Þjóðviljinn - 05.09.1989, Qupperneq 1
Þriðjudagur 5. september 1989 150. tölublað 54. árgangur
Ríkisstjórnin
Raunvextir
lækka
Bankarnir ákvörðuðu vaxta-
lækkun þann 1. september og
hafa flestir þeirra tilkynnt um
frekari lækkun vaxta á óverð-
tryggðum skuldabréfum þann 11.
september næst komandi. A
föstudag lækkuðu vextir óverð-
tryggðra skuldabréfa um 0,6%
en eiga að lækka þann 11. sept-
ember um 2,8%.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Ólafssonar, hjá Seðlabanka ís-
lands, lækkuðu forvextir víxla úr
28% i 25,2% og vextir yfirdrátt-
arlána lækkuðu úr 31,9% í
29,6%. Ólafur sagði víxilvexti nú
vera á bilinu 24-26% sem þýddi
að ávöxtunarprósenta þeirra væri
á bilinu 28-30%.
Með þeirri nafnvaxtalækkun
sem átt hefur sér stað sagði
Ólafur að raunvextir hefðu lækk-
að um tæp 4%, þegar lækkun
vaxta á óverðtryggðum skulda-
bréfum um miðjan þennan mán-
uð væri tekin með í reikninginn.
Ef lækkun á forvöxtum væri
skoðuð, úr 33,2% í 29,4% og
miðað væri við 60 daga ávöxtun,
þýddi þessi 2,8% lækkun forvax-
ta 3,8% lækkun ávöxtunar. í
20% verðbólgu hefði ávöxtunin
verið 11% fyrir lækkun en væri
7,8% eftir lækkunina.
Vextir verðtryggðra lána eru
enn þeir sömu, eða 7,4% að með-
altali. -hmp
Kvennalistinn næst
Ólafur Ragnar Grímsson: Borgaraflokkurinn annarflokkur nú en
áður. Miðstjórnir stjórnarflokkanna taka afstöðu til Borgara fyrir helgi
Miðstjórnir stjórnarflokkanna
koma saman á fimmtudag og
föstudag og taka afstöðu til vænt-
anlegrar stjórnarþátttöku
Borgaraflokksins. Ólafur Ragn-
ar Grfmsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, segir að sá Borg-
araflokkur sem nú gangi til liðs
við ríkisstjórnina sé annar flokk-
ur en á haustmánuðum í fyrra.
Ólafur telur að Kvennalistinn
ætti að íhuga hvoru megin hann
vill standa, með félagshyggjufólki
í ríkisstjórn eða Sjálfstæðis-
flokki.
Alþýðubandalagið heldur sinn
miðstjórnarfund á föstudags-
kvöld og heldur sá fundur áfram á
laugardag. Alþýðuflokkurinn er
einnig með sinn fund á föstudag
en Framsóknarflokkurinn heldur
miðstjórnarfund á fimmtudags-
kvöld.
Ólafur Ragnar sagði að
innganga Borgaraflokksins í rík-
isstjórn kæmi ríkisstjórninni í
sterkari stöðu til að koma á
nauðsynlegum kerfisbreytingum
í þjóðfélaginu. Stjórnin hefði í
eitt ár verið í björgunaraðgerðum
til að forða því stórslysi sem
stjórnarstefna Þorsteins Páls-
sonar bar í sér. Nú væri verkefnið
að skapa nýjan grundvöll hjá at-
vinnuvegunum og koma á
nauðsynlegum breytingum í pen-
ingamálum, ríkisfjármálum og á
öðrum sviðum.
Sá Borgaraflokkur sem kemur
til samstarfs við ríkisstjórnina er
ekki sami flokkurinn og hann var
í fyrra, að mati Ólafs Ragnars.
Enda hefði Albert Guðmunds-
son lýst því yfir að Borgaraflokk-
urinn væri nú vinstriflokkur.
Borgaraflokkurinn hefði í raun
klofnað tvisvar. Fyrst þegar Al-
bert yfirgaf hann og gerðist sendi-
herra og stjórnmálaskýrandi í
París og í seinna skiptið þegar
Ingi Björn og Hreggviður stofn-
uðu sérstakan hægriflokk. Ólafur
Ragnar segir að með stjórnar-
þátttöku Borgaraflokksins megi
segja, að sú stefna sem baráttu-
konan Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir markaði fyrir jólin í fyrra,
hafi orðið ofan á í flokknum.
„Við Alþýðubandalagsfólk
hefðum einnig kosið að Kvenna-
listinn hefði borið gæfu til að
ganga inn í þessa fylkingu félags-
hyggjufólks sem hefur ákveðið
að stjóma íslandi næstu árin,“
sagði Ólafur. Skoðanakannanir
sem sýnt hefðu fylgi Kvennalist-
ans yfír 30% hefðu villt Kvenna-
listanum sýn um stundarsakir.
Þess vegna væri brýnt að Kvenna-
listinn, sem tilheyrði fylkingu fé-
lagshyggjufólks, gerði það upp
við sig á næstu mánuðum, hvort
hann eigi ekki heima í liði með
ríkisstjórnarflokkunum og verði
næsta viðbót við stjórnina.
Málefnasamningur ríkisstjórn-
arinnar tekur ekki gmndvallar-
breytingum með inngöngu Borg-
araflokksins. Við hann koma við-
bætur með áherslum á lækkun
framfærslukostnaðar heimilanna
og lækkun fjármagnskostnaðar.
Ólafur Raganar sagði að flest
þessara atriða væru í samræmi við
stefnuatriði Alþýðubandalagsins
og liðsinni Borgaraflokksins
styrkti frekar fjölmargar málefn-
aáherslur sem Alþýðubandalagið
hefði kappkostað að fá í gegn í
ríkisstjórninni.
Ólafur sagði ljóst að innganga
Borgaraflokksins væri áfall fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, sem nú
horfði fram á langvarandi eyði-
merkurgöngu. Spádómur Þor-
steins Pálssonar fyrir tveimur
árum, um ævarandi áhrifaleysi
Alþýðubandalagsins, muni á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins í
næsta mánuði, rætast á honum
sjálfum.
-hmp
'isfjörður
Bæjarfélagið vill
virkja Fjarðará
Þorvaldurjóhannsson: Gamall draumur aðfá
að taka þátt í að virkja Fjarðará. Jón Sigurðs-
son: Verið að kanna hver virkjanaröðin verður
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar og
bæjarstjórn Egilsstaða hafa
ákveðið að ganga til samstarfs við
Rafmagnsveitur rflrisins um
virkjun Fjarðarár. Hér er um að
ræða 20 megawatta virkjun, en
frumhönnun sem Rafmagns-
veitur ríkisins hafa gert sýna að
slík virkjun væri mjög hagstæð.
Þar sem Landsvirkjun hefur
einkarétt á að byggja virkjanir
sem eru yfir 5 megawott þarf lag-.
abreytingu til þess að hægt verði
að hrinda þessum áformum í
framkvæmd. Bæjrfélögin og Raf-
magnsveiturnar hafa sett á stofn
nefnd til þess að fylgja þessu máli
eftir, en málið hefur þegar verið
kynnt þingmönnum kjördæmis-
ins.
„Ef af þessu verður má segja að
gamall draumur Seyðfirðinga sé
að rætast,“ sagði Þorvaldur Jó-
hannsson bæjarstjóri á Seyðis-
firði við Þjóðviljann í gær.
Fjarðará var virkjuð árið 1913
og er sú virkjun, sem er elsta
jafnstraumsvirkjun á íslandi, enn
í fullri notkun. „Það hefur alltaf
verið draumur okkar að geta.
tekið þátt í að virkja ána, og
frumhönnun sýnir að það er mjög
álitlegur kostur,“ sagði Þorvald-
ur.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra sagði að á vegum ráðuneyt-
isins væri verið að vinna að
stefnumótun í virkjanamálum.
Samkvæmt þingsályktunartillögu
frá árinu 1982 er Fljótsdals-
virkjun næsta stórvirkjun sem
ráðsist verður í.
„Það má vera að forsendur hafi
breyst síðan þá og verða því allir
virkjunarkostir skoðaðir, m.a.
fullnýting Tungnaár-Þjórsár-
svæðisins, Fljótsdalsvirkjun,
Mjólkár og Fjarðarár. Ég mun
fyrst og fremst líta á málið út frá
þjóðhagssjónarmiði og enn hefur
ekki verið rætt hver fram-
kvæmdaaðilinn verður. Það
verður vissulega skoðað hvort
hagkvæmt sé að bæjarfélögin
fyrir austan og Rafmagnsveitur
ríkisins sjái um framkvæmdir og
rekstur virkjunar Fjarðarár ef af
þeirri virkjun verður,“ sagði Jón
Sigurðsson.
Jón sagði jafnframt að allra
hluta vegna þyrfti það að liggja
fyrir nú í haust hver virkjana-
röðin verður.
-Sáf
Stafirnir úr skilti Leikfélags Reykjavíkur á Iðnó teknir niður. Leikfélagið
tók við lyklavöldum í Borgarleikhúsinu á sunnudaginn og fóru starfs-
menn LR af þvi tilefni í skrúðgöngu frá Iðnó upp í Borgarleikhús og
báru stafina í broddi fylkingar. Mynd - Kristinn.
Sjá baksíðu