Þjóðviljinn - 03.10.1989, Blaðsíða 8
ERLENDAR FRÉTTIR
Quebec
Frjálslyndir töpuðu en héldu velli
Kosið var á mánudag í s.l. viku
til þings kanadíska fylkisins
Quebec, þar sem mikill meirihluti
íbúa er franskættaður og
frönskumælandi. Frjálslyndi
flokkurinn, sem er helsti stjórn-
arandstöðuflokkur í Kanada og
stjórnar í Quebec, tapaði að vísu
nokkru fylgi en fékk þó rúmlega
50 af hundraði atkvæða og yfir 90
þingsæti af 125.
Helsti andstæðingur frjáls-
lyndra í fylkinu, Quebecflokkur-
inn sem vill að fylkið segi skilið
við Kanada og verði sjálfstætt
ríki, fékk yfir 40 af hundraði at-
kvæða og um 30 þingsæti. Kan-
adamenn hafa kjördæmakerfi
svipað því breska og veldur það
því að þingsæti skiptast oft á
flokkana í takmörkuðu samræmi
við fylgi þeirra.
Þrátt fyrir það að skilnaðar-
sinnar njóti mikils fylgis í Quebec
og ynnu nokkuð á í kosningunum
er litið á úrslit þeirra sem allgóða
útkomu fyrir frjálslynda. Que-
becflokkurinn hafði mestan byr í
seglin á s.l. áratug og fremur ólík-
legt er talið að hann nái á næst-
unni fylgi á við það sem hann
hafði þá.
Frá Quebec
Noregur
Vændis-
hneyksli
íOsló
Lögreglan í Osló hefur nú til
rannsóknar skipulagt vændi þar í
borg. Að sögn hafa allmargar
stúlkur verið fluttar inn frá Mið-
Amcríku, Vestur-Indíum og Taí-
landi til þess að stunda vændi í
höfuðborg Noregs, þar á meðal
um 20 frá Dóminíkanska lýðveld-
inu.
Þrír menn hafa verið hand-
teknir vegna þessa máls, þeirra á
meðal þekktur íþróttamaður
norskur, og Vestur-Þjóðverji
nokkur er sagður hafa verið einn
aðalmaðurinn á bak við starfsemi
þessa. Lögreglan komst á snoðir
um þetta er taílensk stúlka skýrði
henni frá vændisrekstrinum.
Stúlkan skýrði svo frá að taí-
lensku stúlkurnar, sem hér eiga
hlut að máli, hefðu komið til Nor-
egs sem ferðamenn. Hún segist
sjálf hafa verið ráðin til þess arna
á bar í Bangkok. Eftir komuna til
Osióar fékk hún íbúð til umráða
og tók þar á móti viðskiptavinum
í tvo mánuði. Upp úr þessu hafði
hún um 100.000 krónur norskar.
Danmörk
Fyrstu homma-
hjónaböndin
Danska þjóðkirkjan
klofin í málinu
Axel og Eigil Axgil, sá fyrr-
nefndi 74 ára og hinn 67, voru
gefnir saman í hjónaband í ráð-
húsi Kaupmannahafnar á sunnu-
dag. Vígslan var borgaraleg. Þeir
félagar, sem hafa verið kærustup-
ar f fjóra áratugi, urðu fyrstir
homma til að verða hjón eftir að
lög, sem leyfa hommum og lesbí-
um að stofna til hjónabands,
gengu í giidi í Danmörku. Ekkert
annað land í heimi hefur enn lög-
leitt slík hjónabönd.
Vinir brúðhjónanna stráðu yfir
„þau“ hrísgrjónum er út úr ráð-
húsinu var komið, sennilega óvit-
andi þess að þar er um forna
frjósemdartöfra að ræða. Fyrir
utan þá Axel og Eigil létu tíu
hommapör gefa sig saman í
Kaupmannahafnarráðhúsi á
sunnudaginn. Hinsvegar hafa
enn engar lesbíur mætt þar í sama
skyni. Hommahjón njóta nú
dönskum iögum samkvæmt að
öllu leyti sömu réttinda og önnur,
að því frátöldu að þau mega ekki
ættleiða börn.
Innan dönsku þjóðkirkjunnar
standa enn deilur um. hvort for-
svaranlegt sé að veita slíkum
hjónum blessun kirkjunnar. Ole
Berthelsen, Kaupmannahafnar-
biskup, er því hlynntur en Thork-
ild Græsholt, biskup af Lálandi
og Falstri, hefur sagt að kirkjan
blessi vissulega hjónabönd, en
þau séu samkvæmt skilgreiningu
sambönd karla og kvenna.
Reuter/-dþ.
' irðisaukaskattur verðurtekinn upp í
stað söluskatts hinn 1. janúar 1990.
Virðisaukaskattur er nútímaskattkerfi sem er
sniðið að efnahags- og viðskiptalífi samtímans.
Hann er innheimtur af innlendum viðskiptum,
innfiuttum vörum og þjónustu.
Innheimtan dreifist
á öll stig viðskipta
I framleiðslufyrirtæki, milliliðir og
smásalar innheimta og skila sínum hluta virðisauka-
skattsins. Þetta aðgreinir skattinn frá söluskattinum en
þar fer innheimtan oftast fram á síðasta stigi.
Innskattur - útskattur
Fvert fyrirtæki innheimtir virðisaukaskatt
af allri sölu sinni. Sá skattur er nefndur útskattur. öll
aðföng fyrirtækis eru keypt með skatti. Sá skattur er hins
vegar nefndur innskattur.
Fyrirtækið skilar mismun útskatts og innskatts í
ríkissjóð. Ef innskattur er hærri en útskattur endur-
greiðir ríkissjóður mismuninn.
Skattur af virðisauka
rádráttur innskatts frá útskatti veldur því
að hvert fyrirtæki - hver hlekkur í framleiðslu- og
sölukeðjunni - innheimtir aðeins skatt af verðmætis-
aukningunni sem á sér stað í þv( fyrirtæki, þ.e. af þeim
virðisauka sem myndast í fyrirtækinu.
Víðtæk frádráttarheimild
m yrirtæki má ekki aðeins draga frá
innskattinn af vörum sem það kaupirtil endursölu,
einnig má draga frá innskatt af rekstrar- og fjárfestingar-
kostnaði, svo sem orku, vélum og byggingarkostnaði.
Hest öll viðskipti
og þjónusta er skattskyld
llmennt eröll sala vöru og þjónustu
skattskyld. Þeir sem stunda viðskipti með skattskylda
vöru eða þjónustu í atvinnuskyni innheimta virðisauka-
skatt og standa skil á honum (ríkissjóð.
Tiltekin vinna og þjónusta er undanþegin af
félagslegum eða tæknilegum ástæðum, s.s.
heilbrigðisþjónusta, menningarstarfsemi, íþrótta-
starfsemi, bankaþjónusta og vátryggingarstarfsemi.
Aðilar sem eingöngu hafa með höndum þessa
starfsemi eru ekki skattskyldir.
Mjög lítil fyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem selja
skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en 122.400 kr.
á ári, eru heldur ekki skattskyld.
Þeir sem ekki eru skattskyldir fá engan innskatt af
aðföngum endurgreiddan.
Hvað?
Hvemig?
v a ■ .•< v- - 'Y’ ■ y...4 ^>ví irann
Hvemig er virðisaukaskattur
innheimtur?
Við skulum fylgja innfluttu heimilistæki frá tollafgreiðsiu til
neytanda (miðað er við 22% vsk.):
Heildsali flytur inn heimilistæki.
Tollverð tækisins er............................ 1.000 kr.
Tollstjóri innheimtir22% vsk. aftollverðinu..... _220_kr.
Heildsalinn greiðir samtals .................... 1.220 kr.
Tollstjóri skilar 220 kr. í ríkissjóð. Heildsalinn skuldfærir ríkissjóð í
bókhaldi sínu fyrir þessari upphæð, þ.e. færir sömu upphæð til
frádráttar skattskilum sínum.
Heildsalinn leggur 700 kr. á tækið og selur það til smásala á
................................................ 1.700 kr.
Heildsalinn innheimtir22% vsk. af söluverðinu..... 374 kr.
Smásalinn greiðir samtals....................... 2.074 kr.
Heildsalinn hefur þá innheimt 374 kr. í virðisaukaskatt en við skil á
skattinum í ríkissjóð dregur hann frá 220 kr. sem hann hefur áður
skuldfært rlkissjóð fyrir. Hann greiðir því 154 kr. í virðisaukaskatt.
Smásalinn færir 374 kr. til frádráttar í bókhaldi sínu.
Loksselursmásalinntækiðtilneytandaá............. 2.300 kr.
og að auki kemur 22% vsk........................... 506 kr.
Neytandinn greiðir.............................. 2.806 kr.
Smásalinn skilar 132 kr. f rikissjóð (506 kr. -374 kr. = 132 kr.).
Hvað hefur gerst?
Virðisaukaskatturinn er innheimtur á öllum stigum:
Tollstjóri skilaði..777.................... 220 kr.8
; Heildsalinn skilaöi...............................154 kr.
Smásalinn skilaði .................................132 kr.
. Virðisaukaskattursamtals, þ.e. sú upphæð
sem neytandinn greiddi................................ 506 kr.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN