Þjóðviljinn - 18.08.1989, Síða 26
Hvað á að gera um helgina?
Katrín Anna Lund
nemi og ríkisstarfsmaður
Ég ætla fyrst og fremst að læra. Sitja á bókasafni Háskólans og lesa
undir haustpróf. Væntanlega þarf ég að vinna eitthvað á laugardaginn
vegna mikilla anna á launaskrifstofu ríkisspítalanna. Annars verður
þetta róleg helgi, það er mögulegt að það verði matarboð heima hjá
mér á laugardagskvöld.
Alþýðubankinn, Akureyri, Gunnar
Friöriksson sýnir málverk, opið á af-
greiðslutímatil8.9.
Árnagarður v/Suðurgötu, handrita-
sýning þri. fimm. lau. 14-16 til 1.9.
Ásmundarsalur v/ Freyjugötu, verk
Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts til
20.8.
Byggða-og listasafn Árneslnga,
Seifossi, sumarsýning á málverkum
e/ Gísla Jónsson og Matthías Sigfús-
son í Halldórssal. 14-17 virka daga,
14-16 helgar, til ágústloka.
Gallerí Borg, myndir eftir yngri og
núlifandi höfunda þ.á.m. Louisu Matt-
híasdóttur, 10-18 virkadaga, lokað
um helgar. Grafíkgalleríið: grafík, gler
og keramik, Nýi salurinn: málverk nú-
lifandi listam.
FÍM-salurlnn, Michael Kunert sýnir
málverk og grafík, opn. á morgun kl.
14, til 5.9.13-18virkadaga, 14-18
helgar.
Ferstikla, Hvalfirði, Rúna Gísladóttir
sýnir.
Gallerí Madeira, Evrópuferðum
Klapparstíg 25. Giovanni Leombi-
anchi frá Mílanó sýnir teikningar og
vatnslitamyndir f rá Islandi og Galap-
agoseyjum. 8-18 virka daga, sýn.
framlengd til 25.8.
Hafnarborg, Strandg. 34 Hf, Mynd-
list frá Moldavíu, sýn. í tengslum við
SovéskadagaMÍR, 14-19alladaga
nema þri. Til ágústloka.
Hlfðarendl, Hvolsvöllum, Kalman og
Guðrún de Fontenay bg Birgir Jóak-
imsson sýna vatnslitamyndirtil 1.9.
íslenska Óperan, Cheo Cruz Ulloa
og Sigurður örlygsson sýna í tengsl-
um við Hundadaga 89. Til ágústloka,
dagl. 14-18.
Kjarvalsstaðlr, opið daglega 11-18.
Alþjóðleg nútímalist, til 20.8. Sýning á
verkum Yousuf Karsh, framlengd til
10.9. Sumarsýning á verkum Kjar-
vals, til 20.8.
Llstasafn Sigurjóns, Hundadagar
89, andlitsmyndir Kristjáns Davíðs-
sonar, Opið mán.-fim. 20-22,14-17
lau. su. Kaffistofan opin á sama tíma.
Listasafn Elnars Jónssonar opið
alla daga nema mán. 13.30-16.
Listasafn fslands, fslenskt landslag,
sýn. á ísl. landslagsverkum í eigu
safnsins.
Magnús Tómasson sýnir í útibúi
SPRON Álfabakka 14. Opið á af-
greiðslutíma til 1. sept.
Mokka, Ásta Guðrún Eyvindsdóttir
sýnir grafík til 12.9. í tilefni sýn. verður
kynning á verkum Ástu í þætti Piu
Hansson, Ljáðu mór eyra á Stöð 2 í
kvöld.
Norræna húsið anddyrl: Jörð úr
ægi, myndun Surtseyjar og hamfar-
irnar í Heimaey. 9-19 nema su. 12-
19, til 24.8. Kjallari: Sumarsýning á
verkum Jóhanns Briem daglega 14-
19 til 24.8. Stefnumót á Islandi, sýn. á
steindum glerverkum átta kvenna frá
Bandar. og Evrópu. Til 21.8.
Nýhöfn, Hafnarstræti,18, Hunda-
dagar 89: Arngunnur Ýr sýnir mál-
verk. Til 20.8. virka daga 10-18,14-
18 helgar.
Riddarinn, Hafnarfirði, Við búðar-
borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á
vegum Byggðasafns Hf.
Safn Ásgrfms Jónssonar, lands-
lagsmyndir, 13:30-16 alla daga nema
mán. Til septemberloka.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Fundur Ameríku, ísumaralla
daganemamán. 14-18.
Slunkaríki, ísafirði, Guðrún Guð-
mundsdóttir, veggskúlptúrar úr hand-
unnum pappír, Til 27.8. fim-su 16-18.
Þjóðminjasafn opið alla daga nema
mán. 11-16. Fjaðraskúfarogfiski-
klær, sýning um menningu inúíta og
indíána, farandsýn. í tilefni að 10 ára
afm. heimastjórnaráGrænlandi. Til
ágústloka.
Sýnlng á listaverkum jarðargróðans
stendur enn yfir. Við viljum enn frem-
ur vekja athygli á skúlptúrum bergs-
ins og straumiðu vatns og skýja. Að-
gangur ókeypis sé góðri umgengni
heitið annars er greitt með himin-
háum upphæðum vanvirðingar.
Folda.
TÓNLIST
Nýi músíkhópurinn flytur Kvartetta,
Eter og Eftirmála eftir Hauk Tómas-
son í Nýhöfn, Hafnarstræti í kvöld.
Hljóðfæraleikarar eru Bryndís Halla
Gylfadóttir, Daníel Þorsteinsson,
GerðurGunnarsdóttirog Guðni Kjart-
an Franzson. Tónleikamir hefjast kl.
21 og standa í klst.
Björn Steinar Sólbergsson organ-
isti leikur verk eftir Olivier Messiaen í
Kristskirkju. Tónleikarnir eru hluti af
dagskrá Hundadaga og hefjast kl. 16
laugard.
Loftfélag fslands heldurtónleika í
Djúpinu, Hafnarstræti í kvöld. Á efn-
isskránni er samið efni og ósamið,
hópurinn, sem einbeitir sór að spuna-
tónlist og mun semja og flytja hluta
tónlistarinnar í samráði við áhorfend-
ur. Tónleikarnir hefjast kl. 22, að-
gangseyrir 300 kr. en 200 fyrir mat-
argesti Hornsins.
W. Keith Reed, bass-bariton, heldur
söngtónleika í Norræna húsinu á
sunnud. kl. 17. Á efnisskránni eru
verk eftir Schumann, John Duke o.fl.
Undirleikari er Ólafur Vignir Alberts-
son.
Tónlistarfólk frá Sovétlýðveldinu
Moldavíu heldur tónleika í Hafnar-
borg, Hafnarfirði á mánudagskvöldið
í tilefni Sovéskra daga MÍR 89. Á efn-
isskrá tónleikanna sem hefjast kl.
20:30 eru hljómsveitarverk, óperuarí-
ur, sönglög og þjóðleg tónlist.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúsið sýnir Macbeth í fs-
lensku Óperunni í kvöld og lau kl.
20:30.
Mann hef ég séð, ópera eftir Karól-
ínu Eiríksdóttir verðurfrumsýnd í fs-
lensku Óperunni kl. 20:30 á sunnu-
dagskvöld.
Light nights, Tjarnarbíói, fimm. fö.
lau. su. kl. 21, til 3.9.
HITT OG ÞETTA
Svavar Gestsson afhjúpar brjóst-
mynd af Gunnari Gunnarssyni og af-
hendir listamanns- og fræði-
mannsíbúð í húsi Gunnars Gunnars-
sonar að Skriðuklaustri á sunnudag-
inn. Dagskrá og veitingar í boði
menntamálaráðuneytisins í fólags-
heimilinu Végarði kl. 16.
Norræna húsið, Borgþór Kjærne-
sted heldurfyrirlestra um íslenskt
samfélag á laugardögum í sumar. Á
sænsku kl. 17, finnsku kl. 18. Til 26.8.
Nýtt sýningartímabil er hafið í Kvik-
myndaklúbbi fslands, Caravaggio
eftir Derek Jarman verður sýnd í
Regnboganum á morgun kl. 15. Að-
göngumiðar og félagsskírteini eru
seld í Regnboganum.
Fólag eldri borgara Rvík og ná-
grenni, Göngu-Hrólfur, gönguferð
alla laugardaga frá Nóatúni 17 kl. 10.
Félag eldri borgara í Kópavogi,
skoðunarf erð um Árnessýslu á morg-
un, lagt af stað f rá Sparisjóði Kópa-
vogskl.9.
Ferðafélaglð, dagsferðir: Su kl. 10,
Skjaldbreiður, kl. 13, gengiðeftirAI-
mannagjá. Helgarferð í Þórsmörk
18.-21.8.
Hana nú, Kópavogi, vikuleg laugar-
dagsganga farin frá Digranesvegi 12
kl. 10ífyrramálið. 18holupúttvöllur
Hana nú á Rútstúni er opinn öllum
Kópavogsbúum sem eiga púttara og
kúlu.
Útivist, helgarferðir 18.-20.8.: Þórs-
mörk-Goðaland, Núpsstaðar-
skógar.
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALPSSON
íþróttafréttahvað?
Mig rámar í að ég hafi lofað að
taka mér frí fram á haustið frá
þessum pistlum en vegna ýmissa
innanhússvandræða sem fylgja
sumarleyfum og gúrkutíð lét ég
tilleiðast að brjóta þetta loforð.
Raunar liggur nú við að manni
þyki orðið óþarft að fjalla um
fjölmiðla í þartilgerðum pistlum
eftir að hinn óþreytandi dálka-
höfundur DV, Hannes Hólm -
steinn, sneri sér að slíkum skrifum
af sínu vanalega offorsi. Þar er
allt sagt sem segja þarf.
En ég lét mig semsé hafa það
að skrifa þennan pistil og datt í
hug að ræða dálítið um íþrótta-
fréttir enda rétti tíminn til þess nú
þegar deildin er í algeru upp-
námi.
Eins og lesendum Þjóðviljans
er kunnugt lét blaðið af þeim sið
sl. vor að vera með fasta daglega
íþróttasíðu. Ástæðan var vita-
skuld af spamaðarættinni, það
þurfti að skera niður og niður-
staðan varð sú að íþróttirnar
lægju best við höggi. Undan
þessu hefur oft verið kvartað við
okkur starfsmenn blaðsins sem
ekki er undarlegt því íþróttasíða
Þjóðviljans á sér langa og glæsi-
lega hefð. Raunar var blaðið í
fararbroddi íslenskra fjölmiðla á
sviði íþróttaskrifa um langan
aldur.
Það var á tímum Frímanns
Helgasonar og síðan er mikið
vatn til sjávar runnið. Veröldin
hefur breyst, ekki síst sá partur af
henni sem fjölmiðlarnir hrærast í.
Það segir manni óneitanlega
miklu meira að sjá markið skorað
í sjónvarpinu, jafnvel í beinni út-
sendingu, en að lesa um það í
blaðinu daginn eftir.
Og nú les ég það í dönsku blaði
að þar í landi hafi lestur á íþrótt-
asíðum dagblaða dregist vemlega
saman á undanförnum ámm.
Annað síðdegisblaðanna í Kaup-
mannahöfn, BT, fékk að vita það
að ríflega helmingur lesenda þess
liti aldrei á íþróttasíðurnar.
Vissulega kemur það fyrir þegar
danska landsliðið hefur átt góðan
dag að hægt er að selja frétt af því
en sú tíð er löngu liðin að slitin
liðbönd, jafnvel þótt þau tilheyri
mönnum eins og Mikael
Laudrup, veki nokkum áhuga.
Danskir kollegar velta að sjálf-
sögðu vöngum yfir þessari þróun
og tína til ýmsar ástæður fyrir
henni.
í fyrsta lagi er það sú tilhneig-
ing sem verður æ sterkari hjá dag-
blöðunum að þeim sé skipt upp í
sérstaka blaðahluta eftir áhuga-
sviðum, einn hlutinn fjallar um
bfla, annar um garðyrkju, þriðji
um viðskipti, fjórði um umhver-
fismál osfrv. íþróttakálfurinn
þarf því að sæta mun harðari sam-
keppni en áður. Þessi þróun er
Iíka í gangi hér. Allflestar kann-
anir sem gerðar hafa verið á fjöl-
miðlanotkun íslendinga hafa sýnt
að hópurinn sem fylgist grannt
með íþróttaefninu er harla fá-
mennur og verður æ þunnskip-
aðri. Hann virðist líka vera ansi
einlitur í samsetningu, fyrst og
fremst yngri karlmenn.
Önnur ástæða er sú að umfjöll-
un um íþróttir taki allt of einhliða
mið af úrslitum og frammistöðu
frægustu afreksmanna en sinni
h'tt öðru íþróttafólki og -áhuga-
mönnum.
Þriðja ástæðan og ekki sú
veigaminnsta er að helmingurinn
af lesendum blaða eru konur og
þeirra íþróttaiðkun situr vissu-
lega ekki við sama borð og til-
burðir karlanna á íþróttasíðun-
um.
Þessi síðarnefnda ástæða hefur
verið mikið til umfjöllunar að
undanförnu, einnig hér á landi.
Konur í íþróttahreyfingunni hafa
verið að gera sér þetta ljóst og
sett fram kröfur um breytingar.
Svörin sem þær hafa fengið hafa
nú verið á ýmsa lund. Frægt er
þegar einn kollega á DV komst
að þeirri niðurstöðu að konur
gætu ekki fjallað um íþróttir í
sjónvarpi. Fæð kvenna í stétt
íþróttafréttamanna er vissulega
ein ástæðan fyrir því hversu lítið
er fjallað um kvennaíþróttir í
fiölmiðlum en ekki sú eina.
Ónnur ástæða er að karlar ríg- _
halda í gamlar og oft úreltar hug- '
myndir um það hvað er lesið í
blöðum og hvað ekki.
Þeir eru til í stétt íþróttafrétta-
manna sem halda því blákalt
fram að enginn hafi áhuga á
kvennaíþróttum, að botnbarátt-
an í þriðju deild karla sé áhuga-
verðara blaðaefni en jafnvel
landsleikur í kvennaknattspyrnu.
Ég held að tíminn hafi hlaupið
frá þessum mönnum, að þeir hafi
lokast inn í þröngum heimi þar
sem viðhorf og áhugamál afreks-
íþróttamanna ráða ferðinni. f
þeim heimi er skiljanlegt að
mestur áhugi ríki fyrir úrslitum
og afreksverkum.
En ég held að heimurinn utan
við búningsklefann sé breyttur og
að lesendur blaða geri aðrar kröf-
ur til þeirra.
26 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 18. ágúst 1989