Þjóðviljinn - 13.10.1989, Síða 19
Einfaldleiki í yfirstærð
Stefán Axel: Reyni að skapa andrúm með stærðinni
Stefán Axel Valdimarsson
sýnir þessa dagana níu stórar
myndir í austursal Kjarvalsstaða;
valin verk frá undanförnum fjór-
um árum. Þetta er fjórða einka-
sýning Stefáns Axels og önnur
hér á landi, en hann býr nú og
starfar í Rotterdam, Hollandi.
- Ég fór til framhaldsnáms við
Jan Van Eyck Akademie í Maast-
richt eftir að ég lauk Myndlista-
og handíðaskólanum 1984, segir
hann. - Ég var í Maastricht í tvö
ár og sótti síðan um starfsstyrk til
hollenska ríkisins. Ég átti alls
ekki von á að fá þennan styrk og
var kominn aftur hingað, en þá
var mér úthlutað ársstyrk fyrir
árið 1987. Ég flutti til Rotterdam
haustið 1987 og hef verið þar síð-
an.
- í þessum myndum sem ég
sýni hér eru að grunni til einföld
symmetrísk form. Mínar myndir
hafa stækkað eftir því sem formin
hafa einfaldast. Með stærðinni
reyni ég að skapa andrúm; lítil
væri svona mynd bara dauður
hlutur en stór hefur hún mögu-
leika á að verða að lifandi
stemmningu. Ef ég væri til dæmis
með lítinn ferning sem ég málaði
rauðan, væri hann ekkert annað
en rauður ferningur, í yfirstærð
yrði hann hinsvegar að rauðu
andrúmi.
Hvernig stóð á því að þú settist
að í Rotterdam, er hún eitthvað
sérstök listaborg?
- Til að byrja með varð Hol-
land fyrir valinu fyrst og fremst
vegna þess hvað það er miðsvæð-
is. Aðalatriðið fyrir myndlistar-
menn sem héðan koma er að geta
farið sem víðast og séð sem flest-
ar sýningar áður en þeir fara aftur
til Islands, og frá Hollandi er til
dæmis stutt til Kölnar, Dussel-
dorf og Parísar.
- Rotterdam er að vísu frekar
köld vinnuborg, en maður fær að
vera í friði. Mér líkar vel að vera
þar, þar er ekki þessi erill sem er í
Amsterdam, sem er eins konar
hanastélsborg. Rotterdamborg
er hinsvegar að breytast, þar er
nú stöðugur straumur ungra lista-
manna því þar er enn auðvelt að
fá vinnustofu. Þar að auki fer þar
nú fram mikil uppbygging í
menningarlífinu, sem styrkt er af
hinu opinbera.
Hvað er framundan hjá þér?
Verðurðu áfram í Hollandi?
- Ég verð næst með sýningu í
janúar-febrúar á næsta ári, í gall-
eríi sem ég er í sambandi við í
Stefán Axel: Lítil væri svona
mynd bara dauður hlutur. Mynd -
Jim Smart.
Rotterdam. Það er gallerí sem
hefur tekið að sér að sýna verk
mín og kynna mig, maður verður
að hafa einhvern svona á bak við
sig, það er eini grundvöllurinn
fyrir því að geta verið þarna
áfram.
- Ég verð í Rotterdam á með-
an fjárhagurinn leyfir, annars
kem ég bara beint hingað á sjó-
inn, það hef ég gert áður. En Hol-
land er gott land fyrir myndlistar-
menn þótt ég sakni auðvitað ís-
lands. Hollenska flatneskjan get-
ur orðið þreytandi til lengdar.
LG
Bældar ástríður í Andalúsíu
Leikfélag Akureyrar frumsýnir Hús Bernörðu Alba
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
annað kvöld Hús Bernörðu Alba
eftir Federico García Lorca, undir
leikstjórn Þórunnar Sigurðardótt-
ur. Þýðinguna gerði Einar Bragi,
sem þýddi verkið upphaflega fyrir
sýningu Leikfélags Reykjavíkur
árið 1966, en endurskoðaði hana
frá grunni í tilefni þessarar sýn-
ingar. Búninga og leikmynd gerir
danskur hönnuður, Charlotte
Clason, um tónlistarflutning sér
Pétur Jónasson gítarleikari og
lýsingu annast Ingvar Björnsson,
Ijósameistari LA.
Federico García Lorca fæddist
í Fuente Vaqueros 1898. Hann
var við tónlistarnám hjá Antonio
Segura og Manuel de Falla, og
lærði seinna lögfræði, heimspeki
og bókmenntir í Granada, Ma-
drid og við Columbia University í
New York (1929-30). Hús Bern-
örðu Alba er síðasta leikrit hans,
en hann var myrtur af fasistum í
Granada árið 1936, Lorca var
jafnvígur á leikrit og ljóð og tal-
inn mesti skáldsnillingur Spán-
verja á þessari öld. Hann var
aldrei flokksbundinn og tók ekki
beinan þátt í stjórnmálum, en sú
frelsisþrá og óbeit á öllu sem
spillt er og rotið, sem fram kemur
í verkum hans gerðu hann að
átrúnaðargoði alþýðu Spánar og
jafnframt að upplögðu fórnar-
lambi fasískra valdaræningja.
í Húsi Bernörðu Alba segir af
ekkjunni Bernörðu, fimm dætr-
um hennar, vinnukonum og öðr-
um konum sem heimilinu tengj-
ast. Leikurinn gerist í kæfandi
sumarhitum í þorpi í Andalúsíu,
Bernarða er nýorðin ekkja í ann-
að sinn, þóttafullur heimilisharð-
stjóri, sem heldur dætrum sínum
og vinnukonum í helgreipum
drambs og drottnunargirni. Dæt-
urnar, sem eru á aldrinum frá tví-
tugu til fertugs engjast undir járn-
hæl móðurinnar, sem hefur
steinrunnar siðareglur í háveg-
um. Af uppeldinu eru þær fávís-
ar, öfundsjúkar og slaðurgjarnar
og lifa af fangavistina með enda-
lausum draumum um lífsins lysti-
semdir og forboðnu ávexti, -
karlmenn.
Búninga- og leikmyndahönn-
uður sýningarinnar Charlotte
Clason var um árabil yfirmaður
búningadeildar Konunglega leik-
hússins í Kaupmannahöfn. Hún
hefur hannað búninga og leik-
myndir fyrir fjölda leiksýninga,
balletta og kvikmynda, svo
eitthvað sé nefnt, bæði í Dan-
mörku og öðrum Evrópu-
löndum. Búningar og leikmynd
Bernörðu Alba er fyrsta verkið
sem hún hefur verið fengin til að
vinna hér á landi, en fyrirmynd-
ina sækir hún í leikmynd og bún-
inga sem hún gerði fyrir upp-
færslu á sama verki hjá Konung-
lega leikhúsinu fyrir ári.
Pétur Jónasson stundaði gítar-
nám hér á landi, í Mexíkó og á
Spáni. Pétur er eftirsóttur ein-
leikari og hefur leikið einleik
með kórum og hljómsveitum
víða um heim. Hann tekur nú
þátt í sinni fyrstu sýningu hjá ís-
lensku atvinnuleikhúsi og mun á
sýningunum leika spánska gítar-
tónlist, sem hann hefur útsett og
lagað að verkinu, þar á meðal lög
eftir Lorca og de Falla.
Með hlutverk Bernörðu Alba
fer Sigríður Hagalín, gestaleikari
frá LR. Sigríður hefur tvívegis
áður tekið þátt í flutningi
leiksins, hún lék hlutverk Ágúst-
ínu, elstu dóttur Bernörðu í upp-
færslu Leikfélags Reykjavíkur
1966, og vinnukonu í flutningi
Ríkisútvarpsins á leiknum fyrir
tveimur árum. Með önnur hlut-
verk fara þær Sunna Borg, María
Sigurðardóttir, Guðbjörg Thor-
oddsen, Ingunn Jensdóttir, Krist-
jana Jónsdóttir, Þórey Aðal-
Sigríður Hagalín í hlutverki heimilisharðstjórans Bernörðu Alba.
steinsdóttir, Nanna Ingibjörg Steinunn Ólafsdóttir og Sóley EI-
Jónsdóttir og þrjár nýútskrifaðar íasdóttir.
leikkonur: Elva Ósk Ólafsdóttir, LG
HELGARMENNINGIN
Föstudagur 13. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - S(ÐA 19