Þjóðviljinn - 20.09.1989, Side 1
Miðvikudagur 20. september 1989 159. tölublað 54. árgangur
Símamenn
Tældir til Raf iðnaðarsambandsins
Félag íslenskra símamanna mótmœlir afskiptum Rafiðnaðarsambands íslands af sínum málum.
Maðurrekinn úrFÍS fyrirað vinna fyrir Rafiðnaðarsambandið
Félag íslenskra símamanna
samþykkti á föstudag ályktun
þar sem síendurteknum af-
skiptum Rafiðnaðarsambands ís-
lands af innri málefnum Félags
íslenskra símamanna er mót-
mælt. Ragnhildur Guðmunds-
dóttir formaður Félags síma-
manna segir að félagsmönnum
hafi borist eyðublöð þar sem þeir
geti sagt sig úr símamannafé-
laginu og gengið yfir í Rafiðnað-
arsambandið. Hefur Félag ís-
lenskra símamanna rekið einn fé-
lagsmanna sinna fyrir að vinna að
málum Rafiðnaðarsambandsins
innan stjórnar FÍS.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Ragnhildur að um 80 símsmiðir
hefðu sagt sig úr FÍS að undan-
förnu með því að fylla út fyrr-
greind eyðublöð. Hún sagði að
Verðlagsráð
Mjolkur-
vömr lækka
Lítrinn af mjólk úr
70,20 krónum Í67,20.
Kílóið af nýslátruðu
dilkakjöti í2.flokki úr
409,30 krónum í
434,60. Innan-
landsfargjöld Flug-
leiða hœkka um 6,7%
Verðiagsráð ákvað á fundi sín-
um í gær lækkun á mjólk og
mjólkurvörum sem taka gildi í
dag. Sem dæmi má nefna að
mjólkurlítrinn lækkar úr 70,20
krónum í 67,50 eða um 3,8% og
kílóið af smjöri úr 546,30 krónum
í 512 eða um 6,3%.
Á fundinum var jafnframt
fjallað um hvort fresta ætti að
öllu Ieyti þeirri 1,% hækkun á
álagningu sem ákveðin var um
síðustu mánaðamót. Niðurstað-
an var að fresta helmingnum af
þeirri hækkun eða um 0,5%.
Þá heimilaði Verðlagsráð á
fundi sínum í gær hækkun á
innanlandsfargjöldum Flugleiða
um 6,7% en félagið fór fram á
10% hækkun. Taxtar leigubfla
hækka um 4,2% en farið var fram
á 7% hækkun og að síðustu
heimilaði Verðiagsráð hækkun á
gjaldskrá sendibfla um 3,1% en
þeir höfðu farið fram á svipaða
prósentuhækkun og leigubfl-
stjórar.
í fyrradag hækkaði verð á ný-
slátruðu kindakjöti um 6,2%
samkvæmt ákvörðun Verð-
lagsráðs en jafnframt var ákveðið
að gefa verð á slátri og innmat
frjálst. Verð á eldra kjöti verður
óbreytt en af því munu vera til í
landinu um 2.200 tonn. Sam-
kvæmt þessu hækkar verð á
dilkakjöti í 2. flokki úr 409,30
krónum hvert kfló í 434,60.
-grh
símsmiðirmr hefðu fengið send
tvö ólík eyðublöð þar sem annað
væri fyrir úrsögn úr FÍS og hitt
umsókn um aðild að Rafiðnað-
arsambandinu. Eyðublöðin
hefðu borist í umslagi merktu
Rafiðnaðarsambandinu ásamt
frímerktu umslagi til að senda
eyðublöðin á rétta staði.
Ragnhildur sagði Rafiðnaðar-
sambandið lengi hafa sóst eftir að
fá félaga FÍS í sínar raðir og
minnti á félagaskipti rafeinda-
virkja á sínum tíma. Nú væri sag-
an að endurtaka sig með síms-
miðina. Þetta væri þannig mál að
ástæða væri til að gefa því gaum.
Ragnhildur sagðist ekki viss um
Ekkert miðar í samkomulagsátt
í kjaradeilu starfsmanna ál-
versins við viðsemjendur þeirra.
Deiluaðilar sátu nánast aðgerða-
lausir í Karphúsinu í gærdag og
litlar sem engar sendingar áttu
sér stað á milli þeirra. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans hefur ekk-
ert verið hreyft við eiginlegum
kröfum álversmanna en aðeins
snert við minniháttar málum sem
auðvelt ætti að vera að ná
samkomulagi um.
Forstjóri álversins dr. Christi-
an Roth hefur ekki tekið beinan
þátt í viðræðum en birtist ásamt
Einari Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra tæknisviðs, um
fimmleytið í gær í Karphúsinu.
Þjóðviljinn hefur fregnað að það
að formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins yrði hrifinn ef forystu-
menn FÍS tækju sig til og sendu
sams konar eyðublöð til félaga
Rafiðnaðarsambandsins.
Með eyðublöðunum fylgdi
upplýsingabæklingur þar sem
hvergi var getið ábyrgðarmanns,
að sögn Ragnhildar. í bækli-
ngnum hefði verið gefið í skyn að
hagstæðara væri að vera í Rafiðn-
aðarsambandinu en FÍS. Þá
kæmu fram útreikningar í bækli-
ngnum á örorkubótum og ellilíf-
eyri sem ekki stæðust. Formaður
Rafiðnaðarsambandsins hefði
vitað af allri þessari vinnu í kring
um bæklinginn og eyðublöðin.
hafi verið vegna kröfu ríkissátta-
semjara, Guðlaugs Þorvalds-
sonar, að Roth var kvaddur á
staðinn, vegna þess að ríkissátta-
semjara hafi þótt lítið þokast í
samkomulagsátt. Þeir sem Þjóð-
viljinn ræddi við voru þó ekki
bjartsýnir á að skriður kæmist á
viðræðurnar þótt forstjórinn
kæmi á staðinn. Hann hefði ekki
vald til að sættast á launakröfur
álversmanna, sem væru stað-
ráðnir í að fara ekki frá samning-
aborði með lægri kauphækkun en
14-15%.
Eins og sagði í Þjóðviljanum í
gær, telja starfsmenn álversins
lítinn mun vera á þeirra hug-
myndum og samninganefndar at-
vinnurekenda þegar horft er til
heildarniðurstöðu samnings.
Hins vegar hefði maður í FÍS haft
forgöngu um þessi mál en hann
hefði verið félagi í báðum félögu-
num á ólíkum tímum. Félag ís-
Ienskra símamanna hefði nú rek-
ið þennan mann, Leó Ingólfsson,
úr félaginu, þar sem iðja hans
væri brot á lögum félagsins. Þjóð-
viljinn reyndi í gær án árangurs
að ná tali af Leó.
í Félagi ísienskra símamanna
eru um 900 félagar. Félagið skipt-
ist í sjö deildir og eru um 200
félagar í deild símsmiða. Ragn-
hildur sagði um 80 símsmiði hafa
sagt sig úr FÍS, sem er um 40%.
Það versta í málinu væri, að þess-
ir menn fengju alla sína menntun
Hins vegar setja atvinnurekend-
ur skilyrði inn í sínar hugmyndir
sem álversmenn ætla sér alls ekki
að ganga að. Einn starfsmanna
álversins, sem er í nánu sambandi
við samninganefnd, sagði at-
vinnurekendur vilja lækka launin
um eitt prósent á einum stað fyrir
hvert prósent sem væri gefið á
öðrum. Stærsta hindrunin fyrir
samningi eru samt sem áður skil-
yrði sem atvinnurekendur setja
um fjölda starfsmanna og tilhög-
un kaffitíma. En samninganefnd
starfsmanna hefur með öllu neit-
að að ræða þessi skilyrði, hvað þá
að fallast á þau.
Verkfall hefst formlega í álver-
inu á miðnætti hafi ekki samist
fyrir þann tíma.
-hmp
hjá Póst- og símamálaskólanum
en FÍS ynni nú að því að styrkja
stöðu þeirra með því að þyngja
námið í þeim tilgangi að fá fram
lögverndun á starfsheiti. Þegar
hefði náðst árangur í þessum mál-
um og Póst- og símamálastjóri
hefði nýlega samþykkt fyrir sitt
leyti hugmyndir frá FÍS í þessa
átt.
-hmp
Verkamanna-
sambandið
Vill fleiri
stóriðjur
Til að tryggja atvinnu
og tekjur
Stjórn og atvinnumálanefnd
Vcrkamannasambands íslands
lagði á það þunga áherslu á fundi
með Jóni Sigurðssyni iðnaðar-
ráðherra í gær að því langa hléi
ljúki sem orðið hefur á því að á-
kvarðanir verði teknar um nýjan
orkufrekan iðnað og nýjar stór-
virkjanir.
Á fundinum var meðal annars
rætt um nauðsyn þess að treysta
nndirstöður íslenska þjóðarbús-
ins með því að efla atvinnuvegi á
grundvelli orkulindanna. í frétt
frá VMSÍ segir orðrétt: „Fyrir-
sjáanlegur samdráttur í þorsk-
veiðum gerir það sérstaklega
brýnt að kyrrstaðan sem verið
hefur í þessum málum verði
rofin. Stækkun álversins í
Straumsvík og undirbúningur nýs
álvers ásamt tengdum stórvirkj-
unum eru afar mikilvæg verkefni
til þess að tryggja atvinnu og tekj-
ur í næstu framtíð, ekki síst fyrir
félaga í Verkamannasambandi
fslands".
-grh
Mjólkurfrœðingar
Verkfalli
aflýst
Samningar tókust um kvöld-
matarleytið í gær á milli mjólk-
urfræðinga og viðsemjenda
þeirra eftir rúmlega sólarhrings
samningalotu og hafa mjólkur-
fræðingar aflýst verkfalli.
Skrifað var undir samninginn
með fyrirvara um samþykkt Fé-
lags mjólkurfræðinga og er hann
á sömu nótum og samið var á
milli ASÍ og VSÍ fyrr á árinu, að
því undanskildu að mjólkurfræð-
ingar fá 4% áfangahækkun vegna
námsálags.
-grh
Samninganefnd starfsmanna álversins bjóst við löngum fundi þegar hún mætti hjá ríkissáttasemjara
klukkan 14 í gær. Mynd: Jim Smart
Álverið
Pattstaða í Karphúsi
Ekkert miðar ísamkomulagsátt íálversdeilunni. Starfsmenn sœtta sig
aldrei við minna en 14-15% kauphœkkun. Atvinnurekendur vilja klípa
hvert prósent sem gefið er, burtu annars staðar