Þjóðviljinn - 29.08.1989, Síða 1
Ríkisstjórnin
Borgarar deila um tilboðið
Stjórnin bauð Borgaraflokknum tvö ráðherraembœtti, annað án ráðuneytis
framyfir áramót. Júlíus Sólnes og ÓliÞ. Guðbjartsson líklegustu ráðherraefnin.
Ágreiningur um viðbrögð við tilboðinu
Mjög skiptar skoðanir komu
fram á þingflokksfundi
Borgaraflokksins um tilboð ríkis-
stjórnarinnar um stjórnaraðild
flokksins. Steingrímur Her-
mannsson kallaði Júlíus Sólnes
formann flokksins og Ola Þ. Guð-
bjartsson formann þingflokksins
á sinn fund síðdegis í gær og
klukkan sex hófst fundur Borgar-
aflokksins um tilboðið. Stóð hann
langt fram eftir kvöldi.
í tilboði stjórnarinnar er gert
ráð fyrir að Borgaraflokkurinn
fái tvö ráðherraembætti, dóms-
og kirkjumálaráðuneytið og um-
hverfismálaráðuneytið sem
stofna á upp úr áramótum. Fram
að því yrði annar ráðherra flokks-
ins án ráðuneytis en ætti að sjá
um mótun atvinnustefnu og sam-
starf Norðurlanda. Auk þess er
komið til móts við ýmsar kröfur
Borgaraflokksins um breytingar
á stjórnarstefnunni. Til dæmis er
rætt um aukið aðhald að innflutn-
ingsversluninni, jöfnun á orku-
kostnaði, tvö þrep í virðisauka-
skatti, 15% á mjólk, kjöti og fiski
en 25% á öðru, húsaleigubætur,
stefnt skuli að afnámi vísitölu-
bindingar lána ofl.
Höfn í
Hornafirði
Útsýnis-
skífu stolið
Hefur einh ver rekist á
útsýnisskífu sem ekki
passar við útsýnið?
Jú, það er rétt, skífan finnst
hvergi og enginn veit hvernig eða
hvenær hún hvarf, sagði Jón Ingi
Björnsson í lögreglunni á Höfn í
Hornafirði um þá frétt í Eystra-
Horni að útsýnisskífa bæjarins
væri ekki lengur á sínum stað.
Útsýnisskífap stóð á voldugum
stöpli efst á tjaldstæði bæjarins en
nú er stöpullinn einn eftir, skífan
sjálf er horfin. Jón Ingi sagði að
kona úr Reykjavík hefði komið í
sumar og ætlað að skoða skífuna
sem hún hafði skoðað í fyrra-
sumar en þá var engin skífa.
- Það geta verið liðnar margar
vikur síðan hún hvarf og orðið
erfitt að leita að henni, því á
tjaldstæðið kemur aragrúi af að-
komufólki.
Hægt er að taka undir með Jóni
Inga að erfitt sé að átta sig á til-
ganginum með því að stela skíf-
unni. Nema menn ætluðu sér að
skipta á skífu annars staðar og
rugla fólk vísvitandi í ríminu.
I Eystra-Horni er leitt að því
getum að þarna hafi verið á ferð
einhverjir safnarar og eru lesend-
ur beðnir að hafa augun hjá sér ef
fyrir þá ber útsýnisskífu sem
ekki passar við útsýnið.
-ÞH
Meðal forystumanna Borgar-
aflokksins mun ekki vera eining
um viðbrögð við tilboðinu. Óli Þ.
Guðbjartsson er sagður mun já-
kvæðari gagnvart því en Júlíus
Sólnes. Verði af stjórnarþátttöku
Borgara má búast við því að Óli
Þ. taki við embætti dóms- og
Utgerðarfélag , aflaskipsins
Guðbjargar Is hefur keypt 5
skip og báta til að auka við kvóta
Guðbjargar. Þorleifur Pálsson
hjá útgerðafélaginu Hrönn segir
að hér sé um að ræða skip og báta
sem séu orðin úrelt. Heyrst hefur
að Hrönn hafi keypt kvóta fyrir
um 70-80 milljónir króna. Þær
tölur vildi Þorleifur ekki stað-
festa. Með kaupunum væri verið
að reyna að halda í horfinu í afla
Guðbjargar.
Guðbjörgin fór af sóknarmarki
yfir á aflamark á þessu ári. En í
fyrra landaði skipið 5.100 tonn-
um af fiski. Þorleifur sagði Þjóð-
viljanum að með því að fara yfir á
aflamark, hefði kvóti Guðbjarg-
ar minnkað. Þess vegna hefði
verið gripið til þess ráðs að verða
sér út um viðbótarkvóta. Hann
kirkjumálaráðherra en Júlíus við
umhverfismálunum. Svo gæti þó
farið að flokkurinn klofnaði í af-
stöðu sinni til tilboðsins og hefur
það afbrigði af þessu valdatafli
heyrst nefnt að Óli Þ. verði þá
gerður að forseta neðri deildar
Alþingis sem losnaði þegar
vildi ekki segja hversu mikla við-
bót Guðbjörg hefði útvegað sér,
en kflóverðið væri á bilinu 50-55
krónur.
Þorleifur sagði að Guðbjörgin
hefði á undanförnum árum verið
í landi uþb. 3 mánuði á ári. í fyrra
hefði skipið farið í breytingar og
verið frá veiðum í 4 mánuði. Ekki
væri hægt að útiloka að skipið
yrði einnig eitthvað bundið við
bryggju í ár. Guðbjörgin hefði
þegar landað um 4.500 tonnum í
ár.
Að undanförnu hefur Guð-
björgin verið á skrapi og þá verið
á höttunum eftir ufsa og ýsu. Þor-
leifur sagði vel fiskast af þorski
þessa dagana, alveg sama væri
hvar trolli væri difið niður, það
fylltist á augabragði. Erfiðara
gengi að ná í aðrar tegundir.
Hann sagði Guðbjörgina hafa
Kjartan Jóhannsson lét af þing-
mennsku.
Búist var við því í gærkvöldi að
Borgaraflokkurinn myndi svara
tilboði stjórnarinnar í dag og
Steingrímur Hermannsson sagði í
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að
breytt töluvert af sínum þorsk-
kvóta í grálúðukvóta, enda hefði
fengist gott verð fyrir grálúðuna í
Frakklandi, eða yfir 100 krónur
fyrir kflóið. Þessi markaður væri
hins vegar ákaflega viðkvæmur.
Að sögn Þorleifs á Guðbjörgin
450 tonn eftir af þorskkvótanum
og 500 tonn af ýsukvótanum.
Guðbjörgin og Júlíus Geir-
mundsson ís hafa séð íshúsfélagi
ísfirðinga fyrir hráefni. Júlíus
Geirmundsson hefur nú verið
leigður til Neskaupstaðar, en nýr
Júlíus er væntanlegur til landsins
bráðlega. Hann verður útbúinn
til frystingar um borð. íshúsfé-
lagið hefur gengið inn í hlutafélag
um Framnes frá Þingeyri og mun
Framnesið leggja jöfnum hönd-
um upp á ísafirði og á Þingeyri í
framtíðinni.
-hmp
hann myndi skoða gagntilboð
flokksins ef Borgarar litu á til-
boðið sem samningsgrundvöll.
-ÞH/Sáf
Greiðslu-
erfiðleikalán
400 í miklum
erfiðleikum
Bankarnir hafa frest
til mánaðamóta að
svara beiðnifélags-
málaráðherra. Jó-
hanna Sigurðardóttir:
Eignamissir blasir við
mörgum verði ekkert
að gert
- Bankaráðum viðskiptabank-
anna var send beiðni í síðustu
viku þar ég fer þess á leit að þeir
kaupi skuldabréf af Húsnæðis-
stofnun sem nemi þeim hluta sem
runnið hefur til þeirra af því fé
sem stofnunin hefur veitt til fólks
sem á í greiðsluerfiðleikum. Þeir
hafa frest til mánaðamóta til að
svara þessari beiðni og á þessari
stundu veit ég ekki hver viðbrögð
þeirra verða, sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra.
í bréfi félagsmálaráðherra er
farið fram á að bankarnir auki
hlutabréfakaup sín af Húsnæðis-
stofnun og að greiðsluerfiðleika-
lán þeirra sem verst eru settir
verði lengd úr 8 árum í 12.
Alls hefur Húsnæðisstofnun
veitt um 450 miljónum í lán til
húskaupenda og byggjenda sem
eiga í greiðsluerfiðleikum en af
því hefur um helmingur runnið
beint til bankanna til að gera upp
vanskil fólks við bankastofnanir.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafnaði samband við-
skiptabankanna að verða við
beiðni félagsmálaráðherra, aðal-
lega á þeirri forsendu að það væri
ekki rétt að sambandið tæki
ákvörðun fyrir alla bankana.
Sams konar beiðni barst sam-
bandi sparisjóðanna sem enn hef-
ur ekki svarað beiðninni.
- Ég tel það miklu eðlilegra að
þessi beiðni sé borin upp við
hvern banka fyrir sig. Það verður
bankaráðsfundur í Útvegsbank-
anum í dag þar sem tekin verður
afstaða til þessa máls en á þessari
stundu get ég ekkert sagt um það
hvernig málið verður afgreitt,
sagði Guðmundur Hauksson
bankastjóri Útvegsbankans.
Jóhanna sagði að ef bankarnir
samþykktu þessar aðgerðir væri
hægt að afgreiða um 400 umsókn-
ir þeirra sem sótt hafa um
greiðsluerfiðleikalán, en að það
væri þó aðeins þeir sem verst eru
staddir og umsóknirnar væru
miklu fleiri. iii
Við upphaf fundar þingflokks og annarra forystumanna Borgaraflokksins í gær. Mynd: Kristinn.
Útgerð
Guðbjörg ís kaupir báta
Þorleifur Pálsson: Gert til aðjafna upp kvótatap afþví aðfara af
sóknarmarki yfir á aflamark