Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 17
Stjornandi BJORN BJÓRNSSON Utsetnmgar ARNISCHEVING Ljos: KONRAÐ SIGURÐSSON Tækmmaður JON STEINÞORSSON. Pöntunarsimi Virka daga frá kl. 9-17. s' 29900 Fostud og laugard eftirkl 17. s 20221. Úr suðrænni sól Sparifjáreigendur Bera spariskírteinin ykkar "skúffuvexti"? Um þessar mundir eru nokkrir flokkar spari- skírteina innleysanlegir. Gleymist að innleysa þau á réttum tíma er hætt við að farið sé á mis við hærri raunvexti. Við ráðleggjum ykkur hvaða spari- skírteini er rétt að innleysa og sjáum um endur- fjárfestingu í nýjum spariskírteinum, bankabréfum eða öðrum öruggum verðbréfum. Eigendur og útgefendur skuldabréfa: Vegna mikillar eftirspumar óskum við eftir góðum skuldabréfum í umboðssölu. _ ffármát eru okkar fag! SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568 Jóse Luis Garcia frá Hondúras og Carlos Alberto Mendez frá Kól- umbíu bjóða norðannepjunni birginn: Ekkert fararsnið á okkur Kræsingarnar komnar á disk. Carlos við matartilbúnaðinn í eldhús- inu á Hótel Norðurlandi. Jóse fylgist álengdar með að allt fari fram samkvæmt settum reglum. Mynd: -rk. - Annars leiðist mér þessi mynd sem dregin er upp af Kól- umbíu í fjölmiðlum. Það er ekki annar hver Kólumbíumaður fé- lagi í kókaín-mafíunni, eins og fréttir gefa til kynna... Jóse grípur inní og bendir á fréttaflutninginn frá íslandi í fjöl- miðlum í Hondúras af verkföll- unum sl. vor til marks um hve fréttirnar eru oft fjarri sönnu lagi. - Ég fór heim meðan á verkfall- inu stóð og það sem sagt var í fréttum úti var einsog allt væri á heljarþröminni hér á íslandi. Ég átti erfitt með að sannfæra mömmu um það rétta - að þetta væri ekki eins ferlegt einsog af var látið. -rk Akureyri - íslenskt þjóðlíf hefur á undanförnum árum öðlast æ alþjóðlegra yfir- bragð. Hér á landi hefur sest að töluverður fjöldi fólks af framandi þjóðerni og kynþátt- um, sem gefur þjóðinni fjöl- breyttarayfirbragð. Ekki verð- ur annað merkt en ágætlega fari á með landanum og að- komufólkinu. Það er því af sem áður var þegar íslensk stjórnvöld óskuðu aðeins eftir kynhreinum dátum þegar bandarískt setulið leysti Bret- ann af undir lok seinni heimsstyrjaldar. Tíðindamað- ur Nýs Helgarblaðs rakst á tvo af þessum „aðskotahlutum" á Akureyri á dögunum - Carlos Alberto Mendez frá Kólumbíu og Jóse Luis Garciafrá Hond- úras. Carlos starfar sem matargerð- armaður á Hótel Norðurlandi á Akureyri og hyggur á að taka kokkinn, en Jóse vinnur á teikni- stofu og hnoðar flatkökubotna fyrir matargesti einn dag í viku. Aðspurður hvort þýði að bjóða matargestum upp á suður- ameríska rétti segir Carlos ýmis vandkvæði vera á því. - Ekki svo að skilja að íslendingar vilji ekki bragða framandi rétti. Ástæðan er sú að það er erfitt að nálgast rétta hráefnið í matargerðina og það litla sem er fáanlegt er of dýrt. En hvað rekur unga menn til að fara úr suðrænni sól og setjast að hér norður á hjara veraldar? Báðir komu þeir upphaflega hingað til lands sem skiptinemar. Carlos kom hingað 1985 og var í vist á Akranesi, en Jóse kom ári síðar og vistaðist í Reykjavík. Svo vel líkaði þeim viðkynningin við land og þjóð að þeir gátu báð- ir hugsað sér að ílendast hér, alla vega um nokkurt skeið. Og leiðir þeirra lágu saman á Akureyri. - Við vitum ekki hvort við komum til með að setjast hér að til frambúðar. Það er ekkert af- ráðið í þeim efnum. En við erum ekki á förum á næstunni, segir Carlos, sem er fyrir svörum. - Vissulega er ólíkt að vera hér á íslandi og heima, segir Jóse - Íietta eru svo gjörólík samfélög, sland og Hondúras, en samt er ekkert mál að láta sér líka við land og þjóð. Báðir eru þeir fóstbræður sæmilega talandi á íslenska tungu. En hvernig gekk þeim að ná tökum á málinu? - Meðan ég var á Akranesi og sótti Fjölbrautaskólann gekk það illa. Það var ekki fyrr en síðar að ég fór að vinna sem þetta fór að koma. Það er tvennt ólíkt að ætla að læra mál á skólabekk og hins vegar með því að reyna að lifa með málinu, segir Carlos. Jóse segir að hann hafi ákveðið að sækja námskeið á vegum Náms- flokkanna í íslensku fyrir útlend- inga. - Eftir því sem ég best veit erum við aðeins tveir hér á landi, segir Jóse, aðspurður um það hvort fleiri Hondúrasbúar séu hér, - en ég held að íslendingar búsettir í Hondúras séu 15 tals- ins. Áður en ég kom norður hafði ég ekki talað spænsku í langan tíma. - Við erum held ég ein sjö eða átta frá Kólumbíu hér á landi nú, segir Carlos, - við reynum að halda hópinn eftir því sem það er hægt. Þegar ég bj ó í bænum talaði maður alltaf einhverja spænsku á hverjum degi. Það er öðruvísi að búa hér á Akureyri en í Reykja- vík - hér er allt smærra í sniðum og viðkunnanlegra. En hvernig gengur þeim fé- lögum að fylgjast með gangi mála heimafyrir svo fjarri ættlandinu? Jóse segir að það sé ekki auðvelt um vik. - Það er helst að maður fái einhverjar fregnir af ástandinu heima fýrir þegar ég hringi í mömmu. Þá sjaldan minnst er á Hondúras í fréttum íslenskra fjölmiðla er það í sam- bandi við kontraliða'eða hörm- ungar. Víst eru bandarísk áhrif mikil í Hondúras og lega landsins sem næsti nágranni Níkaragua og E1 Salvador setur vitanlega mark á þjóðlífið. Hins vegar eru lands- menn ekki varir við nærveru kontranna nema einungis í landa- mærahéruðunum er liggja að Níkaragua. - Kólumbía er allt öðruvísi en sú mynd sem dregin hefur verið upp af landi og þjóð að undan- förnu í fréttum. Þarna er líka fag- urt mannlíf, því má ekki gleyma, segir Carlos og hitnar auðsjáan- lega í hamsi þegar talið berst að kókaínfurstum og þeirra þýi. - Baráttan gegn kókaíninu er ekki bara mál Kólumbíumanna og Suður-Ameríkana, heldur einnig Bandaríkjamanna, segir Carlos og minnir á þá augljósu staðreynd að veldi Medelíns- hringsins væri ekki það sem það er í reynd ef ekki nyti við tengi- liða norðan Ríó-Grande. ÞJÓDA R SRMIG NÝ HÁRNÁKVÆM SÖGUSKYRJNG OMARS. Æringinn ÓMAR RAGNARSSON tekur bakföll inn á sögusviöiö og þeysir meö okkur 30 ár aftur í tímann. Ekkert er heilagt og engum hlíft - höfðingjar reynast hrekkjalómar og kennimenn kroppar. - Þetta er Omar eins og hann reynist óútreiknanlegastur. Til fulliingis Ómari eru: Arftaki hláturvélarinnar HEMMI GUNN.: Næturgalinn Ijúfi HELGA MOLLER: Læknir- inn tónelski HAUKUR HEIÐAR: LEYNIGESTUR og hljómsveitin EINSDÆMI sem heldur uppi dúndrandi stemmningu langt fram á nótt. LISTAGOÐUR MATSEÐILL (Val a rettum.) MIÐAVERÐ (m. mati 3600 kr. Húsiö opnar kl. 19 KOSTABOÐ: Aðgöngumioi með mat og gisting í eina nótt i tveggja manna herbergi með rhorgunmat 5150 á mann ( Gildir jafnt fyrir borgarbúa sem aðra landsmenn )

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.