Þjóðviljinn - 17.10.1989, Qupperneq 1
Húseiningar
Enska risafyrirtœkið Butler kannar hvort það borgi sig að reisa risaverksmiðju semframleiðir
þilplötur úr Hekluvikri og gipsi á íslandi. Jón Sigurðsson: Mjög áhugavert mál.
Straumsvík eða Grundartangi koma helst til greina fyrir 14 þúsund fermetra verksmiðjuhús
Það er haustlegt um að litast þessa dagana. Víða á landsbyggðinni er jörð orðin hvít en á suðvesturhorninu rignir að vanda. Mynd Jim Smart.
Reykjavíkurhöfn, Grundartanga
og Helguvíkurhöfn. Helguvíkur-
höfn hefur verið afskrifuð þar
sem ljóst er að herinn mun ekki
veita aðgang að henni. Þá var
Þorlákshöfn inni í myndinni en
hafnaraðstaða þar er ekki talin
fullnægjandi. Þá eru eftir þrjár
hafnir, Straumsvík, Grundart-
angi og Reykjavík. Talið er að
Reykvíkingar muni eiga erfitt
með að útvega 40 þúsund fer-
metra lóð þannig að líklegustu
staðirnir eru annaðhvort
Straumsvíkin eða Grundartangi.
Þótt fulltrúar Butler hafi kom-
ið hingað í viðræður er langt því
frá öruggt að ísland verði fyrir
valinu. Hagkvæmniskönnun
kann að leiða í ljós að ódýrara sé
fyrir fyrirtækið að flytja vikurinn
út óunninn og vinna hann svo í
Skotlandi.
Jón Sigurðsson var spurður að
því hvort rætt hefði verið um
eignarhald á verksmiðjunni.
„Nei, málið er ekki kornið á
það stig en þeir lýstu því yfir að
þeir hefðu áhuga á að eiga sem
stærstan hluta í þessu fyrirtæki og
það skil ég vel. Eftir því að dæma
virðast þeir hafa trú á þessu og
það er jákvætt. En ég vil alls ekki
segja neitt um þessa hlið málsins
á þessu stigi. Vona bara að úr
þessu geti orðið ný útflutnings-
grein. Það er ekki vafi á að þessi
markaður sem um er að tefla,
fyrir allbrunaþolnar plötur, er
stór. Þessar plötur gætu að ein-
hverju leyti komið í staðinn fyrir
asbestplötur sem víða er búið að
banna og ekki eru taldar heppi-
legar manneskjunni. Þarna er þá
möguleiki sem menn eygja í stað-
inn,“ sagði Jón. -Sáf/hmp
Breska risafyrirtækið Butler,
sem hefur sérhæft sig í hvers-
konar húseiningum, leitar nú hóf-
anna hér á landi um að reisa hér
risaverksmiðju sem framleiðir
þilplötur úr Hekluvikri og inn-
fluttu gipsi. Fulltrúar frá fyrir-
tækinu voru hér á landi í síðustu
viku og ræddu þá m.a. við iðnað-
arráðherra og fulltrúa Hafnar-
fjarðar, en Kapeliuhraun fyrir
ofan Straum er einn af þeim stöð-
um sem koma til greina undir
verksmiðjuna.
Hér er ekki um neina smá-
verksmiðju að ræða því fulltrúar
Butler eru að leita að 40 þúsund
fermetra lóð undir verksmiðj-
una, en sjálft verksmiðjuhúsið
verður um 12 þúsund fermetrar
að stærð. Þilplöturnar á að flytja
á markað í Bretlandi og er áætlað
að árlegur útflutningur verði um
18 farmar með skipi á stærð við
Lagarfoss. Talið er að verksmiðj-
an muni veita um 60-70 manns
atvinnu þegar hún er komin í
fulla framleiðslu.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra sagði við Þjóðviljann í gær
að sér sýndist þetta mál vera
mjög áhugavert en það væri þó
enn á byrjunarstigi.
„Butler er mjög umsvifamikið
fyrirtæki, bæði sem byggingafyr-
irtæki og söluaðili á byggingar-
efnum. Það er m.a. kaupandi að
steinull frá Steinullarverksmiðj-
unni á Sauðárkróki og þeir vita
því hvernig viðskipti við íslend-
inga ganga fyrir sig og hafa áhuga
Ö að finna grundvöll fyrir þessa
verksmiðju í samvinnu við ís-
lendinga. Ég tel þetta mjög
áhugavert og vona að úr þessu
geti orðið arðvænlegt fyrirtæki,
en það er náttúrlega þeirra sem
að þessu standa að meta það,“
sagði Jón.
Ástæðan fyrir því að Butler
rennir hýru auga til íslands er
Hekluvikurinn. Slíkur vikur
þekkist bara á þremur stöðum í
veröldinm, við Heklu, í Kenýa og
á Ítalíu. Italir hafa bannað út-
flutning á vikri og því leita Bret-
arnir til íslendinga.
Fyrirtækið þarf að hafa aðgang
að góðri höfn þar sem ætlunin er
að dæla gipsefninu beint úr skipi
inn í verksmiðjuna. Telja Bret-
arnir fjórar hafnir koma til
greina, höfnina við Straumsvík,
VMSÍ
Steingrímur
heimsóttur
á morgun
Stjórn Verkamannasambands-
ins ætlaði að hitta forsætisráð-
herra í byrjun þessarar viku en
nú er ljóst sá fundur verður ekki
fyrr en á morgun, miðvikudag.
„Ég fagna því að þeir hafa ósk-
að eftir fundi og er ekki alveg
búinn að tímasetja hann. Ég vil
að sjávarútvegsráðherra verði
líka heima því þeir hafa sam-
þykkt svo ýtarlegar hugmyndir í
sjávarútvegi. Halldór kemur á
þriðjudag svo ég býst við að fund-
uripn verði á miðvikudag eða
fimmtudag," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
við Þjóðviljann í gær. hmp
Sjá brennidepil um VMSÍ þingið
á síðu 3
Fiskveiðistefnan
Kvóti bundinn veðböndum
Sigurður Viggósson: Bankar og lánastofnanir hafa ekki gert neina athugasemd um
veðhæfni skips þótt skuld þess sé hœrri en sem nemur húftryggingu. Verðgildi skipa miðast
við stœrð kvótans. Arthúr Bogason: Verið að rótfesta kvótakerfið á þennan hátt
Þó að „nytjastofnar á íslands-
miðum séu sameign þjóðar-
innar“ eins og stendur í fyrstu
grein laga um stjórnun flskveiða
og ítrekað er í nýútkomnum
frumvarpsdrögum um sama efni
sem lagt verður von bráðar fyrir
Alþingi, líta bankar og lánastofn-
anir á kvótann sem eign útgerðar-
manna og taka veð í honum sé
skuld þeirra meiri en sem nemur
húftryggingu viðkomandi skips.
Að sögn Sigurðar Viggóssonar
stjórnarmanns í útgerðarfyrirt-
ækinu Stöpum á Patreksfirði og
fyrrverandi stjórnarformanns
Hraðfrystihúss Patreksfjarðar
veit hann dæmi þess að bankar og
lánastofnanir hafi ekki gert neina
athugasemd um veðhæfni skips
þó svo að skuld þess sé hærri en
sem nemur húftryggingunni. Þar
með er litið á kvótann sem
fullgildan og veðhæfan hlut eins
og hverja aðra eign út frá
beinhörðum viðskiptasjónarmið-
um. Enda sé það á tæru frá því
kvótinn var settur í lög og hann
bundinn skipi að verðgildi þeirra
miðast ekki einvörðungu við þau
heldur hversu mikill kvóti þeirra
er' v
„Þeir sem eiga lélegt skip en
mikinn kvóta fá meiri fyrir-
greiðslu í bankakerfinu en þeir
sem eiga gott skip en lítinn kvóta.
Þannig að við sem erum að berj-
ast gegn kvótakerfinu erum ekki
aðeins að slást við andstæðinga
okkar innan hinna ýmsu
hagsmunahópa í sjávarútvegi og
innan stjórnmálaflokkanna held-
ur einnig við allt banka- og pen-
ingakerfið sem er á fullu við að
verja kvótann sökum þeirra gríð-
arlega miklu hagsmuna sem það á
nú þegar að gæta í núverandi
kerfi," sagði Sigurður Viggósson.
Undir þetta sjónarmið tekur
einnig Arthúr Bogason formaður
Landssambands smábáta-
eigenda: „Þetta er aðalmálið
varðandi kvótann í dag og baráttu
við að koma honum í burtu. Með
þessari aðferð að binda kvótann
veðböndum er verið að rótfesta
hann hér og það er sá þáttur sem
við höfum mestar áhyggjur ai
sem erum honum andvígir,“
sagði Arthúr Bogason.
Arthúr sagði það vera umhugs-
unarefni fyrir alla að á sama tíma
og gagnrýni á kvótakerfið væri
alltaf að aukast og brotalamii
þess sífellt að koma betur í ljós
slægju hagsmunahóparnir og
stjórnvöld skjaldborg um kerfið j
frumvarpsdrögunum með það
markmið að geirnegla hann niður
um óköminn aldur.
-grh
Erlendur risi leitar hófanna
Munið byggingarhappdræ