Þjóðviljinn - 19.09.1989, Síða 6
ERLENDAR FRÉTTIR
Námsmaður og hermenn á Himinsfriðartorgi - hætt við að atburðir þar dragi dilk á eftir sér fyrir efnahagslíf
Kína.
Alþjóðabankinn
Mikill hagvöxtur Asíuríkja
En um 500 miljónir manna þar eru undirfátœktarmörkum, sam-
kvœmt skilgreiningu bankans
Samkvæmt ársskýrslu Al-
þjóðabankans er sú volduga
(jármálastofnun nokkuð ánægð
með gang efnahagsmála í Asíu-
löndum. Hagvöxtur í þróunar-
löndum þessa heimshluta var 9,3
af hundraði s.l. ár og yfirstand-
andi ár verður hann 7,6 af hundr-
aði, að ætlan Alþjóðabankans.
Það sem einkum hefur stuðlað
að hagvextinum hjá Asíu-
mönnum þessi tvö ár eru blómleg
utanríkisverslun og miklar fjár-
festingar. Tvö fjölmennustu ríki
álfunnar og þar með heimsins
alls, Kína og Indland, fá bæði
allgóðar einkunnir hjá Alþjóða-
bankanum. S.l. ár var hagvöxturí
Kína 11,2 af hundraði, en búist er
að vísu við að eitthvað eða
jafnvel verulega dragi úr þeirri
grósku í ár. Pólitíska ólgan þar-
lendis, sem náði hámarki með
árás hersins á mótmælafólk á
Himinsfriðartorgi í vor, leiddi til
þess að mjög hefur dregið úr
ferðamannastraumi til landsins,
svo og erlendum fjárfestingum.
Af þessum sökum hætti Alþjóða-
bankinn í bráðina við að veita
Kína lán að upphæð 780 miljónir
dollara.
Hagvöxtur í Indlandi, mældur
út frá vergri þjóðarframleiðslu,
var um 9 af hundraði 1988-89 og
1989-90 er búist við að hann verði
5-6 af hundraði. 1987-88 var hag-
vöxtur þar aðeins 3,6 af hundraði
vegna þess að monsúnregnið
brást 1987. Að sögn bankans eru
Indlandi nú einkum til baga of
mikill halli á fjárlögum og verð-
bólga.
Alþjóðabankinn hrósar flest-
um Asíuríkjum fyrir skynsam-
lega fjármálastjórn og nefnir sem
dæmi að fá þeirra eigi við að
stríða óhagstæðan greiðslujöfnuð
og aðeins tvö þeirra, Filippseyjar
og Indónesía, séu stórskuldug er-
lendis. Hagvöxtur í Taílandi var
11 af hundraði s.l. ár, sem er met
þarlandsmanna, og 11,3 af
hundraði í Suður-Kóreu. Vöxtur-
inn í efnahagslífi Filippseyja nam
það ár 7 af hundraði, sem þykir'
góður árangur miðað við alvar-
legan efnahagssamdrátt þar
1983-85, mikinn skuldabagga og
borgarastríð.
Hagvöxtur í Indónesíu varð s. I.
ár4,7 af hundraði, sem þykirekki
svo illa að verið, miðað við lækk-
andi olíuprísa og mikla skulda-
byrði. Hagvöxtur í Bangladesh
var sama ár 2 af hundraði, jafn-
mikill í Laos og 2,7 af hundraði á
Sri Lanka. Flóð, þurrkar og óöld
hafa bagað mjög efnahagslífi
þessara ríkja.
Alþjóðabankinn hefur mestar
áhyggjur af Asíu vegna félags-
legra vandamála þar og mikillar
fólksfjölgunar, sem er þungur
baggi á auðlindum landanna. Um
500 miljónir manna í Iöndum
þeim, sem skýrslan nær til, eru
samkvæmt skilgreiningu bankans
undir fátæktarmörkum, og er það
um helmingur allra fátæklinga
heims, ef marka má sömu skil-
greiningu.
Reuter/-dþ.
Pólland
VIÐHORF
Framhald af 5 síðu
fjölda þeirra sem eru með
sambærilega menntun, starfs-
reynslu, pólitísk ítök, fjölskyldu-
og kunningjatengsl og ekki síst af
kyni viðkomandi.
Sameinaðar
stöndum við!!!
Samningsstaða kvenna er og
verður mjög veik í samanburði
við karlmenn. Konur hafa litla
eða einhæfa menntun og starfs-
reynsla þeirra er í flestum tilvik-
um minni en karla vegna þeirra
kvaða sem leggjast á konur við
barneignir. Jafnframt gera flestir
atvinnurekendur greinarmun á
því hvað þeir geta boðið körlum
og konum í kaup og kjör, konum
í óhag. Að öllu óbreyttu mun
veik samningsstaða kvenna birt-
ast í síauknum launamuni kynj-
anna. Konur munu í framtfðinni
ekki geta treyst á almennar að-
gerðir til að bæta stöðu sína. í
upplýsingaþjóðfélaginu verður
mög erfitt að fá yfirsýn yfir af-
komu einstakra hópa. Áhrif al-
mennra aðgerða sem miða að því
að bæta stöðu kvenna verða ó-
ljósari og því erfiðara að ná al-
mennri samstöðu um beinar að-
gerðir. Það eina sem gæti sporn-
að við þessari þróun er að konur,
hvaða stjórnmálaskoðunar sem
þær eru, sameinist og stofni sér
heildarsamtök á vinnu-
markaðinum sem hafa það að
leiðarljósi að bæta stöðu kvenna.
Konur, við getum ekki lengur
treyst því að aðrir séu svo skyn-
samir að gera sér grein fyrir og
vilji bæta úr því óréttlæti sem við
erum beittar á vinnumarkaðin-
um. Það er okkar að standa upp
og berjast fyrir breytingum.
Höfundur er hagfræðingur Alþýðu-
sambands íslands. Greinin er byggð á
erindi sem flutt var á landsþingi fram-
sóknarkvenna á Hvanneyri fyrir
skemmstu.
Stjornmalasamband
ísraela og Ungverja
Fullt stjórnmálasamband milli
ísraels og Ungverjalands var
tekið upp á ný í gær. Varð Ung-
verjaland fyrst til þess að taka
upp þetta samband að nýju
austantjaldsríkja þeirra, er slitu
stjórnmálasambandi við ísrael
1967. Síðan Gorbatsjov kom til
valda hafa ríki þessi smámsaman
gerst vinsamlegri í garð ísraels.
Pólverjar vilja
Rússaher burt
Margt manna mætti í kröfu-
göngur og á fundi víða um Pól-
land í gær til að minna á, að þann
dag voru 50 ár liðin frá því að
sovéski herinn réðist inn í Pól-
land, er pólski herinn átti sem
Nýr konungur
í Malajsíu
Azlan Muhibuddin Shah, sold-
án af Perak, tók í gær við konung-
dómi í Malajsíu við hátíðlega við-
mest að vinna í vörninni gegn
Þjóðverjum. Á sumum fundanna
var þess krafist að sovéski herinn
þarlendis, en í honum eru um
45,000 manns, færi heim. Fund-
irnir og göngurnar fóru fram með
leyfi hinnar nýju ríkisstjórnar og
er þetta í fyrsta sinn, sem menn
þarlendis minna opinberlega á
þennan innrásardag.
höfn. Er hann níundi konungur
ríkis þessa, sem er kjörkonung-
dæmi. Er því svo hagað til að
soldánar landsins, níu talsins,
kjósa í hásætið einn úr sínum
hópi á fimm ára fresti. Malajsía
varð sjálfstætt ríki 1957.
ítalir skjóta fugla
og hver annan
Árlegt veiðitímabil hófst á ítal-
íu í gær og fór þá á kreik um 1,2
miljón veiðimanna, er skutu á
næstum allt sem hreyfðist af
villtum dýrum og fuglum. Fyrsta
veiðidaginn særðust 10 veiði-
menn af skotum hvers annars,
þar af einn til bana. í þetta sinn
setja svip á veiðidagana umhverf-
isverndarsinnar í hundraðatali,
sem fara á undan veiðimönnum
og leitast við flæma frá þeim
bráðina með því að blása í flautur
og horn og skaka skellur.
Rakowski vill nýjan vinstnflokk
Frjálslyndari menn kommúnistaflokksins hyggjast losa sig við arf hans og stofna nýjanflokk á breiðum grundvelli.
Hinn þekkti andófsmaður Jacek Kuron kemur til með að hafa með höndum erfiðasta verkefni nýju stjórnarinnar
Fáeinum dögum eftir að ný rík-
isstjórn þar sem Samstaða ræður
mestu var mynduð í Póllandi
hvatti Mieczyslaw Rakowski, að-
alritari kommúnistaflokksins
þarlendis, til þess að stofnaður
yrði nýr vinstriflokkur. Stofninn
að þessum nýja flokki ætti að vera
frjálslyndari armur kommúnist-
aflokksins. Aðrir frjálslyndir
kommúnistar hafa áður haft orð
á þessu.
Rakowski ætlast til að hinn nýi
flokkur verði í stakkinn búinn til
þess að laða að sér vinstrisinnaða
Pólverja almennt. Hann segir
þann flokk verða að varpa fyrir
borð „úreltum kennisetningum"
og beita sér gegn íhaldssemi,
þröngsýnni þjóðernishyggju og
umburðarleysi yfirleitt.
Skiptar skoðanir í
kommúnistaflokki
Þessum spjótum er sennilega
beint bæði gegn íhaldssömum
kommúnistum og vissum um-
burðarleysistilhneigingum, sem
undanfarið hafa gert vart við sig
innan hinnar voldugu kaþólsku
kirkju landsins. Rakowski tók
við sem aðalritari kommúnista-
flokksins fyrir tæpum tveimur
mánuðum, eftir að hafa verið for-
sætisráðherra tíu mánuði. Síðan
hann tók við flokksforustu hefur
stemmningin verið heldur bág í
flokknum eftir ósigur hans í kosn-
ingunum í júní. Rakowski lítur að
líkindum á flokkinn sem þrotabú,
sem honum og öðrum frjáls-
lyndari mönnum hans sé best að
yfirgefa.
Sumir flokksmanna hans virð-
ast vera annarrar skoðunar um
það efni. Nýja stjórnin hefur
boðað að tekin verði upp mark-
aðsstefna í atvinnulífinu, jafn-
framt því sem róttækar ráðstafan-
ir verði gerðar til að draga úr
fjárlagahalla og stöðva verð-
bólgu. Hætt er við að ráðstafan-
irnar komi niður á iífskjörum al-
mennings, sem eru ekki of góð
fyrir, og að atvinnuleysi aukist
með því að óarðbær fyrirtæki
verði lögð niður.
Fangi í tíu ár
- nú ráðherra
Mikilvægu hlutverki í fram-
kvæmd stjórnarstefnunnar kem-
ur til með að gegna Witold Trzec-
iakowski, Samstöðumaður og
efnahagsmálaráðherra. Hann er
sagður ákafur frjálshyggjusinni í
efnahagsmálum. Vinnumálaráð-
herra er Jacek Kuron, einn
þekktustu og langreyndustu
andófsmanna pólskra stjórnmála
á valdatíð kommúnista. Hann
hefur átt í höggi við kommúnista-
flokk og valdhafa síðan 1956 og
samanlagt setið næstum tíu ár í
fangelsi.
Kuron átti öllum öðrum stærri
hlut að því að á s.l. áratug tókst
að koma á bandalagi því milli
menntamanna og verkamanna,
er leiddi til stofnunar Samstöðu
sem þrátt fyrir að hafa verið í
banni stjórnvalda mestallan
þennan áratug reyndist kommún-
istaflokknum um síðir ofjarl.
Kuron er af mörgum talinn snjall-
astur stjórnmálamaður Sam-
stöðuráðherranna, en margir
hinna hafa litla reynslu af
stjórnmálum almennt. Erfiðasta
verkefni K'urons verður að fá
verkalýðsarm Samstöðu til að
sætta sig við þau áföli, sem lífs-
kjör almennings kunna að verða
fyrir vegna efnahagsráðstafana
stjórnarinnar.
Yfirlýsing OPZZ
Það getur orðið þungur róður
og líkur eru á að verkalýðssam-
tökin OPZZ, sem eru á vegum
kommúnistaflokksins, muni
ganga þar á lagið. Þau hafa þegar
lýst því yfir að þau muni ekki sitja
þegjandi undir ráðstöfunum, sem
leiði til rýrnandi lífskjara og
aukins atvinnuleysis.
Yfirlýsingar bæði OPZZ og
Rakowskis endurspegla mjög
skiptar skoðanir um margt innan
kommúnistaflokksins. Sumir
vilja losa sig við fortíð flokksins
og stofna nýjan vinstriflokk á
breiðum grundvelli, aðrir not-
færa sér óánægju með ráðstafanir
Samstöðustjórnarinnar til þess
að grafa undan henni, í því
augnamiði að ná völdum á ný.
Sumir kunna að vilja hvort-
tveggja. Þegar til stóð fyrst eftir
kosningar að kommúnistar
mynduðu stjórn undir forustu
Czeslaws Kiszczak, sem nú er
orðinn varaforsætis- og innan-
ríkisráðherra í stjórn Mazowi-
Kuron - talinn snjallastur
stjórnmálamaður Samstöðu-
ráðherranna.
eckis, sáust þess merki að sumir
þeirra væru ekki ýkja hrifnir af að
takast það hlutverk á hendur,
með hliðsjón af ástandinu í efna-
hagsmálum. Nú hvílir sú byrði á
Samstöðu fyrst og fremst.
dþ.
6 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 19. september 1989