skáldskaps rithöf- undarins en atriðin með Rúmenum og þar með talið lokaatriðið heldur hugmyndasn- auð. Police Academy 6 0 (Lögregluskólinn 6) Hvernig er hægt að ætlast til þess að fólk hlægi að sömu fúlu bröndurunum ár eftir ár? Þessi sjötta mynd í röðinni um lögreglu- skólann er slakari en þær síðustu þar á undan og er þá mikið sagt. Three Fugltlves ★★ (Þrjú á flótta) Ágætis gamanmynd á meðan plottið virkar en dettur niður þess á milli. Martin Short er aðal aðhlátursefnið sem mis- heppnaðasti bankaræningi kvikmyndanna ( allt of stórum frakka. A Flsh Called Wanda ★★★ (Fiskurlnn Wanda) Nánast fullkomin gamanmynd. Hárfinn húmor í skotheldu handriti og gamlinginn Crichton stýrir af mikilli fimi. Erfitt að gera upp á milli aðalleikaranna sem eru hver öðrum betri. Betri skemmtun er vandfund- in Bíóborgin Forever Frlends ★★ (Alltaf vinir) Um margt ágæt lýsing á langvarandi vin- áttu tveggja ólíkra kvenna. Ágætlega leikin, sérstaklega er Midler hrifandi i einni buddy-myndinni enn. Myndin reynir hins- vegar að segja alltof mikið, einsog dæmi- gerð væmin míní-sería, og veldur hún ekki þessum mikla söguþræði. Spellblnder ★ (A hættuslóðum) Ekki alvond hryllingsmynd en byggir um of á sömu atriðum og sambærilegar B- myndir. Allt vel þekkt og ofnotað: djöflatrú og yfirnáttúrulegir hlutir með tilheyrandi tæknibrellum og óvæntum endalokum. betri geta að Tourneur var bandarísk- ur ríkisborgari nær allt sitt líf en faðir hans, Maurice, var einn af frumkvöðlum evrópskrar kvik- myndagerðar. í desember verður sýnd ein af mörgum stórvirkjum ítalska marxistans Pier Paolo Pasolini, II vangelo secondo Matteo (Boð- skapur heilags Matteusar, 1964). Síðan verður sýnd Death of a Sal- esman (Sölumaður deyr), eftir samnefndu leikriti Árthurs Millers, í leikstjórn Þjóðverjans Volkers Schlöndorffs. Myndin var gerð fyrir sjónvarp árið 1985 með nánast sömu leikurum og fluttu verkið á sviði ári áður, en einhverra hluta vegna hefur myndin ekki verið sýnd hér á landi. Á eftir henni verður svo sýnd kvikmynd Dennis Hoppers, The Last Movie, sem á vel við þarsem hún verður síðasta kvik- mynd klúbbsins á þessu misseri. Hopper gerði þessa mynd árið 1971 eða tveimur árum á eftir hann sló í gegn með Easy Rider. Myndin hefur reyndar fengið heldur dræmar viðtökur gagnrýnenda en ekki eru allir sammála því. Tíu ár liðu þar til Hopper gerði kvikmynd á ný. Mun betri umfjöllun um þessar kvikmyndir er að finna í stórgóðri dagskrá sem Kvikmyndaklúbb- urinn hefur gefið út. Fjöl- mennum í Regnbogann og gerum góðan klúbb að betri klúbbi. Dangerous Lialsons ★★★ (Hættuleg sambönd) Þrungin, en jafnframt hrífandi tragi- kómidía þar sem allir ern táldregnir. Frá- bær leikur ber myndina uppi, sérstaklega Malkovich og Close sem hástéttarpakkiö sjálfselska. Mynd fyrir rómantikera en endirinn er í hróplegu ósamræmi við þjóð- félagsástandið á þessum tima. Raln Man ★★★ (Regnmaöurlnn) Regnmannsins verður minnst tyrir ein- stakan leik Hoffmanns í hlutverki einhverfa ofvitans fremur en sem góðrar kvikmynd- ar. Óskar fyrir handrit og leikstjóm fremur vafasamur og Barry Levinson hefur áður stýrt betur. Háskólabíó Warlock 0 Afskaplega lélegt, ósmekk- legt og ómerkilegt. Ovíst hvort verið er að stæla Highlander eða The Termenator enda skiptir það engu máli. Stjttmubló Magnús ★★★ Lang besta kvikmynd Þráins til þessa og jafnframt i hópi betri kvikmynda sem gerð- ar hafa verið hér á landi. Þráinn hefur náð auknum þroska sem listamaður og byggir mynd sina vel upp til að byrja með en ým- issa brotalama fer að gæta þegar leysa á úr vandamálum höfuðpersóna. Oft yndis- legur gálgahúmor og Magnús er sann- kölluð skemmtimynd fyrir alla aldurshópa. Baron Munchhausen ★★★ (Ævlntýrl Munchhausen) Ævintýri barónsins af Múnchhausen eftir lygasögum R. E. Raspe gætu varia fengið betri meðferð en hjá fyrrum Monty Python fólkinu undir stjórn Terry Gilliam. Sannkölluð fantasía sem allir geta haft gaman af, jafnt ungviðið sem kvikmynda- fríkin. Svona eiga ævintýri að vera. Föstudagur 18. ágúst 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.