Þjóðviljinn - 13.10.1989, Qupperneq 5
• •
________________________________________________
, VMSÍ
Ihaldssemi hamlar breytingum
Uudmundur J. Guðmundsson: Afstýrum atvinnuleysi og tryggjum kaupmáttinn
Þing _ Vcrkamannasam-
bands Islands hófst í gær.
Við setningu þess lagði formaður-
inn Guðmundur J. Guðmunds-
son áherslu á að afstýra þurfi
atvinnuleysi, - auka þurfi afla-
verðmæti til að mæta minnkandi
aflakvóta og að verkafólk vcrði
að vera óhrætt við samstarf við
atvinnurekendur, ríkisstjórn og
stjórnmálaflokka um aukna stór-
iðju og virkjanir.
Formaðurinn sagði verka-
lýðshreyfinguna alltof skorðaða í
gömul vinnubrögð og stirða
starfshætti. Undir það síðar-
nefnda tók félagsmálaráðher-
rann Jóhanna Sigurðardóttir i
ávarpi sínu.Hún sagði íhaldsemi,
sérhyggjusjónarmið og tregðu-
lögmál ríkjandi.
I umræðum seinna á þinginu í
gær tók framkvæmdastjóri VMSÍ
Þórir Daníelsson undir orð þeirra
beggja og sagði að íhaldsemin
sýndi sig best í því að engin mál
innan VMSÍ hefðu fengið betri
undirbúning en einmitt skipu-
lagsmál þess. En á þinginu í gær
var endanlega samþykkt að
skipta VMSÍ í þrjár deildir: fisk-
vinnsludeild, byggingariðnaðar-
Rafiðnaðarmenn
Allt í hers höndum
Verkfallsverðir bornir út úr Þjóðleikhúsinu í
gœrkvöldi. Allar undanþágur til Ríkissjón-
varpsins dregnar til baka í gær, en sjónvarpað
samt. Aðgerðirnar „vegna óbilgirni samn-
inganefndar ríkisins“
Verkfallsnefnd rafiðnaðar-
manna dró í gær til baka allar
undanþágur til Ríkissjónvarpsins
„vegna óbilgirni samninganefnd-
ar ríkisins“ eins og segir í orð-
sendingu þeirra sem afhent var
yfirstjórn sjónvarpsins. Ver-
kfallsverðir voru bæði inni í hús-
inu og eins fyrir utan. Þar var
lögregla einnig en hafðist ekkert
að. Tafðist útsending sjónvarps-
ins af þessum sökum, en verkr
fallsvörðum tókst ekki að stöðva
útsendingu. Þá tóku verkfalls-
verðir sér einnig stöðu fyrir utan
spennistöð Þjóðleikhússins af
sömu ástæðu til að koma í veg
fyrir sýningu á söngleiknum Oli-
ver í gærkvöld. Lyktaði því með
að dyraverðir Þjóðleikhússins
báru verkfallsverði út úr húsinu
skömmu fyrir sýningu, og fór sýn-
ingin fram. Þá voru einnig í gær
dregnar til baka þær undanþágur
sem veittar höfðu verið Ríkisspít-
ölunum þann 27. september og
féllu þær úr gildi klukkan 17,30 í
gær. Frá þeim tíma verða unda-
nþágur aðeins veittar til viðgerða
á hjúkrunardeildum á þeim
nauðsynlega búnaði sem þarf til
að tryggja öryggi sjúklinga. Ef
annar búnaður bilar þarf að
sækja um undanþágu til við-
gerða.
Sáttafundi í deilu rafiðnaðar-
manna og ríkisins var fram haldið
í gær frá klukkan 14 hjá ríkissátt-
asemjara og stóð til kl kl. 20.
Fundur var boðaður á ný kl 22 í
gærkvöld. Að sögn Magnúsar
Geirssonar formanns Rafiðnað-
arsambandsins hafa deiluaðilar
frekar færst til sátta en hitt, en þó
sagði Magnús að það gæti brugð-
ið til beggja vona um framhaldið
þegar líða tæki á kvöldið. í fyrri-
nótt voru samninganefndirnar að
fram til klukkan þrjú um nóttina.
Verkfallsmenn dreifðu í fyrra-
kvöld dreifibréfi til leikhúsgesta
deild og starfsmannadeild ríkis
og sveitarfélaga.
Kjara- og atvinnumál eru meg-
inverkefni þingsins í ár. Guð-
mundur J. Guðmundsson segir
að á þinginu verði lagðar fram
tillögur um hvernig mæta skuli
minnkandi aflakvóta, hefta út-
flutning ferskfisks og skýr stefna
verði mörkuð um afstöðu VMSÍ
til orkufreks iðnaðar. í tillögu um
aukna stóriðju verður tekið tillit
til umhverfis- og náttúruverndar,
segir Guðmundur.
Jóhann Antonsson viðskipta-
fræðingur flutti erindi á þinginu í
gær og lagði fram hugmyndir um
lögfestingu landana íslenskra
fiskiskipa á fiskmörkuðum hér-
lendis. Hann taldi jarðgangagerð
á Aust- og Vestfjörðum algera
forsendu þess að tengja megi
saman fiskmarkaðina og að kom-
ið yrði á upplýsingamiðsstöð fyrir
fiskiskip á hafi úti, um gengi ák-
veðinna fisktegunda á mörku-
ðunum og eftirspurn.
Slagurinn um hver erfir vara-
formannssætið fari Karvel
Pálmason frá stóð enn yfir í gær-
kvöldi. Telja má víst að kratar
reyni að afgreiða innbyrðis slag
um það með sem minnstum upp-
hlaupum. Hinsvegar má búast
við opnum deilum á þinginu um
vaxtastefnuna. Sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson í ræðu sinni
að „allt væri að hrynja vegna
vaxtakostnaðar, bæði fyrirtækja
og einstaklinga".
Þing VMSfsitja 144 fulltrúar af
153 sem rétt eiga til setu. Þar af
eru 69 konur. Þingforseti er Jón
Karlsson formaður Fram á
Sauðárkróki, en hann er sem
stendur líklegasti fulltrúi krata til
uppstillingar í varaformanns-
embættið. -fmg
Verkfallsverðir rafiðnaðarmanna voru beittir valdi og bornir út úr Þjóðleikhúsinu við upphaf sýningar á
söngleiknum Oliver í gærkvöldi. Höfðu þeir þá reynt að hindra Þjóðleikhússtjóra í að kveikja á Ijósum og
hljómtækjum sem notuð eru á sýningunni. - Mynd: Kristinn.
Þjóðleikhússins þar sem segir:
„Ágæti leikhúsgestur: Nú þegar
þú gengur inn til þess að njóta
sýningar á söngleiknum Oliver
viljum við benda þér á nokkrar
staðreyndir. 1. Við sýninguna
starfa að jafnaði 6 rafiðnaðar-
menn en þeir eru nú í verkfalli. 2.
Þjóðleikhússtjóri gengur í störf
rafiðnaðarmanna. 3. Engin
hljóðblöndun á sér stað í leiksýn-
ingunni. 4. Sýningunni hefur ver-
ið breytt frá frumgerð. 5. Þú
greiddir fullt verð fyrir gallaða
vöru. Mundir þú gera það annars
staðar? Verkfallsnefnd rafiðnað-
armanna.“
-grh
Starfsmannaskrá ríkisins
Lýðræðisleg upplýsingaskylda
Starfsmannaskrá ríkisins dreift til alþingismanna og fjölmiðla í gær.
Ekki verið gert í tœp 5 ár, þrátt fyrir lagaskyldu
Heilbrigðisráðherra
Dauðanefnd
skipuð
Heilbrigðisráðherra hcfur
skipað nefnd til að gera tillögur
um löggjöf um skilgreiningu
dauða og brottnám líffæra til
ígræðslu í aðra.
Hér á landi hefur dauðinn ver-
ið skilgreindur út frá hjarta-
dauða. Maður er látinn þegar
hjartað hættir að slá. Víða er-
■endis er hinsvegar miðað við
heiladauða svo hægt sé að nota
heil líffæri til ígræðslu. Allsstaðar
þar sem fjallað hefur verið um
skilgreiningu dauðans hefur það
orðið að miklu hitamáli.
Dauðanefndina skipa þau
Ólafur Ólafsson landlæknir, Páll
Ásmundsson læknir, Sigfinnur
Þorleifsson prestur, Sigþrúður
Ingimundardóttir hjúkrunar-
fræðingur, Þórður Harðarson
læknir og Páll Sigurðsson ráðu-
neytisstjóri og er hann formaður
nefndarinnar. Ritari nefndarinn-
ar er Dögg Pálsdóttir lögfræðing-
ur.
-Sáf
r
Eg er að sinna þeirri upplýs-
ingaskyldu minni að starfs-
mannaskrá ríkisins sé opin bók,
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, þegar hann af-
henti ijölmiðlum tölvuútskrift
yfir alla starfsmenn ríkisins og
stofnana þess í gær. Ráðherrann
sagði að þessi skrá hefði ekki ver-
ið gefin út í tæp fimm ár þó lög
kvæðu á um að hún ætti að fylgja
fjárlagafrumvarpi hvers árs.
Með birtingu skrárinnar sagði
Ólafur að alþingismönnum og
öðrum ætti að vera ljóst hvernig
starfsmannahaldi ríkisins væri
háttað.
í starfsmannaskrá ríkisins
kemur fram hverjir starfa hjá rík-
inu, hj á hvaða stofnunum og hver
launakjör þeirra eru. Einnig er
að finna upplýsingar um heimild-
ir einstakra stofnana til að ráða
starfsfólk og hvað margir hafa í
raun verið ráðnir umfram heim-
ildir. Nokkuð er um að ráðið sé
umfram heimildir, en í tilkynn-
ingu frá fjármálaráðuneytinu
segir að langflestar ráðningar
umfram heimildir helgist af tíma-
bundnum verkefnum sem ráðið
hafi verið í til skamms tíma.
Um 14 þúsund manns vinna
hjá ríkinu, lang flestir falla undir
menntamálaráðuneyti eða 5.471
starfsmaður. Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið kemur
þaráeftir með 3.031 ogsamgöng-
uráðuneytið lendir í þriðja sæti
með 2.179 starfsmenn. Stofnanir
sem heyra undir einstök ráðu-
neyti eru þarna með taldar.
Fjármálaráðherra sagði upp-
lýsingaskyldu vera hluta af þeim
skyldum sem stjórnvöld þyrftu að
sinna í lýðræðisþjóðfélagi eins og
á íslandi. Starfsmannaskrá ætti
að vera opin bók. Starfsmanna-
skráin upplýsir ekki heildartekj-
ur ríkisstarfsmanna, aðeins
hvaða grunnlaun þeir hafa.
Ólafur Ragnar sagði að unnið
væri að sérstakri athugun á yfir-
vinnu í ráðuneytum og stofnun-
um og hann myndi leggja fram
skýrslu um þau mál innan tíðar.
-hmp
ABR
Gegn erlendu eignarhaldi
Stuðningur við rafiðnaðarmenn
Almcnnur félagsfundur Al-
þýðubandalagsins í Rcykja-
vík sl. miðvikudag skorar á ráð-
herra Alþýðubandalagsins að
beita sér fyrir lagasetningu sem
bannar sölu íslenskra atvinnufyr-
irtækja til útlendra aðila.
19 félagar ABR fluttu þessa
ályktun á fundinum og var hún
samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Þá greiddi þorri fundarmanna
atkvæði með ályktun þar sem lýst
var „yfir fullum stuðningi við raf-
iðnaðarmenn sem nú eiga í harðri
kjarabaráttu við ríkisvaldið,“
einsog segir orðrétt í ályktuninni.
-Sáf
Föstudagur 13. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SlÐA 5