Þjóðviljinn - 20.09.1989, Page 1

Þjóðviljinn - 20.09.1989, Page 1
Miðvikudagur 20. september 1989 159. tölublað 54. árgangur Símamenn Tældir til Raf iðnaðarsambandsins Félag íslenskra símamanna mótmœlir afskiptum Rafiðnaðarsambands íslands af sínum málum. Maðurrekinn úrFÍS fyrirað vinna fyrir Rafiðnaðarsambandið Félag íslenskra símamanna samþykkti á föstudag ályktun þar sem síendurteknum af- skiptum Rafiðnaðarsambands ís- lands af innri málefnum Félags íslenskra símamanna er mót- mælt. Ragnhildur Guðmunds- dóttir formaður Félags síma- manna segir að félagsmönnum hafi borist eyðublöð þar sem þeir geti sagt sig úr símamannafé- laginu og gengið yfir í Rafiðnað- arsambandið. Hefur Félag ís- lenskra símamanna rekið einn fé- lagsmanna sinna fyrir að vinna að málum Rafiðnaðarsambandsins innan stjórnar FÍS. í samtali við Þjóðviljann sagði Ragnhildur að um 80 símsmiðir hefðu sagt sig úr FÍS að undan- förnu með því að fylla út fyrr- greind eyðublöð. Hún sagði að Verðlagsráð Mjolkur- vömr lækka Lítrinn af mjólk úr 70,20 krónum Í67,20. Kílóið af nýslátruðu dilkakjöti í2.flokki úr 409,30 krónum í 434,60. Innan- landsfargjöld Flug- leiða hœkka um 6,7% Verðiagsráð ákvað á fundi sín- um í gær lækkun á mjólk og mjólkurvörum sem taka gildi í dag. Sem dæmi má nefna að mjólkurlítrinn lækkar úr 70,20 krónum í 67,50 eða um 3,8% og kílóið af smjöri úr 546,30 krónum í 512 eða um 6,3%. Á fundinum var jafnframt fjallað um hvort fresta ætti að öllu Ieyti þeirri 1,% hækkun á álagningu sem ákveðin var um síðustu mánaðamót. Niðurstað- an var að fresta helmingnum af þeirri hækkun eða um 0,5%. Þá heimilaði Verðlagsráð á fundi sínum í gær hækkun á innanlandsfargjöldum Flugleiða um 6,7% en félagið fór fram á 10% hækkun. Taxtar leigubfla hækka um 4,2% en farið var fram á 7% hækkun og að síðustu heimilaði Verðiagsráð hækkun á gjaldskrá sendibfla um 3,1% en þeir höfðu farið fram á svipaða prósentuhækkun og leigubfl- stjórar. í fyrradag hækkaði verð á ný- slátruðu kindakjöti um 6,2% samkvæmt ákvörðun Verð- lagsráðs en jafnframt var ákveðið að gefa verð á slátri og innmat frjálst. Verð á eldra kjöti verður óbreytt en af því munu vera til í landinu um 2.200 tonn. Sam- kvæmt þessu hækkar verð á dilkakjöti í 2. flokki úr 409,30 krónum hvert kfló í 434,60. -grh símsmiðirmr hefðu fengið send tvö ólík eyðublöð þar sem annað væri fyrir úrsögn úr FÍS og hitt umsókn um aðild að Rafiðnað- arsambandinu. Eyðublöðin hefðu borist í umslagi merktu Rafiðnaðarsambandinu ásamt frímerktu umslagi til að senda eyðublöðin á rétta staði. Ragnhildur sagði Rafiðnaðar- sambandið lengi hafa sóst eftir að fá félaga FÍS í sínar raðir og minnti á félagaskipti rafeinda- virkja á sínum tíma. Nú væri sag- an að endurtaka sig með síms- miðina. Þetta væri þannig mál að ástæða væri til að gefa því gaum. Ragnhildur sagðist ekki viss um Ekkert miðar í samkomulagsátt í kjaradeilu starfsmanna ál- versins við viðsemjendur þeirra. Deiluaðilar sátu nánast aðgerða- lausir í Karphúsinu í gærdag og litlar sem engar sendingar áttu sér stað á milli þeirra. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans hefur ekk- ert verið hreyft við eiginlegum kröfum álversmanna en aðeins snert við minniháttar málum sem auðvelt ætti að vera að ná samkomulagi um. Forstjóri álversins dr. Christi- an Roth hefur ekki tekið beinan þátt í viðræðum en birtist ásamt Einari Guðmundssyni, fram- kvæmdastjóra tæknisviðs, um fimmleytið í gær í Karphúsinu. Þjóðviljinn hefur fregnað að það að formaður Rafiðnaðarsam- bandsins yrði hrifinn ef forystu- menn FÍS tækju sig til og sendu sams konar eyðublöð til félaga Rafiðnaðarsambandsins. Með eyðublöðunum fylgdi upplýsingabæklingur þar sem hvergi var getið ábyrgðarmanns, að sögn Ragnhildar. í bækli- ngnum hefði verið gefið í skyn að hagstæðara væri að vera í Rafiðn- aðarsambandinu en FÍS. Þá kæmu fram útreikningar í bækli- ngnum á örorkubótum og ellilíf- eyri sem ekki stæðust. Formaður Rafiðnaðarsambandsins hefði vitað af allri þessari vinnu í kring um bæklinginn og eyðublöðin. hafi verið vegna kröfu ríkissátta- semjara, Guðlaugs Þorvalds- sonar, að Roth var kvaddur á staðinn, vegna þess að ríkissátta- semjara hafi þótt lítið þokast í samkomulagsátt. Þeir sem Þjóð- viljinn ræddi við voru þó ekki bjartsýnir á að skriður kæmist á viðræðurnar þótt forstjórinn kæmi á staðinn. Hann hefði ekki vald til að sættast á launakröfur álversmanna, sem væru stað- ráðnir í að fara ekki frá samning- aborði með lægri kauphækkun en 14-15%. Eins og sagði í Þjóðviljanum í gær, telja starfsmenn álversins lítinn mun vera á þeirra hug- myndum og samninganefndar at- vinnurekenda þegar horft er til heildarniðurstöðu samnings. Hins vegar hefði maður í FÍS haft forgöngu um þessi mál en hann hefði verið félagi í báðum félögu- num á ólíkum tímum. Félag ís- Ienskra símamanna hefði nú rek- ið þennan mann, Leó Ingólfsson, úr félaginu, þar sem iðja hans væri brot á lögum félagsins. Þjóð- viljinn reyndi í gær án árangurs að ná tali af Leó. í Félagi ísienskra símamanna eru um 900 félagar. Félagið skipt- ist í sjö deildir og eru um 200 félagar í deild símsmiða. Ragn- hildur sagði um 80 símsmiði hafa sagt sig úr FÍS, sem er um 40%. Það versta í málinu væri, að þess- ir menn fengju alla sína menntun Hins vegar setja atvinnurekend- ur skilyrði inn í sínar hugmyndir sem álversmenn ætla sér alls ekki að ganga að. Einn starfsmanna álversins, sem er í nánu sambandi við samninganefnd, sagði at- vinnurekendur vilja lækka launin um eitt prósent á einum stað fyrir hvert prósent sem væri gefið á öðrum. Stærsta hindrunin fyrir samningi eru samt sem áður skil- yrði sem atvinnurekendur setja um fjölda starfsmanna og tilhög- un kaffitíma. En samninganefnd starfsmanna hefur með öllu neit- að að ræða þessi skilyrði, hvað þá að fallast á þau. Verkfall hefst formlega í álver- inu á miðnætti hafi ekki samist fyrir þann tíma. -hmp hjá Póst- og símamálaskólanum en FÍS ynni nú að því að styrkja stöðu þeirra með því að þyngja námið í þeim tilgangi að fá fram lögverndun á starfsheiti. Þegar hefði náðst árangur í þessum mál- um og Póst- og símamálastjóri hefði nýlega samþykkt fyrir sitt leyti hugmyndir frá FÍS í þessa átt. -hmp Verkamanna- sambandið Vill fleiri stóriðjur Til að tryggja atvinnu og tekjur Stjórn og atvinnumálanefnd Vcrkamannasambands íslands lagði á það þunga áherslu á fundi með Jóni Sigurðssyni iðnaðar- ráðherra í gær að því langa hléi ljúki sem orðið hefur á því að á- kvarðanir verði teknar um nýjan orkufrekan iðnað og nýjar stór- virkjanir. Á fundinum var meðal annars rætt um nauðsyn þess að treysta nndirstöður íslenska þjóðarbús- ins með því að efla atvinnuvegi á grundvelli orkulindanna. í frétt frá VMSÍ segir orðrétt: „Fyrir- sjáanlegur samdráttur í þorsk- veiðum gerir það sérstaklega brýnt að kyrrstaðan sem verið hefur í þessum málum verði rofin. Stækkun álversins í Straumsvík og undirbúningur nýs álvers ásamt tengdum stórvirkj- unum eru afar mikilvæg verkefni til þess að tryggja atvinnu og tekj- ur í næstu framtíð, ekki síst fyrir félaga í Verkamannasambandi fslands". -grh Mjólkurfrœðingar Verkfalli aflýst Samningar tókust um kvöld- matarleytið í gær á milli mjólk- urfræðinga og viðsemjenda þeirra eftir rúmlega sólarhrings samningalotu og hafa mjólkur- fræðingar aflýst verkfalli. Skrifað var undir samninginn með fyrirvara um samþykkt Fé- lags mjólkurfræðinga og er hann á sömu nótum og samið var á milli ASÍ og VSÍ fyrr á árinu, að því undanskildu að mjólkurfræð- ingar fá 4% áfangahækkun vegna námsálags. -grh Samninganefnd starfsmanna álversins bjóst við löngum fundi þegar hún mætti hjá ríkissáttasemjara klukkan 14 í gær. Mynd: Jim Smart Álverið Pattstaða í Karphúsi Ekkert miðar ísamkomulagsátt íálversdeilunni. Starfsmenn sœtta sig aldrei við minna en 14-15% kauphœkkun. Atvinnurekendur vilja klípa hvert prósent sem gefið er, burtu annars staðar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.